Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1989, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1989, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1989. Utlönd ísraelskir hermenn gæta Palestínumanna á Vesturbakkanum sem hand- teknir voru eftir að bensínsprengju var varpað að israelskum hermönnum. Talið er að allt að hundrað Palestínumenn hafi verið handteknir. Simamynd Reuter Heimta lögbann á skipanir Rabins ísraelsk mannréttindasamtök hafa fariö þess á leit viö hæstarétt í ísrael aö sett vérði lögbann á skipanir Rab- ins vamarmálaráðherra sem heimila hermönnum aö skjóta plastkúlum að arabískum mótmælendum. í beiðni samtakanna sagði að fjöldi palestínskra mótmælenda hefði látið lífið eftir að hafa orðið fyrir plastkúl- um. Einnig heíði fjöldi særst þegar ísraelsku hermennimir hefðu skotið þeim að mótmælendum. Bent var á að notkun þeirra gegn óbreyttum borgurum væri brot á alþjóðalögum. ísraelsk heryfirvöld halda því fram að notkun plastkúlna hafi ekki orðið til þess að fleiri Palestínumenn hafi látiö lífið. Halda heryfirvöld því fram ,að síðastliðinn mánuð hafi færri Breyttar reglur um iðgjaldagreiðslur til lífeyrissjóða SAL. Samkvæmt kjarasamningi ASÍ og VSÍ frá 26. febrúar 1986 aukast iðgjöld til lífeyrissjóða í áföngum, þartil 1. janúar 1990 að starfsmenn greiða4% af öllum launum til lífeyrissjóða og atvinnurekendur með sama hætti 6%. Til iðgjalda- skyldra launa telst m.a. yfirvinna, ákvæðisvinna og bónus. Sérstakar reglur gilda þó um iðgjaldagreiðslur sjómanna. Umsamið hlutfall iðgjalda af öllum launum er sem hér segir: særst en venjulega. Fréttamenn á herteknu svæðunum segjast hafa séð hermenn skjóta þeg- ar þeir hafa ekki verið í neinni hættu ogánviðvörunar. Reuter Verkamaður ber múrsteina sem eiga að (ara í grafhýsi Dalis i lista- safni hans. Simamynd Reuter Árin 1987-1989: a) Starfsmenn: 4% iðgjald skal greiða af öllum tekjum starfsmanna á mánuði hverjum, hverju nafni sem nefnast, þó skal ekki greiða 4% iðgjald af hærri fjárhæð, en sem svarar til iðgjalds fyrir 1731/3 klst. miðað við tíma- kaup hiutaðeigandi starfsmanns í dagvinnu, að við- bættu orlofi. Atvinnurekendur: 6% iðgjald af sömu fjárhæð. b) Ef launatekjur eru hærri, en sem nemur tekjum fyrir 173 1/3 klst. að viðbættu orlofi, sbr. a-lið, skal greiða til viðbótar sem hér segir: Hluti Hluti 1987 1988 1989 starfsmanna: 1,0% 2,0% 3,0% atvinnurekenda: 1,5% 3,0% 4,5% Frá 1. janúar 1990 greiða starfsmenn 4% af öllum launum og atvinnurekendur með sama hætti 6%. SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA Samræmd lífeyrisheild • Lsj. byggingamanna • Lsj. bygg.iðnaðarmanna í Hafnarf • Lsj. Dagsbrúnar og Framsóknar • Lsj. Félags garðyrkjumanna • Lsj. framreiðslumanna • Lsj. málm- og skipasmiða • Lsj. matreiðslumanna • Lsj. rafiðnaðarmanna • Lsj. Sóknar • Lsj. verksmiðjufólks • Lsj. Vesturlands • Lsj. Bolungarvíkur • Lsj. Vestfirðinga • Lsj. verkamanna, Hvammstanga • Lsj. stéttarfélaga í Skagafirði • Lsj. Iðju á Akureyri • Lsj. Sameinjng, Akureyri • Lsj. trésmiða á Akureyri • Lsj. Björg, Húsavík • Lsj. Austurlands • Lsj. Vestmanneyinga • Lsj. Rangæinga • Lsj. verkalýðsfélaga á Suðurlandi • Lsj. Suðurnesja • Lsj. verkafólks í Grindavík • Lsj. Hlífar og Framtíðarinnar Dali að dauða kominn Spánski súrreahstinn Salvador Dah, sem þjáist af alvarlegum hjarta- og lungnakvihum, virtist í gærkvöldi vera að missa þróttinn eftir fimm daga baráttu á mörkum lífs og dauða, að sögn lækna í Figueras á Spáni. „Það virðist sem baráttuþrekið sé að þverra," sagði Carles Ponsati læknir við blaðamenn á stuttum fundi á sjúkrahúsinu í Figueras, heimabæ málarans, á norðaustur- hluta Spánar. Sagði hann að hinn áttatíu og fjög- urra ára gamh hstamaður væri að veslast upp hægt og hægt. Læknar hktu Dali við kerti sem er að brenna upp en sögðu að hann gæti hugsanlega lifað í marga daga enn. Dali er einn síðasti eftirlifandi súr- reahstinn. Hann var lagður inn á sjúkrahús síðasthðinn miðvikudag í þriðja skipti á tveimur mánuðum. Verkamenn vinna nú allan sólar- hringinn við að koma upp grafhýsi fyrir Dah í aðalsal listasafns hans í bænum. Reuter Stuðningur við ETA Pétur L. Pétuisson, DV, Barcelona; Tugþúsundir manna söfnuðust saman á götum Bilbao á laugardag- inn til aö lýsa yfir stuðningi við samningaviðleitni baskneskra að- skilnaðarsinna, ETA. Svo mikih manntjöldi gerir að engu þær raddir sem halda því fram að ETA eigi sér fáa stuðningsmenn í Baskalandi. Á miönætti í nótt rann út fimmtán daga vopnahlé sem ETA hafði boðað einhhða til að fá stjórnvöld að samn- ingaborðinu. Stjórnvöld vildu lengri frest og sögðust vonast til að samtök- in framlengdu vopnahléið. Það hefur þó ekki gerst enn því samtökin segj- ast enn vera að bíða þess að sjá út- rétta sáttahönd ríkisstjómarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.