Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1988, Síða 3
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988.
19
Dansstaðir
ABRACADABRA
Laugavegi
Bigfoot sér um tónlistina um helgina.
AMADEUS
Brautarholti, sími 23333
Greifamir leika fyrir dansi í kvöld.
Diskótek laugardagskvöld.
ÁRTÚN
Vagnhöfða 11,
Gömlu dansamir fostudagskvöld kl.
21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3.
Hljómsveitin Danssporið leikur fyrir
dansi bæði kvöldin.
BÍÓKJALLARiNN
Lækjargötu 2, sími 11340
Opiö um helgina. Á sunnudags-,
mánudags- og þriðjudagskvöld kem-
ur Hans Blues Boogie fram kl. 22.
BROADWAY
Álfabakka 8, Reykjavik, simi 77500
Einn vinsælasti danslaga- og reggae-
söngvari Evrópu, Maxi Priest, kemur
fram í Broadway fóstudags- og laug-
ardagskvöld.
CASABLANCA
Skúlagötu 30
„Hip-hop house acid“ danstónlist
fostudags- og laugardagskvöld.
DUUS-HÚS
Fischersundi, sími 14446
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
EVRÓPA
v/Borgartún
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
GLÆSIBÆR
Álfheimum
Lokað um helgina vegna einkasam-
kvæmis.
HOLLYWOOD
Ármúla 5, Reykjavík
Ball fóstudags- og laugardagskvöld.
HÓTELBORG
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími
11440
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir fostudags- og laugardags-
kvöld. Lifandi tónlist. Tískusýningar
öll fimmtudagskvöld. Opið frá kl.
19-1.
HÓTEL ÍSLAND
Lonlí Blú bojs og rokkband Rúnars
Júlíussonár leika fyrir dansi föstu-
dags- og laugardagskvöld. Skemmti-
dagskráin „I sumarskapi" verður í
beinni útsendingu á Stöð 2 og Stjöm-
unni á föstudagskvöld.
HÓTEL SAGA, SÚLNASAL-
UR
v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221
Hljómsveitin „Einsdæmi" leikur fyr-
ir dansi á laugardagskvöld.
Mímisbar opinn frá kl. 19-3.
LÆKJARTUNGL
Lækjargötu 2, sími 621625
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
VETRARBRAUTIN
Brautarholti 20, sími 29098
Hljómsveitin Boogie spilar um helg-
ina.
ÖLVER
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, fóstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld.
ZEPPELIN
„ROKK-KLÚBBURINN“
Borgartúni 32
Gildran leikur fyrir dansi föstudags-
og laugardagskvöld.
-'P a veginn!
Brýr og rœsi krefjast sérstakrar varkámi.
Draga verður úr hraða og fylgjast vel með
umferð á móti.
Tökum aldrei áhœttu!
gugFBUW
Síðustu sýningar
light Nights
Nú um helgina fara fram síðustu
sýningar feröaleikhússins Light
Nights á þessu sumri. Verða þær í
kvöld, annaðkvöld og á sunnudags-
kvöld og hefjast allar kl. 21.00.
Light Nights sýningarnar eru
sérstaklega færðar upp til skemmt-
unar og fróðleiks fyrir enskumæl-
andi ferðamenn. Efniö er allt ís-
lenskt en flutt á ensku, að undan-
skildum þjóölagatextum og kveðn-
um lausavísum. Meöal efnis má
nefna þjóðsögur af huldufóki, tröll-
um og draugum, gamlar gamanfrá-
sagnir og einnig er atriði úr Egils-
sögu sviðsett.
Eru sýningaratriði 25 alls, ýmist
sýnd með fjölmyndatækni eða leik-
in. Leiksviðsmyndir eru af baö-
stofu og víkingaskála. Stofnendur
og eigendur Ferðaleikhússins eru
Halldór Snorrason, Kristín G.
Magnús og Magnús S. Halldórsson.
Er leikhúsið nú að ljúka 19. starfs-
ári sínu.
Úr Víkingaskáia, atriði úr sýningu leikhússins.
Norrænt
Ragnh^iður með sýnishorn af damaskinu.
Damask unnið af
listamönnum
Um helgina 27. og 28. ágúst verð-
ur kynning og sýning á vefnaðar-
vörum frá Georg Jensen Damask í
anddyri Hótel Selfoss. Mun um-
boðsmaður fyrirtækisins hér á
landi, A. Ragnheiður Thorarensen,
kynna þessa vöru á milli kl. 14 og
19 báða dagana.
Danska Georg Jensen-ættin hef-
ur ofiö í 500 ár. Damask-vefnaðar-
vörur frá fyrirtækinu hafa hlotið
viðurkenningar víða um heim fyrir
gæði og hönnun. Aðeins viður-
kenndir listamenn vinna fyrir fvr-
irtækið. Vörur þessar eru aldrei
seldar til verslana heldur einungis
beint til neytenda frá verksmiðju á
framleiðsluverði.
Sýningin Norrænt grafik-þríár
hefst í Norræna húsinu á morgun.
laugardaginn 27. ágúst. Sýningu
þessa hefur Norræna húsið unnið
í samráði við félagið íslenska graf-
ík. Er fyrirhugað að halda hana
þriðja hvert ár héöan í frá, eins og
nafnið gefur til kynna.
Hugmynd sú er liggur aö baki er
aö skapa sýningar sem kanna
ákveðið viðfangsefni í grafíklist á
Norðurlöndum og víðar. Þemað
sem tengir að hluta listamennina á
þessari sýningu er Maðurinn og
notkun mannsmyndar í verkum.
Að þessu sinni sýna sex grafík-
listamenn á sýningunni. Eru það
Vignir Jóhannesson frá íslandi.
Ynve Næsheim frá Noregi. Finn
Richardt Jorgensen frá Danmörku.
Krystyna Piotrovvska frá Svíþjóð
og Tuomo Saali frá Finnlandi. Að
auki er Mimmo Paladino frá Ítalíu
sérstakur gestur sýningarinnar.
Finn Richardt Jorgensen er
fæddur i Óðinsvéum í Danmörku
árið 1949. Hann lærði í Listaaka-
demíunni hjá prófessor Dan Sterup
Hansen. Yngve Næsheim er fædd-
ur í Bærum í Noregi árið 1960.
Hann læröi í Teikni- og málara-
skóla Einars Grahum 1979-81 og
þrem öðrum listaskólum til ársins
1986. Krystyna Piotrowska er fædd
í Zabrze i Póllandi árið 1949. Hún
nam myndlist í listaskólum í
Kraków og Poznan 1966-75 og siðan
í Grafíkskólanum Forum, Málm-
haugum.
Tuomo Saali er fæddur í Piela-
vesi í Finnlandi árið 1957. Hann var
við listnám í listaskólum í heimal-
andi sínu 1977-83 og stundaði fram-
haldsnám í grafík í eitt ár. Vignir
Jóhannsson er fæddur á Akranesi
árið 1952. Hann lærði í Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1974-78 og
í Rhode Island School of Design
1979-81.
ítalinn Mimmo Paladino er fædd-
uri í Paduli á Ítalíu áriö 1948. Hann
er sannur myndprentari. Gagn-
stætt almennum skilningi á grafík,
að hún sé eftirbátur málara- og
höggmyndalistar, notar Paladino
ótal prentaðferðir sem milliliða-
lausar tjáningarleiðir á þann hátt
að bera má saman við verk eftir
Picasso. Johns, Dine og aðra lista-
menn sem hafa gert 'hundruð
prenta, ekki aðeins i fjölföldunar-
eða kaupsýsluskyni lieldur til
skapandi útrásar sem skiptist á og
fléttast við aðra myndlist.
Sýningin verður opnuð kl. 15.00
á morgun og mun Krystyna Pi-
otrowska verða viöstödd opnunina.
Maðurinn og notkun mannsmynd-
ar i verkum er þema sýningarinn-
ar.
Be-bop í Heita pottinum
A sunnudagskvöldið, 28. ágúst,
mun kvartett Árna Scheving
spila í Heita pottinum í Duus-
húsi. Auk Áma, sem leikur á
Víbrafón, eru i kvartettinum
Kristján Magnússon, sem leikur
á píanó, Birgir Bragason á bassa
og Guömundur R. Einarsson
trommuleikari.
Á tónleikunum, sem hefjast kl.
22.00, mun kvartettinn leika bæði
gamla og nýja be-bop-standarda.
grafík-þríár