Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1989, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1989.
Préttir
Bryta Héraðsskólans í Reylganesi sagt upp störfum:
Lagði hendur á nemendur
- segir skólastjórinn en einn nemandinn nefbraut brytann
vnborg Daviösdóttir, DV, faafirfli-
„Það er sannað að brytinn lagði
hendur á nemendur oftar en einu
sinni og eitt sinn fékk hann nemanda
tU að berja frá sér og þegar sá nem-
andi losnaði nefbraut hann kokkinn.
Brytinn er sá eini sem hefur lagt
hendur á nemendur og þegar þannig
er tel ég ekki hægt að hafa slíkt
starfsfólk,“ sagði Skarphéðinn Ólafs-
son, skólastjóri í Reykjanesi, í sam-
tali við DV, aðspurður um ástæður
fyrir uppsögn brytans þar.
Skólahaldi í Héraðsskólanum í
Reykjanesi lauk í byrjun maí og í
sömu viku var þeim tveimur starfs-
mönnum sagt upp störfum sem einir
hugðust halda áfram þar næsta vet-
ur, auk ráðsmanns sem starfað hefur
við skólaxm í 20 ár. Það eru Heiðar
Guðbrandsson bryti og kona hans
sem hefur starfað í eldhúsi.
„Skólanefnd ákvað að hafna um-
sókn hans um stöðuna og auglýsa
hana lausa. Um aðrar uppsagnir er
það að segja að það er skylda mín
samkvæmt lögum að segja upp laus-
ráðnu fólki fyrir 1. júní ef ég vil
breyta ráðningarsamningi þess.
Varðandi það að hér sé engum aga
haldið uppi þá er það aðeins mat
brytans og ég er ekki sammála því.
í skólahúsinu er alis staðar agi nema
í mötuneytinu og sífellt rifrildi hefur
verið milli brytans og nemenda.
Nemendur alls skólans lögðu undir-
skriftarhsta fyrir skólanefndarfund
og sögðust ekki koma næsta vetur
ef þessi maður yrði áfram.
Það er ekki rétt að ráðuneytismenn
hafi komið hingað gagngert til að
kynna sér agamál. Þeir komu til að
ganga frá eldri málum sem komu upp
hér fyrir tveimur árum og kynntu
sér auðvitað skólastarfið um leið.
Mér hafa engar athugasemdir borist
vegna agavandamála,“ sagði Skarp-
héðinn.
Héraðsskólinn í Reykjanesi við ísafjarðardjúp. Enn á ný hefur þar komið
til árekstra og deilna.
Brottrekni brytinn:
Bömin sljóma
skólanum
V2boig Davíösdótlir, DV, fsafirðfc
Að sögn Heiðars Guðbrandssonar,
sem sagt hefur verið sagt upp sem
bryta við Héraðsskólann í Reykja-
nesi, eru engar ástæður fyrir upp-
sögninni gefiiar í uppsagnarbréfinu.
„Því er haldið fram af nemendum
að ég hafi valdið meiðslum á einum
þeirra,“ sagði hann. „Ég neita að
hafa valdið þessum meiðslum og hef
grun um að þau hafi komið til áður
en til þess kom að ég íjarlægði nem-
andarm úr borðsalnum dag einn í
vor. Skólastjórinn gerði engar at-
hugasemdir við það mál þá. Ég fór
fram á rannsókn á tildrögum þess
atburðar og afleiðingum en því var
hafnaö.
Ástandið hér í vetur hefur verið
þannig að hér er engum aga haldið
uppi og raunin er sú að bömin
stjóma skólanum. Þetta hef ég bent
skólastjóra á en án árangurs. Hér
komu menn frá ráðuneytinu til að
kanna ástandið og skólastjóramun
bárust athugasemdir frá ráðherra
eftir það en ekkert breyttist.
Þá hefur skólasljóri einnig haft
ýmislegt við það að athuga að ég tók
við bókhaldi mötuneytisins að beiðni
skólanefndar fljótlega eftir að ég hóf
störf. Þetta er alveg lýsandi fyrir
samskipti skólastjórans við starfs-
fólk hér en engu að síður hyggst ég
sækja um aftur í haust," sagði Heið-
ar.
Vandamal vegna
erfiðra nemenda
- segir formaöur skólanefndar
Vilborg Daviðsdóttir DV, ísafirðfc
„Þama er eingöngu um að ræða
samstarfserfiðleika milli skólastjóra
og bryta og hvort þeir em afleiðing
þess að skólastjóm em ekki nógu
röggsamleg ætla ég ekki að dæma
um á þessu stigi,“ sagði Jón Guðjóns-
son, formaður skólanefndar Héraðs-
skólans í Reykjanesi, þegar DV
spurði hann um þær deilur sem þar
hafa komið upp.
„Ástæðan fyrir því að skólanefnd
tók þá afstöðu að auglýsa stöðu bryt-
ans lausa vom lýsingar nemenda á
því að hann hefði lagt hönd á þá. Þaö
em hins vegar málsem nefiidin get-
ur ekki kannaö. Á þessum undir-
skriftarlista em nöfn bama niður í
10 ára aldur og ég held að viss vangá
felist í því að blanda þeim í svona
mál þar sem þau em áhrifagjamari
en þau sem eldri em.
Varðandi það hvort agavandamál
séu til staðar þá er ekki hægt að
ganga fram lyá því að skólinn hefur
þurft að taka við nemendum utan
héraðs, og þá nemendur sem hafa átt
við félagsleg vandamál að stríða, til
þess að fá nægan nemendafjölda.
Margir þessara nemenda hafa reynst
alveg þokkalegir en aðrir lakari og
þeir hafa stundum ráðið ferðinni. Af
þessum ástæöum þarf að vera styrk
stjóm á skólanum og það hafa verið
vandamál við skólann vegna þessa
sem hafa verið og em til athuganar.
Ég vil taka fram að rekstur mötu-
neytis hefur verið mjög hagstæður
fæðiskaupendum eftir að þessi bryti
tók við og kostnaður þar er a.m.k.
fjóröungi lægri en í sambærilegum
skólum og engar kvartanir hafa
komið yfir því að fæðið hafi ekki
verið viðhlítandi. Brytinn hefur fiúl-
an rétt á að sækja um á ný.“
Skólastjórinn fékk
áminningu frá ráðhenra
- fyrir aö leysa skólanefiidina fi:á störfiim
Wborg Davíðsdóttir, DV, feafiröfc
Skólastjóri Héraðsskólans í
Reykjanesi hefur átt 1 samstaríserf-
iðleikmn við fleiri en brytann. í vetur
sendi hann ráðuneyti menntamála
bréf þar sem hann kvaðst hafa leyst
skólanefndina frá störfum og gerði
tillögu um nýja nefnd. í svarbréfi
ráðuneytisins dags. 17. mars, undir-
rituðu af ráðherra, er skólastjóra
veitt áminning fyrir þessi vinnu-
brögð „sem samræmast ekki starfi
yðar“, eins og það er orðað.
Einnig er tekið fram að ráðuneytið
hafi enn ekki hafnað ósk meirihluta
skólanefndar um að skólastjóra verði
vikið úr starfi. í bréfi ráðherra segir
að einstakir skólanefndarmenn hafi
lýst því yfir að þeir séu reiðubúnir
að segja af sér geri skipaður skóla-
stjóri slíkt hið sama. Skólastjórinn
er minntur á að honum beri sam-
kvæmt lögum að vinna í.fullu sam-
ráði við nefndina sem er lögformlega
skipuð og fundið að því að hann hafi
ekki sent nefndinni afrit af bréf hans
til ráðuneytisins um viðhald skóla-
mannvirkja í Reykjanesi. Tekið er
fram að ráðuneytið hafi beðið nefnd-
ina um umsögn um þetta mál og
muni taka ákvörðun um fram-
kvæmdir þegar hún liggur fyrir.
Með bréfi þessu sendir ráðuneytið
ljósrit af bréfi Ríkisendurskoðunar
þar sem fram kemur að skólastjóri
hefur ekki fyllilega gengið frá reikn-
ingsskilum vegna reksturs mötu-
neytis skólans skólárin 1985-6 og
1986-7 og er hann minntur á bréf sem
sent var þessu máli viðvíkjandi 15.
desember sl. og farið fram á að hann
ljúki því uppgjöri án tafar.
Svo ótrúlegt sem það nú er slapp ökumaður sendibílsins án alvarlegra meiðsla. Bíllinn valt eftir að ökumaðurinn
nauðhemlaði og bíllinn lenti við það út á gras sem er við vegkantinn. ökumaðurinn hemlaði vegna þess að ekið var
í veg fyrir bílinn. DV-mynd S
Hallinn tíu milljarðar
Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir að
viðskiptahallinn á þessu ári verði
10,1 núlljarður króna.
Þetta er um 600 mfiljónum meiri
halli en í fyrra. Hallinn í ár er hins
vegar lægra hlutfaU af landsfram-
leiðslu en í fyrra. Miðað við slíkan
samanburð er hallinn i ár í raun 800
mUljón krónum lægri.
Þjóðhagsstofnun spáir því að vöru-
skiptajöfnuðurinn verði hagstæður 1
ár um 500 núlljónir en hann var
óhagstæður um 560 mUljónir í fyrra.
Þá er spáð að þjónustujöfnuðurinn
verði jákvæður um 1.300 mUljónir en
hann var neikvæður um 582 mUljón-
ir í fyrra.
Ástæðan fyrir því að þessi hag-
stæða sveifla skUar sér ekki í lægri
viöskiptahaUa er einkum sú aö spáð
er að viðskiptakjör gagnvart útlönd-
um muni versna um 1,1 prósent og
eins er vaxtajöfnuðurinn ákaflega
óhagstæður. Þá gerir mikUl innflutn-
ingur á flugvélum og skipum haUann
meiri. Búist er við að flugvélar og
skip verði flutt inn fyrir um 7 mUlj-
arða.
Viðskiptahalhnn undanfarin þrjú
ár jafngUdir um 32 mUljörðum króna
á núvirði.
-gse