Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Blaðsíða 2
18 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1989. Ef þú vilt út að borða VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI Alex Laugavegi 45, sími 21255 Adlon Laugavegi 126, sími 16566 A. Hansen Vesturgötu 4, Hf„ simi 651693. American Style Skipholti 70, sími 686838. Arnarhóll Hverfisgötu 8-10, sími 18833. Askur Suðurlandsbraut 4, sími 38550 Askur Suðurlandsbraut 14, sími 81344. Árberg Ármúla 21, sími 686022. Bangkok Síðumúla 3-5, sími 35708. Broadway Álfabakka 8, sími 77500. Café Hressó Austurstræti 18, sími 14353. Duus hús v/Fischersund, sími 14446. El Sombrero Laugavegi 73, sími 23433. Eldvagninn Laugavegi 73, sími 622631. FJaran Strandgötu 55, simi 651890. Fógetinn, Aðalstræti 10, sími 1 6323. Gaukur á Stöng Tryggvagötu 22, sími 11556. Gullni haninn Laugavegi 1 78, sími 34780. Hallargarðurinn Húsi verslunarinnar, sími 30400. Hard Rock Café Kringlunni, slmi 689888. Hjá Kim Ármúla 34, sími 31 381. Holiday Inn Teigur oa Lundur Sigtúni 38, sími 689000. Hornið Hafnarstræti 15, sími 13340. Hótel Borg Pósthússtræti 11, sími 11440. Hótel Esja/Esjuberg Suðurlandsbraut 2, simi 82200. Hótel Holt Bergstaðastræti 37, sími 25700. Hótel ísland v/Ármúla, sími 687111. Hótel Lind Rauðarárstíg 18, sími 623350. Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflugvelli, sími 22322. Hótel Óðinsvé (Brauðbær) v/Óðinstorg, sími 25224. Hótel Saga Grillið, s. 25033, Súlnasalur, s. 20221. Ítalía Laugavegi 11, sími 24630. Jónatan Livingston mávur. Tryggvagötu 4^-6, sími 15520 Kabarett Austurstræti 4, sími 10292. Kaffi Strætó Lækjargötu 2, sími 624045 Kaffivagninn Grandagarði, sími 15932. Kinahofið Nýbýlavegi 20, sími 45022. Kína-Húsiö Lækjargötu 8, símí 11014. Kringlukráin Kringlunni 4, sími 680878. La bella Napoli Skipholti 37, sími 685670 Lamb og fiskur Nýbýlavegi 26, sími 46080. Lækjarbrekka Bankastræti 2, sími 14430. Mandaríninn Tryggvagötu 26, sími 23950. Myllan, kaffihús Kringlunni, sími 689040. Naustið Vesturgötu 6-8, sími 17759. Ópera Lækjargötu 2, sími 29499. Peking Hverfisgötu 56, sími 12770 Pizzahúsiö Grensásvegi 10, sími 39933. Rauða Ijónið Eiðistorgi, sími 611414. Samlokur og fiskur Hafnarstræti 5, sími 18484. Sjanghæ Laugavegi 28, sfmi 16513. Sælkerinn Austurstræti 22, sími 11633. Taj Mahal, Tandori og Sushi bar. Laugavegi 34a, sími 13088. Var-úlfar og Ljón Grensásvegi 7, slmi 688311 Veitingahúsið 22 Laugavegi 22, sími 13628. Vetrarbrautin Brautarholti 20, s. 29098 og 23333 Viðeyjarstofa Viðey, sími 681045. Við Tiörnina Templarasundi 3, sími 18666. ölkeldan Laugavegi 22, sími 621036. Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldursgötu 14, sími 23939. ölkjallarinn Pósthússtræti 17, sími 13344. Ölver v/Alfheima, sími 686220. AKUREYRI: Bautinn Hafnarstræti 92, sími 21818. Hótel KEA Hafnarstræti 87-89, sími 22200. Hótel Stefanía. Hafnarstræti 83-85, sími 26366 Salarkynni Grillsins eru glæsileg og ekki spillir stórkostlegt útsýni matarlystinni. Veitingahús vikunnar: Grillið •Grillið á Hótel Sögu er einn af bestu veitingastöðum landsins. Hann telst til fínna veitingastaða og er allt gert til að gestir standi ánægðir upp frá borði. Grillið var opnað 1962. Þá var ekki mikið um góö veitingahús í Reykjavík. Naustið og Hótel Borg voru einu staðirnir sem buðu upp á mat og voru með vínveitingar. Grillið þótti strax glæsilegur veit- ingastaður og kom þar margt til. Ákaflega vandað var til húsgagna og salarkynna og svo fengu gestir stórfenglegt útsýni yfir Reykjavík. Útsýnið er enn jafnstórfenglegt en umhverfið hefur breyst og Hótel Saga stækkað. Grillið hefur aftur á móti veriö eins öll árin. Skipt hefur verið um teppi á gólfum, stóla og dúka, en heÚdarmyndin er eins og verður það, enda sérstaklega vel heppnuð innrétting. Grilhð er opiö fimm daga vikunn- ar, þriðjudaga til laugardaga, frá klukkan 19.00-11.30. í hádeginu er lokaö en hægt er að fá salinn leigð- an fyrir veislur fyrri hluta dagsins. Salurinn tekur 106 manns í sæti og er vissara fyrir gesti að panta borð fyrirfram. Matseðill Grillsins er sérréttar- seðill (a la carte). Um helgar er svo einnig boðiö upp á sérstakan helg- arseðil. Jöfn skipting á honum er milli fiskrétta og kjötrétta. Forrétti er hægt að fá heita og kalda. Kaldur forréttur er til dæmis fylltur smokkfiskur með kryddlöguðu grænmeti. Gljáðir sniglar á tóm- atkurli er aftur á móti heitur for- réttur. Verð á forréttum er frá 670-970 kr. Boðið er upp á sex fisk- og skel- fiskrétti. Ber þar fyrst að nefna Saga Gratin sem er blandaður fisk- og skelfiskréttur. Þessi réttur hefur verið á matseðli Grillsins frá opnun staðarins og alltaf notiö mikilla vinsælda. Má geta þess að prófað hefur verið að taka hann út af seðl- inum en hefur um leið verið settur á seðilinn aftur vegna þess að gest- ir voru fljótir að kvarta. Af öðrum fiskréttum má nefna humar og hunangsmelónu með vermútsósu og laxa- og lúðurétti með engifers- ósu og gúrkettum. Verð á fiskrétt- um er frá 1340-2230 kr. Eins og gefur að skilja gista marg- ir útlendingar á hótelinu. Hafa þeir lokið lofsorði á íslenska lambakjö- tið sem boðið er upp á. í kjötréttum er boðið upp á sjö rétti og þar af tvo lambarétti, lambahrygg með gljáð- um lauk og lambarifjur með svínaf- leski og sveppamauki. Þá er boðið upp á meðal annars Chateaubriand með nautamerg sem er ætlað tveimur, piparsteik sem kveikt er í með koníaki við borð gestsins og svartfuglsbringu í smjördeigsum- slagi. Verð á kjötréttum er frá 1670-2150 kr. Fjölbreytt úrval ábæt- isrétta er einnig að finna á matseðl- inum. Vínseðill Grillsins er tvímæla- laust sá glæsilegasti sem nokkurt veitingahús býður hér á landi. Úr- val gæðavína er mikið og má þar nefna að á rauðvínslistanum eru þrjár tegundir af fimm sem falla undir Premier Grand Cru, Chateau Mouton Rothschild (þrjár árgerð- ir), Chateou Latour og Chateau Margaux. Þá eru árgangsvín í miklu úrvah. Má þar nefna Chate- au La Tour Haut Moulin 1945 sem gestir geta fengið fyrir litlar 37.245 kr. Að sjálfsögöu eru góð vín dýr. Verðið er aftur mismunandi og ættu allir að geta fundið rauðvín við sitt hæfi. Úrval hvítvína er einnig mjög gott. Má þar nefna Chablis, bæöi Premier Cru og Grand Cru, og tvær árgerðir af Charddonnay. Fleira mætti telja upp af þessum glæsilega vínlista sem hlýtur að gleðja augu allra áhugamanna um vín. Skipt er um matseðil á Grillinu aö jafnaði þrisvar á ári. Yfirþjónn í Grillinu er Halldór Sigdórsson og yfirmatreiöslumaöur er Ragnar Wessman. -HK Réttir helgarinnar: Snöggbakaður lax og heilsteiktar grísalundir Matreiðslumaður vikunnar er Ragnar Wessman, yfirmatreiðslu- maður í Grillinu á Hótel Sögu. Hann býður lesendum DV upp á tvo rétti; snöggbakaðan lax og heil- steyktar grísalundir Snöggbakaður lax Snöggbakaður lax, vættur í gini, framreiddur í rifssósu með eini- berjum og smjördeigstíglum. (Saumon passé au four, mouillé de gin et servi avec sauce aux groseil- les, baies de geniévre et bouchées de pate feuilletée.) Aðferð: Flakið og beinhreinsið laxinn, skeriö hann í örþunnar sneiðar og setjið á smurðan disk. Penshð með gini. Stráið yfir muldum einiberjum, salti og pipar. Bakið í 30 sek. í vel heitum ofni. Sjóöið niður kampavín og rjóma. Þykkið örlítið með maisenamjöli og bætið 200 g af smjöri í hvem lítra af'vökva. Hitið rifsber í örhtlu hunangi. Dreypið kampavínssósu yfir laxinn og stráið yfir hann berjum. Ragnar Wessman, yfirmatreiðslu- maður í Grillinum, býður lesend- um upp á tvo rétti um helgina. Borið fram meö sítrónu og smjör- deigstíglum. Heilsteiktar grísalundir Heilsteiktar grísalundir, fylltar með sveskjum og steinselju, fram- reiddar með múskatsósu (fyrir 4). (Filet de porc roti fourré aux pruneaux et au persil, servi avec sauce muscade.) Aðferð: Hreinsið sinar af 3 grísalundum og stingið sleif í gegnum þær endi- langar, fylliö með steinselju og sveskjum. Kryddið með salti, pipar og múskati. Brúnið á pönnu og bakið í ofni í ca 10 mín. við 180 C. Múskatsósa: 2 laukar, smátt saxaðir 60 g ósaltað smjör 6 dl hvítvín 1 Zi dl edik 6 dl rjómi múskat hnetur Saxið laukinn og látið hann malla svohtla stund í smjörinu, bætið ediki og hvítvíni í, sjóðið niður. Bætið rjómanum í og sjóðið niöur. Rífið múskat með hnetum út í. Laxdalshús Aðalstræti 11, sími 26680. Sjaliinn Geislagötu 14, sími 22970. Smiöján Kaupvangsstræti 3, sími 21818. Uppinn Ráðhústorgi 9, sími 241 99 VESTMANNAEYJAR: Muninn Vestmannabraut 28, simi 11422 Skansinn/Gestgjafinn Heiðarvegi 1, sími 12577. Skútinn Kirkjuvegi 21, sími 11420. KEFLAVÍK: Glaumberg/Sjávargull Vesturbraut 17, sími 14040. Glóöin Hafnargötu 62, sími 11777. AKRANES: Hótel Akranes/Báran Bárugötu, simi. 12020. SUÐURLAND: Gjáin Austurvegi 2, Selfossi, sími 22555. Hótel Örk, Nóagrill Breiðumörk 1, Hverag., s. 34700. Inghóll Austurvegi 46, Self., sími 21 356. Skíðaskálinn, Hveradölum v/Suðurlandsveg, sími 98-34414. VEITINGAHÚS - ÁN VÍNS Á næstu grösum Laugavegi 26, simi 28410. Bigga-bar - pizza Tryggvágötu 18, sími 28060. . Blásteinn Hraunbæ 102, sími 673311. Bleiki pardusinn Gnoðarvogi 44, sími 32005 Hringbraut 119, sími 19280, Brautar- holti 4, simi 623670, Hamraborg 14, sími 41024. Brauðstofan Gleymmérei Nóatúni 17, sími 15355. Chick King Suðurveri, Stigahlið 45-47, s. 38890. Eldsmiðjan Bragagötu 38 A, sími 14248. Gafl-inn Dalshrauni 13, sími 54424. Hér-inn Laugavegi 72, sími 19144. Höfðakaffi Vagnhöfða 11, sími 696075. Ingóifsbrunnur Aoalstræti 9, sími 13620. Kentucky Fried Chicken Hjallahrauni 15, simi 50828. Konditori Sveins bakara Álfabakka, sími 71818. Kútter Haraldur Hlemmtorgi, sími 19505. Lauga-ás Laugarásvegi 1, sími 31620. Madonna Rauðarárstíg 27-29, simi 621 988 Marinós pizza Njálsgötu 26, sími 22610. Mokka-Expresso-Kaffi Skólavörðustig 3a, sími 21174 Múlakaffi v/Hallarmúla, sími 37737. Norræna húsið Hringbraut, simi 21522. Næturgrillið heimsendingarþj., sími 25200. Pizzahúsið Öldugötu 29, simi 623833. Pizzaofninn Gerðubergi, sími 79011 Pítan Skipholti 50 C, sími 6881 50. Pítuhúsið Íðnbúð 8, simi 641290. Potturinn og pannan Brautarholti 22, sími 11690. Selbitinn Eiðistorgi 13-15, simi 611070. Smáréttir Lækjargötu 2, simi 13480. Smiðjukaffi Smiðjuvegi 14d, sími 72177. Sprengisandur Bústaðavegi 1 53, sími 33679. Sundakaffi Sundahöfn, simi 36320. Svarta pannan Hafnarstræti 17, sími 16480. Tíu dropar Laugavegi 27, sími 1 9380. Toppurinn Bildshöfða 1 2, sími 672025 Tommahamborgarar Grensásvegi 7, sími 84405 Laugavegi 26, sími 19912 Lækjartorgi, sími 1 2277 Reykjavíkurvegi 68, sími 54999 Uxinn Álfheimum 74, sími 685660. Veitingahöllin Húsi verslunarinnar, sími 30400. Vogakaffi Smiðjuvegi 50, sími 38533. Western Fried, Mosfellssveit v/Vesturlandsveg, sími 667373. Winny’s Laugavegi 116, sími 25171. AKUREYRI: Crown Chicken Skipagötu 12, sími 21464. Vestmannaeyjar: Bjössabar Bárustíg 11, sími 1 2950 Keflavík: Brekka Tjarnargötu 31 a, sími 13977 Langbest, pizzustaður Hafnargötu 62, simi 14777

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.