Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1988, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1988, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988. 31 Langþráður bikar í sjónmáli ValsogÍBK - úrslitaleikur Mjólkurbikarsins kl. 14 á laugardag Úrslitaleikur Mjólkurbikarkeppn- innar í knattspyrnu er stærsti íþróttaviðburður komandi helgar. Þar mætast Valsmenn og Keflvík- ingar og hefst slagurinn kl. 14 á Laugardalsvellinum á morgun, laugardag. Liðin eru 11 ár frá því Valsmenn unnu bikarinn siðast og Keflvík- ingar handléku hann í fyrsta og eina skiptið til þessa fyrir heilum 13 árum. Bæði lið þyrstir því í sig- ur. Valsmenn eru öllu sigurstrang- legri fyrir fram. Þeir hafa leikið vel í 1. deildinni undanfarið og verið nánast ósigrandi eftir slæma byrj- un sem reyndist kosta þá íslands- meistaratitilinn. Þeir eru nokkuö öruggir með aö hafna í öðru sæti 1. deildarinnar. Keflvíkingar hafa aftur á móti átt í fallbaráttu í sum- ar en eru nú komnir af mesta hættusvæðinu og geta einbeitt sér að þessúm úrslitaleik. Leikurinn ræður einnig miklu um hvaða lið verður fulltrúi ís- lands í UEFA-bikarnum næsta ár. Vinni Valsmenn fara þeir í Evrópu- keppni bikarhafa og þá stendur slagurinn um UEFA-sætið á milli ÍA, KA og KR. Verði Keflvíkingar bikarmeistarar fara þeir í Evrópu- keppni bikarhafa og þá eru allar líkur á að Valur hljóti UEFA-sætið. Fylkir í 1. deild í kvöld? Vegna úrslitaleiksins liggur keppni í 1. deild karla niðri þessa helgina en í öðrum deildum er allt á fullu. Fylkir getur í kvöld tryggt sér sæti í 1. deild í fyrsta skipti með því að sigra Tindastól á Sauðár- króki, eöa ef Víðir nær ekki að leggja Breiðablik að velli. Helgar- dagskráin í íslandsmótinu í knatt- spyrnu lítur þannig út: 1. deUd kvenna: Stjarnan-Valur ....fó.19.00 KA-ÍA ...SU.14.00 2. deild karla: Selfoss-KS ....fó.19.00 UBK-Víðir ....fó.19.00 FH-Þróttur R ....fó.19.00 Tindastóll-Fylkir ....fó.19.00 ÍR-ÍBV 3. deild: Sindri-Daivík.............fó.19.00 Stjarnan-Grótta...........su.14.00 Afturelding-Njarðvík......su. 14.00 Leiknir R7Reynir S........su.14.00 Víkverji-ÍK...............su.14.00 Þróttur N-Magni...........su.14.00 Reynir Á-Hvöt.............su.14.00 4. deild: BÍ-Hveragerði............lau.14.00 Austri-Kormákur..........lau.14.00 Að auki fer úrslitakeppni 3. Uokks pilta fram í Kópavogi um helgina en þar berjast átta félög um íslandsmeistaratitilinn. Úrslita- leikurinn fer fram á Kópavogsvelli kl. 15 á sunnudaginn. Frjálsar íþróttir Nokkur frjálsíþróttamót fara fram víðs vegar um landið um helg- ina. Bikarkeppni 16 ára og y.ngri fer fram á Húsavík á morgun, laugar- dag, og Austur-Skaftfellingar keppa viö granna sína Vestur- Skaftfellinga g heimavelli þeirra fyrrnefndu. Á Egilsstöðum er Egilsstaöamaraþon á dagskrá á sunnudaginn. Bikarkeppni í fjöl- þrautum er haldin í Reykjavík um helgina og á Feykisvelli í Skagafirði er haldin unglingakeppni UMSS. Golf Opin mót eru haldin hjá fimm golfklúbbum um helgina. Golf- klúbbur Suðurnesja er með eitt slíkt á Hólmsvelii í Leiru, hjá Keili í Hafnarfirði er haldin opin hjóna- og parakeppni, Golfklúbbur Akur- eyrar stendur fyrir Coca Cola- mótinu, Golfklúbbur Reykjavíkur er með Olís-mótiö og Golfklúbbur Hornafjarðar heldur haustmót um helgina. -VS • Þeir Ragnar Margeirsson og Magni Blöndal Pétursson verða báðir í sviðsljósinu í úrslitaleik bikarkeppninar á morgun. Á myndinni eigast þeir við í leik Vals og ÍBK i 1. deildinni fyrr i sumar og það er Keflvíking- urinn Ragnar sem hefur betur. DV-mynd Brynjar Gauti ÍÞRÓTTAKENNARAR Grenivíkurskóla vantar íþróttakennara sem einnig getur tekið 'að sér kennslu í öðrum greinum. Frítt húsnæði í boði. Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í síma 96-33131 eða 96-33118. Laus staða Staða bæjargjaldkera á bæjarskrifstofu Siglufjarðarkaupstaðar er laus til umsóknar. Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 1. september nk. Bæjarstjórinn á Siglufirði Til sölu Cadillac með öllu. Gott eintak. Allar nánari upplýs- ingar í síma 11219 og eftir kl. 19.00 í síma 39931. FRÁ B0RGAR- SKIPULAGI Auglýsing um breytt skipulag reits 1.242.0. Byggingarfélagið Ármannsfell hf. hefur farið fram á breytingu á samþykktu skipulagi reits við Laugaveg 148 sem afmarkast af Laugavegi, Brautarholti, Mjölnisholti og nýrri götu að sunnan. Uppdrættir og líkön ásamt upplýsingum verða almenningi til sýnis á Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, virka daga kl. 9.00-16.15, næstu 4 vikur. Þeir sem vilja koma athugasemdum á framfáeri geri það skriflega til Borgarskipulags fyrir föstudaginn 23. september nk. Borgarskipulag Reykjavikur Borgartúni 3 105 Reykjavík á Ómar Ragnarsson er að skipta um stöð eftir að hafa þjónað ríkissjónvarpinu í 19 ár. Hann fékk tilboð sem ekki var hægt að hafna og þó segist hann kveðja sinn gamla vinnustað með söknuði. Ómar er í viðtali við helgarblaðið á morgun. „Ég þorði aldrei að gera mér of miklar vonir þó ég hafi ætlað mér að syngja til sig- urs." Svo segir nýi látúns-* barkinn, Arnar Freyr Gunn- arsson, í viðtali við helgar- blað DV á morgun. Hann segir að titillinn veiti honum meiri möguleika varðandi plötuútgáfu enda hefur stráksi allnokkur eigin lög í pokahorninu. Ekkisegist hann hræddur við ríg við vin sinn, Bjarna Arason, en þeir félagarnir eru í sömu hljómsveit. Meira um lát- únsbarkann á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.