Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1988, Blaðsíða 8
32
FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1988.
Aataryofbsæes
| ■ VT A ;jkX¥X*r <¥»W»tSKMil> IMOT
\ ■ K «wi/*«««*«<>^<
; M M -w*«»rsn<>r- -mtmnm
Æ9 ■ *<ji«)>i».w *>*>»»*
",IW* í*<j>^«> * v. sjsnwí *.»«»*.*
wi*«t\cx*r**síi#r*>u*t *R**p
«*■.»:<> JíWto—■<«■.«<«CatWöívca^Wl ^^j.Í»>
(<*.«■<.»*'»> *mu* », *;«■».> xnsy.ií* f *.«><< «N»»W(!» < »«■« «*v
\AARNER HOME VIDEO
★★★ ‘A
Þeir voru fyrstir
THE RIGHT STUFF
Útgefandi: Steinar hl.
Leikstjóri: Philip Kaufman.
Aðalhlutverk: Dennis Quaid, Ed Harris,
Sam Shepard, Scott Glenn og Barbara
Hersey.
Bandarisk, 1983 - Sýningartimi: 185
min.
Það má skipta The Right Stuíf í
tvo meginkafla, flugafrek og geim-
ferðir. Myndin byrjar á að segja frá
þeim mönnum sem kepþtu að því
að komast hraðar en hljóðið. Þar
er fremstur í flokki Chuck Yeager
sem gefst ekki upp fyrr en hann
hefur sigrast' á hljóðmúrnum.
Nokkrum árum seinna, þegar ung-
ir og framagjarnir flugmenn koma
til tilraunastöðvar flughersins, er
Yaeger enn kóngur í ríki sínu en
nú er það leit að væntanlegum
geimfórum sem tekur athyglina frá
Yaeger.
Seinni hluti myndarinnar og sá
umfangsmeiri fjallar svo um þjálf-
un fyrstu geimfaranna, einkalíf
þeirra og keppni þeirra innbyrðis
og svo að sjáifsögðu spurninguna
um hver þeirra verði fyrstur út í
geiminn.
Phihp Kaupmann hefur gert eft-
irminnilega kvikmynd, kvikmynd
ir að verða sa siðasti af fyrsta geim-
farahópnum sem fer út í geiminn.
Einnig fylgjumst við vel með John
Glenn sem hafði augljósa foringja-
hæfileika og gat alltaf svarað blaða-
mönnum þegar óþægilegar spurn-
ingar voru bornar fram.
Þá eru einnig gerð skil í góðu at-
riði þegar Gus Grissom varð það
óttasleginn við lendingu að hann
skaut sjálfum sér út úr geimfarinu
og var nær drukknaður. Eftirleik-
urinn var mjög dapurlegur fyrir
hann og sýnir að þegar allt gengur
vel er geimfarinn dýrkaður en þeg-
ar honum mistekst er kuldalegt
viðmót það eina sem hann fær.
Yfirleitt fá geimfararnir jákvæða
umfjöllun. Sama verður ekki sagt
um stjórnendur geimferðaáætlun-
ar eða stjómmálamenn. Enginn
fær þó verri útreið en þáverandi
varaforseti, Lyndon B. Johnson.
The Right Stuff er í heild mögnuð
kvikmynd sem skilur mikið eftir
sig. Minnst hefur verið á Sam Shep-
ard. Aðrir leikarar eru ekki síðri.
Ed Harris í hlutverki Glenn verður
ótrúlega líkur fyrirmyndinni og
Dennis Quaid er frábær í hlutverki
hins.léttlynda Cooper.
HK
sem er yfir þriggja tíma löng en
aldrei leiðinleg. Það sem er helsti
kosturinn er hversu persónurnar
verða lifandi sem er sjaldgæft þeg-
ar fjallað er um fólk sem enn er á
lífi. Eftir að kafla Chuck Yeager,
sem Sam Shepard leikur eftir-
minnilega, lýkur er aðallega fylgst
með Gordon Cooper sem liggur fyr-
Mynd-
bönd
Umsjón:
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karlsson
DV-LISTINN
Það er víst ekki hægt að segja að
ferskir vindar blási um listann að
þessu sinni - aðeins ein ný mynd
inni og áhöld um hversu ný hún
er. Myndin um mömmudrenginn
heldur fyrsta sætinu þrátt fyrir
harða atlögu frá ævintýramynd-
inni um prinsessubrúðina. Þetta er
örniur vikan í röð sem þessar
myndir kljást.
Fram undan eru þó miklir útg-
áfutímar sem án efa skola forvitni-
legum myndum inn á listann.
(1) Hentu mömmu af lestinni
2. (2) Princess Bride
3. (8) Kæri Sáli
4. (3) Summer School
5. (4) The Bourne Identity
6. (5) Nornirnarfrá Eastwick
7. (-) Some Kind of
Wonderful
8. (9) Pick-Up Artist
9. (10) Hefnd Busanna II
10. (6) No Way Out
★★
Rík og leiðinleg -
Fátæk og skemmtileg
★★‘/2
★★
Útgefandi: Myndbox
Leikstjóri: Richard Sarafian. Aðalhlut-
verk: Gary Busey, Yaphet Kotto og
Seymour Cassel.
Bandarísk. 88. min. Bönnuð yngri en
16 ára.
Þeir sem kunna að meta virkileg-
an hasar ættu aö fá eitthvað fyrir
sinn snúð hér. Hvergi er slegið af
allan tímann - ofbeldið knúið
áfram á fullum dampi frá upphafi
tilenda.
í raun er þemað hér ákaflega
gamalkunnugt. í fjöldamörgum
vestrum hefur mátt sjá heiðarlega
manninn (Gary Busey) koma til
heimabæjar síns eftir að hafa af-
plánað ósanngjarna refsingu. Á
heimaslóöum er allt í- ólestri enda
skúrkarnir búnir að ná öllu á sitt
vald.
•í raun er eina breytingin sú að í
stað hesta eru notuð vélhjól og svo
eru skotvopnin aðeins kraftmeiri.
Þessi nýtískufyrirbæri eru látin
koma í stað góðrar sögu með heil-
steyptum persónum.
Það verður að segjast eins og er
að heilmikið er aö gerast allan tím-
ann og alveg má halda vöku sinni
yfir myndinni. En mikið heföi nú
verið gaman ef einhveijum hefði
dottiö í huga að hafa þessa mynd
um fólk.
-SMJ
Mótorhjóla-
ofbeldi
EYE OF A TIGER
skipt máli og hvað ekki. Sumir
segja að heimurinn standi í sömu
sporum þrátt fyrir ailt þetta fjas en
aðrir vilja halda því fram aö allt
hafl þetta verið ákaflega merkilegt.
Um það er erfitt að segja en þessi
mynd breytir alla vega litlu.
Hér er spunnin upp saga af ung-
um pilti sem getur ekki á heilum
sér tekið eftir að hafa séð kjarn-
orkusprengju. Hann ákveöur að
hætta að spila hornabolta, sem var
hans uppáháldsíþrótt, og fljótlega
gengur einn frægasti körfuknatt-
leiksmaður Bandaríkjanna (Alex
English) í lið með hor.um. Fyrr en
varir eru flestir íþróttamenn heims
komnir með í leikinn og auðvitað
endar það með því að ráðamenn
verða að fara að hlusta á piltinn.
Þetta er ósköp upphafin og væm-
in mynd. Þó boðskapurinn sé lík-
lega einhvers staðar á flökti þá er
honum rækilega drekkt í leiðind-
um og klisjum. Strákhngurinn,
sem fer með aðalhlutverkið, er
hálfómögulegur og víst er að ekki
fær hann mikla aðstoð frá þeim
fræga Gregory Peck. -SMJ
MAID TO ORDER
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Amy Jones.
Aöalhlutverk: Ally Sheedy, Beverly
D’Angelo, Michael Ontekean, Tom
Skerritt og Valerie Perrine.
Bandarísk, 1987-Sýningartimi 82mín.
Aily Seddy hefur sýnt þaö í nokkr-
um myndum á undanfórnum árum
að hún er efni í góða gamanleik-
konu. Hún býr yfir léttri framkomu
ásamt þokka sem gérir það að verk-
um að alltaf er gaman að sjá hana.
I Maid To order tekst henni ágæt-
lega upp í Öskubuskuhlutverki en
því miður er handritið frekar rugl-
ingslegt og veikt.
Sheddy leikur forríka stúlku sem
er ofdekruð og umfram allt leiðin-
leg. Eitt sinn þegar faðir hennar
hefur fengið alveg nóg af henni
óskar hann sér að hann hefði aldr-
ei átt hana. Honum verður að ósk
sinni. Dóttirin hverfur úr huga
hans og annarra sem hana þekkja
en hún hættir þó ekki að vera til.
Ennþá hin ofdekraða stúlka
reynir hún aö komast heim til sín
en er umsvifalaust hent út eins og
hún væri flækingur. Nú eru góð
ráð dýr. Peningalaus, í illa fórnu
diskódressi sækir hún um starf hjá
upptrekktum umboðsmanni
hljómsveita og glysgjarnri eigin-
konu.
Þaö má hafa nokkurt gaman af
þessari ævintýramynd og hug-
myndin er alls ekki vitlaus. Úr-
vinnslan hefði að vísu getað verið
betri. Nokkrir leikarar í aukahlut-
verkum eiga góðar senur og best
er Valerie Perrine í hlutverki hinn-
ar glysgjörnu eiginkonu umboðs-
mannsins. Sem sagt, ágæt aíþrey-
ing eina kvöldstund.
HK
Furðusögur
AMAZING STORIES V
Útgefandi: Laugarásbíó.
Leikstjórar: Philip Joanou, Todd Holland
og Mick Garris.
Aöaihlutverk: John Lithgow, Annie
Helm, David Carradine og Patric Swa-
yze.
Bandarísk, 1986. Sýningartími 70 min.
Fimmta spólan í þátttaröðinni
Amazing Stories innheldur þijá
spennandi hálftíma þætti sem að
þessu sinni eru allir lausir við blóð
og subbuskap þótt óhugnaðurinn
liggi í loftinu. Urvalsleikarar eru í
aðalhlutverkum. John Litgow leik-
ur einmana mann sem tekur ást-
fóstri við brúðu. Patrick Swayze
leikur fanga sem öðlast óvenjulega
hæfileika og David Carradine leik-
ur gráðugan gullgrafara. Þijár
stuttar og skemmtilegar myndir
sem auðvelt er að mæla með.
-HK
TBl-SttF. HCnRKAXt' HASttkHiESEXI
A TU?J5l'Ji TÆID HHX PiSr-XTirií-SLEST «3CL
^-^jMíiEtEtOiamœíGCKf rrn-wmáiá i peiesses
Rólegan æsing
QUIET COOL
SILENT VOICE
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri: Mike Newell. Handrit: David
Field. Aðalhlutverk: Joshua Zuehlke,
Alex English, Jamie Lee Curtis og Greg-
ory Peck.
Bandarisk 1987. 111 mín. Öllum leyfö.
Níundi áratugurinn hefur verið
undirlagður af friðartali og af-
vopnunarviöræðum. í sjálfu sér er
erfitt að greina hvað af því hefur
Útgefandi: Skifan
Leikstjóri og handritshöfundur: Clay
Borris. Framleiðendur: Robert Shaye
og Gerald T. Olson. Aöalhlutverk: Ja-
mes Remar, Adam Coleman Howard,
Daphne Ashbrook og Nick Cassavettes.
Bandarisk, 1986. 91 min. Bönnuð yngri
en 16 ára
Ungur piltur verður áhorfandi aö
því þegar hópur eiturlyþasala
drepur foreldra hans. Þessir eitur-
lyfjasalar halda heilu byggðarlagi
í helgreipum og þýðir ekkert annaö
en að fá utanaökomandi hetju til
að bjarga hlutunum. Hún kemur í
formi New York löggu og úm leið
byija hlutirnir að snúast á fullum
hraða og hausamir aö rúlla.
Hvað í ósköpunum er hægt að
segja um þessa mynd annað en að
hún hefur sést í þúsund skipti áð-
ur. Frumleiki er bannorö í þeim
heimi sem elur af sér myndir eins
og þessa. Að sama skapi má segja
að hér sé ekki mikiö gert til að segja
frá mannlegum samskiptum eins
og þau geta verið fjölbreytt.
Myndin er þó ekki vandræöalega
JtU:I5f
gerð og flestir leikara geta farið
nokkurn veginn skammarlaust
með hlutverk sín. Því má vera að'
einhveijir geti fundið sér afþrey-
ingu yfir þessari mynd eins og eina
kvöldstund. - En ég hef enga trú á
því aö nokkur myndi vilja sá hana
tvisvar. -SMJ