Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1988, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1988, Blaðsíða 1
Bamaleikrit sótt í Eddukvædi: Hvar er hamarinn? Norræna goðafræöin ætti eigin- lega að vera mjög vinsæl af höfund- um barnaefnis, en lítið hefur hún verið nýtt á þann hátt til þessa. Það verður því spennandi að sjá hvem- ig til tekst þegar Þjóðleikhúsið frumsýnir harnaleikrit byggt á Eddukvæðinu Þrymskviðu í Gamla híói á morgun kl. 15. Þar er aðalper- sónan Ása-Þór eða Öku-Þór. Hann var sterkastur allra goðanna, og að auki átti hann hamarinn Mjölni, sem hann notaði til að lemja hrím- þursa og bergrisa. Trölladót þetta herjaði sífellt á goðin. í kvæðinu segir svo frá því að einn þursanna, Þrymur, varð ástfanginn af gyðj- unni fógru, Freyju. Það leist ásum illa á, en Þrymur var ekki af baki dottinn og stal hamrinum frá Þór, og auðvitað kom hinn lævísi og illa innrætti Loki Laufeyjarson þar við sögu. Þór varð auðvitað öskureið- ur, og nú upphófst mikið basl við að endurheimta bareflið. Á þessu efni byggir Njörður P. Njarðvík í barnaleikritinu, sem hlotiðhefur nafnið Hvar er hamar- inn? Ása-Þór leikur Örn Ámason, en Lilja Þórisdóttir Freyju. Rand- ver Þorláksson leikur Loka en Erl- ingur Gíslason Þrym sem reyndar er tvíhöfða og Ólafur Örn Thor- oddsen leikur aukahöfuðið þegar með þarf. í leiknum er mikið af söngvum og tónlist eftir Hjálmar H. Ragnars- son. Sex manna hljómsveit með ýmis hljóðfæri tekur þátt í leiknum í bókstaflegri merkingu, því hljóð- færaleikaramir bregða sér í gervi ása og jötna, eftir því sem henta þykir. Það er mikið dansað og ærsl- ast og leikstjórinn, Brynja Bene- diktsdóttir, finnur upp á alls konar uppákomum og fornum og nýjum leikbrögðum. Loki hinn lævísi (Randver Þorláks- son). Þór með hamarinn sinn (Örn Árna- son). Siguijón Jóhannsson hannar leikmynd og búninga, en lýsingu annast Björn Bergsteinn Guð- mundsson. Hljóðfæraleikarar em Valgeir Skagfjörð, Eyþór Amalds, Hlíf Siguijónsdóttir (Herdís Jóns- dóttir leysir hana af á fyrstu tveim- ur sýningunum), Kristín Guð- mundsdóttir, Vigdís Klara Aradótt- ir og Ólafur Örn Thoroddsen. Eftir helgina fer leikhópurinn til Berlínar og sýnir tvisvar á alþjóð- legri leikhstar- og tónlistarhátíð þar, Berliner Festtage 1988. Er þeg- ar uppselt á báðar sýningarnar. Sýningar í Gamla híói hefjast aftur 22. október. -ihh Þursinn tvíhöfða, Þrymur (Erlingur sem aukahöfuð). Gíslason með Ólaf Örn Thoroddsen Myndir: Grímur Bjarnason. Veitinga- hús vik- unnar Gulhu haninn - sjá bls. 18 Ari Jóns- somDans- húsinu - sjá bls. 19 Hamlet í Iðnó Leikfélag Akureyrar: Skjaldbakan kemst þangað líka Fyrsta frumsýning Leikfélags Ak- ureyrar á nýju leikári verður í kvöld á leikriti Áma Ibsen, Skjald- bakan kemst þangað líka. í leikritinu segir frá skáldunum Ezra Pound og William Carlos Will- iams. Þar greinir frá ólíkum við- horfum þeirra til lífsins og starfs- ins. Vinátta þessara skálda stóð í sextíu ár og leiksýningin spannar þann tíma. Árni Ibsen skrifaði Skjaldbakan kemst þangað líka fyrir EGG-leik- húsið 1984 og var það sýnt það ár í Nýlistasafninu og vakti mikla at- hygli. Síðan þá hefur EGG-leik- húsinu verið boðið með leikritið á ýmsar listahátíðir víða um heim og hlotið athygh og afbragðs dóma. Lilla Teatem í Helsinki tók Skjald- bökuna til sýninga 1985 og banda- rískir leikhúsmenn hafa einnig sýnt verkinu áhuga. Persónurnar Wihiams er læknir og skáld og skiptir tíma sínum mUh þeirra starfa og er sannfærður um að læknirinn og skáldið séu óaðgrein- anlegir. Að deha kjörum sínum með fólki gefur skáldskap hans ghdi. WiUiams bjó í smáhæ aUt sitt hf, Ást hans á samastað sínum gerði staðinn að paradís á jörð. Hann var ástsælt skáld fyrir ljóð sín um allt það sem hann hrærðist í í sínu nánasta umhverfi. Þráinn Karlsson leikur Ezra Pound. Ezra Pound aftur á móti tók þá stefnu aö reyna að kynnast öllu því sem hugsað hafði verið og ort í heiminum tíl að geta feUt það í einn ljóöabálk. Heimurinn var hans vettvangur og hann festi hvergi rætur. Á fjórða áratugnum fann hann sér loks samastað í hugmynda- fræði fasismans. Hann tekur til að Theódór Júliusson leikur Williams Carlos Williams. útvarpa áróðri fyrir fasismann í seinni heimsstyijöldinni. Fyrir áróður sinn var hann kærður fyrir landráð og til stóð að dæma hann til dauða. Það kom í hlut WiUiams að veija hann þótt ekki gæti hann varið skoðanir hans. í sýningu Leikfélags Akureyrar á SkjaJdbakan kemst þangað líka fara með hlutverk skáldanna Theó- dór Júhusson, er leikur Wilham Carlos WUhams, og Þráinn Karls- son er leikur Ezra Pound. Skáldin eru einu persónur leikritsins. Leikstjóri verksins er Viðar Egg- ertsson og er Skjaldbakan fyrsta verkefni hans sem leikstjóra hjá Leikfélagi Akureyrar, en hann hef- ur verið virkur leikari hjá þeim í mörg ár. Guðrún Svava Svavars- dóttir gerir búninga, Lárus H. Grímsson semur tónlist og Ingvar Björnsson hannar lýsingu. Frumsýning á Skjaldbakan kemst þangaö líka verður í kvöld sem fyrr segir og önnur sýning á sunnudaginn. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.