Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.1988, Blaðsíða 6
42
LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1988.
mms o mmrjj 9
Drengur nokkur varö fyrir
því óhappi aö fótbrjóta sig.
Þegar búið var aö setja fót-
inn í gifs spurði hann lækn-
inn:
- Þegar gifsið verður tekið
af get ég þá spilað á fiðlu?
- Já, já, auðvitað, svaraði læknirinn hughreystandi.
- En furðulegt! sagði stráksi, - ég sem hef aldrei
kunnað að leika á fiðlu!
OSKAPRINSAR
PRINSESSUR
Sko, óskaprinsinn minn er ljóshærður með
svolítið útstæð eyru. Ég get ekki sagt til um
augnalitinn en hann er æðislega sætur. Ég
held að hann sé einu ári eldri en ég og við er-
um bæði í Seljaskóla. Hann ber út dagblaðið
heima hjá mér og er algert æði.
Ein í Seljó.
Óskaprinsinn minn er skolhærður og æðislega
sætur. Hann á heima í Kópavogi.
Hófí.
Óskaprinsessan mín er í fijálsum íþróttum og
fimleikum. Fyrsti stafurinn í nafninu hénnar
er M.
Michael Jackson.
Prinsinn minn á að vera með dökkt hár og blá
augu, svartur eða hvítur á hörund. Hann á að
vera barngóður og góðhjartaður.
Ein frá Akureyri.
Óskaprinsinn minn er dökkhærður, bláeygur
og hærri en ég. Hann er vel vaxinn, með skop-
skyn, barngóður og kann að klæða sig vel.
Hann er góður í fótbolta og líka brúnn. Hann
heitir S.B.G. og býr í Árbænum.
Ein að farast.
Brandarar
Tveir Hafnfirðingar stukku út úr flugvél 1 fallhlíf.
„Kipptu 1 snúruna og opnaðu fallhlífma,“ öskraði
annar.
„Af hveiju? Það er ekki farið að rigna!“
Lögreglan í Hafnarfirði handtók mann á Laugaveg-
inum og í öllum látunum missti lögregluþjónninn
húfuna.
„Á ég að ná í húfuna þína? Hún er að fjúka,“ spurði
sá handtekni.
„Nei, heldurðu að ég sé eitthvað ruglaður! Ég næ í
hana sjálfur og þú bíður hér á meðan!
- Pabbi, hvers vegna er tungumálið okkar kallað
móðurmál?
- Taktu eftir hver notar það mest, drengur minn!
Stína: Ég var að strauja í gær þegar síminn hringdi
og ég tók straujámið í misgripum fyrir símtólið.
Anna: Já, en nú ertu með sár á báðum kinnum.
Stína: Já, ég varð að hringja 1 lækni!
- Frábært, sagði Hans við konuna sína. - Alveg ótrú-
legt! í þetta sinn talaðir þú bara í hálftíma! Hver
hringdi?
- Það var skakkt númer!
Rakel Sif Gunnarsdóttir,
Krummahólum 4, Reykjavík.
Lítil mús
Hvaða leið á litla músin að velja til
að ná í ostbitann?
Sendið svar til: Barna-DV.
Felumynd
-Hafðu engar áhyggjur, Rauðhetta
mín! Það eru nefnilega þrír skógar-
höggsmenn í skóginum sem vernda
Þig!
Getur þú fundið þá? (Andlitin era
eins og þau sem eru fyrir ofan mynd-
ina.) Sendið lausn til: Barna-DV.
Komdunúað
kveðast á..
Tárin
Þegar tárin eru fallin niður
úr augum okkar getur enginn
huggað þau lengur.
Sár verða eftir 1 huga okkar
um þau tár
sem enginn
kom til að hugga.
Margrét Birgisdóttir,
Tjarnarlundi 12 D, Akureyri.
Barna-DV
Barna-DV ert það þú?
Þú ert algert æði.
Hér er ég að mjólka kú
og les þig svo í bræði.
Barna-DV það ert þú.
Ég veit að þú ert æði.
Nú segi ég bara „I love you“
og les þig svo við færi.
Sigríður Erla,
Árbæjarhjáleigu.
RAÐGATAN
,4r ',arl OQ
Geturðu aðstoðað félagana að leysa þessa ráðgátu?
Fjórir vinir eiga hver sinn bátinn. En þeir hafa eitthvað ruglast í ríminu og eru ekki vissir
um það hver á hvaða bát.
Hvað heldur þú og hvers vegna?
Sendið lausnina til: Barna-DV.
„i i___
mífiiBn
IJI9ÍÍ
„J