Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1988, Blaðsíða 4
26
FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1988.
Dansstaðir
Abracadabra,
Laugavegi
Diskótek á annan í jólum til kl. 01
Amadeus, Þórscafé,
Brautarholti, sími 23333
Á annan í jólum verður sérstakt
konukvöld. Allar konur fá frítt inn
og glaðning frá Margret Astor. Opið
til kl. 01.
Broadway,
Álfabakka 8, Reykjavík, simi 77500
Á annan í jólum verður diskótek opiö
til kl. 01.
Casablanca,
Skúlagötu 30
Diskótek á annan í jólum til kl. 01.
Duus-hús,
Fischersundi, sími 14446
Diskótek á annan í jólum.
Glæsibær,
Álfheimum
Gömlu dansarnir með hljómsveit
Jóns Sigurðssonar á annan í jólum.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavik
Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir
dansi í kvöld til kl. 03. Diskótek á
annan i jólum til kl. 02.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík. sími
11440
Tónleikar með Bubba og Megasi ;
kvöld til kl. 01, diskótek til kl. 03. A
annan í jólum verður diskótek til kl.
02
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Opið í kvöld og á annan i jólum til
kl. 24.30.
Hótel ísland
Opið í kvöld til kl. 03. Stjórnin leikur
fyrir dansi. Á annan í jólum leikur
Stjórnin til kl. 02.
Hótel Saga,
Súlnasalur,
v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221
Lokaö í Súlnasal um helgina.
Ölver,
Álfheimum 74, s. 686220
Opið til kl. 03 í kvöld og til kl. 02 á
annan í jólum. Hilmar Sverrisson
leikur bæði kvöldin.
Tilkyimingar
Sundlaugin á Loftleiðum
Sundlaugin og gufubaðiö á Hótel Loftleið-
um verður opið almen'ningi alla jóladag-
ana. Nánari upplýsingar í síma 22322.
Neyðarvakt Tannlækn—
félags íslands
verður um jól og áramót. Upplýsingar í
símsvara Læknafélags Reykjavíkur
18888.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, aðfangadag.
Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.
Hin hljóða nótt er að nálgast. Á aðfanga-
dag eru allir ungir sem eldri velkomnir
í jólakafíi og til að sitja við kertaljós og
eiga góða stund í góðum félagsskap á
Digranesvegi 12. Utanbæjarfólk velkom-
ið.
Útvörður
Út er komið tímaritið „Útvörður" sem
gefið er út af Samtökunum um jafnrétti
milli landshluta. í ritinu er fjöldi greina
um landsbyggðarmál, í víðustu merk-
ingu, enda berjast samtökin fyrir jafn-
vægi í byggð landsins. Greinahöfundar
eru margir og sumir landsþekktir og er
ritið skrifað af fólki sem búsett er vítt og
í gærkvöldi voru frumsýndar í Hall-
grímskirkju dansbænirnar Faöir vor
og Ave Maria eftir Ivo Cramér. Viö
sama tækifæri flutti Mótettukórinn
þijá sálma undir stjórn Harðar
Áskelssonar.
Höfundur dansanna, Ivo Cramér,
haföi lengi verið heillaöar af hug-
myndinni um aö túlka sálm eða bæn
með danshreyfingu í kirkjú. Það var
samt ekki fyrr en hann tók þátt í
guðþjónustu fyrir heyrnarlausa í
Noregi að hann skildi hvernig hann
ætti að semja dansinn. Þar heillaðist
hann af sálmasöngnum sem stúlkna-
og drengjakór söng á táknmáli.
Teiknandi kór.
Úr hreyflngum þeirra og annarra
tákna samdi hann eigið danshreyf-
ingamál í stækkuöu og stílfærðu
formi við bænina Faðir vor. Þetta var
1970. Sá dans varð aö hefö í Svíþjóð
og er dansaður á hverju ári um jólin.
Ave Maria er 'sérstaklega saminn
fyrir-Maríubænina og tileinkar höf-
undur dansinn Vigdísi Finnboga-
dóttur.
Sýningin hefst með að Mótettukór-
Frá sýningu íslenska dansflokksins I Hallgrimskírkju. DV-mynd KAE
Dansbænir í Hallgrímskirkju
inn syngur þrjá sálma. Einn þeirrá
er Ave Maria. Flutningi lýkur með
Faðir vor og fer Arnar Jónsson leik-
ari með textann um leið og dansað
er. Tónlistin við Faðir vor er eftir
Ralph Lundsten.
Næsta sýning er 27. desember.
Verða sýningar síöan 28., 29. og 30.
desember. Miðasala verður í Þjóð-
leikhúsinu og síðan í Hallgrims-
kirkju klukkutíma fyrir sýningu.
-HK
Bubbi og Megas hafa gert víðreist um landið að undanförnu. Mynd þessi
er tekin á einum tónleikum þeirra.
Hótel Borg:
Þorláksmessu-
tónleikar Bubba
og Megasar
Bubbi og Megas halda sína árlegu
Þorláksmessutónleika á Hótel Borg
í kvöld.
Bubbi og Megas hafa gert víðreist
að undanförnu og haldið sameigin-
lega tónleika víða um land. Tilefni
hljómleikanna er plata þeirra félaga,
Bláir draumar, sem er fyrsta sameig-
inlega útgáfa þeirra félaga. Bláir
draumar hefur selst mjög vel aö und-
anförnu og er allt útlit fyrir að þar
sé á ferðinni „metsöluplata".
Þorláksmessutónleikarnir verða
lokatónleika Bubba og Megasar, í
bili að minnsta kosti. Húsið verður
opnað kl. 21 en tónleikarnir hefjast
kl. 22.
breytt um landið og starfar í hinum ýmsu
stéttum þjóöfélagsins. Ætti því hér að
birtast allgott þversnið af almenningsá-
litinu í landinu, hvað byggðamálin varð-
ar.
Aðbúnaður togarasjómanna
Út er komið ritið Aðbúnaður togarasjó-
manna - breytingar meö nýsköpunartog-
urum og vökulögum um tólf stunda
hvíldartíma eftir Svanhildi Bogadóttur
sagnfræðing. Ritið fjallar um aðbúnað
sjómanna á togurum fyrir og eftir til-
komu nýsköpunartogaranna svokölluðu
upp úr seinna stríði. í riti Svanhildar er
farið um allan togarann og lýst aöbúnaði
áhafnarinnar, vistarverum, hreinlætis-
aðstöðu og annarri aðstöðu og því hversu
gífarlegar breytingar uröu með tilkomu
nýsköpunartogaranna á þessu sem og líf-
inu um borð. Einnig er lýst harðri bar-
áttu sjómanna fyrir að fá vinnuviku sína
stytta. Rit Svanhildar var upprunalega
skrifað sem B.A. ritgerð í sagnfræði við
Háskóla íslands 1985. Þaö er í nýjum
flokki sagnfræðirita sem ber nafniö Rit-
röð sagnfræðinema og er gefrn út af sagn-
fræðinemum við Háskóla íslands í sam-
vinnu við Sagnfræöistofnun Háskólans.
Það fæst í öllum helstu bókaverslunum.
Arfurtil líknarfélaga
Nýlega barst tveim líknarfélögum í borg-
inni, Sambandi dýravemdunarfélaga ís-
lands og Styrktarfélagi vangefinna, arfur
eftir Guðrúnu Siguröardóttur, er síðast
bjó að Furugerði 1 hér í borg. Arfur til
hvors félags nam rúmlega 700 þús. kr.
Guðrún fæddist að Sjávarhólum á Kjalar-
nesi 6. mars 1896 en andaðist í Reykjavík
10. maí sl. Hún var gift Þorsteini Elías-
syni, sem látinn er fyrir mörgum árum.
Bjuggu þau mestallan sinn búskap í
Reykjavík. Samband dýraverndunarfé-
laga hefur ákveðið að verja arfinum til
fræðslu- og útbreiðslustarfsemi • en
Styrktarfélag vangefmna hyggst nota
hann til endurbóta og lagfæringa á sam-
býlum félagsins. Félögin meta mikils hlý-
hug og vinsemd Guðrúnar er hún sýndi
með ráðstöfun þessari.
félagsins felst m.a. í fræðslu- og umræðu-
fundum sem haldnir eru mánaðarlega og
á hverju vori eru haldin endurmenntun-
arnámskeið fyrir námsráðgjafa. Síðasta
vornámskeið bar yfirskriftina „Sérþekk-
ing námsráðgjafa" og var þar rætt um
ýmis stefnumarkandi atriði varðandi
námsráðgjöf í íslenskum skólum.
Bankablaðið
Bankablaðiö, 54. árgangur, er komiö út.
Efnið er fjölbreytt að vanda en meginefni
blaðsins að þessu sinni er um jafnréttis-
mál og fræðslumál. Viötöl eru við Klöru
ívarsdóttur, sem hafnað var í stöðu spari-
sjóðsstjóra í Neskaupstaö, en Jafnréttis-
ráð hefur ákveðið að lögsækja stjórn
sparisjóðsins vegna máls hennar. Þá er
viðtal við Kristínu Steinsen, fyrstu kon-
una í stöðu aðstoðarbankastjóra á ís-
landi, Daníel Gunnarsson, sem ráðinn
var skólastjóri Bankamannaskólans í
haust, og Adolf Björnsson, fyrrv. form-
ann Sambands ísl. bankamanna. í blað-
inu eru einnig ýmsar greinar. Fram-
kvæmdastjóri Samb. ísl. bankamanna er
Einar Örn Stefánsson, og er hann jafn-
framt ritstjóri Bankablaðsins. Blaðið er
„Grái prinsinn“
Ut er komin bókin „Grái prinsinn" eftir
Dúa Másson. „Grái prinsinn" er litrik og
óvenjuleg njósnasaga sem gerist á Ís-
landi, í Hollandi og Kairó. Bókin er
myndskreytt af Ingólfi Björgvinssyni.
Dúi er 26 ára gamall Reykvíkingur og
leggur stund á söngnám við söngskólann
í Reykjavík. Fyrri verk hans eru „Ævin-
týri gula’ jakkafatamannsins", sögur og
Ijóð sem út komu 1987, og Texti sjónleiks-
ins „Þessi... þessi maður“, sem frum-
fluttur var af Leiksmiðjunni ísland í júni
1988. Það er útgáfan 1988 Hugboð sem
gefur „Gráa prinsinn" út í 150 eintökum.
Stensill hf. sá um prentun.
2 Vtluíl l.aiy
uU+l&l4
'Háa. t*/8&
Námsráðgjafinn
félagsblað Félags íslenskra námsráðgjafa
kemur nú út í annað sinn. Tilgangur út-
gáfunnar er að kynna störf námsráðgjafa
og vekja athygli á stóraukinni þörf á ráð-
gjöf i íslenskum skólum. Að þessu sinni
flytur blaðið fréttir af störfum námsráð-
gjafa á öllum skólastigum. Blaðinu er
dreift í alla skóla. Félag íslenskra náms-
ráðgjafa var stofnað árið 1981. Starfsemi
unnið í Repró, Grafík og Félagsbók-
bandinu, prentað í 4500 eintökum og sent
öUum félagsmönnum SÍB.
Tónlistarkennslu-
myndbönd
eftir Guðmund Norðdahl tónlistarkenn-
ara komu út í haust. Þetta eru níu sjón-
varpsþættir sem sýndir verða í Sjón-
varpinu á næsta ári. Þessir kennsluþætt-
ir heita „Flautan og litirnir" og eru ætlað-
ir yngstu kynslóðinni. Ætlast er til aö
börnin syngi og leiki á blokkflautur með
myndböndunum og einnig sjónvarpinu
þegar þættirnir verða teknir þar til sýn-
inga eftir áramót. Myndböndunum fylgja
nótnahefti, sem eru lita- og föndurbækur
ásamt blokkflautu (1. þáttur). Kennslu-
bókin fæst hjá Skólavörðubúðinni og ís-
tón (ísl. Tónverkamiöst.) Kennslubókin
spannar allt efni þessara níu þátta.
Myndböndin er hægt að panta hjá flest-
um bókabúöum um land allt. Fyrstu
þremur þáttunum (myndböndunum)
fylgir úrdráttur úr kennslubókinni.
Fjöldi þekktra tónlistarmanna ásamt
börnum hafa unnið að gerð þessara þátta.