Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1988, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1988, Blaðsíða 1
Þessi litli stóð í ströngu á æfingu fyrir sýninguna. DV-mynd R.S, Stærsta himdasýningin - í Reiðhöllinni A sunnudag fer hin árlega hundasýning Hundaræktarfélags íslands fram í Reiðhöllinni í Víði- dal. Er þetta stærsta sýning sinnar tegundar er haldin hefur verið hér á landi til þessa. Hafa 170 hundar af tíu tegundum verið skráðir til keppni er þar fer fram og hafa þeir æft af kappi fyrir þessa helgi. Dóm- arar hafa veriö fengnir frá Dan- mörku. Markmiðið er að sýning þessi verði hin mesta fjölskylduskemmt- un. Boðið verður upp á skemmtiat- riði, hlýðnisýningu og einnig verð- ur starfsemi Hundaræktarfélags íslands og deilda þess kynnt. Enn- fremur verður Björgunarhunda- sveit íslands með kynningu á starf- semi sinni. Nokkur fyrirtæki verða með sýningu og sölu á hlutum er tengjast hundahaldi. Kynnir sér um að veita gestum sýningarinnar upplýsingar og einnig verður veit- ingasala á staðnum. Dæmt verður í tveim dómhringj- um. Besti hundur hverrar tegund- ar veröur valinn og síðan munu þeir úrvalshundar keppa um titil- inn besti hundur sýningarinnar. Dagskráin verður sem hér segir: A-hringur 9.00: Islenskir fjárhundar. 13.00: Maltese, pug, dachshund. 13.45: Poodle. 15.00: írskir setter. B-hringur 10.00: Amerískir cocker spaniel. 10.40: Enskir cocker spaniel. 13.00: Labrador retriever. 15.00: Golden retriever. Matarhlé verður kl. 12. Skemmtiat- riðum verður skotið inn á milli at- riða. Klukkan 17 er gert ráð fyrir að dómunum ljúki. Aðgangseyrir á hundasýninguna er 500 krónur fyrir fullorðna, 200 krónur fyrir börn, 6 til 12 ára, ókeypis er fyrir yngri börn og einn- igellihfeyrisþega. -gh Maxi Priest í Broadway Einn vinsælasti reggae-söngvari Evrópu um þessar mundir, Maxi Priest, mun skemmta í veitingahús- inu Broadway í kvöld, föstudags- kvöld, og á morgun, laugardags- kvöld. Maxi Priest hefur sent frá sér fjórar LP plötur og hefur sú síðasta náð miklum vinsældum í Bretlandi þar sem þrjú lög af henni eru inni á Top tíu þar í landi um þessar mund- ir. Þetta eru lögin How Can We Ease the Pane?, Some Guys Have All the Luck og Cat Stevens-lágið Wild World sem setiö hefur í fyrsta sæti íslensku listanna síðastliðnar sex vikur. Maxi Priest heitir fullu nafni Max Alfred Elliott. Hann fæddist árið 1961 í Lewisham, útborg og Jamaica- hverfl London. Fjórtán ára gamall starfaði hann við að búa til hátalara fyrir gítar- og bassamagnara og á kvöldin var hann plötusnúður. Áhugi hans fyrir alls kyns tónlist vaknaði því snemma. Árið 1981 byrj- aði hann að semja eigin tónlist. Stuttu síðar komst lag hans, Hay Little Girl, inn á Jamaica-listann í Bretlandi. Maxi Priest varð strax fyrir mikl- um áhrifum frá Steve Wonder, Mic- hael Jackson og Paul MacCartney. Bera lög hans keim af því en þar gætir áhrifa allra þessara tónlistar- manna í ríkum mæli. Priest kemur hingað beint úr tón- leikaferð um Ástralíu en héðan mun hann síðan halda í aðra slíka um Bandaríkin. Segja sérfræðingar að hann standi nú á þröskuldi heims- frægðar. -gh iyii'1...... Maxi Priest trónir víða í efstu sætum vinsældalista. Norrænt grafík- þríár -sjábls. 19 Gallerí- ið Undir pils- fáldinum - sjá bls. 29 Be-bop íHeita pottinuin -sjábls. 19 Silungsílök undir grænmetis- fargi -sjábls. 18 Verkúr torfi og grjóti sjá bls. 20 íþróttir helgar- innar -sjábls.31

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.