Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1989, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1989, Blaðsíða 32
F R ETT A S KOTIÐ Æmmmm átmmm mmm' oBmm MMHI Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagblað Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Simi 27022 MIÐVIKUDAGUR 18. JANÚAR 1989. Laxfoss: Troðfullur gámur af bjór Tollveröir fundu í gærdag mikið magn af bjór í gámi sem kom meö Laxfossi - ööru af tveim nýjum skip- um Eimskips. Bjórinn var í tuttugu feta gámi sem skráður var tómur í farmskrá skipsins. Samkvæmt heim- ildum DV var gámurinn fuilhlaöinn af bjór. Vegna þessa leituöu tollverð- ir í öllum gámum sem komu með skipinu. Bjór fannst í einum gámi til viðbótar. Þegar betur var aö gáð kom í ljós að bjórinn í þeim gámi var í eigu erlends sendiráðs. Samkvæmt heimildum DV hefur enginn skipverja gengist við að eiga bjórinn. Meðal annars er grunur um að fyrrverandi stýrimaður Eimskips ~~"eigi bjórinn og hafi staðið að inn- flutningnum. Gámurinn fannst á afmælisdegi Eimskips - en eins og kunnugt er varð félagið 75 ára í gær. Vinna við Laxfoss lá niðri um tíma í gær vegna þessa máls. -sme Þrotabú tívollslns: Kröfurnar um 160 milljónir - eignir óverulegar Eignir Skemmtigarðsins hf., það er tívolísins í Hveragerði, reyndust óverulegar. Kröfur í þrotabúið voru á milli 150 og 160 miUjónir króna. Ekkert fékkst upp í almennar kröfur og aðeins hluti forgangskrafna mun fást greiddur. Húsið, sem byggt var yfir starfsemina, var ekki eign Skemmtigarðsins og kemur því ekki til skipta. ^ Allt bendir til þess að þrotabúið þurfi að höfða einhver mál til að fá ákveðnum gerðum fyrrum stjórn- enda fyrirtækisins rift. Þar til þau mál hafa verið útkljáö er ekki hægt að segja til um hversu stórt gjald- þrotið er. Nú liggur fyrir að það er umtalsvert. Þrotabúið hefur selt leik- tækin sem voru í tívolíinu. -sme NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-5000 GÓÐIR BÍLAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR LOKI Smyglararnir hafa lík- lega ætlað að halda vel upp á afmælið! Steingrímur með tillögur um pakka - lítil hrifning innan samstarfsflokkanna Samkvæmt heimildum DV mun Steingrimur Hermannsson forsæt- isráöherra leggja fram tillögur um efnahagsaðgerðapakka fýrir hina stjórnarflokkana um eða eftir næstu helgi. Þessar tillögur gera meðal annars ráð fyrir víðtækum aögerðum varðandi vexti, verð- lagsmál og uppstokkun á fjár- magnsmarkaðinura. Tillögiu- hafa verið mótaðar í efnahagsmálanefnd Frarasóknar og í forsætisráöuneytinu við lítinn fögnuð sarastarfsflokkanna. Viss- an um að þeirra væri að vænta varð meðal annars til þess að Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra var- aði við þeim vinnubrögðum að hver stjórnarflokkur um sig setti óskalista sinn á blað í greinargerð um ástand og horfur í efhahags- málum sem hann lagöi fram í ríkis- stjórn. Menn innan A-flokkanna telja að með þeim vinnubrögðum sé hætt við að ástandið í stjórninni geti orðið líkt og á síðustu mánuð- um ríkisstjórnar Þorsteins Páls- sonar. Á fundum sínum að undanfömu hefur Steingrímur viðraö ýmislegt úr tillögum sínum. Hann hefur meðal annars sagt að verðstöðvun í einhvers konar formi sé óumflýj- anleg eftir að núgildandi verð- stöðvun rennur út. Hann hefur spurt hvort ekki sé hægt að leggja Utvegsbankann niður til að ýta undir uppstokkun í bankakerfinu. Steingrímur vill að lögum um Seðlabanka verði breytt svo að bankinn geti ákvarðað hámarks- vexti án tillits til raunvaxta í ná- grannalöndunum. Framsóknarflokkurinn vill að ríkisstjórnin grípi nú til aðgerða sem forsvarsmenn atvinnuveg- anna geti sætt sig við. Innan A- flokkanna eru margir hins vegar á því að bágborin staða atvinnuveg- anna sé aðalhvatinn að nauösyn- legri hagræðingu og uppstokkun þar. Það má því búast við að tekið verði á móti tillögum Steingrims með tillögum um annars konar pakka. -gse Báðir togararnir skemmdust í árekstrinum eins og sést á þessum myndum at stefninu á Albert (stærri myndin) og Jóni Kjartanssyni. DV-myndir Emil Thorarensen og Jóhann Jónsson Áreksturinn á loönumiöimum: Albert var að kasta nótinni Þegar loðnuskipin Albert GK og Jón Kjartansson SU lentu í hörðum árekstri á loðnumiðunum í fyrra- kvöld var áhöfnin á Albert byrjuð að kasta. Um 40 faðmar af vír og 30 faðmar af tógi voru farin út og kom- ið var að því að sleppa nótinni þegar áreksturinn varð. Skipstjórinn hafði sett á ljós sem gáfu til kynna að bát- urinn var heftur vegna veiðarfæra. Um borð í Jóni Kjartanssyni átti að fara að kasta. Áhöfnin var að klæða sig í hlífðarfót þegar áreksturinn varð. Sjópróf hófust hjá sýslumanns- embættinu á Eskifirði í morgun. Skipin voru hlaðin loðnu þegar áreksturinn varð. Jón Kjartansson var með 900 tonn en skipið ber mest um 1100 tonn. Albert var með 650 tonn en ber mest um 750 tonn. Skipin voru því mjög þung og lengi að stöðv- ast. Um borð í Albert óttuðust menn að virinn og tógið, sem höfðu runnið út, færu í skrúfu skipsins þegar skip- stjórinn setti á fulla ferð aftur á bak. Bæði skipin eru mikið skemmd og verða frá veiðum um tíma - meðan viðgerðirfarafram. -sme Gunnar Ásgeirsson hf.: Selt í næstu viku? Gunnar Ásgeirsson, aðaleigandi fyrirtækisins Gunnars Ásgeirssonar, segir að nokkur hreyfing sé komin á sölumál fyrirtækisins og að tveir til þrír aðilar séu nú alvarlega að hugsa sig um að kaupa það. „Ég reikna með að málið skýrist í næstu viku, að þá fáist niðurstaða um það hvort fyrirtækið verður selt eða ekki,“ segir Gunnar. Öllum starfsmönnum Gunnars Ás- geirssonar hf. var sagt upp 1. des- ember. Hinn 1. mars rennur starfs- tími þeirra út. Yfirlýst stefna eigand- ans, Gunnars Ásgeirssonar, er að selja fyrirtækið eða ráðast í nokkra endurskipulagningu á því. -JGH Veðrið á morgun: Élá Vestur- landi Á morgun verður fremur hæg suðvestanátt um allt land, él verða suðvestan- og vestanlands en úrkomulaust en skýjað í öðr- um landshlutum. Hitinn verður aðeins undir frostmarki. Fólksbílafæri á Möðrudalsfjöllum Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstöðum; Óvenju snjólétt hefur verið á Hér- aði það sem af er vetri. Hefur sáralít- ið þurft að hreyfa snjóruöningstæki í byggð. Hins vegar hafa vegir verið svellaðir og því oft hálka. Frá miðjum desember hafa skipst á snjógusur og hlýindakaflar og margan daginn hefur veður verið bjart og kyrrt. Sem dæmi um hve snjólétt hefur verið er að nú, 14.jan- úar, er fólksbílafært um Möðrudals- fjöll, bæði austur á Jökuldal og til Vopnafjarðar. Sagði Vemharður bóndi á Möðrudal að það væri algert einsdæmi á þessum árstíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.