Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1988, Qupperneq 2
30
LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988.
<am
í STAFASÚPUNNI í dag er búið að fela þessa
ÍSLENSKU ÞJÓÐVÍSU:
Kvölda tekur, sest er sól,
sígur þoka á dalinn.
Komið er heim á kvíaból,
kýrnar, féð og smalinn.
Orðin eru ýmist falin lárétt, lóðrétt, á ská, aftur á bak
eða áfram.
Sendið lausnina til: BARNA-DV.
KRAKKAR!
NAFN: Guðbjörg Þorsteinsdóttir
HEIMILI: Vesturberg 13 í Reykjavík
FÆDD: 24. júní 1977
SKÓLI: Fellaskóli
AHUGAMÁL: Dýr, Madonna, skiði, skátar, handbolti,
ferðalög og leiklist
BESTI MATUR: Franskar kartöflur, grænmeti og
fleira
FALLEGUSTU LITIR: Hvítur, svartur og bleikur
BESTU VINIR: Inga H., Ama og Helga
SYSTKINI: Aðalheiður, Gunnar og Gísli.
NAFN: Ása Ámadóttir
HEIMILI: Austurgata 4, Vogum
FÆDD: 24. september 1977
SKÓLI: Stóm-Vogaskóli
BESTA VINKONA: Svava Berglind sem er 10 ára
BESTU KENNARAR: Kristín og Guðmundur
SKEMMTILEGUSTU NÁMSGREINAR: Skrift og
teikning
DRAUMAPRINS: Hann er með brún augu, brúnt hár
og er æðislega sætur. Hann er 5 ámm eldri en ég
AHUGAMÁL: Djassballett, skíði, skautar, lestur,
hjólaskautar og margt fleira.
Er athyglin í lagi?
Horfðu á þessa mynd í 1 MÍNÚTU -
Leggðu hana síðan frá þér og reyndu
að muna hvað þú sást!
EINKUNN:
10 - 12 = FRÁBÆRT
5 - 9 = GOTT
0 - 4 = LÉLEGT
GÓÐA SKEMMTUN!
(Fáðu fjölskylduna með í leikinn!)
- að sjómenn nokkrir náðu skjald-
böku fyrir rúmlega 100 árum og
merktu hana. Hún var þá fullorðin
eða um 30 ára gömul. Seinna náðist
hún aftur og er nú geymd í dýragarð-
inum í London. Þar hefur hún verið
síðustu árin.
- að eggjaþyngd hænu er 1/36 á móti
líkamsþunga hennar.
Eggjaþyngd strúts 1/60 og eggjaþyngd
kóhbrífugls 1/10 á móti líkamsþung-
anum. Krían verpir tiltölulega
stærstum eggjum því að þau vega 1/3
á móts við líkamsþunga hennar!
MIG DREYMDI.
Elsku BARNA-DV!
Mig langar svo að biðja þig að ráða þennan draum fyrir mig.
- Mig dreymdi að ég væri frammi í eldhúsi með mömmu og systur minni sem er nokkru
yngri en ég. Mamma var að baka og við systurnar horfðum á hana. Síðan fer systir mín
út en ég er áfram með mömmu. Allt í einu missir mamma plötuna þegar hún tekur hana
út úr ofninum og ég rekst í plötuna og brenni mig. Þá finnst mér eins og ég æpi og emji
af sársauka og við það vaknaði ég.
Bless, bless og í leiðinni vil ég þakka fyrir frábært blað.
ANNA SIGRÍÐUR
Kæra Anna!
Yfirleitt er það fyrir góðu að dreyma ofn og bakstur. En þar sem þú brennir þig á ofnin-
um er það líklega fyrir leiðinlegum misskilningi við einhvern vin þinn eða þér nákom-
inn. Reyndu því að hafa allt á hreinu í náinni framtíð!
Bestu kveðjur.
BARNA-DV.
Felumynd
■r 6 *
ro
2T.
.26
'r 'n s
60
'Vs# 'ss’f?
• '48
s* so'V
fí
*r %2 •v 'íf
•!<) /*> Íí 23 £9
2/ ' .iL_ ÖO 29 ' .3o Q,
SS 4> »
Tengdu punktana frá
1 til 2, 2 til 3, 3 til 4 o.s.frv.
Þá kemur felumyndin í Ijós.
LITAÐU MYNDINA SÍÐAN VEL!