Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1989, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1989, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1989. 5 Fréttir Deilur um skammdræg kjamorkuvopn innan Nato: Kemur íslenska sendinefndin til með að styðja báða aðila? Innan Atlantshafsbandalagsins er nú tekist á um afstöðu aðildar- ríkja til skammdrægra kjarna- flauga í V-Evrópu. Hefur bandalag- ið nánast klofnað í tvennt í afstöðu sinni en nú er reynt af miklum krafti að leysa málið áður en leið- togafundur Na.to hefst í Brussel í næstu viku. Áður en fundurinn hefst verður lausn nánast að hggja á borðinu því ekki er til siðs í Nato aö láta kjósa um hlutina og láta þannig einfaldan meirihluta aðild- arþjóða taka stefnumarkandi af- stöðu. Deilan snýst um tvennt: Annars vegar afstöðuna til endurnýjunar skammdrægra vopna en hins vegar um afstöðuna til þess hvort viðræð- ur um skammdrægar kjamaflaug- ar eiga að hefjast strax. Að sögn Steingríms Hermanns- sonar forsætisráðherra styðja ís- lensk stjórnvöld þá kröfu v-þýskra stjórnvalda að uppsetningu flaug- anna verði frestað. Sagði Stein- grímur að enginn ágreiningur væri um það innan ríkisstjórnarinnar. í raun er ekki veriö að deila um þetta atriði lengur því Nato hefur náð samkomulagi um að fresta til 1992 uppsetningu flauganna. Deilan snýst núna fyrst og fremst um það hvort fallist verður á kröfu V-Þjóðveija um að viðræður um skammdrægu flaugarnar hefjist strax. Hvað segir forsætisráðherra um það? „Okkar tillaga hefur verið sú að viðræður verði undirbúnar á öllu sviðinu, meðal annars á þessu sviði og meðal annars í sambandi við sjóinn. En við viðurkennum það að ekki er óeðlilegt að taka þetta í ákveðinni röð. Ég fyrir mitt leyti tel nauðsynlegt að ná næst jafn- vægi í hefbundnum vígbúnaði. Við höfum orðað það svo að menn verði að vera undir það búnir að hefja næstu skref.“ Þarna tekur forsætisráðherra undir þau sjónarmið Bandaríkja- manna, Breta og reyndar Frakka einnig að áður en rætt verði um fækkun skammdrægra kjarna- flauga verði að útkljá deilur um hefbundin vopn. Steingrímur sagðist reyndar hafa forvitnast um hug manna til af- vopnunar á hafinu sem hann sagð- ist telja einna brýnast fyrir okkur íslendinga. Hefði hann þá komist að því að það væri mikil andstaða gegn því að hefja slíkar viðræður núna innan Nato. Sagðist Stein- Þá verður einnig spennandi að ar verða því svo virðist sem okkur um megin við borðið í þeim tveim sjá hvorum megin borös íslending- hafl tekist að skipa okkur sitt hvor- deilumálum sem fyrir liggja. Sigurður M. Jónsson grímur hafa fengið þau svör að slíkt yrði að koma seinna í þessari afvopnunarröð. Fréttaljós Engilsaxnesk afstaða hjá Jóni Baldvini Afstaða Jóns Baldvins Hanni- balssonar utanríkisráðherra, eins og hún birtist í skýrslu hans til Alþingis, bendir til þess að hann sé hlynntari sjónarmiöum Banda- ríkjamanna í afstöðu sinni til skammdrægu vopnanna. Þar segir Jón Baldvin: „Ég hef htið svo á að Atlantshafsbandalag- ið ætti ekki að útiloka möguleikann á að endurnýja birgöir skamm- drægra kjamavopna við núverandi aðstæður." Þegar hann kynnti skýrslu sína fyrir Alþingi áréttaði hann skoðun sína á yfirburðum Sovétmanna á sviði skammdrægra kjarnavopna í ræðu sinni: „Yflrburðir Sovét- manna á sviði hefb.undinna vopna í Evrópu era gífurlegir. Á sviði skammdrægra kjamavopna eru yfirburðir þeirra jafnvel margfalt meiri.“ Innan ríkisstjómarinnar hefur þetta mál ekki verið rætt mikið enda málefnum Nato haldið eins íjarri Alþýðubandalaginu og unnt er. Að sögn forsætisráðherra hefur það helst verið í viðræðum for- manna stjórnarflokkanna sem þetta mál hefur verið rætt. Það hefur þó einkum verið í viö- ræðum utanríkisráðherra og for- sætisráðherra sem afstaða íslands hefur veriö mótuð. Að sögn Hjörleifs Guttormsson- ar, fulltrúa Alþýðubandalagsins í utanríkismálanefnd Alþingis, er þeirra afstaða skýr. Þeir styðja ein- dregið þau öfl í V-Þýskalandi sem vilja fækka skammdrægum kjarnavopnum og taka þannig á þeim eins og öðrum þáttum af- vopnunar. Forsætisráðherra og utanríkis- ráðherra munu halda til Brussel á sunnudaginn en leiðtogafundurinn hefst á mánudag. Þar eð engin sam- eiginleg yfirlýsing hefur fengið samþykki fyrirfram verður niöur- stöðu fundarins beðið með eftir- væntingu. ÞRJAR □NFALDAR LQÐIR HVERT Á LAND SEM ER Við einföldum þér leitina að hagkvæmasta ferðamöguleikanum. í hinni nýju sumaráætlun okkar eru allar ferðir merktar með rauðum, grænum og bláum lit. Blár litur þýðir ferð á fullu fargjaldi, grænn þýðir 20% afsláttur og rauður 40% afsláttur. Sumaráætlunin 1989 fæst á öllum söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. Sumaráætlun Flugleiða - lykillinn að ferðum þínum um landið. FLUGLEIDIR INNANLANDSFLUG: R co á s < w 5 < NISSAN VANETTE VÆNLEGUR KOSTUR Nissan Vanette er vænlegur kostur fyrir sendibílstjóra og verktaka. Ef borið er saman verðið á Nissan Vanette og öðrum sambæri- legum þá hefur Nissan Vanette vinninginn eins og á öðrum sviðum. Okkar verð: 840.000.- Greiðslukjör sniðin að þínum þörfum. Sýningarbíll á staðnum. 3ja ára ábyrgð. Sýningarsalurinn v/Sævarhöfða opinn frá kl. 14-17 laugardag og sunnudag Ingvar Helgason hf Sævarhöfða 2, sími 67-4000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.