Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1989, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1989.
Viðskipti______________________________________________________________________ pv
Sameining tryggingafélagaima:
Ætla risarnir að keppa
og koma verðinu niður?
Sameining tryggingafélaga er nú í
brennidepli eftir að Samvinnutrygg-
ingar og Brunabót hafa ákveðið að
sameinast og sömuleiðis Sjóvá og
Almennar tryggingar. Nýju félögin
tvö eru nú risar á íslenska trygginga-
markaðnum með um 67 prósent
markaðarins. Líklegt er að fleiri
sameiningar verði áður en þetta ár
er liðið og er helst rætt um að Trygg-
ingamiðstööin og Reykvísk endur-
trygging gangi í eina sæng.
Báðir risarnir segjast geta náð hag-
ræðingu og sparnaði í rekstri. Menn
spyija sig aftur hvort samkeppnin á
milli tryggingafélaganna, eftir til-
komu þessarar tveggja risa, sé nægi-
leg til að þessi sparnaður og aukna
hagræðing leiði til lækkunar iðgjalda
eða betri afkomu tryggingafélag-
anna.
Tryggingamarkaðurinn var í járn-
um á árinu 1987. Þá skilaði Trygg-
ingamiðstöðin mestum hagnaði eða
um 29 milljónum króna en Bruna-
bótafélagið tapaði mestu eða um 27
milljónum króna.
Tryggingamarkaður í járnum þýð-
ir að tryggingafélögin leitast nú við
að styrkja stöðu sína með aukinni
hagræðingu. Það bendir til þess að
neytendur sjái á næstunni betri af-
komutölur hjá tryggingafélögunum
fremur en að iðgjöld fari lækkandi
ogað afkoman verði áfram í járnum.
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
Brynjólfur Sigurðsson, prófessor í
viðskiptadeild og sérfræðingur í
rekstrarhagfræði og markaðsmál-
um, sagði í DV á fostudaginn að stóra
spurningin núna væri sú hvort
tryggingarisarnir tveir gerðu með
sér þegjandi samkomulag um verð
trygginga og að jafnvægi ríkti á
markaðnum.
Háværar raddir um aukna hag-
ræðingu hjá tryggingafélögunum og
lægri tryggingaiðgjöld hafa hljómað
undanfarin ár. Þær urðu sérlega há-
værar á síðasta ári þegar trygginga-
félögin kröfðust gífurlegra hækkana
á iðgjöldum af bíltryggingum vegna
mikils taps á þeim.
Fyrir nokkrum vikum komust
tryggingafélögin nokkuð í umræð-
urnar vegna ónógrar samkeppni eftir
að fimm þeirra, Sjóvá, Almennar,
Samvinnutryggingar, Trygginga-
miðstöðin og Trygging, sýndu aug-
ljóst samráð í útboði Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur á slysa-
tryggingum. Þá skar Brunabót sig
úr og var ekki með eins tilboð og hin
félögin.
Tryggingamarkaðurinn á íslandi
er í raun spennandi markaður. Sér-
lega veröur fróðlegt að fylgjast með
samkeppninni á markaðnum eftir
stofnun risanna tveggja. Það verður
líka fróðlegt að fylgjast með örlögum
smærri tryggingafélaganna. Þrengist
að þeim eða lifa þau ágætu lífl i
skugga risanna tveggja?
-JGH
Útsöluæðið:
Hvers vegna eru allir
útsölur samtímis?
Nú er útsöluæði i Reykjavík. Svo er einnig i öllum helstu stórborgum Evrópu.
DV-mynd GVA
með
Útsöluæði hefur gripið um sig
meðal fataverslana í Reykjavík og
um land allt. Þegar gengið er niður
Laugaveginn, mestu tískuverslana-
götu landsins, stendur orðið útsala
nánast í öllum gluggum. Þegar allir
eru með útsölur samtímis eru við-
skiptin minni en ella. En hvers vegna
eru þá allar fataverslanir með útsöl-
ur samtímis?
„Fataverslanir eru núna að selja
þær vörur sem ekki seldust í haust
og fyrir jólin. í svona málum stjórnar
enginn neinum. Ef ein verslun fer
af stað fylgja hinar í kjölfarið. Stjóm-
endur þeirra eru einfaldlega hræddir
við að vera með útsölur seinna og
missa hugsanlega af viðskiptum,“
segir Magnús Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasamtaka
íslands.
Að sögn Magnúsar eru útsölur í
janúar eftir jólavertíðina alþjóðlegt
fyrirbæri. „Það sjá það allir sem fara
núna til helstu stórborga Evrópu,
eins og London, að þar eru útsölur í
öllum fataverslunum."
Magnús segir enn fremur að í
tískuvömverslunum sé ekkert sem
Smáar og
áskrift-númeð
Samkorti
DV hefur gert
samstarfssamn-
ing viö krítar-
kortafyrirtækið
Samkort. Hann
gengur út á að nú
er hægt að greiða
smáauglýsingar
og áskrift að
blaðinu með
Samkorti. Fyrir
er samningur DV
við kortafyritæk-
in Visa og Eurocard.
„Við erum þessa dagana að velja
fyrirtæki til viðskipta í hinum ýmsu
þjónustugreinum," segir Örn Peters-
en, markaðsráðgjafi Samkorta.
Þá má geta þess að Samkort, eins
og hin kortafyrirtækin tvö, hafa gert
samning við Bifreiðaskoðun íslands
hf. Það er í fyrsta skiptið í sögunni
sem hægt hefur verið að greiða fyrir
bifreiðaskoðun með krítarkortum.
-JGH
heiti að skila vörunum aftur til heild-
sala eða framleiðenda. Gerð sé pönt-
un og þá sitji verslanirnar uppi með
þá pöntun.
„Þetta þýöir aftur að það er alveg
eins gott að selja vörurnar á útsölu
frekar en að sitja uppi með þær uppi
í hillum og þurfa síðar að gefa þær
Umboðsverslun Konráðs Axels-
sonar er með umboð fyrir þýska bjór-
inn Holstein á íslandi en ekki Davið
Scheving Thorsteinsson eins og
skilja mátti af fréttaljósi DV á föstu-
eða jafnvel henda þeim.“
Magnús segir að brátt líði að því
að verslanir taki upp nýjar vörur
fyrir vorið og það ýti aftur á eigendur
verslana að rýma fyrir 'þeim og það
sé hluti af skýringunni á útsölunum
núna.
„Eigendur verslana eru þegar byrj-
daginn um opnun tilboða hjá ÁTVR.
Davíð kom hins vegar nálægt til-
boði Holstein að því leyti að Hoí-
stein-verksmiðjumar eru tilbúnar að
láta Davíð Scheving fá bjór til að
aðir að huga að sýningum núna og
spá í og skoöa hausttískuna. Skó-
kaupmenn fara til dæmis á sýningar
í mars til að athuga með skótískuna
næsta haust,“ segir Magnús Finns-
son.
-JGH
tappa á ílát í Sól-verksmiðjunni, svo
fremi sem um semst á milli þeirra
og Davíðs. Þess vegna var í tilboði
Holstein getið um bjór til landsins í
gámum. -JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 3-5 Vb.lb
Sparireikningar
3ja mánvuppsögn 2-6 Vb
6mán.uppsögn 2-7 Vb
12mán. uppsögn 3,5-5 Lb
18mán. uppsögn 8 Ib
Tékkareikningar.alm 1 Allir
Sértékkareikningar 1-6 Vb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Vb
6 mán. uppsögn 2-3,5 Sp.Ab,-
Innlán meó sérkjörum 3,5-11 Vb.Bb Úb
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 7,5-8,75 Ab
Sterlingspund 11-12,25 Úb.Ab
Vestur-þýskmörk 3,75-5 Ab
Danskarkrónur 6.75-8 Vb.Sb,-
ÚTLÁNSVEXTIR (%) Ab lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv!) 11-15 Vb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 12-12.5 Vb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 14,5-17 Úb.Vb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 8-8.75 Vb
Utlán til framleiðslu
Isl,. krónur 12-12,5 Lb.Sb,-
SDR 9.5 Bb.Úb Allir
Bandaríkjadalir 11-11,5 Úb
Sterlingspund 14,50- allir
14.75 nema
Vestur-þýsk mörk 7.25-7,5 Úb allir
nema
Húsnæðislán 3.5 Úb
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21.6
MEÐALVEXTIR
Óverðtr.jan. 89 12,2
Verðtr.jan.89 8,1
VlSITÖLUR
Lánskjaravísitalajan. 2279 stig
Byggingavísitalajan. 399,5 stig
Byggingavísitalajan. 125,4stig
Húsaleiguvísitala Engin hækkun Verð-
stöðvun VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,442
Einingabréf 2 1.933
Einingabréf 3 2.237
Fjölþjóðabréf 1.268
Gengisbréf 1.586
Kjarabréf 3,442
Lífeyrisbréf 1.727
Skammtímabréf 1.197
Markbréf 1.828
Skyndibréf 1.053
Sjóðsbréf 1 1,644
Sjóðsbréf 2 1.381
Sjóðsbréf 3 1.168
Tekjubréf 1.557
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 130 kr.
Eimskip 380 kr.
Flugleiðir 288 kr.
Hampiðjan 155 kr.
Hlutabréfasjóður 151 kr.
Iðnaðarbankinn 177 kr.
Skagstrendingur hf. 200 kr.
Útvegsbankinn hf. 134 kr.
Verslunarbankinn 146 kr.
Tollvörugeymslan hf. 126 kr.
(1) Viö kaup á viðskiptavixlum og viö-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast í DV á fimmtudögum.
Þetta er bjorbuðin
Þetta verksmiðjuhús er að
Stuðlahálsi 2 í Reykjavík og lætur
fremur lítið yfir sér. Flestir Reyk-
víkingar eiga eftir að kynnast
þessu húsi vel eftir 1. mars og leggja
leiö sina í það. Þetta er bjórbúðin
umtalaða, verksmiðja og birgða-
geymsla ÁTVR í Árbænum.
I bjórbúðinni verður boðíð upp á
flestar þekktustu bjórtegundimar.
Þar getur fólk keypt „sinn“ bjór
fáist hann ekki í vínbúðum ÁTVR.
Þar verða líklegast sjö tegundir til
sölu og þar af íjórar bruggaðar á
íslandi.
-JGH
Þetta er bjórbúðin, verksmiðja og birgðageymsla ATVR við Stuðlaháis-
inn I Árbænum. DV-mynd Brynjar Gauti
Konráð Axels með Holstein