Dagblaðið Vísir - DV - 23.01.1989, Qupperneq 29
MÁNUDAGUR 23. JANÚAR 1989.
29
• Steve Davis er fimm-
faldur heimsmeistari i
snóker. Menn töldu hann
frekar rólegan og daufan
„karakter" fyrir komuna
til íslands. Hann sýndi
hins vegar allar sinar
bestu hliðar og reytti af
sér brandara hvenær
sem tækifæri gafst.
' ’ ''
■
• < vN Váí í
átökin og því lögöust menn á bæn
og báöu til guös um aö fötin pöss-
uðu.
Bróðirinn afklæddur
Þegar þeir Davis og Foulds komu
á Hótel ísland skömmu fyrir upp-
haf einvígisins mátaöi Davis fötin.
Vestið og buxurnar pössuöu en
skyrtan var of lítil. Bróöir Davis
var leitaöur uppi og óneitanlega
brá honum er taugaveiklaðir menn
tóku aö hneppa skyrtu hans frá.
Davis skipti á skyrtu viö bróður
sinn og málið var í höfn. Einn galli
var þó á vestinu. Þaö var of stutt
að aftan og Davis haföi á orði aö
hann yrði sífellt aö giröa sig á svið-
inu. Þaö kom á daginn. Hann gerði
hins vegar grín að öllu saman.
Brandararnirfiugu
Síðustu mínúturnar fyrir einvígiö
voru þeir saman í búningsher-
bergi, Davis og Foulds. Það kom
mönnum mikið á óvart að þeir
skildu ekki fara fram á sitt hvort
herbergið. Hins vegar reyttu þeir
af sér brandarana og geröu grín
hvor aö öðrum. Þeim var síðan
boðiö að prófa borðið nokkrum
mínútum fyrir upphaf einvígisins
en báðir afþökkuðu það boð. Þeir
treystu Keith Davis fullkomlega.
Rosalegir áhorfendur
Þegar leikhlé var gert eftir fjóra
ramma og staðan var 2-2 höfðu
þeir báðir á orði að áhorfendur
væru stórkostlegir. „Þeir klappa
mikið og á réttum tímum,“ sagði
Davis. „Það er frábært að spila hér
og aðstæður eru allar eins og best
verður á kosið,“ bætti hann við. í
síðari hluta einvígisins kom upp
skondið atvik. Þá brá svo við, er
Davis var að einbeita sér við borðið
fyrir stuð, að sími hringdi á Hótel
íslandi. Einhver snókerleikari
hefði kvartað undan hávaðanum
en Steve Davis leit upp og sagði:
„Það er örugglega verið að hringja
útaf farangrinum mínum.“ Dæmi-
. gerð viðbrögð fyrir þennan létta og
skemmtilega íþróttamann
„Eg varheppinn“
Um úrslit einvígisins sagði Steve
Davis: „Ég verð að viðurkenna að
ég hafði heppnina með mér. Alltaf
þegar ég.mæti Foulds gerir hann
mér erfitt fyrir. Það er greinilegt
að hann er farinn að læra töluvert
á mig, þekkja mína veikleika." Þess
má geta hér að Davis lék gegn Fo-
ulds á litlum klúbbi í Londpn
kvöldið áður en hann kom til ís-
• „Þakka þér kærlega fyrir,“ sagði Steve Davis við Kristján Ágúst Kjart-
ansson, 11 ára gamlan snókeráhugamann, þegar hann rétti Davis hvítu
kúluna en hún þaut eitt sinn af borðinu í lokatriðinu. DV-mynd GS
lands og sigraði Davis örugglega
þar, 4-0.
„Auðvitað vorum við
mjög taugaveiklaðir“
Hingað til lands komu þeir Davis
og Foulds á vegum Óskars Krist-
jánssonar í Billiardbúðinni og
Kjartans Kristjánssonar. Að ein-
víginu og öllu umstanginu loknu
sagði Kjartan: „Það gefur auga leið
að við vorum taugaóstyrkir fyrir
þetta einvígi. En þegar við tókum
eftir viðbrögðum þeirra Davis og
Foulds yfir aðstöðunni og öðru fór-
um við að slaka á.“
„Aukasýningin þakklæti
til áhorfendanna“
Kjartan hélt áfram: „Báðir voru
þeir kappar yfir sig ánægðir með
komuna til Islands. Og ekki síst
með íslensku áhorfendurna. Það
var áhorfendunum að þakka að
Steve Davis tók aukasýninguna eft-
irminnilegu eftir einvígið. Hann
gerir lítið af þessu en lætur þó til
leiðast þegar áhorfendur eru vin-
gjarnlegir og vel með á nótunum.
Þá lætur hann allt flakka og hefur
sjaldan haldið svona langa auka-
sýningu. Ég ætla ekki að reyna að
lýsa þessari sýningu. Það stóðu all-
ir agndofa í húsinu.“
Engin verðlaun
Það er rangt sem fram hefur komið
að Steve Davis hafi fengið 4,5 millj-
ónir í verðlaun fyrir sigurinn í ein-
víginu. Engin peningaverðlaun
verða afhent fyrr en í vor enda
' verður sigurvegari ekki Ijós fyrr
en þá. Sá sem stendur uppi sem
sigurvegari þegar einvígunum 46
verður lokið fær 60 þúsund pund í
verðlaun eða rúmar 5 milljónir
króna.
Borðið verður áfram
hér á íslandi
Hið glæsilega Matchroom-borð,
sem þeir Davis og Foulds léku á og
flutt var sérstaklega til landsins
vegna einvígisins, verður áfram
hér á landi og einn áhugasamur
forráðamaður íþróttarinnar hér á
landi fékk það til varðveislu.
Vilja fá fréttir héðan
Með þeim Davis og Foulds hingað
til lands kom um 15 manna fylgdar-
liö og voru breskir blaðamenn þar
í meirihluta. Þeir fréttu af því að
Brynjar Valdimarsson, íslands-
meistari í snóker, hefði náð 107 í
einu stuði í sjónvarpsútsendingu
og fóru fram á það viö forráðamenn
íþróttarinnar hér á landi að fá frétt-
ir héðan af íslenskum snókerleik-
urum. Ennfremur sögðu blaða-
mennirnir að hér væru allar að-
stæður fyrir hendi til að halda stór-
mót fyrir atvinnumenn og áhorf-
endur og starfsmenn Sjónvarpsins
væru vel með á nótunum.
Kostar mikla peninga
Framtak þeirra Óskars Kristjáns-
sonar í Billiardbúðinni í Ármúla
og Kjartans Kristjánssonar er lofs-
vert svo ekki sé meira sagt. En
hvemig er útkoman íjárhagslega
séð? „Það var ljóst í upphafi að við
myndum ekki græða á þessu og að
endar myndu ekki ná saman þegar
upp yrði staðið. Við fengum dyggan
stuðning frá mörgum fyrirtækj-
um,“ sagði Kjartan.
Kjartan vildi nota tækifærið til
að þakka eftirtöldum fyrirtækjum
stuðninginn: DV, Flugleiðum,
Teppabúðinni, Radíóbúðinni, Vífil-
felli, Ballskák, Agli Skallagríms-
syni, Heimilistækjum, Sparisjóð'
Vélstjóra, Gevalia kaffi, Lýsi og
Eurocard. _SK
• Keppendur og aðstandendur einvígisins, talið frá vinstri: Neal Foulds,
Kjartan Kristjánsson, Óskar Kristjánsson og Steve Davis.
DV-mynd GS
Iþróttir
Davis í fremstu röð frá 1980
Steve Davis er 31 árs og fimmfaldur
heimsmeistari í snóker. Hann hefur
orðið heimsmeistari tvö síðustu árin.
Á síðasta ári var hann tekjuhæsti
íþróttamaður Bretlands og þénaði
um 90 miUjómr króna.
Davis skaut upp á stjörnuhimininn
árið 1980 og strax varð hann í
fremstu röð og hefur verið það síðan.
Helstu kostir hans sem snókerspil-
ara eru ótrúleg yfirvegun og ein-
beiting. Þá má einnig nefha varnar-
leikinn en þar er hann öllum fremri.
• Þess má geta hér að heimsmeist-
aramót unglinga í snóker fer fram
hér á landi i maí í vor. í tengslum
eða í framhaldi af því móti er mögu-
leiki á að Jimmy White, sem er núm-
er tvö á afrekalistanum yfir bestu
snókerspilara í heiminum, komi til
íslands. -SK
Kemur Steve
Möguleiki er á því að Steve
Davis komi aftur til íslands. Svo
kann að fara að eitthvert einvígja
hans síðar í keppninni fari fram
hér á landi. Davis sagði í samtali
við DV að hann hefði áhuga á að
koma aftuir til Reykjavíkur og
skoða sig þá betur um.
-SK