Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1988, Qupperneq 30
,30
ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988.
LífsstOI
Garðyrkja er gott veganesti:
Olga verkstjóri lumar nokkrum salatblööum til Ástrósar á meðan litli maðurinn, Daði, býður öllum gómsætar radísur.
Skólagarðar Reykjavíkúr eru nú
komnir í mikinn blóma. Ekki verður
langt í að börnin, sem hafa verið iðin
við að rækta garðinn sinn, taki upp
grænmetið og fylli kæliskápinn
heima hjá sér.
Sigríður Bragadóttir, sem hefur
-yfirumsjón með skólagörðum
Reykjavíkur, sagði í samtali við DV
að 700 til 800 krakkar hefðu skráð sig
í skólagarðana í vor en ekki hefðu
allir stundað þá aö fullum krafti.
„Krakkarnir, sem sækja skólagarð-
ana, eru á aldrinum 9 til 12 ára og
eru yfirleitt mjög áhugasamir þó þeir
mæti misvel. Það kemur líka til af
sumarfríum og öðru sem börnin fara
í með foreldrum sínum.
Sigríður sagði að börnin hefðu gott
af því að vinna garðvinnu og hún
væri þeim veganesti inn í framtíðina.
Sælar minningar
Börnin rækta heilmargar græn-
metistegundir, meðal annars sprota-
^kál, betur þekkt sem broccoli, hvít-
kál, blómkál, grænkál, blöðrukál,
toppkál, dill, spínat, næpur, kartöfl-
ur, skrautkál sem er fallega litt kál
sem oftast er notað til skrauts, eins
og nafnið ber með sér, og fleira.
Tíðindamaður DV fór á stúfana í
Laugardalinn þar. sem einhverjir
elstu skólagaröar Reykjavíkur eru.
Margur eldri borgarinn á sælar
minningar úr skólagörðum Laugar-
dalsins.
Veðrið var hið besta þennan dag
eftir langvarandi leiöindaveður. Olga
*Bergmann, verkstjóri í Laugardaln-
um, sagði að heldur mikil deyfö hefði
ríkt í skólagöröunum undanfarna
viku vegna veðurfarsins. Einnig
hefðu margir krakkarnir verið í
sumarfríi. En nú þegar DV átti leið
um svæöið var heldur að færast Qör
í leikinn. Fjöldi krakka dundaði sér
við snyrtingu garða sinna og margir
voru þegar.farnir að taka upp græn-
meti. Krakkarnir gátu byrjað að taka
upp sprotakál strax um mánaðamót-
in júní-júlí og alla tíö eftir það enda
er sprettan búin að vera mjög góð
og kálið var hið álitlegasta.
Hlykkjóttar radísur
Einnig var farið að bera nokkuð á
því að krakkarnir væru að narta í
radísur af ýmsum gerðmn. Að sögn
verkstjórans var sáð nokkrum af-
brigðum af radísum í ár og þær komu
upp í mismundandi myndum. Sumar
voru á stærð við stór epli, aðrar voru
aflangar og ein sem var tekin upp
um daginn var með krók í miðjunni.
Jú, það var margar skemmtilegar
myndir hægt að sjá út úr radísun-
um. Einnig voru rófurnar með af-
brigðum góöar í ár, safaríkar og sæt-
ar.
„Uppskeran virðist ætla.að vera
mjög góð í ár miðað við árið i fyrra,“
sagði Olga.
„í fyrra gekk einhver ormaplága
yfir sem eyðilagði mikið af upp-
skerunni. Ég held að það hafi komið
út af hitanum sem var um veturinn.
Þannig að plágan fékk að „grass-
era“.
Krakkarnir eru mjög misduglegir
við að hirða garðana sína. Sumir
koma hér á hverjum degi og hreinsa
upp -arfa og fleira en aðrir koma
kannski ekki nema að vori og svo
ekki aftur fyrr en að hausti."
Skýlir arfinn kálinu?
„Það á að vera leyndarmál en oft
ber svo við að prýðisuppskera verður
í þeim görðum sem lítið hafa verið
hirtir þó að það sé ekki algilt. Arfmn
virðist skýla á einhvern hátt græn-
metinu."
í skólagörðunum í Laugardal, sem
eru skjólsælustu garðarnir í Reykja-
vík, eru 115 garðar sem ýmist eru
notaðir af krökkunum sjálfum eða
starfsfólkinu, þó krakkarnir séu að
sjálfsögðu í meirihluta. Þeir borga
400 hundruð krónur fyrir hvern
garð, sem er 24 fermetrar, og allt efni
sem þeir nota. Svo eru tveir leikja-
dagar í viku, þriðjudagar og fimmtu-
dagar. Þá er gjarnan spilaður fót-
bolti, annars vegar stelpumar og
hins vegar strákarnir. í dag, 16.
ágúst, verður svo haldið allsherjar-
mót í fótbolta fyrir alla þá sem vinna
við skólagarðana.
Góðar einkunnir
í lokin eru svo öllum gefnar ein-
kunnir fyrir frammistöðu sína í
görðunum um sumarið. Og yfirleitt
eru þær með betra móti.
Olga sagði að þrátt fyrir að krakk-
arnir væru ekki yngri en 9 ára væri
oft svo að þeir eldri kæmu með yngri
systkini sín með sér sem hefðu mjög
gaman af að vera með stóru systur
eöa bróður. Þetta er annað sumarið
mitt hér í Laugardalnum. Það er
mjög gaman að vinna með krökkun-
um,“ sagði hún. „Þetta eru yfirleitt
mjög yndislegir krakkar."
-GKr
„Vió erum að drukkna í grænmeti''
- sagði Ástrós Gunnarsdóttir, 11 ára garðyrkjumaður
,S
Þau Rakel, Daði og Ástrós sögðu uppskeruna hjá sér mjög góða. Hér sjást þau tína salat upp sem þau ætluðu að bæta
um kvöldið.
búið hjá mömmu og pabba
DV-myndir KAE
„Viltu radísu?“ spurði Daði Guö-
laugsson, 6 ára snáði, og rétti að
blaðamanni fullar hendur af radís-
um. Blaðamaður þáði að sjálfsögðu
radísurnar með þökkum enda eru
nýjar radísur herramannsmatur.
Daði var þarna kominn með systur
sinni, Ástrósu, 11 ára, sem hafði
stundað skólagarðana undanfarin 3
ár.
Þau sögðu bæði tvö að uppskeran
hefði verið mjög góð hjá þeim og
þetta hefði verið alveg ægilega gam-
an.
Aðspurð hvort það væri ekki alltaf
grænmeti í öll mál hjá þeim svöruðu
þau því játandi. „Við borðum salat
með öllum mat, stundum radísur
líka og rófur,“ sagði Ástrós og bætti
því við að þau væru að drukkna í
grænmeti.
Hvað finnst ykkur best af græn-
metinu?
„Mér finnast kartöflurnar bestar,“
sagði ÁstróS ákveðin, „Ég er með
mest af kartöflum.“
Vinkona Ástrósar, Rakel Garðars-
dóttir, sagði að henni fyndust radís-
urnar bestar. „En ég er ekki í skóla-
görðunum, bara kem með henni,“
sagði hún og benti á Ástrósu.
Eruð þið hérna allan daginn?
„Já, næstum því alla daga. Við
reytum arfa og rökum beðin og svo-
leiðis,“ sagði Astrós.
„Ég kem oft með systur minni og
fmnst ofsalega gaman. Ég ætla
kannski að verða garöyrkjumaður
þegar ég verð stór,“ sagði Daði.
„Ég ætla sko ekki að veröa garð-
yrkjumaður þó að þetta sé ofsalega
gaman,“ sagði Ástrós. „Ég ætla ekki
að vera hér á næsta ári.“
Daði var hins vegar ákveöinn í því
að þegar hann yrði 9 ára ætlaði hann
að fara í garðyrkjuna í Laugardaln-
um. -GKr