Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1988, Side 8
★★
Trylltur dans
stjórn á sköpunarverki sínu og
kemur fyrir lítið þótt leikarar
standi sig bærilega. Myndin er þó
að mörgu leyti forvitnileg og sjálf-
sagt fyrir kvikmyndasjúka að láta
freistast til að horfa á hana.
-SMJ
Mynd-
bönd
Umsjón:
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karlsson
V _L
Þrjár nýjar kvikmyndir koma inn
á hstann og tvær þeirra taka stórt
stökk. Greinilegt er að margir vilja
fá góða hrollvekju svona rétt fyrir
jólin, því hin magnaða kvikmynd
John Carpenters, Prince Of Dark-
ness, fer beint í þriðja sætið. Þar
er það sjálfur höfðinginn í neðra
sem er höfuðóvinurinn. Hin róm-
aða óskarsverðlaunakvikmynd
The Last Emperor fer í 5. sætið og
gamanmyndin Hello Again með
Shelley Long í aðalhlutverki kem-
ur inn í 10. sætið.
Og í efsta sæti tekur ein saka-
málamyndin við af annarri. Best
Seller tekur fyrsta sætið af The
Untouchables.
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1988.
DV-LISTINN
MARGOT KiÐÞER BARRY BOSTWI
TONY LO BIANCO
★★
Skemmdarverk í kjamorkuveri
BODY
EVIPEMCE#
mraoDt imr aus.... im toa md tm
nrir' .......
ISLENSKUB TEXT1
1. (2)
2. (1)
3- (-)
4. (3)
5. (-)
6. (8)
7. (6)
8. (5)
9. (7)
10. (-)
The Best Seller
The Untouchables
Prince Of Darkness
SomeoneToWatch
Over Me
The Last Emperor
Nuts
Spaceballs
Stakeout
Tough Guys Don’t
Dance
Hello Again
TOUGH GUYS DON’T DANCE
★★ /2
Unglingaveiki
RED AUERT
Útgefandi: Háskóiabió.
Leikstjóri: Billy Hale.
Aóalhlutverk: William Devane, Michael
Brandon og Adrienne Barbeau.
Bandarisk, 1977 - Sýningartími 92 min.
Miklar umræður eru alltaf í
gangi um þá hættu er getur stafað
af kjarnorkuverum og mistökum
sem þar gætu átt sér þar stað og
gætu jafnvel eytt öllu í nágrenni
við verið. Kjarnorkuslys hafa orðið
og víst er að framhald verður á
þeim.
Red Alert er sjónvarpskvikmynd
sem gerist innan veggja kjarnorku-
vers. Stjórntölva segir hættuástand
sé og lokar öllum útgönguleiöum
og þar með farast fjórtán manns.
Þegar farið er að rannsaka hvað
hafi gerst kemur í ljós að um
skemmdarverk er að ræða og að
sprengjum hefur verið komið fyrir.
Spengjumar fmnast en ekki á þeim
stöðum þar sem þær ættu að vera,
enda kemur í ljós að skemmdar-
verkamaðurinn er meðal hinna
látnu. Eitthvað hefur farið úrskeið-
is...
Red Alert er ágætis afþreying
eina kvöldstund. Ekki ristir hún
djúpt sem aðvörun, til þess eru flest
atriði hennar of kunnugleg úr ann-
ars konar spennumyndum. Will-
iam Devane er sérstakur leikari
sem nær sér ágætlega á strik í hlut-
verkum á borð við það sem hann
hefur í Red Alert.
-HK
Útgefandi: Myndbox
Leikstjóri: Norman Mailer, Framleið-
endur: Golan og Globus. Handrit: Nor-
man Mailer byggt á eigin sögu. Aðal-
hlutverk: Ryan O’Neal, Isabella Rossel-
ini.
Bandarísk 1987. 105 min. Bönnuð yngri
en 16 ára.
Það voru mistök hjá Mailer að
leikstýra þessari mynd. Um það eru
flestir sammála. Það er hins vegar
að mörgu leyti skiljanlegt aö hon-
um hafi langað að fylgja þessu
barni sínu alla leið. Sagan er í hin-
um harðskeytta bandaríska bók-
menntastíl sem er nátengdur þurru
og knöppu myndmáli margra
j bandarískra kvikmynda.
Sagan segir frá Tom Maddén sem
er rækilega flækktur í morðmál
einn morguninn þegar hann vakn-
ar eftir herfilegt fyllirí. Veruleik-
inn er vitfirrtur og söguþráðurinn
sömuleiðis. Mailer tekst illa að hafa
í leit að sönnunargögnum
RIVER’S EDGE
Útgefandi: Skifan
Leikstjóri: Tim Hunter. Handrit: Neil
Jimenez. Aðalhlutverk: Crispin Glover,
Keanu Reeves, Roxana Zal og Denis
Hopper.
Bandarísk 1986. 99 mín. Bönnuð yngri
en 16 ára.
Hér er um að ræða heldur myrka
sýn á manninn svo að líkja má við
hina frægu bók nóbelsverðlauna-
hafans Williams Golding, Höfuð-
paurinn. Börnin eru aðeins eldri
hér en jafnráðvillt í heimi ofbeldis
og firringar. Það má vera að hér
hafl veriö ætlunin að gagnrýna
★★
Bömin
í þriðju myndinni „Það er enn á
lífi“ hefur þessum börnum verið
komið fyrir á eyju einni og nú eru
þau fullorðin þótt ekki séu þau
nema átta ára. Þegar þeim er ógnað
sleppur enginn lifandi frá þeim.
Allt í einu ræna þau báti og stefna
til lands og birtast þar íbúum
strandborgar einnar til mikillar
skelfmgar. Þegar farið er að rann-
saka af hverju þau koma til megin-
landsins kemur í ljós að þau eru
öll haldin ólæknandi sjúkdómi...
Þessar þrjár myndir eiga það
sameiginlegt að vera stjórnað af
Larry Cohen og ekki er hægt að
segja annað en að vel hafi tekist
til. Mikill munur er á tæknivinnu
í fyrstu og síðustu kvikmyndinni.
Á móti kemur að fyrsta myndin er
með bitastæðasta handritið. Fyrir
unnendur spennu- og hryllings-
mynda er alls ekki svo vitlaust að
sjá allar þessar þrjár myndir, enda
eru þær í beinu framhaldi hver af
annarri.
-HK
Tímaflakk
GOR
Útgefandi: Myndbox
Leikstjóri: Fritz Kersch.
Myndataka: Hans Khule
Handrit: Rick Marx
Aðalhlutverk: Urbano Barberini Rebec-
ca Ferratti, Jack Palance, Paul L. Smith
og Oliver Reed
93 min. Bönnuð yngri en 16 ára.
Ævintýramyndir sem þessi hljóta
að eiga mest erindi til yngri áhorf-
enda en eigi að síður er þessi mynd
bönnuð fyrir 16 ára og yngri. Efni
myndarinnar er meðhöndlað á það
barnalegan hátt að varla getur það
höfðað til eldri áhorfenda. Myndin
virðist því flögra um í tómarúmi
sem er kannski vel við hæfi því hún
segir frá tímaflakki. Ruglaður sög-
uprófessor dettur á höfuðið og er
skyndilega staddur á allt öðrum
stað þar sem menn takast á og kon-
ur ganga um í bikini. Þetta mun
vera einhvers konar forsögulegur
tími sem er hér meðhöndlaður
heldur heimskulegar en í Conan.
Hefur virkilega enginn áhuga á að
gera svona myndir af viti?
-SMJ
Aðalpersónan er ung eiginkona
læknis sem vinnur við krufningar
á líkum. Fjöldamorðingi gengur
laus og em fórnarlömb hans ein-
göngu ungar konur. Erfiðlega
gengur að finna áþreifanlegar
ábendingar um það hver morðing-
inn er þrátt fyrir yfirgripsmikla
leit.
Eiginkonan unga sem heldur sig
lifa í hamingjusömu hjónabandi
verður fyrir andlegu áfalh þegar
hún kemst yfir upplýsingar um að
eiginmaðurinn geti verið fjölda-
morðinginn.
Líkurnar eru sterkar. Líkin eru
dauöhreinsuð af öhum ummerkj-
um og hegöun hins ástkæra eigin-
manns er stundum undarleg. Ekki
þorir hún að segja lögreglunni frá
grunsemdum sínum heldur vin-
konu sinni og saman ákveða þær
að komast að hinnu sanna í mál-
inu. Eins og ætíð í sakamálamynd-
um þróast málin öðruvísi en haldið
var.
Body of Evidence er ágætlega
leikin og er Barry Bostwick sérlega
góður í hlutverki eiginmannsins og
krufningamannsins. Góður leikur
og gott handrit kippa myndinni þó
nokkuö yfir meðahag.
-HK
sem enginn vill
ÞAÐ ER ENN Á LÍFI (ISLAND
OF THE ALIVE)
Útgefandi: Steinar.
Leikstjóri: Larry Cohen.
Aðalhlutverk: Michael Moriarty,
Karen Black og Laurene Landon.
Bandaríkin, 1986 - Sýningartími 87
mín.
Það er enn á lífi er þriðja í röð-
inni af kvikmyndum sem eru í
beinu framhaldi hver af annarri en
eru gerðar á 14 ára tímabili. í fyrstu
myndinni „Þaö lifir“ kynnumst við
hjónum sem eiga von á barni.
Barnið sem fæðist er ófreskja sem
sleppur eftir að hafa gengið frá
lækni og hjúkrunarliði.
í þeirri mynd kemur fram að
lyfjafyrirtæki eitt hefur sent á
markaðinn meðal sem hefur þessi
áhrif í einstaka tilfelli. í lok fyrstu
myndarinnar er búið að ganga frá
„barninu“ þó foreldrarnir hafi
reynt að vernda það.
I annarri myndinni „Það er lif-
andi“ er það orðin staðreynd að
þessi ófreskjuböm fæðast af og til.
Komið hefur verið upp rannsókn-
arstöð þar sem þeim er komið fyr-
ir. Búið er að komast að því að
þessi grimmu böm em óvenjulega
greind og þroskast mun hraðar en
aðrar mannverur.. AUt fer þó úr-
skeiðis í rannsóknarstofunni.
uppeldismál í Bandaríkjunum og
að nokkru leyti má segja að það
takist. Unglingarnir eru engan veg-
inn færir um að takast á við þær
siðferðfiegu spurningar sem vakna
þegar morð er framið. Þeir vafra
um ráðvfiltir en í myndinni leynist
heldur engin lausn. Aðeins er
brugðið upp heldur væmnum endi
sem skýrir fátt. Myndin er ofhlaðin
og leikarar og leikstjóri ekki færir
um að takast á við þau vandamál
sem vakin eru upp. Það má þó segja
að það sé virðingarvert að þeir
skyldu reyna.
-SMJ
BODY OF EVIDENCE
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Roy Campanella II.
Aðalhlutverk: Margot Kidder, Barry
Bostwick og Tony Lo Bianco.
Bandarisk, 1988. - Sýningartími 100
mín.
Body of Evidence er sakamála-
mynd og gerð fyrir sjónvarp. Og
sem slík er hún furðugóð. Spennan
er alltaf fyrir hendi og handritið
er ágætlega skrifað.