Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1988, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988.
7
Fréttix
Heimshlaup ’88 veki athygli á slæmri stöðu bama í heiminum:
Vonast eftir 15 þúsund
þátttakendum í Reykjavík
- sjónvarpað frá hlauplnu belnt um allan heim
„Við vonumst eftir 15 þúsund
þátttákendum í heimshlaupinu í
september. í Afríkuhlaupinu 1986
voru 17 þúsund sem hlupu. Sá góði
árangur réð miklu um að Reykja-
vík verður ein þeirra 23 borga það-
an sem sjónvarpað verður beint frá
hlaupinu í ár,“ sagði Ólafur Odds-
son.hjá Rauða krossi íslands við
DV.
Ólafur er framkvæmdastjóri
Heimshlaupsins ’88 sem fer sam-
tímis fram í fjölmörgum löndum
heims hinn 11. september næst-
komandi. Hafa 124 lönd þegar til-
kynnt þátttöku sína.
Hlaupiö hefst í Lækjargötunni og
mun leiðin liggja um Skothúsveg,
Hringbraut, Ananaust, Mýrargötu
og Tryggvagötu og enda í Lækjar-
götunni. Þessi hringur er um 10
kílómetra langur en hver einstakur
þátttakandi hlaupsins ræðiu- hvort
hann hleypur, skokkar eða gengur
allan hringinn eða hiuta hans. Að-
aláherslan er lögð á að sem flestir
verði með. Verða seld þátttöku-
númer í hlaupið á 200 krónur
stykkið en ekki hefur verið ákveðið
hvemig eöa hver mun sjá um sölu
þeirra.
Markmið þessa hlaups er aö
vekja athygli á slæmri stöðu barna
um allan heim, sérstaklega í þriðja
heiminum. Samkvæmt reglum
samtakanna, sem að hlaupinu
standa, Sport Aid, munu 80 prósent
innsafnaðs fjár renna til aðstoðar
bömum utanlands en 20 prósent til
innanlandsverkefna. Ráðstafar
„Child Alive“, verkefni Alþjóða
Rauða krossins sem herst gegn
barnadauða af völdum niðurgangs
og barnasjúkdóma, söfnunarfénu
sem fer til útlanda. Á íslandi mun
söfnunarféð renna til áframhald-
andi þróunar á starfsemi Rauða-
krosshússins í Tjarnargötu þar
sem er neyðarathvarf fyrir börn
og unglinga. -hlh
Sorpeyðingarstöð Suðumesja:
Herinn borgar helming
Bandaríski herinn borgar rúmlega
helming af brennslukostnaði Sorp-
eyðingarstöðvar Suöurnesja. Sorp-
eyðingarstöðin er í eigu sveitarfélag-
anna sjö á Suðumesjum og var hún
stofnuð 1979.
Að sögn Eiríks Alexanderssonar,
formanns Sambands sveitarfélaga á
Suðumesjum, borgar herinn fyrir
hvert tonn af rusli sem er brennt í
Sorpeyðingarstöðinni. Á síðasta
reikningsári Sorpeyðingarstöðvar-
innar, sem er tímabilið 1. október til
31. september, það sama og reikings-
ár hersins, borgaði bandaríkjaher
rúmar 11 milfjónir íslenskra króna
fyrir sorpbrennslu.
Sveitarfélögin á Suðumesjum
skipta afganginum af kostnaðinum á
milli sín, og fer skiptingin eftir íbúa-
fjölda.
Eiríkur segir að nú standi yfir við-
ræður um stækkun Sorpeyðingar-
stöðvarinnar og fer niðurstaðan á
þeim viðræðum meðal annars eftir
því hve mikið msl mun falla til frá
hemum á næstu ánun.
Þriðjungur af tekjum
Hitaveitunnar
Síðasta áratuginn hefur það færst
í aukana að Bandaríkjaher notfæri
sér þjónustu sem sveitarfélögin á
Suðumesjum reka í sameiningu.
Þannig kaupir herinn heitt vatn af
Hitaveitu Suðurnesja og notar til
húshitunar. Júlíus Jónsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Hita-
veitunnar, segir að rúmur þriðjung-
ur tekna Hitaveitunnar komi frá
hemum. í ár mun herinn borga um
350 milljónir til Hitaveitunnar.
Herinn nýtur góðs af þjónustu
Heilbrigðisfulltrúa Suðumesja og í
gildi er samningur við Brunavarnir
Suðurnesja um gagnkvæma aðstoð.
Þá er sameiginlegt eftirht með fjár-
girðingmn á svæðinu. pv
Prestar til sveita:
Hafa allt að einni milljon
vegna hlunninda af jörðunum
- einnlg dæmi til um kostnaöarsamar jarðir
Nokkur prestsetra á landsbyggð- umsækjendur em um þau preSta-
inni gefa af sér háar fjárhæöir köll þegar þau losna.
vegna hlunninda sem fylgja jörð- Hitt þekkist líka aö prestar þurfi
unum. Dæmi em um að prestar fái að leggja í töluverðan kostnað
allt að einni milfjón árlega vegna vegna kirkjujaröa sem þeir sifja án
sölu á veiðileyfum. Þau prestaköll þess að tekjur komi á raóti. Þar
sem njóta mestra hlunnindagre- vegur þyngst viðhald húsa, girð.
iöslna losna sjaldan og margir inga og fleira. -sme
Kirkjan flutt á tengivagni á leið til skips á Höfn. DV-mynd Ragnar
Kirkja vamaif iðsins fluttfrá Stokksnesi
Júlía Imsland, DV, Höfn;
Kirkja vamarhösins á Stokksnesi
var flutt með Ríkisskip til Reykjavík-
ur og síðan til Sandgerðis. Um 30
hermenn eru ennþá á Stokksnesi en
verða farnir í ágústlok. Ratsjárstofn-
un hefur tekið við rekstri stöðvar-
innar á Stokksnesi og vinna þar 14
menn á hennar vegum.
Franski friðarsinninn Jaques Suchet selur plaköt til að fjármagna friðar- og líknarstörf. DV-mynd Hanna
Friðarsmni selur plaköt:
ÆUar sér að safna
100 þúsund krónum
- sem nota á til að bjóða fötluðum íslendingi í ferðalag
Frakkinn Jaques Suchet sameinar
friðarstarf og líknarmál með sölu á
plakötum. Hann er staddur hér á
landi þessa dagana og býður lands-
mönnum aö kaupa plaköt eftir sig,
en ágóðinn á að fara í það að bjóða
fötluðum íslendingi í feröalag. Suc-
het ætiar að safna 100 þúsund krón-
um og draga úr aðsendum umsókn-
um um ferðastyrk handa fótluðum
manni eða konu.
Suchet sagði í samtali við DV að
hann ynni tvíþætt starf. Annars veg-
ar er þaö undirbúningur að friðar-
hátið á þjóðhátíðardegi Frakka, 14.
júlí á næsta ári, en þá verður mikið
um dýrðir í Frakklandi vegna 200 ára
afmæhs byltingarinnar. Suchet vill
gera byltingarafmæhð að hátíö ljóss
og friðar. I því skyni býður hann
háum sem lágiun, þjóðhöfðingjum
sem alþýðú, á friðarhátíð undir kjör-
orðinu: Hættum leik litlu dátanna.
Hinn meginþátturinn í starfi Suc-
hets er líknarmál. Hann hannar og
framleiðir plaköt sem hann selur
hveijum sem vill og ágóðann notar
Suchet til að styrkja fatlaða til ferða-
laga. Undanfarið hefur Suchet verið
í Norgi og gefiö mörgum fótluðum
Norðmönnum peninga til að ferðast.
Suchet sagðist ætla að draga úr
umsóknum um ferðastyrk á þriðju-
daginn næstkomandi. Þeir sem vúja
senda inn umsókn geta sent kort eða
bréf tii Suchets í gegnum Póstmið-
söðina, Ármúla 25.
pv
■M m ■
Forseti i opmoen i neim-
** m * sokn i ■ Húnavatm ssvslur
Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogádóttir fer í opinbera heimsókn í Húnavatnssýslur dagana 25.-28. ágÚSt. Kemur forseti að sýslumörkum við Hrútatjarðará klukkan 11.00 ■ liVIIMVMIIIi fimmtudaginn 25, ágúst Gistir for- seti eina nótt í Vertshúsinu á Hvammstanga ,og tvær nætur á hótelinu á Blönduósi. Veröa fjöldamargir sögufrægir og nátturufagrir staðir skoöaðir í wl wl 1 ferðinni Verður opið hús og kaffi- veitingar á fjölmörgum stöðum í sýslunni og mun forseti víða nota tækifæriö til að planta tijám. Lýkur heimsókninni seinni part- inn þann 28. ágúst -hlh