Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Page 3
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1989. 19 Dansstaðir Abracadabra, Laugavegi Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. Amadeus, Þórscafé, Brautarholti, simi 23333 Dansleikur föstudags- og laugardags- kvöld. Ártún, Vagnhöfða 11 Gömlu dansamir föstudagskvöld kl. 21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3. tHjómsveitin Danssporið leikur fyrir dansi bæði kvóldin. Broadway, Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500 Sól og sandur föstudags- og laugar- dagskvöld. Casablanca, Skúlagötu 30 Danstónlist á föstudags- og laugar- dagskvöld. Duus-hús, Fischersundi, sími 14446 Diskótek fögtudags- og laugardags- kvöld. Glæsibær, Álfheimum Hljómsveitin í gegnum tíðina leikur gömlu og nýju dansana föstudags- og laugardagskvöld. Hollywood, Ármúla 5, Reykjavík Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld með ýmsum uppákomum. Hótel Borg, Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440 Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. Hótel Esja, Skálafell, Suðurlandsbraut 2, lieykjavík, simi 82200 Dansleikir föstudags- og laugardags- kvöld. Lifandi tónlist. Opið frá kl. 19-1. Hótel ísland Dansleikur föstudags- og laugardags- kvöld Hótel Saga, Súlnasalur v/Hagatorg, Reykjavík, simi 20221 Þjóðarspaug í 30 ár, skemmtidagskrá með Ómari Ragnarssyni, Hemma Gunn. og Helgu Möller á laugardags- kvöld. Hljómsveitin Einsdæmi leikur fyrir dansi. Cuba, Borgartúni 32 Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. Aldurstakmark 18 ár. Tunglið og Bíókjallarinn, Lækjargötu 2, sími 621625 Dansað frá 10-3 á föstudags- og laug- ardagskvöld. Vetrarbrautin, Brautarholti 20, sími 29098 Lúdósextett leikur fyrir dansi um helgina. Zeppelin rokkklúbburinn, Borgartúni 32 Royal Rock, húshljómsveit, leikur fyrir dansi um helgina. Ölver, Álfheimum 74, s. 686220 Opið fimmtudags-, föstudags-, laugar- dags- og sunnudagskvöld. Á tonleikunum í Gamla bíói koma einkum fram eldri nemendur Tón- menntaskólans. Leikfélagið Baldur, Bíldudal: •• •• í kvöld verður frumsýnt leikri- tiö Bör Börson eftir Johann Falk- berget hjá Leikfélaginu Baldri, Bíldudal. Flestir sem komnir eru yflr miöjan aldur ættu aö kannast við söguna af norska grósseran- um og generalagentinum Bör Börsyni, svo rómaður var lestur Helga Hjörvar á sögunni í útvarp- inu á árunum rétt eftir seinna stríð. Þetta er í annaö sinn sem Bíld- dælingar setja Bör Börson á sviö. Þaö var fyrir réttum 25 árum að kvennadeild Slysavamafélagsins á Bíldudal safnaði saman hópi af fólki tU aö freista þess aö setja Bör Börson upp. Þaö tókst svo vel aö í leikferð með þá sýningu fæddist leikfélagið Baldur. í þessari afmælissýningu á verkinu taka þátt flórtán leikarar ásamt fjölda aöstoöarmanna, alls um tuttugu manns. Til gamans má geta að einn leikarinn í sýn- ingunni nú lék einnig í sýning- unni fyrir aldarfjórðungi. Það er Hannes Friðriksson veitinga- maður og formaður Baldurs. Aðrir sem fara með helstu hlut- verk eru: Öm Gíslason, Ottó Valdimarsson, Logi Hannesson, Védís Thoroddsen, Guðmundur Þórðarson og Bylgja Agnarsdótt- ir. Leiksljóri er Þröstur Guð- bjartsson. Hann hefur starfað jöfnura höndum sem leikari og leikstjóri síðastliðin tíu ár. Síöast leikstýrði hann fmmuppfærslu á leikgerö Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þór- berg Þórðarson hjá Leikfélagi Hornartjarðar en það var sýnt í tilefni aldarafmælis skáldsins. Gestaleiksýning í Norræna húsinu: Ekki mér að kenna Dagana 8. og 9. maí mun Flamin- iateatret frá Sandfjord í Noregi sýna leikritið „Det var ikke min skyld“ í Norræna húsinu. Sýning- arnar hefjast kl. 16 báða dagana. Aðgangur er ókeypis. Leikstjóri er Jorunn Vesterlid og leikarar eru Cecil Froshaug og Vera Rostin Wexelsen. Leikritið er byggt á samnefndri skáldsögu eftir norska rithöfund- inn Aase Foss Abrahamsen. Það fjallar um litla stúlku sem sér vin- konu sína deyja í umferðarslysi. Hún fyllist sektarkennd og veitist erfitt að vinna úr áhrifum þessa voveiflega atburðar. Fullorðna fólkið vill henni vel en viöbrögö þess eru þó á þann hátt að hún ein- angrast með vandamálin. Flaminialeikhúsið hlaut styrk til fararinnar frá Norræna dans- og leikhúsráðinu. Viðar Alfreðsson í Heita pottinum Gamla bíó: Vortónleikar Tónmenntaskólans Það verður mikið um að vera í Casablanca í kvöld. Hvorki meira né minna en ellefu manna hljóm- sveit leikur fyrir dansi. Hljóðfæraleikararnir, sem vilja kenna sig vdð astraldjass, kalla hljómsveitina Júpiters og segja hana vera hljómsveit 7 heimsálfa og fimm úthafa. Stórsveitin leikur flestar tegund- ir tónlistar, salsa, rokk, djass og í raun allt nema bíbopp. Til að leggja áherslu á það eru einkunnarorð hennar „bú á bíbopp". Viðar Alfreðsson leikur í fyrsta skiptið í heita pottinum á sunnudagskvöldið. Hinn landskunni trompetleikari Viöar Alfreðsson mun næstkom- andi sunnudagskvöld leika í Heita pottinum í Duus húsi við Fisch- erssund. Þetta verða fyrstu tónleik- ar trompetsnillingsins í Heita pott- inum en á síðastliðnu ári kom hann fram á djasshátíðinni á Egilsstöð- um og hafði þá ekki spilað opin- berlega í nokkur ár. Tónlistarferill Viðars Alfreðsson- ar spannar meira en þrjá áratugi. Hann lék í dans- og djasshljóm- sveitum í Reykjavík seint á sjötta áratugnum. Var síðan vdð nám í Þýskalandi og Englandi og starfaði að því loknu í nokkur ár í London. Heim kom hann 1970 og lék nokkur ár í Smfóníuhljómsveitinni, en á síðustu árum hefur hann kennt úti á landsbyggðinni og er nú skóla- stjóri Tónlistarskóla Mývetninga. Fyrir tæpum áratug kom út hljómplata með Viðari. Viðar spilar og spilar hét hún og hafði að geyma bæði djass og léttklassíska tónlist. Þeir sem spila með Viðarti í Heita pottinum eru Kristján Magnússon, píanó, Tómas R. Einarsson, kontra- bassa og Guðmundur R. Einarsson á trommur. Tónleikarnir hefiast kl. 21.30. astraldjasssveit Tónmenntaskóli Reykjavdkur er nú að ljúka 36. starfsári sínu. í skól- anum voru um 500 nemendur. Kennarar voru rúmlega fiörutíu talsins. Meðal annars störfuðu við skól- ann tvær hljómsveitir með rúm- lega fimmtíu strengjaleikurum og tvær lúðrasveitir með um fimmtíu blásurum. Auk þess var léttsveit starfrækt í skólanum. Mikið hefur verið um tónleikahald á vegum skólans í vetur og vor. Síðustu vortónleikar skólans verða haldnir í Gamla bíó (íslensku óperunni) á laugardag, 6. maí, og hefiast kl. 14. Á þessum tónleikum koma einkum fram eldri nemendur skólans. Á efnisskránni verður ein- leikur og samleikur á ýmiss konar hljóðfæri. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Meðal hljómsveitarmeðlima er Abdul ásláttarleikari. Casablanca Ellefu manna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.