Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1988, Blaðsíða 6
Háskólabíó
Á FERÐ OG FLUGI
Á ferð og flugi (Planes, Trains and
Automobiles) er nýjasta kvikmynd
Steve Martins. Leikur hann hrak-
fallabálkinn Neal Page sem er á
heimleið frá New York til Chicago.
Hann lendir í ýmsum spaugilegum
uppákomum á leiðinni. Sæti hans
í flugvélinni er tekið af honum,
hann lendir við hliðina á manni
sem haföi fyrr um daginn náð af
honum leigubíl og elda þeir grátt
silfur lengri tíma heldur en ferðin
tekur.
Bíóhöllin
FOXTROT
- sjá kynningu annars staðar á síð-
unni.
í FULLU FJÖRI
Justine Bateman, sem á vinsældir
sínar að þakka sjónvarpsþáttunum
vinsælu, Fjölskylduböndum (Fam-
ily Ties), leikur í í fullu fjöri (Satis-
faction). Jenny Lee stofnar ásamt
vinkonum sínum hljómsveit og
nefna þær hljómsveitina Jenny Lee
and the Mystery. Þær hafa ekki
æft sig lengi þegar þær telja sig
fullboðlegar og sækja um vinnu í
klúbbi. Þrátt fyrir að stúlkurnar
þurfi að þreyta próf ásamt mun
betur æfðum hljómsveitum eru
þær ráðnar. Það kemur í ljós að
eigandi klúbbsins er fyrrverandi
lagasmiður sem á að baki frægðar-
ferfl sem endaði snögglega. Hann
hefur trú á hljómsveitinni og reyn-
ir að skaffa þeim vinnu annars
staðar.
Eins og má sjá af söguþræðinum
er mikiö um tónlist í myndinni og
eru lögin samin af þekktum laga-
höfundum. Og þá má geta þess að
hin þekkta söngkona, Debbie
Harry, leikur í myndinni. í fullu
íjöri er mynd fyrir unglinga fyrst
og fremst.
RAMBO III
Sylvester Stallone fer í þriðju
myndinni um fyrrverandi Víet-
namhermanninn John Rambo til
Afganistan í leit að yfirmanni sín-
um og vini sem Rússar hafa tekið
höndum. Eins og við er að búast
lendir Rambo í miklum og blóöug-
um átökum. Rambo III, sem er ein
dýrasta kvikmynd sem gerð hefur
verið, svíkur engan sem á annað
borð vill hafa spennumyndirnar
dálítið krassandi.
ÖRVÆNTING
- sjá umfjöllun undir Bíóborgin.
SKÆR LJÓS
STÓRBORGARINNAR
Michael J. Fox, sem er um þessar
mundir ein skærasta stjarna á
himni Hollywood, leikur aðalhlut-
verkið í gamanmyndinni Skær ljós
stórborgarinnar (Bright Lightsf Big
City). Leikur hann Jamie Conway,
ungan mann í New York sem hefur
hvorki sætt sig við að konan fór frá
honum né dauöa móður sinnar. Til
þess að græða sár sín dembir hann
sér út í næturlíf stórborgarinnar
af fullum krafti. Besti vinur hans,
sem Kiefer Sutherland leikur, gerir
sitt besta til að hjálpa honum við
skemmtanaiöjuna. Myndin hefur
veriö vinsæl vestra í sumar og á
góöur leikur Michaels J. Fox ekki
lítinn þátt í þeim vinsældum.
BEETLEJUICE '
Michael Keaton leikur aðalhlut-
verkið í þessari makalausu grín-
mynd sem fjallar að mestu um
drauga, góöa sem vonda, og við-
skipti þeirra við lifandi fólk. Titil-
persónan, Beetlejuice, er fengin til
að fæla fólk úr húsi sem ung, nýlát-
in hjón tfleinka sér.
LÖGREGLUSKÓLINN 5
Þeir sem séð hafa fyrri myndir um
hina snarrugluðu lögregluþjóna,
sem útskrifuöust í fyrstu mynd-
inni, vita á hverju þeir eiga von.
Hugmyndin er orðin nokkuð út-
þynnt en ágætir brandarar inni á
milli.
Bíóborgin
FOXTROT
- sjá kynningu annars staðar á síð-
unni.
ÖRVÆNTING
Eftir hina misheppnuöu sjóræn-
ingjamynd sína, Pirates, er Roman
Polanski kominn á góða ferð í nýj-
ustu kvikmynd sinni, Örvæntingu
(Frantic), sem er hörkuspennandi
og dularfull sakamálamynd er ger-
ist í París. Harrison Ford leikur
Richard Walker, bandarískan
lækni sem verður fyrir óvæntri
lífsreynslu þegar hann er í París
ásamt eiginkonu sinni. Á óskiljan-
legan hátt hverfur hún. Örvænt-
ingarfull leit hans leiðir hann inn
í undirheima Parísar þar sem hann
hittir unga og fagra stúlku sem
kann að vera lykillinn að hvarfi
eiginkonu hans. Roman Polanski
hefur áður tekist vel við sakamála-
myndir og er Chinatown þar fremst
í flokki. Örvænting bætist nú viö
þann hóp mynda Polanskis sem
teljast með hans betri.
BEETLEJUICE
- sjá umfjöllun undir Bíóhölhn.
HÆTTUFÖRIN
Hér er á ferðinni hörkuspennandi
mynd sem fjallar um eltingarleik
við morðingja og mannræningja í
óbyggöum. Aðalhlutverk leikur
Sidney Poitier og er þetta fyrsta
kvikmynd hans í mörg ár. Tom
Berenger, stjarnan úr Platoon, fer
með hitt aöalhlutverkið. Þetta er
mynd fyrir þá sem vilja hasar og
spennu. Hættuforin er einnig sýnd
í Bíóhöllinni.
Laugarásbíó
STEFNUMÓTÁ
TWO MOON JUNCTION
- sjá kynningu annars staðar á síö-
unni.
SÁ ILLGJARNI
Sá iflgjarni (The Serpent and the
Rainbow) er hryllingsmynd sem
gerist að mestu leyti á eyjunni Ha-
iti þar sem menn hafa náð þeim
árangri að vekja menn upp frá
dauðum með lyfi sem þeir hafa
fundið upp. Denis Allen er sendur
til að komast yfir þetta undralyf.
Leikstjóri er Wes Craven sem fræg-
astur er fyrir þrjár kvikmyndir um
martraðirnar í Álmstræti.
SKYNDIKYNNI
Skyndikynni fjallar um leit tveggja
vinkvenna að draumaprinsinum
en breytt viöhorf níunda áratugar-
ins setja þeim vissar hömlur. En
löngunin er oft sterkari en siðgæð-
ið og þaö bitnar á þeim. Það birtir
hjá þeim er þær ákveða að dveljast
á heflsuhæh. Aðalhlutverkin leika
Lea Thompson og Victoria Jack-
son.
Regnboginn
í SKUGGA PÁFUGLSINS
John Lone, sem vakti mikla at-
hygli í óskarsverðlaunamyndinni
margfóldu, Síöasti keisarinn, er í
aðalhlutverki í myndinni í skugga
páfuglsins (Shadows of the Pe-
acock), nýrri mynd er gerist á aust-
rænum slóðum. Meðleikari Lone
er ástralska leikkonan Wendy
Hughes. Leikstjóri er Phflip Noyce.
ÞRUMUSKOT
Þrumskot (Hot Shot) státar af því
að hafa mesta knattspyrnusnilUng,
sem uppi hefur verið, Pelé, meðal
leikara. Annars fjallar myndin um
Jimmy Kristidis sem er mjög efni-
legur knattspyrnumaður en ákaf-
lega upptekinn af sjálfum sér.
Hann er rekinn úr liði sínu fyrir
að móðga þjálfarann. Hann ákveð-
ur því að fara til Brasilíu til að fá
þá þjálfun sem hann vantar til að
verða góður knattspyrnumaður.
LEIÐSÖGUMAÐURINN
Þessi norska kvikmynd, sem gerist
á Samaslóðum í Norður-Noregi,
hefur hvarvetna hlotið einróma lof
og var tilnefnd til óskarsverðlauna.
Ekki skemmir þaö að einn aðalleik-
arinn er Helgi Skúlason. Það verð-
ur enginn, sem ann góðum kvik-
myndum, svikinn af Leiðsögu-
manninum.
SVÍFUR AÐ HAUSTI
Þessi hugljúfa kvikmynd íjallar um
tvær systur sem hafa eytt sum-
arfríi sínu á sama stað í sextíu ár.
Aðalhlutverkin leika hinar öldnu
stjömur, Bette Davis og Lillian
Gish. Þetta er mynd sem óhætt er
að mæla meö.
KRÓKÓDÍLA-DUNDEE II
Paul Hogan er kominn aftur í hlut-
verki Michaels Dundee, öðru nafni
Krókódíla-Dundee. Þessi sjarmer-
andi hetja, sem heillaöi alla í fyrra,
lendir í nýjum ævintýrum þar sem
hann þarf að hverfa aftur á heima-
slóðir í Ástralíu. Linda Kozlowski
endurtekur hlutverk sitt og leik-
stjóri er sá sami, John Comell.
Hinn létti húmor og ævintýrablær-
inn, sem einkenndu fyrri myndina,
eru hér. Sem sagt, góð skemmtun.
SÍÐASTA AFREKIÐ
Franska myndin þessa dagana er
Síðasta afrekið meö Jean Gabin í
aðalhlutverki. Þetta er spennu-
mynd eins og þær frönsku gerast
bestar. Leikstjórinn, Jean Del-
annoy, verður aldrei tahnn meðal
fremstu leikstjóra Frakka, en með-
an hann var upp á sitt besta gerði
hann nokkrar myndir sem hafa
staðist tímans tönn.
Stjörnubíó
VON OG VEGSEMD
Sjálfsagt hafa margir beðið eftir
hinni eftirminnilegu kvikmynd
Johns Boorman, Von og vegsemd
(Hope and Glory), sem var ein fimm
mynda sem tilnefndar vom í vor
til óskarsverðlauna sem besta
myndin. Boorman segir í myndinni
frá æskudögum sínum í stríðs-
hrjáðu landi. Þykir honum hafa
tekist vel að lýsa mannlegu hliðinni
á stríðinu. Myndin fjallar um Bill
Rohan, níu ára dreng sem sá
heimsstyijöldina öðrum augum en
flestir aðrir. Honum fannst nefni-
lega skemmtilegt að lifa á stríðs-
tímum. Skólinn var lokaður. Á
nóttunni lýstu flugeldar upp him-
ininn. Hann þurfti sjaldan að fara
snemma að sofa og í raun hafði
enginn tíma til að ala hann upp.
NIKITA LITLI
Nikita htli íjallar um Jeff, sautján
ára skólastrák, sem kemst að
óhugnanlegu leyndarmáli foreldra
sinna þegar alríkislögreglan kann-
ar uppruna þeirra. Leikstjóri er
Richard Benjamin og aðalhlut-
verkin leika Sidney Poitier og sá
leikari sem spáð er mestum frama
í Hohywood, River Phoenix.
ENDASKIPTI
er gamanmynd sem fjallar um
feðga sem skipta um hlutverk.
Marshall Seymour og ellefu ára
sonur hans, Charhe, skipta óvart
um líkama. Þetta veldur að sjálf-
sögðu vandræðum. Aöalhlutverkið
í þessari ágætu gamanmynd leikur
Judge Reinhold sem er sjálfsagt
þekktastur fyrir samstarf sitt við
Eddie Murphy í Beverly Hills Cop
gamanmyndunum.
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988.
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir
Laugarásbíó
Steftiumót á Iwo
Moon Junction
Ung og rík Suðurríkjastúlka tek-
ur hliðarspor rétt fyrir eigin gift-
ingu. Hún fellur fyrir ungum far-
andverkamanni og er komin á
fremsta hlunn með að hlaupast á
brott með honum og gefa frá sér
allan auð. Amma hennar veit hvað
klukkan slær og reynir hvað hún
getur að bjarga heiðri ættarinnar.
Þetta er í stuttu máli söguþráður
Stefnumóts á Two Moon Junction
sem Laugarásbíó sýnir. Er hér um
dæmigerða Hohywoodframleiðslu
Sherilyn Fenn leikur unga og ráðvillta stúlku í Stefnumóti á Two Moon
Junction.
að ræða þar sem átakaleysið ein-
kennir bæði söguþráð og leik. Leik-
stjóri er Zalman King sem meðal
annars skrifaði handritið aö Níu
og hálf vika sem var nú allt annað
en dauf.
Bíóhöllin og Bíóborgin
Foxtrot
Þá hefur fyrsta íslenska kvik-
myndin á þessu ári verið frum-
sýnd. Er það spennumyndin Fox-
trot sem lengi hefur verið beðið
eftir. Myndin fjallar um tvo bræður
sem taka að sér að fara með pen-
ingasendingu úr Reykjavík norður
í land. Ekki gengur sú ferð átaka-
laust. Lenda þeir bræður í miklum
raunum sem enda með harmleik.
Foxtrot er fyrir margar sakir
merkilegur áfangi í íslenskri kvik-
myndasögu. Hún varð fyrst tfl í
enskri útgáfu og sýnd á kvik-
myndahátiðinni í Cannes þar sem
tókst að selja dreifíngu á henni er-
lendis. Þar með kom hún fyrir sjón-
ir erlendra þó nokkru áður en hún
var frumsýnd hérlendis. Leikstjóri
er Jón Tryggvason. Kvikmynda-
töku annaðist Karl Óskarsson. í
aðalhlutverkum eru Valdimar Örn
Flygenring, Steinarr Ólafsson og
María Elhngsen. HK.
Valdimar Örn Flygenring í hlutverki sinu í Foxtrot.
Háskólabió sýnir þessa dagana Á ferð og flugi (Planes, Trains And
Automobiles þar sem aðalhlutverkin eru í höndumí gamanleikarana
Steve Martin og John Candy.