Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1989.
43'
Fólk í fréttum
Valgeir Gudjónsson
Valgeir Guöjónsson verður fulltrúi
íslands í sönglagakeppni evrópskra
sjónvarpsstööva sem haldin verður
í Lausanne í Sviss á morgun: Val-
geir er fæddur 23. janúar 1952 í Rvík
og varö stúdent frá MH1972. Hann
var í námi í ensku og landafræði í
HÍ1973-1974 og kennari í Lækjar-
skóla í Hafnarfirði, Ármúlaskóla og
Réttarholtsskólanum 1973-1975.
Valgeir nam hljómfræði í Tóniistar-
skólanum í Rvík 1974-1975 oglauk
prófi í félagjráðgjöf frá Socialhög-
skolen í Þrándheimi 1981. Hann var
forstöðumaður Félagsmiðstöðvar-
innar Ársels í Árbæjarhverfi 1981-
1983 og hefur verið tónlistarmaður
frá 1983. Valgeir lék með Stuðmönn-
um 1975-1976 og 1980-1987 og Spil-
verki þjóöanna 1976-1979. Hann hef-
ur gefið út þessar hljómplötur með
Stuðmönnum: Sumar á Sýrlandi
1975, Tívolí 1976, Lög unga fólksins,
með Hrekkjusvínum 1977, Með allt
á hreinu 1982, Gráa fiðringinn 1983,
Draum okkar beggja (bók) 1984, Tórt
verður til trallsins 1984, Kókostré
og Hvíta máva 1985, í góðu geimi
1985, Strax 1986, Á gæsaveiðum 1987
og Face the Facts 1987. Valgeir hefur
gefið út þessar hljómplötur með
Spilverki þjóðanna: Nærlífi 1976,
Götuskó 1976, Sturlu 1977, Á bleik-
um náttkjól með Megasi 1977, ísland
1978 og Bráðabirgðabúkí 1979. Hann
gaf út hjómplötuna Jolly og Kóla
1983 með Sigurði Bjólu. Hann samdi
í eigin nafni hljómplöturnar Fugl
dagsins 1986 og Góðir íslendingar
1988. Valgeir samdi tónlist í kvik-
myndirnar Punktur, punktur,
komma, strik 1980 og Stella í orlofi
1987 og í félagi með Stuðmönnum
Með aUt á hreinu 1982 og Hvítir
mávar 1984. Hann samdi tónlist í
sjónvarpsmyndina Ást í kjörbúð
1987 og tónlist og leiktexta í Síldin
kemur, síldin fer sem sýnt var hjá
Leikfélagi Reykjavíkur 1988. Valgeir
fór tónlistarferð til Kína með Strax
1986 og var gerð um þá ferð kvik-
myndin Strax í Kína 1986. Hann
hefur skemmt einn í skólum og á
skemmtunum frá 1987. Lag Val-
geirs, Hægt og hljótt, sigraði í söng-
lagakeppni evrópskra sjóvarps-
stöðva á íslandi 1987. Sambýliskona
Valgeirs frá 1975 er Ásta Kristrún
Ragnarsdóttir, f. 25. ágúst 1952,
námsráðgjafi í HÍ. Foreldrar Ástu
eru Ragnar Tómas Árnason, af
Reykjahlíðarættinni, útvarpsþulur,
og kona hans, Jónína Vigdís
Schram. Sonur Valgeirs og Ástu er
Árni Tómas, f. 9. maí 1977. Systur
Valgeirs eru Guðrún Arna, f. 13.
júní 1957, hjúkrunarfræðingur, gift
Pétri Bjarnasyni, framkvæmda-
stjóra hjá AUK, og Sigríður Anna,
f. 2. febrúar 1959, kennari í
Garðabæ, gift Ragnari Marteinssyni
kerfisfræðingi.
Foreldrar Valgeirs eru Guðjón
Valgeirsson, hdl. í Rvík, og kona
hans, Margrét Árnadóttir. Guðjón
er sonur Valgeirs, múrara í Rvík,
Guðjónssonar, b. á Svarfhóli í
Geiradal, Sigurðssonar. Móðir Guð-
jóns var Sigríöur Sveinsdóttir, tré-
smiðs í Rvík, Gíslasonar, b. á Þránd-
arstöðum í Kjós, Ögmundssonar, b.
á Skálpastöðum, Bjamasonar, b. á
Stóra-Vatnshorni, Hermannssonar,
föður Jóns, afa Sigmundar Guð-
bjarnasonar háskólarektors. Þriðji
soriur Bjarna var Oddur, langafi
Önnu, móður Flosa Ólafssonar leik-
ara. Oddur var einnig langafi Arn-
laugs, föður Guðmundar, rektors og
skákmeistara.
• Móðurbræöur Valgeirs eru Tómas
seðlabankastjóri og Vilhjálmur hrl.
Margrét er dóttir Árna, útgerðar-
manns og erindreka Fiskifélags ís-
lands, á Hánefsstöðum í Seyðisfirði,
bróður Hjálmars, fyrrv. ráðuneytis-
stjóra, föður arkitektanna Helga og
Vilhjálms. Annar bróðir Árna var
Þórhallur, afi Snorra Sigfúsar Birg-
issonar tónskálds. Þriðji bróðir
Árna var Hermann, afi Lilju Þóris-
dóttur leikkonu. Systir Árna var
Sigríður, móðir Vilhjálms Einars-
sonar, skólameistara á Egilsstöðum,
fóður Einars spjótkastara. Árni var
sonur Vilhjálms, útvegsb. á Hánefs-
stöðum, Árnasonar, b. á Hofi í Mjóa-
firði, Vilhjálmssonar. Móðir Árna
var Guðrún Konráðsdóttir, systir
Ragnhildar, langömmu Gísla, föður
Ingvars, ritstjóra Timans. Móðir
Áma var Björg, systir Stefaníu,
móður Vilhjálms Hjálmarssonar,
fyrrv. ráðherra. Björg var dóttir Sig-
urðar, b. á Hánefsstöðum, Stefáns-
sonar, bróöur Gunnarsvafa Gunn-
ars Gunnarssonar skálds. Móöir
Bjargar var Þorbjörg Þórðardóttir,
b. í Kjarna í Eyjafirði, Pálssonar,
ættfóður Kjarnaættarinnar, langafa
Friðriks Friðrikssonar æskulýðs-
leiðtoga.
Móðir Margrétar var Guörún Þor-
varðardóttir, útvegsb. í Keflavík,
Valgeir Guðjónsson.
Þorvarðarsonar, beykis í Keflavík,
Helgasonar, langafa Þorvarðar
Helgasonar leiklistarfræðings.
Móðir Þorvarðar Helgasonar var
Guðrún Finnbogadóttir, verslunar-
manns í Rvík, Björnssonar, föður
Jakobs, langafa Vigdísar Finnboga-
dóttur forseta. Móðir Guörúnar var
Margrét Arinbjarnardóttir, út-
vegsb. á Tjarnarkoti í Innri-Njarö-
vik, bróður Gunnars, fóður Ólafs
rithöfundar og afa Gunnars Björns-
sonar prests. Arinbjörn var sonur
Ólafs, verslunarstjóra í Innri-Njarð-
vík, Ásbjarnarsonar, b. í Njarðvík,
Sveinbjarnarsonar, bróður Egils,
föður Sveinbjarnar rektors, fóður
Benedikts Gröndals. Móðir Margr-
étar var Kristín Björnsdóttir, b. á
Skrauthólum á Kjalarnesi, Tómas-
sonar og konu hans, Margrétar
Loftsdóttur, systur Odds, afa Bjarna
Jónssonar vígslubiskups.
Dv _______________Afmæli
Jón Óskarsson
Jón Óskarsson sjómaður, Silfur-
braut 4, Höfn í Hornafirði, varð
fimmtugur í gær. Jón fæddist að
Læknisstöðum á Langanesi og ólst
þar upp. Hann lauk almennri
grunnskólamenntun en hefur
stundað sjómennsku að meira eða
minna leyti frá fimmtán ára aldri,
fyrst frá Þórshöfn, síðan frá ver-
stöðvum á Suðurlandi og loks frá
Höfn í Hornafirði, en þar settist Jón
að 1979. Jón kvæntist 1979, Ingi-
björgu Sigjónsdóttur. Sonur Jóns
frá því fyrir hjónaband er Freyr, f.
19. júní 1970, búsettur í Svíþjóð. Þá
á Ingibjörg fimm börn frá fyma
hjónabandi. Þau eru Þráinn, f. 1955,
sjómaður; Guðlaug Váldís, f. 1957,
fóstra á ísafirði; Sigrún Hafdís, f.
1958, sjúkraþjálfari í Neskaupstað;
Ólafur Helgi, f. 1960, sjómaður, og
Olgeir Karl, f. 1962, sjómaður. Jón
er næstelstur tíu systkina en tvö
sytkina hans eru látin. Systkini
Jóns: Tryggvi (látinn), Jón, Guðjón,
Stefán, Matthildur, Hulda, Hugrún,
Ármann, Eygló og Ægir (látinn).
Foreldrar Jóns eru Óskar Jóns-
son, bóndi, sjómaður og verkamað-
ur, f. 1919, d. 1985, og kona hans,
Klara Guðjónsdóttir, f. 1914. Óskar
og Klara bj uggu lengst af á Þórshöfn
á Langanesi en Klara er nú búsett
í Keflavík. Óskar er sonur Jóns, b.
á Læknisstööum, Ólafssonar, b. á
Brimnesi, Gíslasonar, b. á Sævar-
landi Sigfússonar, b. í Hjalthúsum,
Jónssonar. Móðir Óskars var Matt-
hildur Magnúsdóttir.
Klara er dóttir Guðjóns, b. á Brim-
nesi, Helgasonar, b. í Kumblavík,
Guðbrandssonar, b. á Syðri-Brekk-
um, Halldórssonar, b. á Syðri-
Brekkum, Helgasonar, b. í Gunn-
ólfsvík, Halldórssonar, b. á Langa-
nesi, Halldórssonar, b. á Skálum,
Jónssonar. Móðir Helga Halldórs-
sonar var Sigurborg Eymundsdótt-
ir, b. á Skálum, Ólafssonar, b. í
Skoruvík, Finnbogasonar, b. á
Haugsstöðum í Vopnafirði, Stein-
móðssonar, Árnasonar, prests í
yallanesi, Þorvarðssonar. Móðir
Áma var Ingibjörg Árnadóttir, b. á
Burstarfelli í Vopnafelli, Brands-
sonar og konu hans, Úlfheiðar Þor-
steinsdóttur, ættforeldra Burstar-
fellsættarinnar.
Móðir Klöru var Guðrún Guð-
brandsdóttir, b. á Hrollaugsstöðum,
Jón Óskarsson
Guðbrandssonar, bróður Helga.
Móðir Guðrúnar var Margrét Jóns-
dóttir, b. á Bakka á Strönd, Gunn-
arssonar (Glímu-Gunnars), b. á
Ytra-Álandi, Gunnarssonar. Móðir
Margrétar var Kristín Gísladóttir,
b. í Höfn, Vilhjálmssonar. Móðir
Gísla var Hallný Gísladóttir, b. í
Gunnólfsvík, Jónssonar. Móðir
Gísla var Elísabet Jónsdóttir, b. í
Geitavík, Árnasonar, prests á Hofi
á Skagaströnd, Jónssonar. Móðir
Jóns var Ingibjörg (Galdra-Imba)
Jónsdóttir, prests á Tjörn í Svarfað-
ardal, Gunnarssonar.
Gunnar G. Einarsson
Gunnar G. Einarsson, innanhúss-
og húsgagnaarkitekt, Fellsmúla 17,
Reykjavík, er sextugur í dag.
•Gunnar fæddist að Hörðuvöllum
í Hafnarfiröi en ólst upp í Reykja-
vík. Hann var við nám í húsgagna-
smíði hjá Max Jeppesen á ámnum
1947-52 og starfaði síðan við þá iðn-
grein hjá Kristjáni Siggeirssyni.
Gunnar fór síðan utan og lærði hús-
gagna- og innanhúshst í Danmörku
á árunum 1963-67. Að námi loknu
kom hann heim og starfaði þá sem
sjálfstæður verktaki til 1971 en hef-
ur síðan þá starfað á Arkitektastofu
Ormars Þ. Guömundssonar og Örn-
ólfsHall.
Kona Gunnars var Guðný Jóns-
dóttir en hún lést 1979.
Gunnar og Guðný eignuðust fjög-
ur börn. Þau era Ragnar Jón Gunn-
arsson arkitekt, búsettur á Akra-
nesi, kvæntur Guðlaugu Elínu og
eiga þau eitt barn; Einar Berg Gunn-
arsson, verslunarmaður hjá íselco í
Reykjavík, kvæntur Svandísi Báru
Karlsdóttur og eiga þau eitt barn;
Þórey Björg, húsmóðir í Reykjavík,
gift Guöbjarti Torfasyni flugvirkja
og eiga þau þrjú börn, og Hafdís
Lilja, nemi í þroskaþjálfun, sambýl-
ismaður hennar er Karl Karlsson
blikksmiður.
Sambýliskona Gunnars er Ragn-
hildur Björgvinsdóttir, starfsmaður
hjá Tryggingastofnun ríkisins en
hún er ættuð frá Úlfsstöðum í Hálsa-
sveit.
Gunnar átti fimm bræður en tveir
þeirra era látnir.
Foreldrar Gunnars voru Einar I.
Guðmundssson skipstjóri og síðar
lengi bílstjóri hjá Byggingarfélaginu
Brú í Reykjavík, ættaður úr Höfn-
um, og Svava Ilja Magnúsdóttir hús-
móðir, fædd í Reykjavík, Einar og
Svava bjuggu lengst af viö Selja-
landsveg í Hassaleitinu í Reykjavík.
Gunnar G. Einarsson
Gunnar tekur á móti gestum milli
klukkan 17 og 19 á afmælisdaginn
að Borgartúni 17, Reykjavík.
Til hamingju með daginn
85 ára
Eyjólfur Jónsson,
Hrafnistu Reykjavík.
Guðmunda Sigurðardóttir,
Strandgötu 17, ísafirði.
80 ára
Ragnheiður Þorgeirsdóttir,
Helgafelli II, Helgafellssveit.
Þorgrimur Einarsson,
Sundabúð 2, Vopnafirði.
70 ára
Sigurður Þórisson,
Grænavatni 4, Skútustaðahreppi.
Ragnar Jónsson,
Stórhólsvegi 1, Dalvik.
Baldur Þórisson,
Baldursheimi 0, Skútustaða-
hreppi.
60 ára
Gunnar Lárusson,
Skagabraut 27, Akranesi.
Lúðvík R.K. Guðmundsson,
Keilufelli 23, Reykjavík.
50 ára
Sigrún Garðarsdóttir,
Lækjamóti, Ljósavatnshreppi.
Halldór Hafsteinsson,
Úthaga 11, Selfossi.
Guðrún Jónasdóttir,
Suöurbraut 16, Hafnarfirði.
40 ára
Helgi Eyjólfsson,
Einibergi 9, Hafnarfirði.
Sveinbjörg Guðmundsdóttir,
Reyðarkvisl 23, Reykjavik.
Júlíana G. Kristjánsdóttir,
Steinahlið 1B, Akureyri.
Halldóra Sigurðardóttir,
Hliðarbyggö 47, Garðabæ.
Sigurður Árnórsson,
Álfabyggö 10, Akureyri.
Þorsteinn S. Ásmundsson,
Heiðmörk 6, Selfossi.
Brúðkaups- og
starfsafmæli
Ákveðið hefur verið að birta á afmælis- og ættfræðisíðu
DV greinar um einstaklinga sem eiga merkis brúðkaups-
eða starfsafmæli.
Greinarnar verða með áþekku sniði og byggja á sambæri-
legum upplýsingum og fram koma í afmælisgreinum blaðs-
ins en eyðublöð fyrir upplýsingar afmælisbarna liggja
frammi á afgreiðslu DV.
Upplýsingar varðandi brúðkaups- eða starfsafmæli
verða að berast ættfræðideild DV
með minnst þriggja daga fyrirvara.
Það er einkar mikilvægt að skýrar, nýlegar andlitsmyndir
fylgi upplýsingunum.
THmæli til afmælisbama
Blaðið hvetur afmælis böm og aðstandendur þeirra til að senda
því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur dögum
ÚTira&nælið.
Munið að senda okkur myndir
ííiíi
nmmwai m-atmm
iiiimitnii
iiiiiiii
tnwiBii*