Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1988, Blaðsíða 4
40 LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1988. Hvaöa TVÆR SKEIFUR eru ALVEG EINS? Sendiö svar til: BARNA-DV. Listamaðurinn Geturðu teiknaö annan svona fisk i reit- ina fyrir neðan? Litaöu báða fiskana síðan vel! œm Brandarar - Þrír Skotar fóru í kirkju og allt gekk ágætlega þangað til röðin var komin að þeim að gefa í samskotabaukinn. Þeir hvísluðust á og leystu vandann í snar- hasti. Einn þeirra lét líða yfir sig og hin- ir tveir báru hann út! - Hvers vegna varstu rekinn af kaf- bátnum? - Ég gat ekki sofið við lokaðan glugga! Maður kemur í búð og segir: - Mig vant- ar gjöf handa ungum manni sem yrkir ljóð. - Já, þarna á ég ágæta ruslakörfu! svar- aði afgreiðslumaðurinn. - Þjónn, ég held að ég fái mér bara buff í dag. - Já, með ánægju. - Nei, með kartöflum! - Þjónn, ég fékk bara einn bita af kjöt- inu. - Jæja, ég skal þá skera hann í tvennt. AMMA! Elsku BARNA-DV! Ég veit að ég er frek en ég verð að fá þetta allt birt. Ég er að gefast upp því ég hef skrifað 8 sinnum og það hefur aldrei verið birt. Og nú byijar bréfið: Elsku amma! Viltu hjálpa mér? - Þannig er að vinkona mín (ég á bara eina) er mjög leiöinleg og frek og verst er þó hvað hún hermir allt eftir mér. 1. Ég fékk gamalt jólatré sem amma mín var hætt að nota og ég var lengi aö safna skrauti á það. Þá segir vinkona mín mömmu sinni frá þessu og rétt á eftir fær hún nýtt jólatré fullt af fínu skrauti. 2. Ég fékk rándýrt Poný-hús í jólagjöf. Vinkonan klagaði í mömmu sína og þá fékk hún líka alveg eins hús. 3. Svo fékk ég skauta og hún frétti það. Hún fékk strax alveg eins skauta. 4. Ég fékk ekkert merkilega strigaskó og hún fékk svo- leiöis skó undir eins. Nú er ég ekki nálægt því að vera hálfnuð með upptalninguna en ég læt þetta duga. Hjálpaðu mér nú, elsku amma! Ein á Akureyri. Kæra „Á AKUREYRI“! Það er að vísu leiðinlegt fyrir þig að vinkonan skuli haga sér svona. En vandamálið er hennar en ekki þitt! Hún á við vandamál að glíma sem heitir öfundsýki - og þú skalt forðast að fá þann sjúkdóm líka! Njóttu heldur góðra gjafa sem foreldrar þínir, amma og aðrir gefa þér. Þér kemur ekkert við hvað aðrir fá, þó svo að það sé alveg eins! Þú átt að gleðjast yfir þínum gjöfum og vera þakklát fyrir þær. Reyndu svo að benda vinkonu þinni á að þú sért ekki í neinni keppni við hana hvað gjaf- ir snertir og hún ætti ekki heldur að vera í neinni keppni við þig. - Þið séuð vinkonur en ekki keppinautar. Þín AMMA. Kennarinn: Eru einhverj- ar spurningar? Nemandinn: Já, hvað verður um orðin þegar þú strokar þau út af töfl- unni? „Já, en - en ég kom bara til að rukka fyrir DV!!!“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.