Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1988, Síða 40
<<
RÉTTASKO
T I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrifft - Dreiffing: Sími 27022
ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1988.
Margir sækja
um forstjóra-
stöðu ÚA
„Ég hef einfaldlega ekkert u'm mál-
ið að segja,“ sagði Gunnar Ragnars,
forseti bæjarstjórnar Akureyrar og
forstjóri Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri, í morgun um það hvort hann
hefði sótt um stöðu forstjóra Útgerð-
arfélags Akureyringa. Umsóknar-
frestur um stöðuna rann út á mið-
nætti í nótt og er þrálátur orðrómur
á Akureyri um að Gunnar Ragnars
hafi sótt um. Þetta er staða Gísla
Konráðssonar sem er að hætta hjá
ÚA eftir áratugastarf.
Tíu höfðu sótt um í gær. Ekki er
vitað hvort fleiri umsóknir eru á leið-
inni í pósti. Akureyrarbær á 70 pró-
sent í fyrirtækinu og KEA 20 prósent.
Á meðal umsækjenda eru Finnbogi
Jónsson, forstjóri Síldarvinnslunnar
^ Neskaupstað, og Jens Eysteinsson,
markaðssérfræðingur hjá Coldwater
í Bandaríkjunum í mörg ár. -JGH
Morastöðir í Kjós:
„Þetta er ekki
mál fyrir
& almenning"
- segir ráðunauturinn
Mikil leynd hvílir yfir örlögum
svínanna á svínabúinu að Morastöð-
um í Kjós. í DV fyrir helgi var sagt
frá að ákveðið hefði verið að farga
öllum dýrunum vegna þess hversu
illa þau væru á sig komin vegna van-
fóðrunar og lélegrar umhirðu. Brynj-
ólfur Sandholt héraðsdýralæknir
sagði í gær að hann teldi að búið
væri aö farga dýrunum. Hann sagð-
ist hins vegar ekki vita hvort búið
væri að urða dýrin.
Magnús Sæmundsson, hreppstjóri
og oddviti Kjósarhrepps, sagði í gær
að ekki væri búið að farga svinunum
og óvíst væri hvenær það yrði gert.
^ Valur Þorvaldsson ráðunautur var
njótur til svars þegar hann var innt-
ur eftir örlögum dýranna. Hann
sagðist ekkert vilja um þetta ræða.
„Þetta er ekki mál fyrir almenning.
Svar mitt er því svona. No comm-
ent.“ sagði Valur Þorvaldsson.
-sme
SÍMAÞJÓNUSTA
62 42 42
Sjúkrabíll 11100 Lbgreglan 11166
Slökkviliðið 11100 Læknavakt 21230
' i-. . .' ■ • '• . ’ , ’ ''' , . , *
LOKI
Svo mikil getur
niðurfærslan orðið að hún
urði sig sjálfkrafa.
Niðurfærslan er á
ioio ui m ooroinu
- gæti gengið í SovétríkjLmum, segir hagfræðingur Alþýðusambandsins
Eftir mikla skoöun nefndar-
manna í ráðgjafanefnd ríkisstjórn-
arinrtar eru menn nú að hafna niö-
urfærsluleiðinni, samkvæmt heim-
ildum DV. Ástæðan er sú sama og
ætíð áður þegar þessi leið hefur
verið skoðuð. Þó niðurfærslan
gangi upp á pappírunum er ólíklegt
að svo verði í raunveruleikanum.
Henni fylgja ýmis vandamál sem
eru illleysanleg. Ef ráðist verður í
framkvæmd hennar og hún mis-
tekst verða vandamálin, sem við
er að glíma, í raun stærri á eftir.
Þó stjórnvöld geti lækkað laun
meö valdboði er talið ólíklegt að
laun annarra en þeirra sem fá
greitt samkvæmt töxtum og opin-
berra starfsmanna muni í raun
lækka. Lækkun vöruverðs með
lagasetningu þykir slæmur kostur.
Til þess að fylgja því eftir þyrfti
griðarlegt eftirlit. Trú manna á
lækkað vöruverð í kjölfar minni
launakostnaðar verslana minnkar
þegar áhrif tollalækkananna um
áramót eru skoðuð. Ef vöruverö
lækkar ekki nnmu vextir heldur
ekki lækka. Þar með væri niður-
færslan dauð. Einu áhrifin væru
kjaraskerðing hiima lægst launuðu
langt umfram það sem ætlað var
þar sem áætluð vöruverðslækkun
næöi ekki fram aö ganga.
„Niöurfærsluleiðin gengur ein-
faldlega ekki upp í íslenskum veru-
leika. Hún var ef til vill fær árið
1959 þegar sfjómvöld gátu haft beiri
áhrif á vöruverð og fleiri þætti. í
dag er umhverfið allt annað. Hún
gengi kannski í Sovétríkjunum og
þar sem stjörnvöld halda um fieiri
þræði efhahagslífsins en ekki á ís-
landi í dag,“ sagði Ari Skúlason,
hagfræðingur Alþýðusambands-
ins.
Viðbrögð verkalýðshreyfingar-
innar viö hugmyndum um niður-
færsluleiðina hafa verið mjög hörð.
Guömundur J. Guðmundsson,
formaður Verkamannasambands-
ins, sagði í samtali við DV að þaö
yrði ekki látið afskiptalaust af
þeirra hálfu ef 2,5 prósent kaup-
hækkun 1. september yrði tekin af
þeim. í útreikningum á niðurfærsl-
unni er hins vegar gert ráð fyrir
mun meiri lækkun á kaupi eða um
10 prósent.
Ráðgjafanefndin skoðar nú aðrar
leiöir og meðal annars eins konar
sambland af gengisfellingarleið og
niðurfærslu. Eins og fram kom i
DV í gær telur Þórður Friðjónsson,
forstjóri Þjóðhagsstofnunar, þá leið
færa. Einar Oddur Kristjánsson,
formaður ráðgjafanefndarinnar,
sagðist í samtah viö DV enn vera
trúaður á að nefndin skfiaði sam-
hhða áhti um næstu helgi.
-gse
Biðröð við
Gjald-
heimtuna
Þann 15. hvers mánaðar er eindagi
fyrir þá sem sjálfir sjá um að standa
skil á staðgreiðslu skatta. Þá mynd-
ast langar biðraðir fyrir utan Gjald-
heimtuna í Reykjavík og reynir sjálf-
sagt á þolrifin í mörgum að standa í
henni. Sú spurning vaknar í þessu
sambandi hvort ekki væri hægt að
hðka til fyrir staðgreiðslu skattanna
með því að gera fólki kleift að borga
þá með gíróseðlum
DV-mynd S
Stórfelldur ávísanafalsari handtekinn:
Granur um hundrað þúsunda svik
Tuttugu og sex ára gamall maður
var handtekinn í gær eftir að hafa
falsað ávísanir fyrir stórar fjárhæðir.
Maðurinn stal ávísanahefti með
mörgum eyöublöðum á skemmtistað
í Reykjavík um helgina. Honum virð-
ist hafa orðið vel ágengt með að
skipta fölsuðum ávísunum. Grunur
leikur á að hann hafi náð til sín
hundruðum þúsunda með þessum
hætti.
í gærdag kom maðurinn í banka-
útibú í Kringlunni og reyndi að fá
skipt 70 þúsund króna ávísun. Þegar
gjaldkerinn vildi ekki skipta ávísun-
inni tók falsarinn tíl fótanna. Rann-
sóknarlögreglunni var þegar th-
kynnt um athæfi mannsins. RLR
grunaði strax ákveðinn mann. Sá
reyndist vera ávísanafalsar-
inn.
Það fréttist að sá grunaði væri í
leigubíl á leið til Akraness. Lögregl-
unni þar var gert viðvart og handtók
hún manninn og hélt með hann th
móts við RLR. Maðurinn hafði
nokkra tugi þúsunda í fórum sínum
við handtökuna. Þar sem hann var
nokkuð drukkinn hefur lítið verið
við hann rætt. Hann vildi auk þess
htið um athæfi sitt ræða í gær. Rann-
sókn málsins er á frumstigi. Maður-
inn hefur áður komið við sögu lög-
reglunnar.
-sme
FíkmefhamLsferli:
IVeir í varðhaldi
Tveir ungir menn eru nú í gæslu-
varðhaldi vegna tilrauna th að
smygla fíkniefnum. Mennirnir höfðu
gleypt smokka sem innihéldu hass
og amfetamín. Mennirnir voru hand-
teknir á þriðjudag og miðvikudag í
síðustu viku. Þeir komu báðir frá
Lúxemborg. Tengsl eru á milli þess-
ara mála. Mennirnir voru báðir úr-
skurðaöir í viku gæsluvarðhald,
Ekki er hægt að segja til um hversu
mikið magn mennirnir höfðu í lík-
amanum. Fíkniefnadeild lögreglunn-
ar hafði grun um athæfi þeirra. Ann-
ar þeirra hefur áður reynst sekur um
smygl á fíkniefnum. Máhð er ekki
að fullu rannsakað. -sme
Veðrið á morgun:
Rigning
á Suður-
landi
Á morgun verður austan-
strekkingur og rigning við suður-
ströndina, annars aústan- og suð-
austangola eða kaldi og skýjað-
og dálíth súld við austur- og norð-
austurströndina. Hiti 6 th 13 stig.
Á
10 W / //L// ^ 7