Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Síða 7
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989.
23
Víkingur og FH verða bæði í eldlínunni á sunnudag, Vikingar mæta Þórsurum fyrir norðan en FH fær KA í
heimsókn. Myndin er úr bikarleik liðanna í fyrra, Víkingurinn Trausti Ómarsson sækir að marki FH-inga sem
eru fjölmennir fyrir.
Landsleikur í
kvöld-1. deild
á sunnudaginn
Knattspyrnuvertíðin er að fara
af stað af fullum krafti og að baki
eru opnunarleikir tímabilsins, úr-
slitaleikur Reykjavíkurmótsins og
meistarakeppnin. Komandi helgi
ber tvo aðra áfanga í skauti sér,
fyrsti landsleikurinn er á dagskrá
í kvöld og fyrstu leikirnir í 1. deild-
ar keppninni verða háðir á sunnu-
daginn.
ísland - England kl. 20
íslenska landsliðið mætir liði
Englands á Laugardalsvellinum í
kvöld og hefst viðureignin kl. 20.
Sjö ár eru síðan enskt landslið kom
hingað til lands og að þessu sinni
tefla enskir fram b-liði sínu, sem
þó er skipað mörgum kunnum
köppum sem hafa staðið sig vel
með félögum sínum í vetur.
Þetta er lokaverkefni íslenska
landshðsins fyrir hina þýðingar-
miklu leiki sem framundan eru í
heimsmeistarakeppninni, gegn
Sovétmönnum í Moskvu þann 31.
mai og Austurríkismönnum á
Laugardalsvellinum þann 14. júní.
Stórleikur á KR-velli
Keppni í 1. deild hefst á sunnu-
daginn og þá fara fram þrír leikir
af fimm í fyrstu umferð. Hefjast
þeir allir kl. 14. Þar ber hæst viöur-
eign gömlu erkifjendanna KR og
Akraness en liðin mætast á gras-
velli KR-inga. Þessi félög háðu
löngum einvígi um meistaratignina
hér á árum áður en í dag er þeim
frekar spáð baráttu um þriðja til
fjórða sæti deildarinnar. Bæði lið
eru skipuð ungum og efnilegum
leikmönnum og má buast við fjör-
ugum leik.
Á Akureyri mætast Þór og Vík-
ingur á malarvelli Þórsara en langt
er í þá stund að hægt verði að leika
á grasi fyrir norðan. Reiknað er
með að Þórsarar eigi erfitt upp-
dráttar í sumar og styrkur Víkinga
er nokkuð óræður þannig að óger-
legt er að spá í úrslit.
Loks eigast við á Kaplakrika í
Hafnarfirði lið FH og KA. FH leikur
í 1. deildinni á ný eftir árs dvöl í
2. deild en KA kom á óvart í fyrra
og náði þá 4. sæti í 1. deild í fyrsta
skipti. Akureyringarnir eru heldur
sigurstranglegri í þessari viður-
eign.
Hinir tveir leikirnir í 1. umferð
eru ÍBK - Valur í Keflavík á mánu-
dagskvöldið og Fram-Fylkir á
þriðjudagskvöldið.
Stigamót í Leirunni
Annað stigamót golfara á þessu
tímabih verður háð hjá Golfklúbbi
Suðurnesja á Hólmsvelh í Leiru á
laugardag og sunnudag. Keppnin
er 54 holu höggleikur og keppt
verður í meistaraflokki karla, for-
gjöf 5 og lægri.
Keppnin hefst kl. 8 að morgni
laugardags og verða leiknar 36 hol-
ur þann dag en síðari umferðin
hefst kl. 13. Á sunnudag verður
byrjað kl. 10 og leiknar síðustu 18
holurnar. Þátttökutilkynningar
þurfa að berast Golfklúbbi Suður-
nesja fyrir kl. 18 í dag og rástímar
liggja fyrir kl. 20 í kvöld.
Annað mót um helgina fer fram
hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnar-
firði. Það er opna Panasonic-mótið
en þar verða leiknar 18 holur með
og án forgj afar álaugardag. -VS
Bækur
til
sölu
Lögbókin þín e. Björn Þ. Guðmundsson, Náttúrufræð-
ingurinn 1931-1984, Hver er maðurinn 1-2, ib., Tíma-
ritið Prentarinn 1910-1965, Tímaritið Mímir, tímarit
íslenskunema 1962-1977, vandað skinnband, Saga
Reykjavíkur e. Klemens landritara, Arbækur Reykja-
víkur 1786-1936 e. dr. Jón Helgason, Fortidsminder
og nutidshjem paa Island e. Daniel Bruun, Grundriss
der isl. Geologie, hin nauðafáséða bók próf. Þorvaldar
Thoroddsen í lúxusbandi, Om Islands Geologi e. dr.
Helga Pjeturss, Byggð og saga, undirstöðurit próf.
Ólafs Lárussonar, Völuspá, útg. Eiríks Kjerúlfs, Um
skipulag bæja e. próf. Guðmund Hannesson, Die Vög-
el Islands 1-2 e. Timmermann, Fasteignamat Reykja-
víkur 1932, fjölrit, Forlagaspár Kírosar, Dularmögn
Egyptalands e. Brunton, Bókaskrá Olafs Klose, bóka-
skrá um safn Poestions, Hver er sinnar gæfu smiður
e. Epiktet, bókin Mannasiðir, handbók Jóns lands-
bókavarðar um göfuga háttu og framkomu, Saga Skag-
strendinga og Skagamanna e. Gísla Konráðsson,
Handrit um ætt Páls Melsteðs, ritað hefur Gísli
Konráðsson eigin hendi, Deildir Alþingis e. dr. Bjarna
Benediktsson, Fjölnir 1-9, allt sem út kom, Horfnir
góðhestar e. Ásgeir frá Gottorp/I. bindi, Endurtekn-
ingin e. Sören Kirkegaard, þýðing Þorsteins Gylfason-
ar, Vídalínspostilla. IX. útg., Hólum 1776, Síldarsaga
íslands e. Matthías frá Móum, Hrynjandi íslenskrar
tungu e. Sigurð Kr. Pjetursson, Föðurtún e. Pál Kolka,
Helgafell, tímaritið, ib. 1.-7. árg. komplet, margar frum-
útgáfur e. Halldór Laxness, Jökul Jakobsson, Ástu Sig-
urðardóttur, Gunnar prest Benediktsson o.fl. o.fl. ný-
komið.
Udtog af afgangne LAVMAND POVEL VIDALINS
Afhandling om ISLANDS OPKOMST, under Titel
Deo, Regi, Patriæ. .. Soröe 1768, skýrsla lögman’ns um
landshagi þess tíma, alskinnsband, gamalt.
Nýkomið: Hundruð undirstöðurita um stríð, styrjalda-
sögu, Þriðja ríkið, Adolf Hitler, Göbbels, Hess, Göring,
frumútgáfur rita eftir ýmsa höfunda frá tímum þriðja
ríkisins, rit um söguleg efni, araba, múslím, gyðinga,
dulhyggju, occultisma, mystík, hundruð ævisagna um
erlenda menn og konur nýkomnar.
Við höfum nýlega flutt verslunina í Hafnarstræti
4, áður Bókaverslun Snæbjarnar - og höfum greint
bækurnar allar niður í aðgengilega flokka svo næsta
aðgengilegt er nú að finna það sem hugurinn girnist.
Kaupum og seljum allar bækur, íslenskar og erlendar,
gamlar og nýlegar, gömul íslensk og erlend póstkort,
gömul myndverk, íslenskan tréskurð og verkfæri frá
eldri tíð.
Höfum til sölu myndir eftir hertogann af Sankti Kildu,
Karl Einarsson Dunganon, Jóhannes Kjarval, gamlar
koparstungur, erlendar og íslenskar, og ótal margt ann-
að forvitnilegt.
Gefum reglulega ú.t bóksöluskrár um íslenskar og er-
lendar bækur og sendum þær ókeypis til allra sem þess
óska utan Reykjavíkursvæðis.
Vinsamlega hringið, skrifið - eða lítið inn.
BÓKAVARÐAN
HAFNARSTRÆTI 4, SÍMI 29720
*
V
ÞURRKUBLÚÐIN VERÐA
AÐ VERA ÓSKEMMD
og þau þarf aö hreinsa reglulega.
-Slitin þurrkublöð margfalda áhættu
í umferðinni.
yUMFERÐAR
RÁÐ