Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 5. MAI' 1989. Lesendur________________: Nýstárlegt er ekki splunkunýtt Meðganga og fæðing er eðlilegur og nátturlegur atburður. í honum eru foreldrar þátttakendur, segir m.a. i bréfinu. Spumingin Ætlar þú að horfa á Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva? Einar Indriðason tölvunarfræði- nemi: Nei, mér finnst hún leiðinleg. Ragnhildur Theodórsdóttir af- greiðslustúlka: Ef ég hef ekkert betra aö gera. Sigrún Harðardóttir kennari og Helga dóttir hennar: Já, af hverju ekki? Ólöf Sæmundsdóttir sjúkraliði: Ég er ekki búin að ákveða það. Pála Gísladóttir, starfsmaður á skyndibitastað: Ef ég verð ekki að vinna ætla ég að horfa á söngva- keppnina. Unnur Sigurbjörnsdóttir, starfsmað- ur á veitingastað: Ég ætla að horfa á hana, svo framarlega sem ég verð ekki aö vinna. Guðrún og Hrefna skrifa: Þriðjudaginn 25. apríl sl. birtist les- endabréf frá „móður“ undir yfir- skriftinni „Eitthvað splunkunýtt?" þar sem fram kemur að móðirin hef- ur misskilið ýmis atriði varðandi fyr- irhuguð námskeið okkar er frá var sagt í DV 15. apríl sl. - Við viljum því leiðrétta þetta með eftirfarandi pistli: Eins og fram kemur í viðtali við okkur erum við að „fara af stað með nýstárleg námskeiö fyrir verðandi foreldra" en ekki splunkunýtt nám- skeið. Munurinn á okkar námskeiö- um og þeim sem hafa verið í boði undanfarin ár er sá að okkar nám- skeið eru þrískipt og fjöllum við um fósturþroska, meðgöngukvilla og hollustuþætti á 18.-22. viku meö- göngu. Undir lok meðgöngu fjöllum við m.a. um fæðinguna, sængurleguna og það sem viðkemur heimkomunni og tökum fyrir brjóstagjöf og matar- æði ungbama eftir fæöinguna sem ekki hefur verið gert áður. Stefna okkar er að gera foreldra meðvitaðri um það að meðgangan og fæðingin er eðlilegur og náttúrlegur atburður, sem þeir sjálfir eru þátt- takendur í og geta ráðið miklu um, en ekki alfariö tækniundur lækna- vísindinna. Konan á að fá að bregð- ast við fæðingunni sem henni er eðli- legast. - En þaö virðist að því menn- Fiskvinnslukona skrifar: Ég get ekki orða bundist vegna yfir- lýsingar sjávarútvegsráðherra um launamál í fréttum nýlega, einkum þar sem mér hefur fundist hann sanngjarn og hefði síst trúað slíkum yfirlýsingum frá honum. - Ef þetta væri maður sem aldrei hefði komiö í sjávarpláss hefði verið hægt að fyr- irgefa honum. Þetta er sorgleg ádeila af ráðherra, fjórum dögum fyrir baráttudag verkafólks. En trúlega verða nógu margir til að flytja „slepjuræöur" fyrsta maí. Ráðherrann hefur sjálfur unniö við Frjals sam- keppni? Ágústa Gunnlaugsdóttir skrifar: Mig langar til að taka undir orð Völu þriðjudaginn 25.4. sl. varð- andi Stöð 2. Fjöldi þeirra aöila sem skrifa í lesendadálk DV sýnir að óánægjan með efnisval og end- ursýningar stöðvarinnar er orðin yfirgnæfandi. Stöö 2 slær sér upp á yftrlýsing- um sem „stöð í sókn“ á frjálsum markaði. En hvað eru þeir aö hugsa við val dagskrárefnis? Það er orðiö svo útþynnt aö ríkissjón- varpið er farið að verða vinsælla á mörgum heimilum en Stöð 2 og er þá mikiö sagt. Ég hvet fólk til að gaumgæfa dagskrá Stöðvar 2 yfir sumartím- ann og íhuga hvort hún er þess virði aö greiða fyrir hana á þess- um tima taki þeir sig ekki á. Þeir verða að skilja að Stöö 2 stendur og fellur með eigin dagskrárefni. - Vilji Stöð 2 færa nýrri sjón- varpsstöð fjölda áskrifenda geng- ur henni bara vel. ingarlegri sem við verðum þeim mun meira virðumst við fjarlægjast nátt- úruna og það sem okkur er eðlilegt. Hulda Jensdóttir er brautryðjandi á íslandi hvað varðar fræðslu fyrir verðandi mæður en hún kom fyrst fram með þaö efni árið 1953 og hafa slík fræðslunámskeið verið haldin síöan. Það er mikill misskilningur að álíta að allt sem Hulda hefur ver- ið að gera sé fallið í gleymsku og dá. Öðru nær. Hulda hefur átt stóran þátt í að bylta viðhorfum fólks til fæðinga hér á landi og margt af því sem hún breytti og kostaði hana mik- il átök og þrautseigju þykir sjálfsagð- ur hlutur í dag. - En ekki má láta staðar numið heldur halda áfram að fylgja þeirri þróun sem á sér stað í fæðingarfræði í nágrannalöndum okkar. Þegar við tölum um að „nýta Fæð- ingarheimilið við Eiríksgötu betur og gera það að heimilislegu fæðing- arheimili" er það eins og „móðirin“ segir, einmitt vegna þess að það var þekkt fyrir aö vera það og þar er enn öll aðstaða fyrir hendi. En hver er í dag staða þessa heimil- is sem hefur verið rekið fyrir fæð- andi konur allt frá stríðsárum? Ástandið er allt annað nú en fyrir 30-35 árum. Áður fyrr var það rekið á þremur hæðum og hafði yfir 30 legurúmum aö ráða þegar mest var og fæddust þá um 1000-1100 böm þar fisk og veit vel að dagvinnukaup í dag er kr. 231,30 eftir 10 ára starf meö fastráðningu og fiskvinnslu- námskeið að baki en innan við 200 kr. fyrir aðra - að viðbættum bónus sem er misjafn eftir afköstum og gæðum hráefnis. Og þó er fólk í ýms- um iönaðar- og þjónustustörfum verr sett því þar er ekki bónus. Þaö er slæmt ef offjárfestingar og fjármagnskostnaöur eiga alltaf að bitna á láglaunafólki. Mér finnst eins og erflðisvinnu- og láglaunafólkið sé talið helstu ómagar og cifætur þjóðar- innar. Þaö er furðulegt að bjóða þessu fólki um 40 þús. króna dag- Öðrum til K.Á. skrifar: Mig langar til, öðrum til viðvörun- ar, að segja frá reynslu minni í sam- bandi við innheimtudeild Ríkisút- varps (hljóðvarps og sjónvarps). Þeg- ar ég fæ reikning fyrir mars 1989 er gjalddagi 1. mars og eindagi 15 mars. RÚV býður upp á að greiða með Visa. Ég hringi og óska þessarar þjónustu. Stúlkan, sem svarar í innheimtu- deild, var vinsamleg og spyr hvort ég vilji ekki greiða marsreikninginn og síðan setji hún aprílreikninginn á Visagreiðslur. Ég segi það sjálfsagt og greiði marsreikninginn hinn 6. mars 1989. Síðan kemur Visareikn- Tvær þjóðir Geir A. Guðsteinsson skrifar: Það er stundum sagt að á íslandi búi tvær þjóðir í einu landi og er þá átt við í efnahagslegu tilliti. En skyldi það ekki vera í fleiri tilfellum? Nýveriö sat garðyrkjufræðingur fyrir svörum hjá einum ljósvakafjöl- miðlinum og fékk m.a. þá spumingu frá konu einni hvort það væri orðið á ári. Nú er orðin breyting á. Fæðingar- heimiliö, sem áður var þrjár hæðir fullbúnar, hefur skroppið saman og nú um nokkurt skeið hefur konum vinnulaun á sama tíma og gefið er upp að biðlaun þingmanna nemi um 800 þús. krónum auk hárra embætt- islauna. - Það er ekki ofsagt að mis- jafnlega eru metin verk mannanna. Ég hefði viljað leggja til að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla fyrir næstu alþingiskosningar um að fækka þingmönnum um helming. Þá kæmust þeir sem eftir .væru fyrir í Aiþingishúsinu og meiri líkur til að þeir gætu sameinast um einhver málefni. - Þeir sem ekki kæmust á þing gætu farið út á almennan vinnu- markað og reynt að læra aö lifa á lágu laununum. viðvörunar ingurinn minn eins og venja er síð- ast í mars og þar tekur RÚV útskrift 15.3.1989 fyrir kr. 1500. Ég varð undrandi á þessum mis- skilningi hjá innheimtunni og hringdi og sagði að þarna væri ég búinn aö tvígreiða fyrir mars. Inn- heimtustjórinn sagði að ég greiddi ekki Visa fyrr en í apríl og því væri þessi færsla 15. mars á Visa greiðsla fyrir apríl. Ég vildi ekki samþykkja þetta og bað um að frá greitt til baka eða setja ekki inn á Visa næsta tímabil. Inn- heimtustjórinn varð hins vegar snefsinn og sagðist hafa rétt fyrir sér. í einu landi of seint aö klippa trén. Þaö er hætt við að mörgum norð- lenskum hlustandanum hafi orðið það á aö líta út um gluggann og velta vöngum yfir þvi hvaða tré ætti að klippa! Þaö eru ekki nema allra stærstu tré sem enn standa upp úr sköflunum. Hvenær skyldi vera óhætt að klippa hér? staðið til boða ein hæð með 10 legu- rúmum og voru fæðingar um 300 á sl. ári. - Er litla, notalega og heimil- islega fæðingarheimiliö að lognast út aí? - Er ÞAÐ vilji okkar kvenna? Samviskusam- ur hólelstjóri Regína Thorarensen, Selfossi, skrifar: Mikið hefur verið um ferming- arveislur hér í vor og í auknum mæli á Hótel Selfossi þótt aðeins séu nokkur ár frá því það tók til starfa. Almenn ánægja er með veislufóngin. Heiðar Ragnarsson hótelstjóri sendir allan mat og meðlæti sem af gengur aö þeim loknum heim til þeirra sem halda veislurnar Ég spurði hótelstjórann hvort þetta væri fóst venja og sagöi hann að svo væri ef ekki kæmu fleiri gestir en pantað er fyrir. Hann telur þetta réttlætismál því hótelið tekur fast verð fyrir hvern gest. Eru allir hótelhaldarar svona samviskusamir? Santa Barbara fínn þáttur I.A.H. skrifar: Ég er ein þeirra sem vil þakka Stöð 2 alveg sérstaklega fyrir hina frábæru þætti, Santa Bar- bara. Mér finnst þættirnir vera mjög skemmtilegir og ótrúlega spennandi og það hefur enn eng- inn dáið í þáttunum hingað til - og lifnaö svo við aftur eins og gerist í „sumum“ framhaldsþátt- um. Einnig eru Santa Barbara- þættirnir mjög fjölbreyttir og fjalla t.d. ekki eingöngu um eina fjölskyldu eins og margar þessar sápuóperur. Það er spurning hvort ætti aö halda áfram aö sýna þættina yfir sumarmánuðina þegar fólk er yfirleitt ekki mikið heima, er td. mikiö á ferðalögum. Þaö er vont að missa af nokkrum þáttum ef maöur hefúr fylgst með þeim í lengri tíma. Láglaunastefna og yfirlýsingar Irmheimta Ríkisútvarpsins:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.