Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1989, Qupperneq 17
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1989.
17
Nýjar plötur
Roxette dúettiiin
Með eitt og annað að láni
Roxette dúettinum hefur oftar en
einu sinni verið líkt við hljómsveit-
ina ABBA. Báðar sveitimar eru frá
Svíþjóð pg báðar flytja þær dægur-
tónlist. Ég heyri satt að segja ekki
mikið fleira í fljótu bragði sem rétt-
lætir samanburð. Til dæmis hefur
Roxette strax slegið í gegn í Banda-
ríkjunum. ABBA vegnaði þar alla tíð
fremur illa. Aðalvígstöðvar Agnethu,
Björns, Benny6 og Fridu voru Evr-
ópa, Ástralía og Japan. Þar af leið-
andi er kannski ekkert undarlegt að
þeim Per Gessle og Marie Fredriks-
son sé spáð bjartri framtíð. Bara ef
þau væm nú dáhtið frumlegri en á
nýju plötunni sinni, Look Sharp.
Meira að segja nafnið hefur verið
notað. Fyrsta plata Joe Jacksons hét
einnig Look Sharp. Aðallag plötunn-
ar, The Look, byrjar með sama gít-
arfrasa og Last Train to Clarksville
með Monkees og víða í laginu skín
Children of the Revolution eftir Marc
Bolan í gegn. Annie Lennox, söng-
kona Eurythmics, virðist vera í tals-
verðu uppáhaldi hjá Marie Fredriks-
son. Að minnsta kosti hefur hún
fengið allnokkuð af stíl hinnar ensku
stéttarsystur sinnar lánað. Og þann-
ig mætti lengi telja. Nú skal það fús-
lega viðurkennt að margt af því lista-
poppi, sem hellist yfir okkur, er langt
frá því að vera frumlegt. Og allmörg
lög plötunnar Look Sharp virðast
einmitt hafa verið sett saman til að
ná árangri á þeim vígstöðvum. Þau
eru svo sem hvorki betri né verri en
annað listapopp. The Look hefur þeg-
ar náð toppnum í Bandaríkjunum og
nokkur önnur virðast líkleg til að
geta klifrað upp á við. Mér finnst
bara svo skratti ódýrt að fá lánaða
lagabút frá einum, útsetningu frá
öðrum og söngstíl frá hinum þriðja
og hrista svo allt saman í eitt áferðar-
fallegt hanastél. En slikt skilar
eflaust dágóðum summum inn á
bankareikninginn. Ef metnaðurinn
nær ekki lengra þá er ósköp fátt við
slíkuaðgera.
ÁT.
Eric Clapton - Homeboy:
Gítaræfingar
Eric Clapton hefur nú bæst við í
þann hóp poppstjama sem hafa farið
að semja tónlist fyrir kvikmynd og
tekst honum bara nokkuð vel upp.
Hann heldur sig á þeim slóðum þar
sem hann þekkir sig best, blúsinum.
Kvikmyndin sem Clapton hefur sam-
ið tónlist við er Homeboy sem fjallar
um hnefaleikara, sigra og töp, jafnt
í hringnum sem í lífinu. Það er Mic-
key Rourke er leikur hnefaleikar-
ann.
Það má skipta tónhstinni á plöt-
unni í tvennt. Lög sem Clapton hefur
samið og leikur hann þau nánast
einn og svo eldri lög sem fylgja með,
lög sem flest eru blúsættuð.
Þegar hlustað er á frumsmíðar
Claptons þá má segja að hann feti í
fótspor margra annarra og byggir
aha tónhstina í kringum fá stef og
spinnur svo út frá þeim. Þetta gerir
hann snihdarlega enda enginn við-
vaningur á gítar.
Þó verður að segjast eins og er að
þegar eingöngu er hlustað á tónhst-
ina þá verður gitarleikur hans nokk-
uð langdreginn. Tilbreytingin kemur
aðeins fram þegar hann spinnur út
frá gamla slagaranum Dixie, sem fær
þarna nýja yfirhalningu á sama hátt
og Jimi Hendrix gerði við bandaríska
þjóðsönginn forðum daga.
Eins og búast má við eru bestu stef-
in þar sem blúsinn nýtur sín. Þar er
Clapton á heimaslóðum og kann
greinilega best við sig.
Eldri lög plötunnar og þau einu
sem eru sungin, eru betri eftir því
sem þau eru eldri og er þar sérlega
skemmtileg útgáfa af þekktum blús
Pretty baby í flutningi J.B. Hutto &
The New Hawks.
Það hafa margar poppstjörnur
reynt fyrir sér að semja fyrir kvik-
myndir en fáar hafa náð árangri.
Mark Knopfler er kannski sá sem
mesta viðurkenningu hefur fengið
og þykir gott efni í kvikmyndatón-
skáld.
Nafn hans kemur upp í huga
manns vegna þess að sumt af því sem
Clapton er að' gera minnir á kvik-
myndatónhst Knopflers. Sérstaklega
er það titillag kvikmyndarinnar
Homeboy sem minnir á stef eftir
KnofQer úr kvikmyndinni Cal, stef
sem mikið hefur verið leikið.
Homeboy er nauðsynleg plata í
plötusafn aðdáenda Claptons þótt
tónhstin sé alls ekki það besta sem
Clapton hefur gert. Að hiýða á Clap-
ton á Homeboy er eins og að fá að
vera þess aðnjótandi að hlusta á
hannæfasig. -HK
SVISSNESKA. HEILSUPANNAN
BETHPÍNNA
Leíðbeíníngar og uppskriftír
á íslensku.
Pantið núna. Kr.
2.990,-
Póstverslunin Príma
Bankastræti, sími 21556.
Pöntunarsími 62-35-35. Símapantanir alla daga
vikunnar kl. 9.00-22.00.
osa/áslA
Keflavík - Amsterdam - NEW YORK
Auðvelt og þœgllegt með Arnarflugi og KLM ■ Kynntu þér
sérfargjöldin okkar