Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
49
„Komdu nú að
kveðast á... “
Bama-DV er besta blað.
Það er alveg frábært.
Ég fer oft með það í bað.
Það engan getur sært.
Erla Björg Gunnarsdóttir,
10 ára, Úlflj ótsvatni.
Ég kann ekki að smala.
Ég kann varla að tala.
Ég er með hala
ofan í bala.
En ég kann víst annað
sem kannski er bannað.
Það verður ei sannað
að það sé óbannað.
Sindri Hreinsson,
Faxatröð 6, Egilsstöðum.
Lítill hvalur
Taktu útlínur litla hvalsins í gegn á annað blað, nokkuð
stífan pappír (helst vaxborinn). Litaðu hvalinn og klipptu
hann síðan út.
Alveg eins ferðu að með hringinn.
Biddu einhvern fullorðinn um að hjálpa þér að skera rauf-
ina B og stingdu hvalnum svo í hana. Nú getur hvalurinn
flotið í baðkerinu eða í litlu fati.
/. A N
<2. G A (3Í
3. N A
Magnús Gunnlaugsson, Hrannarbyggð 20 á Ólafsfirði,
sendi okkur þessa þraut. Þið eigið að setja stafi í eyðurnar
þannig að út komi kvenmannsnöfn. Hver eru þau?
Sendið svar til: Barna-DV.
Oddný Svana Friðriksdóttir, 9 ára,
Bleiksárhlíð 15, Eskifirði.
Kveðjur
Ég ætla að senda Ingu Heiðu
kveðju og vona að hún skemmti
sér vel með kanínunni.
Sigríður Þuríður
Jónasdóttir,
Neðstaleiti 16 i Reykjavík.
Mig langar að senda kveðjur
til pennavinkvenna minna. Þær
heita Elva, Kristín, Björg, Anna,
Jóhanna, Guðmunda og Lilja.
Einnig sendi ég kveðju til As-
laugar vinkonu minnar í Ysta-
seli 27.
Valgerður D. Heimisdóttir,
Laxakvísl 5, Reykjavík.
Mig langar að senda kveðju
til Alla, Elínborgar og Jónu í
Kópavogi. Einnig til Gumma á
Húnavöllum. Til hamingju,
Gummi, með bikarinn. Svo mega
allir sem þekkja mig eiga af-
ganginn af kveðjunni.
Maria Jóna Gunnarsdóttir,
Ránarbraut 14, Skagaströnd.
Ég sendi stuðkveðjur til allra
krakkanna sem voru í sumar-
búðunum á Hólum 6. til 11. júní
og svo auðvitað til Kalla, Rósu,
Melkorku og Eiríks. Ég sendi
líka kveðjur til Ásdísar í Hvera-
gerði og Lilju í Reykjavík. Svo
fá allir hinir sem ég þekki af-
ganginn.
Jórunn Sigurðardóttir,
Sauðárkróki.
Tilkynning
Ég verð að biðja allar penna-
vinkonur að hætta að skrifa mér
því næsta vetur get ég ekki ver-
ið að skrifa þeim því ég verð að
fara í skólann fyrir hádegi og
líka eftir hádegi. í sumar fer ég
í ferð um landið. Pennavinkonur
mínar heita Berglind, Eygló,
Alma og Guðbjörg.
Berglind Ósk,
Siglufirði.
HITT!
Tvær eins
Hvaða tvær mýs eru alveg eins?
Sendið lausn til: Barna-DV
Hvað er í nestiskörfunni hennar mömmu?
BR. " . 1. KA ^'
SM . . . * LU
os. • • sy. ..
TÖ EP. .
A6 AP.
KÆ.. . BA
SU . . . ví.. ..
MJ . . . GO.
Mamma skrifaði lista yfir allt sem hún tók með
- en hér sjást bara fyrstu stafirnir!
Geturðu lokið við orðin og sagt okkur hvað er í körfunni?
Sendið svar til: Barna-DV.