Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1989, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1989.
Utlönd
Breyttar áherstur í utanríkisstefnu
James Baker, næsti utanríkisráðherra Bandarikjanna, svarar hér spum-
ingum frammi fyrir utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings
í gær.
Simamynd Reuter
James Baker, næsti utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gaf í gær til
kynna að stjórn Bush myndi fylgja stefnu Reagans í utanríkismálum en
leita að nýjum aðferöum til að koma á friði í Mið-Ameríku.
Baker sat í gær fyrir svörum hjá utanríkismálanefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings. Hann kemur aftur fyrir nefndina í dag og búist er við
að hann verði samþykktur í þetta nýja embætti sitt án vandræða.
Baker sagði að þörf væri fyrir steöiu sem væri þess eðlis að forsetinn
og þingið gætu unnið saman að því að koma á friði í Nicaragua, öðruvísi
myndi aldrei nást árangur.
Kohl gerður ábyrgur
Búist er viö aö stjórnarandstaðan í Vestur-Þýskalandi ráöist harkalega
að Helmut Kohl kanslara þegar þingið ræðir aðild vestur-þýskra fyrir-
tækja að uppsetningu efnavopnaverksmiðju í Libýu.
Stjórnin virtist vera aö reyna að gera sem mirinst úr umræðunni um
máliö með því aö lýsa því yfir í gær að annar ráðherra myndi tala fyrir
hönd Kohls við umræðuna.
Ekki var talið líklegt aö Jafriaðarmannaflokkurinn, sem er helsti stjóm-
arandstöðuflokkurinn, léti fiarveru Kohls úr þingsölum hafa nokkur
áhrif á sig. Talið er að árásimar á hann fyrir ruglingslegar yfirlýsingar
frá því að mál þetta kom fyrst upp á yfirborðið verði mjög harðar.
Reagan ver Meese
Reagan Bandaríkjaforseti tók í gær upp hanskann fyrir Edwin Meese,
fyrrum dómsmálaráöherra, en þeir hafa verið vinir í tuttugu og fimm
ár. Hann vísaöi á bug öllum ásökunum um að siögæði Meese væri ábóta-
vant. Sagöi hann aö skýrsla, sem dómsmálaráöuneytið lét gera um Me-
ese, væri verk pólitískra andstæöinga Meese.
Þessi harða afstaða forsetans og Hvita hússins gagnvart skýrslunni
varð til þess að Richard Thornburgh dómsmálaráðherra lýsti þvi yfir að
hann teldi skýrsluna ekki vera verk andstæöinga Meese.
Thomburgh sagðist líta svo á að máli Meese væri lokið og að hann
ætti rétt á því að fá smáfrið eftir að hafa verið milh tannanna á fólki og
fjölraiðlum um langt skeið.
Hvítlaukur gegn magakrabba
Át á hvítlauk og öðrum laukum getur dregiö stórkostlega úr hættu á
magakrabba samkvæmt niöurstöðum rannsókna á næstum sautján
hundruð Kinverjum. Þessar niðurstöður voru birtar í gær í tímariti
bandarisku krabbameinsstofiiunarinnar.
Þessar niðurstöður koma heim og saman við það að í ákveðnu héraði
í Georgíuríki í Bandaríkjunum, þar sem ræktað er mikiö af sætum lauk,
er tíðni magakrabbameins einungis þriöjungur þess sem hún er yfir
landið allt.
Hermönnum býður
við ofbeldinu
Samtímis því sem yfirvöld í ísrael
boðuðu hertar aðgerðir gegn Palest-
ínumönnum á herteknu svæðunum
réðust þreyttir og niðurbrotnir ísra-
elskir hermenn úr varaliðinu á
Shamir forsætisráöherra. Kváðu
þeir hann vera úr snertingu við
raunveruleikann á vesturbakkanum
og Gazasvæðinu.
Hermennirnir, sem hittu Shamir í
bænum Nablus á vesturbakkanum í
gær, gagnrýndu hina nýju herferð
stjórnarinnar til þess að binda enda
á uppreisnina sem nú hefur staðið í
rúma þrettán mánuði. Kváðust her-
mennirnir hafa neyðst til þess að
beita saklaust fólk ofbeldi. Einnig
bentu þeir á að þegar einn eftirlits-
maður hersins væri á ferð væri það
ekki alltaf sem hann tilkynnti yfir-
manni sínum hversu marga Palest-
ínumenn hann hefði fellt eða sært.
Sögðu hermennirnir að oft gerðust
atvik sem enginn væri til frásagnar
um. Herinn viðurkennir aðeins um
helming þeirra dauðsfalla sem til-
kynnt er um frá sjúkrahúsum á her-
teknu svæðunum.
Shamir svaraði gagnrýninni með
því að saka þjóöernissinnaða Palest-
ínumenn um að neyða ísraelsmenn
til þess að myrða börn sem kasta
gijóti. Síðar sagði Shamir að ákvörð-
un Bandaríkjamanna um að eiga við-
ræður við Frelsissamtök Palestínu-
manna hefði gefið þeim byr undir
báða vængi sem beita ofbeldi til að
sigra ísraelsmenn.
I gær hétu heryfirvöld því að eyði-
leggja heimih þeirra sem meiddu
ísraelska landnema. Hermenn mega
loka verslunum Palestínumanna,
gera eignir þeirra upptækar og refsa
foreldrum þeirra barna sem kasta
grjóti að hermönnum. Auk þess var
heimilað að skjóta plastkúlum á
israelskur lögreglumaður hugar að arabískum unglingi sem meiddist þeg-
ar lögregla dreifði mótmælendum við skóla í austurhluta Jerúsalem í gær.
Unglingurinn féll ofan af veggnum í baksýn. Simamynd Reuter
mótmælendur sem kasta grjóti.
Hingað til hefur herinn haft þær
reglur að aðeins sé skotið þegar líf
hermanna er í hættu.
Stjórnarandstæðingar munu í dag
bera fram vantrauststillögu á ríkis-
stjórnina vegna hertra aðgerða gegn
Palestínumönnum, að því er sagði í
ísraelska sjónvarpinu í gær.
Reuter
Barið á mótmælendum
Óeirðalögregla í Prag í Tékkó-
slóvakíu beitti 1 gær, þriðja daginn
í röð, kylfum og vatnsþrýstibyssum
til þess aö dreifa mótmælendum.
Hundruö lögreglumanna voru send
á Wenceslastorg þegar forvitnir
vegfarendur söfnuðust þar saman
á háannatíma þar sem þeir þjugg-
ust viö að til tíöinda drægi. Ekki
höfðu nein mótmæli veriö skipu-
lögð.
Heimildarmenn andófsmanna
segja aö þegar lögreglan hafi
sprautaö vatni á fólki hafi þaö fariö
aö blístra og syngja slagorð. Lög-
reglan sást draga nokkra á brott.
Það tók lögregluna nokkra klukku-
tíma að ryöja torgið en þar eru
margar verslanir, kvikmyndahús
og hótel.
Lögreglan greip til þessara að-
gerða aðeins nokkrum klukku-
stundum eftir að Georg Shultz, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
gagnrýndi yfirvöld í Tékkóslóvak-
íu fyrir ofbeldi gegn mótmælend-
um. Reuter
Fimmtíu farast í lestarslysi
Lögreglumaður skoðar flak skólabílsins eftir að hann lenti í árekstri við
jámbrautarlest.
Sfmamynd Reuler
Þijátíu og fimm táningsstúlkur voru meöal fimmtíu manna sem fórust
í gær þegar skólabill fullur af krökkum lenti í árekstri við jámbrautar-
lest á suövesturhluta Sri Lanka.
Skólabfllinn, sem í voru eitt hundrað og þijátíu farþegar, klipptist í
sundur viö áreksturinn með fyrrgreindum afleiðingum.
Reuter
Samþykkja lögleiðingu Samstöðu
Jaruzelski hershöföingi ávarpar fund miðnefndar pólska Kommúnistaflokks-
ins í gær. Simamynd Reuter
Miðnefnd pólska Kommúnista-
flokksins samþykkti í morgun
traustsyfirlýsingu til handa Wojci-
ech Jaruzelski hershöfðingja, leið-
toga flokksins, á löngum fundi sem
stóð langt fram á nótt. Einnig var
samþykkt að géra Samstöðu, hin
bönnuöu verkalýðssamtök, lögleg í
áföngum.
Hin opinbera pólska fréttastofa,
PAP, sagði að einungis fjórir hefðu
setiö hjá við afgreiðsluna á trausts-
yfirlýsingunni. Ekki var vitað í
morgun hvernig orðalag var á sam-
þykkt miðnefndarinnar um lögleið-
ingu Samstöðu á nýjan leik.
Umræðurnar í gær voru mjög
harðar og skoðanir voru mjög skipt-
ar um það hvort leyfa ætti Samstöðu
aftur. Það er athyglisvert að það
skuh vera Jaruzelski sem berst fyrir
Samstöðu nú. Það var hann sem setti
herlög í desember 1981 og bannaði
Samstöðu eftir að samtökin höfðu
verið lögleg í sextán umbrotasama
mánuði.
Samþykktin um lögleiðingu Sam-
stöðu var einnig samhljóma. í henni
mun felast aukið frelsi verkalýðs-
félaga og einnig aukið pólitískt frelsi.
Reuter