Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1988, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988.
5
Fréttir
Úrelding sláturhúsa:
Kostar yfir 100
milljónir króna
- segir Jón Helgason landbúnaðarráöherra
„Meiningin er sú aö þetta spari
peninga og ég hef rætt þetta viö
verðlagsstjóra sem,er formaöur í
fimm manna nefnd sem ákveður
slátur- og heildsölukostnað en
nefndin hefur bent á hagræöingu
með betra skipulagi. Eftir slátur-
húsaskýrslunni svokölluðu eru
þetta um 20 hús sem gert er ráö
fyrir að þyrftu það miklar endur-
bætur til að standast kröfur sam-
kvæmt lögum og reglugerð að end-
urbætur væru ekki skynsamlegar.
Við áætlum að kostnaður við úreld-
ingu þeirra verði rúmlega 100 millj-
ónir króna. Þetta er hins vegar til-
boð og við vitum ekki með við-
tökumar," sagði Jón Helgason
landbúnaðarráðherra.
Eins og fram hefur komið í DV
hefur landbúnaðarráðuneytið sent
þeim sláturhúsum bréf sem slátr-
uðu samkvæmt undanþáguheim-
ild. Er sláturhúsunum boðið upp á
framlag til úreldingar sláturhús-
anna sem nemur bókfærðu verði
fasteigna (ekki lóða) og sérstaks
búnaðar til slátrunar, auk 10 króna
á hvert kíló kinda- og nautgripa-
kjöts sem að meðaltali var vegið
inn í viðkomandi sláturhús síöast-
hðin 5 ár. Bótagreiðslur skiptast
nður á þrjú ár og verða greiddar
af verðmiðlunargjaldi.
Jón Helgason landbúnaðarráð-
herra sagði að reiknað yrði með
því að viðbót við verðmiðlunar-
gjaldið vegna úreldingarinnar yrðu
tæplega 2 krónur á kílóið af kjöti.
„Við reiknum með að með því að
fækka húsunum muni önnur slát-
urhús fá fleiri kindur til slátrunar
til að standa undir fóstum kostn-
aði. Þannig muni sláturkostnaður
í heild lækka þegar fram í sækir,
þegar slátrunin deilist á milh færri
aðila,“ sagði Jón Helgason. JFJ
Afli Karls Bretaprins og vina hans borinn í vélina sem flutti þau tii síns
heima. Á innfelldu myndinni sést Karl Bretaprins, sá aflahæsti í hópnum.
DV-mynd Sveinn
Konunglegi hópurinn með 52 laxa 1 Kjarrá
Karifékk
sjálfur 11 laxa
Alvarlegt ástand:
Fjóldi frystihúsa
þegar gjaldþrota
„Karl Bretaprins var rosalega
hress með veiðitúrinn í Kjarrá og
þetta er veiöiá sem hann mætir í
næsta sumar, fái hann fararleýfi,
sjálfur veiddi hann 11 laxa, alla á
flugu,“ sagði tíðindamaður um hoh
Karls Bretaprins í Kjarrá í Borgar-
firði.
En mikh leynd hefur hvílt yfir afla-
tölum en allt hollið veiddi 52 laxa á
ýmsar flugur. „Stærsti laxinn sem
Karl veiddi var 14 pund en vinur
hans veiddi einn 18 punda. Karl
Bretaprins var aflahæstur í hollinu.
„Þetta var fín veiði og hinir erlendu
gestir voru hressir með þetta," sagði
tíðindamaður ennfremur.
G.Bender
Suðurlandsbraut:
Breikkuð
um helming
Nú er unnið að því að breikka Suð-
urlandsbraut á milh Reykjavegar og
Álfheima. í október á verkinu að
verða lokið. Þá verða tvær akgreinar
í hvora átt frá Álfheimum að
Kringlumýrarbraut.
Suðurverk átti lægsta tilboðið í
verkið. Tilboð þess hljóðaði upp á
36,2 mihjónir króna. Kostnaðaráætl-
un var tæpar 42 milljónir. Thboð
Suðurverks er 86 prósent af kostnað-
aráætlun. -sme
Búast má við að nokkur frystihús,
sem sum hver eru einu atvinnutæki
viðkomandi byggðarlags, verði gjald-
þrota innan tíðar. Þá mun koma í
ljós hvort eignir þessara húsa seljist
á almennum markaði
í DV í gær lýsti Jón Baldvin
Hannibalsson því yfir að ríkisstjóm-
in myndi ekki bjarga þeim fyrirtækj-
um í sjávarútvegi sem verst stæðu.
Eðlhegast væri að þau færu á haus-
inn, nýir aðilar keyptu eignimar og
hæfu rekstur á nýjum grunni.
í DV hefur verið greint frá nokkr-
um af þeim húsum sem verst standa.
Þannig munu Fiskiðjan Freyja á Súg-
andafirði, Hraðfrystihús Patreks-
fjarðar, Einar Guðfinnsson í Bolung-
arvík, Kaupfélag Dýrfirðinga á Þing-
eyri, Meitillinn í Þorlákshöfn og
Hraðfrystihús Keflavíkur st^nda
mjög tæpt.
En það eru fleiri hús sem standa
iha. Þannig mun útgerðin á ísafirði
halda uppi frystihúsunum þar.
Frystihúsin á Eyrarbakka og Stokks-
eyri standa hla. Sömuleiðis Heima-
skagi á Akranesi.
í raun er auðveldara áð telja upp
þau frystihús sem standa vel. Utgerð-
arfélag Akureyringa, Kaupfélag
Austur-Skaftfehinga, Kaupfélag Fá-
skrúðsfiarðar, Frosti á Súðavík og
Hraðfrystihúsið í Hnífsdal eru meðal
fárra frystihúsa sem heimildarmenn
DV treysta sér th að segja að standi
vel.
Flest önnur frystihús ramba á
barmi gjaldþrots. Mörg þeirra em
þegar gjaldþrota. Eignir þeirra duga
ekki fyrir skuldum.
-gse
1988
Kæliskápar * frystiskápar * frystikistur.
VFDniX
gæði
á verði sem kemur þér notalega á óvart
Kæliskápar án frystis, 6 stærðir
Kæliskápar með frysti, 6 stærðir
K 130
130 ltr. kælir
K 200
200 ltr. kælir
K 180
173 ltr. kælir
K 285
277 ltr. kælir
K395
382 ltr. kælir
KF120
103 ltr. kælir
17 ltr. frystir
KF195S
161 ltr. kælir
34 ltr. frystir
KF233
208 ltr. kælir
25 ltr. frystir
KF250
173 ltr. kælir
70 Itr. frystir
KF355
277 ltr. kælir
70 ltr. frystir
KF 344
198 ltr. kælir
146 ltr. frystir
Dönsku GRAM kæliskáparnir eru níðsterkir, vel einangraðir og því sérlega sparneytnir. Hurðin er alveg einstök, hún er massíf (nær óbrjótanleg) og
afar rúmgóð með málmhillum og lausum boxum. Hægri eða vinstri opnun. Færanlegar hillur, sem einnig má skástilla fyrir stórar flöskur. 4-stjörnu
frystihólf, aðskilið frá kælihlutanum (minna hrím). Sjálfvirk þíðing. Stílhreint og sígilt útlit, mildir og mjúkir litir.
4-stjörnu frystiskápar með útdraganlegum
skúffum, 5 stærðir
t!I»**I 4-stjömu frystikistur,
fullinnréttaðar
ossM \ ■ ■ llMH m
m m H
VAREFAKTA, vottorð dönsku
neytendastofnunarinnar, um kælisvið,
frystigetu, einangrun, gangtíma vélar
og orkunotkun fylgir öllum GRAM tækjum.
GRAM frá FÖNIX = gæði á góðu verði.
Góðir skilmálar - Traust þjónusta.
FS100 FS175 FS146 FS240 FS330
100 ltr. frystir 175 ltr. frystir 146 ltr. frystir 240 ltr. frystir 330 ltr. frystir
HF 234 HF 348
234 ltr. frystir 348 ltr. frystir
HF 462
462 ltr. frystir
/rQ nix
ábyrgð
í 3ár
/FOnix
Hátúni 6A SiMI (91)24420