Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.1988, Page 8
32
FÖSTUDAGUR 26. ÁGÚST 1988.
DV-LISTINN
1. (6) Hentu mömmu af
lestinni
2. (1) Nornirnarfrá Eastwick
3. (4) The Bourne Identity
4. (2) No Way out
5. (-) The Princess Bride
6. (5) Kæri Sáli
7. (3) Windmills of Gods
8. (10) Bigfoot
9. (7) Pick-up Artist
10. (8) The Man with Two
Brains
Mynd-
bönd
Umsjón:
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karlsson
v- '
Aðeins ein mvnd kemur ný inn á
listann að þessu sinni en það er
ævintýramvnd. Tlte Princess
Bride, sem þykir sérlega vel heppn-
uð. Henni er leikstýrt af Rob Reiner
sem þar á undan leikstýröi Stand
by Me.
í fvrsta sæti. skýst frumraun
Dann\' DeVito á leikstjórasviðinu
(ef undan er skilinn smáleikbútur
í Amazing Storys II). Það er ekki
annað hægt en að segja að kappinn
bvrji vel þó farsinn sé dálítið lang-
sóttur aö öðru leyti. Margar þaul-
sætnar rnyndir dvelja enn á listan-
um en eru þó farnar að þokast nið-
ur.
Iistin að húkka stelpur
THE PICK-UP ARTIST
Útgefandí: Stelnar hf.
Leikstjóri: James Toback.
Aðalhlutverk: Molly Ringwald, Robert
Downey, Dennis Hooper og Harvey
Keitel.
Bandarisk, 1987. - Sýningartimi: 86 min.
Mikiö ótrúlega eru bandarískar
unglingamyndir orðnar útþynntar.
Hver einasta tilraun til að ná til
rómantískra skólakrakka er byggð
á nákvæmlega sömu formúlu og
hefur verið við lýði síðan Grease
sló öll aðsóknarmet. Töffarar, sem
eru góðir strákar inn við beinið,
eru stanslaust á stelpuveiðum og
loks þegar þeir hitta hina einu réttu
þá bráðna þeir og eiga sér ekki lífs-
bjargar von nema þeir nái í stelp-
una sem er nú alls ekki á því að
gefast þeim strax.
Þessi formúla er til staðar í The
Pick-Up Artist. útfærð þannig að
Jack Jericho er ófeiminn að ganga
á stúlkur á götum New York og
skjalla þær upp úr skónum.
Þetta er honum hið besta áhuga-
mál og árangursríkt þangað til
hann kynnist Randy. Hún er orðin
hans eftir nokkrar mínútur en vill
svo ekki meira með hann hafa. Þá
veröur stráksi að gjalti, rífur síma-
skrána sína sem inniheldur nöfn
margra fórnardýra hans og heitir
því að Randy skuli verða hans aö
eilífu. Það gengur að sjálfsögðu
ekki þrautalaust eins og væntan-
legir áhorfendur munu komast að
raun um.
Hvaö leikarar á borð við Dennis
Hooper, Danny Aiello og Harvey
Keitel eru að gera í þessari endem-
is þvælu hlýtur að vera spurning
sem aðeins veröur svarað í pen-
ingaupphæð. Ekki getur handritið
hafa heillað þá.
Tvö ungstirni á himni Holly-'
wood, Molly Ringwald og Robert
Downey, leika aðalhlutverkin.
Molly Ringwald er skömminni
skárri, á það þó til að líta heillandi
út. Downey, sem virðist hafa
nokkra hæfileika til gamanleiks,
er í það leiðinlegu hlutverki aö það
verður aö vera góð mynd til aö
undirritaöur líti hann réttu auga á
ný. HK.
RUSSKIES
Útgefandi: JB
Aðalhlutverk: Leaf Phoenlx, Peter Bill-
Ingsley, Stephen De Salle og Whip Hu-
bley.
Bandarlsk 1987. Bönnuð yngri en 12
ára. 98 min.
Það er greinilegt að mikið hefur
verið að gerast í alþjóðastjórn-
málum á undanfórnum árum og
því hefur Hollywood þótt tími til
kominn að bijóta niður múrana hjá
sér. Þessi mynd er greinilega í anda
slökunarstefnu síðustu ára.
í upphafi sjáum við þrjá unga
stráka sem leika sér í byssuleik
eins og gerist. Þeirra andlega fóður
er heldur ómerkilegt og samanst-
endur af teiknimyndablöðum þar
sem bandarískar hetjur vinna á
sovéskum illmennum, svipað og í
Rambo. Þegar síöan rússneskur
sjómaður lendir í þeirra höndum
veröa þeir að horfast í augu við
raunveruleikann.
Hér er i sjálfu sér fremur við-
kunnanlegt viðfangsefni sem allt í
lagi væri aö horfa á ef allt of mikil
væmni heföi ekki orðið til að
drekkja öllum boðskap.
-SMJ
★★
Átök í hrossaræktinni
o
BLUEGRASS
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Simon Wincer.
Aóalhlutverk: Cheryl Ladd, Anthony
Andrews, Wayne Rogers, Shawnee
Smith og Mickey Rooney.
Bandarísk, 1988. Sýningartimi: ca 180
min.
Cheryl Ladd hefur verið iðin á
undanförnum árum við að leika í
dramatískum míniseríum og fer
það þessari einkar laglegu en smá-
vöxnu leikkonu vel aö leika hlut-
verk kvenmanns sem,verður að
standa á eigin fótum.
I Bluegrass leikur hún eina slíka
kvenpersónu. Maðurinn hennar er
nýdáinn og hefur skilið hana eftir
nokkuð fjáða. Hún* flytur til
Kentucky og ákveður að hefja
ræktun veðhlaupahesta. Ekki eru
allir hrifnir af framtaki hennar og
gamall keppinautur um ástir henn-
Ergelsi
CERTAIN FURY
Útgefandi: Myndbox.
Leikstjóri: Stephen Gyllenhaal. Aðal-
hlutverk: Tatum O’Neal og Irene Cara.
Bandarisk. 90 mín. Bönnuð yngri en 16
ára.
Þessi mynd er með ólíkindum.
Söguþráðurinn er heimskulegur
ofbeldisóður. handritið vanskapað,
leikúrinn afleitur og líklega hefði
poppkornið verið vont ef þaö hefði
verið við höndina.
Svona án gamans þá er ótrúlegt
hvað hægt er aö framleiða vondar
myndir. Myndin segir frá tveim
unglingsstúlkum sem eru svo
óheppnar að þeim er kennt um
fjöldamorð þegar á að dæma þær
fyrir umferðarbrot! Hvert ólánið
rekur annað þar til í lokin að málin
eru útkljáð með væmnu uppgjöri
sem hefur sést þúsund sinnum áð-
ur en þó yfirleitt betur gert.
Leikurum er nokkur vorkunn að
þurfa að vinna að þessari vitleysu
en það afsakar ekki frammistöðu
þeirra. Líklega var Peter Fonda
bestur enda sást hann aðeins í hálfa
mínútu. Sérstaklega er frammi-
■ staða frú McEnroe slök og ekki að
undra hve lítið sést af þessari fyrr-
um barnastjörnu. Þessi mynd gerir
best með því að safna ryki í hillu.
-SMJ
£«r fcocwn* *M bm
CHEÐYL LADD
«s
BLUEGPAáS
Það kostar atorku, óræöi, peninga og gengdar-
lausa heppni aö þjálfa veöhiaupanesta.
Þaö getur líka kostað gjaldþrot.
Fyrri og seínni hluti
Á EINNI SPÓLU.
ISLENSKUR TEXTI
ar, sem er illmenni hið mesta, heit-
ir því að hann verði búinn að
hrekja hana burtu blásnauða áður
en langt um líður.
Maude Breen, en svo nefnist kon-
an, er hörð af sér. Hún kaupir kyn-
bótahest sem flestir segja gallagrip
og setur allt sitt traust og peninga
'V. hr. Hún treystir á aðstoð ráðs-
manns síns sem hún hafði veitt
vinnu eftir að hann. hafði drukkið
sig út alls staðar annars staðar.
Ráðsmaðurinn er myndarnmaður
og að sjálfsögðu hrifinn af húsmóð-
urinni. Fleiri keppa um ástir henn-
ar en enn fleiri vilja hana burt og
veitist henni erfitt að fá viðurkenn-
ingu...
Bluegrass er rómantísk saga af
gamla skólanum. Hér er allt til
staðar sem prýðir slíka sögu og um
leið fátt sem kemur áhorfandanum
á óvart. Myndin er í tveimur hlut-
um en á einni spólu sem ábyggilega
er vel þegið af neytandanum en
ekki kannski jafnvel þegið af þeim
sem leigir.
Ósköp fátt er hægt að segja um
Blugrass annað en hér er á ferðinni
sæmileg afþreying. Ágætir leikara
fara létt í gegnum stöðluð hlutverk.
Má segja með vissu að rómantískar
sálir verða örugglega ánægðar með
Bluegrass.
HK.
Gæludýrið Stórfótur
þessa kynjaveru.
Kvikmyndin Bigfoot er sannköll-
uð Qölskyldumynd. Vísitölufjöl-
skyldan, ef þannig íjölskylda er til
vestanhafs, er á ferð um skóglendi
þegar flikki eitt verður allt í einu
fyrir bílnum. Fjölskyldufaðirinn,
sem er byssusali, vill skjóta dýrið
til vonar og vara en verður skelf-
ingu lostinn þegar hann sér að dýr-
ið hefur mannshönd.
Kemur í ljós aö dýrið eða
mannapinn, því þannig er því best
lýst, er lifandi og þrátt fyrir stærö
og styrk er hér á ferðinni hið blíð-
asta kvikindi sem ekkert aumt má
sjá. Eftir nokkra byrjunarörðug-
leika tekst vinátta miili fjölskyld-
unnar og Stórfóts. Fjölskyldufaðir-
inn vill sleppa honum í fyrra um-
hverfi en þaðmistekst og Stórfótur
fer á flakk í hinni grimmu veröld
mannanna...
Þrátt fyrir nokkrar góða spretti
er Bigfoot frekar máttlaus í ein-
lægni sinni. Ekkert er frumlegt.
Sömu klisjur notaðar og hafa verið
við lýöi frá því Disney hóf gerð
slíkra ævintýramynda. Gervi Stór-
fóts er heldur ekki til að hrópa
húrra fyrir. Mjög greinilegt er að
hár leikari er þar á feröinni. Sjálf-
sagt hefðu einhverjar tæknibrellur
bætt úr þessu. Þessir gallar eru
verulegir án þess þó aö eyðileggja
alla skemmtunina. Þaö má hafa
gaman af myndinni og verri af-
þreyingu fyrir alla fjölskylduna er
auðvelt að finna. HK.
Árans strákurinn
THE BOY FROM HELL
BIGFOOT AND THE HENDERSONS
Útgefandi: Laugarásbió.
Leikstjóri: William Dear.
Aóalhlutverk: John Llthgow, Melinda
Dillon og Don Ameche.
Bandarísk, 1987. - Sýningartimi: 107
mín.
Bigfoot and the Hendersons er
byggð á þjóösögu sem lengi hefur
veriö viö lýði í Bandaríkjunum um
að i skógum Washingtonfylkis búi
„snjómaður". Engar sannanir hafa
fundist fyrir tilveru hans og kvik-
mynd, sem tekin hefur verið af
honum, getur sýnt.hvaö sem er.
Bigfoot eða Stórfót kalla Kanarnir
Útgefandi: Skifan
Leikstjóri: Deryn Warren. Handrit: Jerry
Daly. Aðalhlutverk: Anthony Jenkins,
Aarin Teich og John Reno.
Bandarisk 1987. 90 min. Bönnuð y.ngri
en 16 ára.
Særingamaðurinn og Fyrirboð-
inn hafa kallað á fjölda eftirlíkinga
þó varla séu þær sjálfar í frumlegri
kantinum. Eftir framleiðslú þeirra
hurfu menn fra spennuuppbygg-
ingu í anda Hitchcocks til einhvers
verra sem meðal annars má sjá í
The Boy from Hell.
Hér er um ódýra, óspennandi og
subbulega hrollvekju að ræða. í
stað þes að byggja upp spennu meö
eðlilegum hætti í krafti snjallrar
myndatöku og snarps handrits láta
aðstandendur myndarinnar sér
nægja að leiöa myndina á milli
nokkurra sóöalegra atriða sem eru
allt að því barnaleg í heimsku
sinni. Fátæklegur leikur kórónar
síðan vitleysuna. -SMJ