Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Qupperneq 6
22
FÖSTUDAGUR 19. MAl 1989.
Kris Kristofferson hefur leikið i nokkrum vestrum og er því vanur að
bera kúrekahattinn.
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir
Bíóborgin:
Hættuleg sambönd
Hættuleg sambönd (Dangerous
Liasons), sem Bíóborgin sýnir
þessa dagana, hefur vakiö mikla
athygli og hrifningu áhorfenda,
enda er hér um að ræða einstaklega
vel heppnaða kvikmynd sem gerð
er eftir þekktu leikriti.
Myndin gerist í Frakklandi rétt
fyrir byltinguna og segir frá spillt-
um og lævísum aðh sem skemmtir
sér við að koma saklausum á kald-
an klaka. Aðalpersónumar eru
tvær, Valmond vísigreifi og Ma-
dame de Merteuil, og er erfitt að
gera upp á milli hvort er spilltara.
Það em John Malkovich og
Glenn Close sem leika skötuhjúin
og gera það snilldarlega. Þá er
Michelle Pfeiffer einnig mjög góð í
hlutverki eins fómarlambs þeirra.
Langt er síðan sést hefur jafnsam-
stilltur leikur.
Leikstjóri er Stephen Frears sem
hefur á undanfornum árum leik-
stýrt þremur breskum úrvals-
myndum, My Beautiful Laund-
rette, Prick up Your Ears og Sammi
and Rosie Get Laid. Allar eru þær
miklar gæðamyndir. -HK
Regnboginn:
Réttdræpir
Vestrar em ekki í tísku í dag og em því fáar kvikmyndir úr villta vestr-
inu gerðar. Það vih þó svo til að tvö kvikmyndahús sýna vestra þessa
dagana. I Bíóhöllinni er verið að sýna Ungu byssubófana (Young Guns)
sem segir frá afdrifum hins fræga útlaga Bihy The Kid og félaga hans og
í gær hófust sýningar í Regnboganum á glænýjum vestra sem nefnist
Réttdræpir (Dead or Alive).
Aðalhlutverkið leikur Kris Kristofierson sem er þaulvanur vestraleik-
ari og lék meðal annars aðalhlutverlað í dýrasta vestra sem gerður hefur
verið, Heavens Gate. í Réttdræpir leikur hann búgarðseigandann Noble
Adams sem ásamt sonum sínum hefur leit að glæpahóp sem ferðast um
og drepur menn ef peningar em í boði.
Leikstjóri er John Guihermin sem er gamah í hettvmni. Hann hefur
leikstýrt kvikmyndum aht frá 1950 og á að baki nokkrar ágætar spennu-
myndir eins og The Blue Max, The Bridge of Remagen, The Towering
Infemo og einnig leikstýrði hann Death on a Nhe þar sem Peter Ustinov
birtist fyrst í hlutverki Hercule Poirot.
-HK
Eitthvað hefur farið úrskeiðis hjá Frank Drebin lög-
regluforingja þegar hann heimsótti Englandsdrottn-
ingu, eins og sjá má á þessari mynd.
Háskólabíó:
Beint á ská
Söguhetjan í gamanmyndinni Beint á ská (The Naked
Gun) er lögregluforinginn Frank Drebin. I upphafi
myndarinnar er hann að koma heim th Los Angeles
eftir erfiða ferð í útlöndum. Við heimkomuna uppgötvar
hann ráðagerð um morð og um leið að eiginkona hans
hefur gifst öðmm meðan hann var í burtu. Drebin lætur
það ekki á sig fá, enda lögreglumaður fyrst og fremst,
og hans takmark er að finna verðandi morðingja og
dulbúinn sem ópemsöngvari tekst honum það á horna-
boltaleik...
Aðalhlutverkið leikur Leshe Nielsen sem hefur leikiö
í meira en sextíu kvikmyndum. Nielsen er leikari sem
sjaldan hefur farið með aðalhlutverk en er einn af þess-
um traustu karakterleikurum. Er Drebin lögreglufor-
ingi sjálfsagt hans stærsta hlutverk.
-HK
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7,
Reykjavik
Sýningarsalur og vinnustofur að Stang-
arahyl 7. Þar eru til sýnis og sölu olíumál-
verk, pastelmyndir, grafík og ýmsir leir-
munir eftir myndlistarmennina Erlu B.
Axelsdóttur, Helgu Armanns, Elínborgu
Guðmundsdóttur, Margréti Salome
Gunnarsdóttur og Sigrúnu Gunnarsdótt-
ur. Opið alla virka daga kl. 13-18:
Árbæjarsafn,
simi 84412
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 10-18.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
í safiii Ásgríms Jónssonar hefur verið
opnuð sýning á vatnslitamyndum Ás-
grims og stendur hún til 28. maí. Á sýn-
ingunni eru 27 myndir frá ýmsum skeið-
um á hinum langa listferli Ásgríms. Sýn-
ingin er opin alla daga nema mánudaga
kl. 13.30-16.
Ásmundarsalur,
Freyjugötu 41
Pétur Bjamason sýnir verk sín í Ás-
mundarsal. Sýningin er opin kl. 14-20.
Gallerí Grjót,
Skólavörðustíg 4a
í dag verður opnuð sýning 10 finnskra
málmlistarmanna. Sýningin ber yfir-
skriftina Intimate piecec. Verkin á sýn-
ingunni eru afrakstur vinnu nemenda á
málmlistarbraut Listiðnaðarháskólans í
Helsinki á nýliðnu vormisseri. Í hópnum
eru gull-, silfur- og steinsmiðir og efnivið-
urinn því margbreytilegur. Að auki er
ein veflistarkona í hópnum. Sýningin
stendur til 4. júni og er opin kl. 12-18 alla
virka daga en kl. 14-18 um helgar.
FÍM-salurinn,
Garðastræti 6
Bjöm Roth opnar fýrstu einkasýningu
sína hérlendis í FÍM-salnum laugardag-
inn 20. maí kl. 15-17. Bjöm sýnir olíumál-
verk og vatnslitamyndir. Sýningin er
opin virka daga kl. 13-18 og kl. 14-18 um
helgar. Sölugallerí FÍM er í Kjallaranum.
Gallerí 15,
Skólavörðustíg 15
Ingvar Þorvaldsson sýnir vatnslitamynd-
ir. Sýningin stendur til sunnudagsins 21.
maí. Opið er virka daga kl. 16-20 og um
helgar kl. 14-20.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9
Jóhannes Jóhannesson sýnir olíumál-
verk. Sýningin er opin virka daga kl.10-
18 og um helgar kl. 14-18. Henni lýkur
23. mal. í kjallaranum í Pósthússtræti 9
er úrval smámynda og margt góðra verka
eldri meistara. Kjallarinn er opinn á
sama tíma og sýningin. Grafik-galleríið í
Austurstræti 10 (uppi á lofti í Pennanum)
er hins vegar opið á sama tíma og Penn-
inn.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustig 2,
textílgallerí, er opið þriðjudaga til fóstu-
daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Gallerí List,
Skipholti 50B
Arthur Ragnarsson sýnir í Gallerí List.
Flestar myndanna em til sölu. Opið virka
daga kl. 10.30-18 og 10.30-14 á laugardög-
um.
Hafnarborg,
menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar
Gunnlaugur St. Gíslason sýnir um 40
vatnslitamyndir og nokkrar grafíkmynd-
ir. Sýningin er opin frá kl. 14-19 alla daga
nema þriðjudaga og stendur til 28. maí.
Katel,
Laugavegi 20b
(Klapparstígsmegin)
Til sölu em verk eftir innlenda og er-
lenda bstamenn, málverk, grafík og leir-
munir.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Vorsýning Myndlista- og handíöaskóla
íslands stendur yfir á Kjarvalsstöðum til
21. maí nk. Sýningin er opin alla daga
kl. 11-18. Sýnd em lokaverkefni útskrift-
amemenda sem að þessu sinni em 49.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi 16
Laugardaginn 20. maí kl. 14 verður opnuð
sýning á myndverkum eftir Gunnþór-
unni Sveinsdóttur frá Mælifellsá í Skaga-
firði Myndimar á sýningunni, um 70 tals-
ins, em flestar málaðar með þekjulitum
á pappír. Sýningin verður opin alla virka
daga kl. 16-20 en um helgar kl. 14-20.
Sýningunni lýkur 18. júní.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur,
Borgartúni 1
Þar stendur yfir sýning á Ijósmyndum
er vom sýndar á kvennaráðstefnunni í
Osló sumarið 1988. Sýningin verður opin
virka daga kl. 8.30-18 og um helgar kl.
13-18. Sýningunni lýkur 21. maí.
Sýning í Odda,
niija hugvísindahúsinu,
er opin daglega kl. 13.30-17. Þar em til
sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega
eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Að-
gangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands,
Fríkirkjuvegi 7
Sérfræðingur segir gestum frá „mynd
mánaðarins" á fimmtudögum kl. 13.30-
13.45 og er það ókeypis. Þar stendur nú
yfir sýning á úrvali íslenskra landslags-
verka í eigu safnsins. Sýningin spannar
þessa öld, allt frá verkum frumheijanna
til yngstu listamanna okkar og er sýning-
in afar fjölbreytt bæði að myndefni og
tækni. Mynd maimánaðar er Bátur á
heimleið eftir Gunnlaug Ó. Scheving.
Listasafn íslands er opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17 og er veitingastofa
hússins opin á sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar,
Laugarnestanga 70
í tilefni af opnun safnsins og 80 ára af-
mæli listamannsins er haldin yfirlitssýn-
ing á 50 verkum Siguijóns. Þar á meðal
em myndir sem aldrei hafa áður veriö
sýndar á íslandi. Safnið og kaffistofan em
opin laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Tekið er á móti hópum eftir samkomu-
lagi.
Norræna húsið
við Hringbraut
í sýningarsölum stendur yfir sýning á
teikningum og vatnslitamyndum eftir
sænsku listakonuna Ilon Wikland en hún
hefur myndskreytt allflestar bækur
Astrid Lindgren. Á sýningunni em 55
myndir og stendur hún til 11. júní og er
opin daglega kl. 14-19.
í anddyri Norræna hússins stendur yfir
sýning á myndum eftir sænsku listakon-
una Siri Derkert sem hún gerði við sögu
Halldórs Laxness, Úngfrúin góða og hús-
ið. Auk þess em á sýningunni tíu litlar
myndir í lit, sem teiknaðar vom á íslandi
1949. Sýningin stendur til 4. júní og er
opin kl. 9-19 nema sunnudaga kl. 12-19.
Aðgangur er ókeypis.
Nýhöfn,
Hafnarstræti 18
Hafsteinn Austmann opnar málverka-
sýningu laugardaginn 20. maí kl. 14-16. Á
sýningunni em málverk og vatnslita-
myndir sem málaðar em á síðustu tveim-
ur árum. Þetta er tólfta einkasýning Haf-
steins en hann hefur einnig tekið þátt í
fjölda samsýninga hér heima og erlendis.
Sýningin, sem er sölusýning, er opin
virka daga frá kl. 10-18 og um helgar kl.
14- 18. Henni lýkur 7. júní.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Stofnunar Áma Magn-
ússonar er í Ámagarði við Suöurgötu á
þriðjudögum, fimmtudögum og laugar-
dögum kl. 14-16.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15- 18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar,
Hverfisgötu
Þar em til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriöjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga kl. 11-16.
Myndlistarsýning í SPRON
í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis,
útibúinu að Álfabakka 14, Breiðholti,
stendur yfir sýning á verkum eftir Bene-
dikt Gunnarsson listmálara. Sýningin
mun standa yfir til 26. maí nk. og er opin
frá mánudegi til fimmtudags kl. 9.15-16
og fóstudaga kl. 9.15-18. Sýningin er sölu-
sýning.
Sýning í Hveragerði
Gunnar V. Randmp sýnir í Félagsheimili
Ölfusinga, Hveragerði (við hliðina á Ed-
en). Myndimar em málaðar með olíu og
em alíar til sölu. Sýningin er opin kl.
15-21 alla daga og lýkur henni sunnudag-
inn 21. maí.
Málverkasýning á
Hótel Selfossi
Jón Ingi Sigurmundsson opnar mál-
verkasýningu á Hótel Selfossi laugardag-
inn 20. maí kl. 14. Á sýningunni em 20
olíu-, vatnslita- og pastelmyndir. Þetta er
fjórða einkasýning Jóns Inga en hann
hefur einnig tekið þátt í samsýningum
Myndlistarfélags Árnessýslu. Sýningin
stendur til mánudagsins 29. maí.
Listkynning í Alþýðu-
bankanum á Akureyri
Alþýðubankinn hf. og Menningarsamtök
Norðlendinga, Menor, kynna myndhst-
armanninn Jónas Viðar Sveinsson. Á
listkynningunni em 6 verk, öll unnin í
akrýl á striga á árunum 1987-1989. List-
kynningin er í afgreiðslusal Alþýðubank-
ans á Akureyri, Skipagötu 14, og er opin
á afgreiðslutíma bankans. Kynningunni
lýkur 30. júní.