Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1989, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1989.
Fréttir
Þæfingsfærð 1 Reykjavík:
Annir hjá lögreglu
og hjálparsveitum
Umferöaröngþveiti ríkti í Reykja-
vík í allan gærdag eftir aö hvessti
verulega snemma á sunnudagsmorg-
un. Aö sögn lögreglu voru helstu far-
artálmamir illa búnir smábílar sem
fólk hafði fest og skihö eftir. Reynt
var aö halda helstu umferöaræöum
opnum en yfirgefnir bílar töföu það
verk nokkuð. Kranabílar unnu viö
að fjarlægja þá og lögregla og hjálp-
arsveitir reyndu að aðstoöa fólk eftir
megni viö aö komast leiðar sinnar.
Verst var ástandiö í Árbæ og Breið-
holti.
Lögreglan aöstoöaði fjölda starfs-
fólks sjúkrahúsa og annarra stofn-
ana við að komast til vinnu sinnar.
Sömu sögu var aö segja úr ná-
grenni Reykjavíkur. í Kefiavík voru
björgunarsveitir kallaðar út til að
aöstoöa fólk og sömuleiðis á Akra-
nesi.
300 manns voru veðurtepptir í
Leifsstöö þar sem ekki reyndist unnt
að fljúga fyrrihluta dags. Mikil ófærð
var á Reykjanesbraut og lagöist
mokstur niður um tíma á sunnudag
vegna mikils skafrennings og lítils
skyggnis. Um klukkan tvö var öllu
flugi aflýst og farþegar sendir til
Reykjavíkur með rútmn og fór snjó-
plógur fyrir bílalestinni.
Innanlandsflug gekk illa. Strax eft-
ir hádegi var aflýst flugi til ísafjarð-
ar, Vestmannaeyja og Hafnar í
Homafirði. -Pá
Jafnvel fínustu jeppar urðu að láta i minni pokann á götum Reykjavíkur í gær. Hér er Blazer-jeppi Ola Kr. Sigurðs-
sonar, forstjóra Olís, kolfastur þar sem hann reyndi að komast í aðalstöðvar fyrirtækis síns um miðjan dag í
gær. Annar jeppi kom að og dró Blazerinn úr skaflinum með aðstoð góðra manna sem ýttu á. DV-mynd Brynjar Gauti
Réttarhálsbruninn:
Skýrslur teknar af tugum vitna
Rannsóknarlögregla ríkisins vinn-
ur enn að ránnsókn brunans að Rétt-
arhálsi 2. Þegar hafa verið teknar
skýrslur af tugum vitna, forráða-
mönnum Gúmmívinnustofunnar,
hönnuðum hússins og byggingarað-
ilum. Þegar liggur fyrir að eldurinn
átti upptök sín í austurenda hússins
og að verið var að rafsjóða í þeim
hluta hússins þegar eldurinn kvikn-
aði. Ekki er ljóst hvort neistar frá
suðunni hafa komist í eldfimt efni
og valdið brunanum.
Rannsóknin snýr að upptökum
eldsins og útbreiðslu hans, það er
hvort húsið uppfyllti þær kröfur sem
gerðar eru lögum samkvæmt um
brunavamir.
-sme
I>V
- aruiríki hjá lögregiu
Gifurlegt annríki var á Árbæj-
arstöð lögreglunnar frá því
snemma á sunnudagsmorgun.
Lögreglan var kvödd út vegna
útafaksturs við Rauðavatn og
nokkurra smáárekstra. Fólki var
um hádegið bjargað úr smábílum
sem voru fastir við Rauöavatn og
höfðu sumir hafst við í bílum sín-
um í 4-5 tíma.
Björgunarsveitir aðstoðuðu bíl-
stjóra á Bæjarhálsi og víðar sem
lent höfðu í erfiöleikum. „Það er
alveg sama hversu oft er brýnt
fyrir fólki að halda kyrru fyrir,
það er alltaf einn og einn ofur-
hugi sem skellir skolleyrum við
því,“ sagði lögregluþjónn á Ár-
bæjarstöð í samtali við DV. Auk
aðstoðar björgunarsveita ræður
lögreglan á Árbæjarstöð yfir
snjósleöa sem kom að góðu gagni
við að fylgjast með því að ekki
væri fólk í yfirgefnumbifreiöum.
-Pá
Bamí
hrakningum
Lögreglan í Árbæ var snemma
á sunnudagsmorgun kölluð til að
svipast um eí'tir 6 ára bami sem
sést hafði eitt á ferð í óveðrinu.
Barnið fannst fijótlega nokkuö
hrakið og var því komið til síns
heima. Það haföi farið aö heiman
og ætlað í sunnudagaskóla og far-
ið út án þess aö foreldrar þess
vissu af. Barninu varð ekki meint
afhrakningunum. -Pá
Biðu 4 tíma
í Svínahrauni
Tveir bilar frá Sérleyfisbílum
Selfoss biðu í röska fjóra tíma í
Svínahrauni á sunnudag en urðu
frá að hverfa vegna ófærðar.
Sæmileg færð var frá Selfossi um
Þrengsli en vegurinn var lokaður
í Svínahrauni rétt neðan við Litlu
kaffistofúna.
Ekki væsti neitt um farþegana,
sem voru 17 talsins, og voru allir
koranir til Selfoss aftur um kl
17.00 ásunnudag. -Pá
I dag mælir Dagfari__________________
Selskapslausir þingmenn
Alltcif er verið að tönglast á
launakjörum þingmanna. Enda er
Guðrún Helgadóttir, forseti Sam-
einaös Alþingis, örðin dauðleið á
þessum söng. Aðspurö um dag-
peninga alþingismanna þegar þeir
eru í útlöndum, segir Guðrún: „Við
erum margsinnis búin aö vinna
fyrir þessu. Þegar viö erum að ferð-
ast erlendis erum viö yfirleitt á
fundum sem standa oft fram á
nætur. Þessar fundarsetur eru
ólaunaðar eins og allir vita. í fund-
unum liggur auðvitað mikil vinna.
Við erum ekki í selsköpum allan
tímann. Starfsmaður sem fer á
slíka fundi getur komið heim og
skilað eftirvinnutímunum sínum.
Þaö geta þingmenn ekki gert“.
Tilefni þessara ummæla eru at-
huganir DV á dagpeningum sem
alþingismenn, ráðherrar og opin-
berir starfsmenn fá þegar þeir ferð-
ast erlendis í embættisnafni. Upp-
lýst hefur verið aö ráðherrar eru
betur settir í útlöndum heldur en
hér heima og fá næstum 140 prósent
álag ofan á það sem aðrir fá. Auk
þess eru greiddir ferðapeningar til
maka ráðherra ef þeir ferðast með
og með hliðsjón af því að þannig
geti ráðherrar unniö sér inn
hundrað þúsund kall á viku er það
mikill gróðavegur að komast til
útlanda. Ef því er bætt við að þjóö-
in er miklu betur sett með því að
hafa ráðherrana erlendis heldúr en
hér heima má segja að báðir græði,
ráðherrarnir og þjóðin. Kannske
er það skýringin á því hversu vel
er borgað fyrir það aö hafa ráö-
herrana í útlöndum!
Um þingmenn er það að segja að
þeir hafa ögn minna upp úr sér í
útlöndum, eða frá sjö og upp í tíu
þúsund krónur eftir því hvar þeir
dvelja og þessa dagpeninga fá þeir
þótt Alþingi greiði fyrir þá hótel-
kostnaö sérstaklega. Sennilega er
skýringin sú sama og hjá ráðherr-
unum að alþingismenn eru taldir
meira virði þegar þeir eru íjarver-
andi heldur en viðstaddir í þinginu.
Allavega er þetta hvoru tveggja
mun betur borgað heldur en þegar
opinberir og óbreyttir embætt-
ismenn eru á ferðinni.
Blaðamenn hafa í fávisku sinni
verið að leita annarra skýringa,
vegna þess að blaðamenn eru enn
svo vitlausir að halda að það sama
eigi yfir þingmenn að ganga og
aðra. Forseti Sameinaðs Alþingis
hefur leiðrétt þessa vitleysu. Eins
og að framan er rakið bendir hún
á að þingmenn sitji á fundum fram
á nætur og þeir séu alls ekki alltaf
í selsköpum. Hvort þingforseti eigi
við að þingmenn ættu að fá minni
dagpeninga ef þeir sætu selsköp er
ekki gott aö vita, en það er hins
vegar afar leitt að heyra hversu
vinnuálagið er mikið á þingmönn-
um þegar þeir eru erlendis. Maöur
hafði alls ekki gert sér grein fyrir
þessu. Ef fundimir standa fram á
nætur er skiljanlegt að þingmenn
missi af selsköpum, sem er út af
fyrir sig gott, vegna þess að selsköp
kosta meira en fundir. Dagpening-
arnir mundu þurfa að hækka veru-
lega ef þingmenn stunduðu selsköp
í staðinn fyrir fundi. Það er degin-
um ljósara.
Auk þess fylgja þessum fundaerli
alls kyns skyldur. Alþingismenn
verða að koma fram fyrir hönd
þjóöarinnar og þeir verða að búa á
finum hótelum svo þeir séu teknir
alvarlega. „Eða vill einhver að
þingmenn kúldrist í einhverjum
kytrum eða borði á pylsuvögn-
um?“ spyr þingforsetinn með þótta.
Nei, það vill enginn og vonandi er
að tíu þúsund kallinn yfir daginn
dugi veslings þingmönnunum fyrir
ærlegum matarbita og almennilegu
hóteli, sem Alþingi borgar að vísu
aukreitis fyrir utan dagpeningana.
Verst ef þeir komast ekki í mat fyr-
ir fundarsetum fram á nætur og
megi ekki vera að því koma fram
fyrir þjóðina. Það tekur mikinn
tíma aö koma fram fyrir þjóðina
og éta góöan mat og Dagfari er far-
inn aö dauðvorkenna alþingis-
mönnum þessa áþján sem þeim er
boðið upp á í útlöndum. Hugsið
ykkur, fundir fram á nætur og eng-
inn tími til að að eyða dagpening-
unum!
Verst er þó til þess að vita að al-
þingismenn eru svo önnum kafnir
í utanlandsferðum sínum að þeir
komast ekki í selsköp eins og
skylda þeirra segir til um. Það er
líka skylda að vera í selskap og
þess vegna er það sjálfsagt mál að
alþingismenn fái tvöfalda dagpen-
inga fyrir að missa af því skyldu-
starfi.
Dagfari