Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989. 3 Fréttir > > Giröingin í Bláa lóninu ekki á réttum stað: Litfla stúlkan, sem brenndi sta, var komin á hættusvæði „Stiilkan haíði aldrei komiö hingað áður og flaut á vindsæng* inni án þess að gæta að hvert hún var komin. Hún flaut alveg að girð- ingunni. Fór hún þá niður í vatnið til að komast aftur til samferða- fólks síns en lenti þá í heitum vatnsstraum og brenndi sig. Fólk, sem er niðri í vatninu, finnur strax ef vatnið fer að hitna eitthvaö og nær að snúa við. Þeir sem fljóta á vindsæng flnna hins vegar ekki hve heitt vatnið er orðið og eíga á hættu að fara of langt út á lónið. Annars er ítrekað við alla baögesti að fara varlega, sérstaklega við þá sem eru á vindsæng,“ sagði ína Björk, baðvörður við Bláa lónið, í samtali við DV. DV sagði í gær frá 10 ára stúlku sem brenndi sig ilia í Bláa lóninu á laugardag. Samkvæmt frásögn raóðurinnar var hún nærri girð- ingunni og því eðlilega ekki á hættusvæði samkvæmt hennar skilningi. Girðingin, sem er í lón- inu, var sett upp af hitaveitunni á sínum tíma. Að sögn baðvarðar er hún ekki alveg á réttum stað þar sem heitir straumar ná af og til út fyrir hana. Því á að setja upp flot- . girðingu um &-8 metra frá girðing- unni svo fólk á vindsængum fljóti ekki óafvitandi inn á hættusvæöi. ,JÞað stendur tii að merkja allt miklu betur til að koma í veg fyrir að atburðir eins og þessi geti átt sér stað. Hér hefur fólk í tugþúsunda- tali baðað sig án óhappa síðan baö- húsið var sett upp. Með endurbætt- um merkingum viljum við tryggja að svo verði áfram.“ -hlh Rannsókn stóra kókaínmálsins: Þriðji maðurinn í gæsluvarðhald á laugardaginn - gæsluvarðhald annars manns framlengt Einn maður, til viöbótar við þá tvo sem fyrir voru, var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á stóra kókaínmálinu á laugardag. Manninum var gert að sitja í gæslu- varðhaldi í tíu daga. Úrskurðurinn var kærður til Hæstaréttar. Sama dag var kveðinn upp úrskurður um framlengingu gæsluvarðhalds yfir öðrum af þeim tveimur sem verið > hafa í gæsluvarðhaldi vegna rann- sóknar málsins. Rannsóknin hefur reynst mjög ) umfangsmikil og erfið. Vitað er að kókaínið var flutt til landsins frá Bandaríkjunum á síðasta ári. Lög- reglan hefur lagt hald á 430 grömm af kókaíni. Niðurstöður úr rann- sóknum um hreinleika efnisins hggja ekki fyrir. Tabð er að efnið sé mjög sterkt. Oftast er þaö þynnt niður fyr- ir sölu og í mörgum tilfellum er það aðeins um 20 prósent kókaín þegar það hefur farið um hendur allra milhliða. Verðmæti efnisins skiptir milljónum ef ekki tugum mihjóna króna. Rannsóknin hefur reynst afar erfið og meðal annars hefur lögreglan yflrheyrt fjölda manns og leitað víða. Meðal annars var gerð mikil húsleit í Hjónagöröum Háskóla íslands við Suðurgötu. -sme Lúðan var engin smásmíði og gnæfir yfir Jón Olgeirsson verkstjóra hjá Korra. DV-mynd Jóhannes. Risalúðu landað á Húsavík Jóhannes Sigurjónsson, DV, Húsavik: Geiri Péturs ÞH-344, einn Húsavík- urbáta, hefur aflað vel þaö sem af er þessu ári. Á dögunum fékk hann mesta afla sinn til þessa, 90 tonn, og er það í fyrsta sinn sem báturinn fyllir sig frá því hann var keyptur til Húsavíkur sumarið 1987 af útgerðar- fyrirtækinu Korra hf. Fullfermi af þorski vakti þó kannski ekki eins mikla athygh og annar afli sem Geiri Péturs kom með að landi fyrir nokkru og var þó að- eins um einn fisk að ræða. Geiri land- aði sem sé heljarmikilli lúðu sem reyndist 125 kíló aö þyngd og var 2,20 metrar á lengd. Þetta er með stærstu lúðum sem landað hefur verið á Húsavík. Helgarskákmót: Jón L. og Þröstur efstir Þeir Jón L. Árnason og Þröstur Þórhallsson urðu efstir og jafnir á helgarskákmóti sem fór fram nú um helgina í Vestmannaeyjum. Þeir fengu 6 vinninga en hálfum vinningi neðar voru þeir Áskell Örn Kárason og Karl Þorsteinsson. Sturla Péturs- son fékk öldungaverðlaunin og auk \ þess fegurðarverðlaun. Þá lauk með þessu móti einni fimm móta keppni. Flest heildarstig hlaut Jón L. Næsta helgarskákmót verður áDjúpavogi23.th25.júní. -SMJ W Þetta eru tölurnar sem upp komu 27. maí. Heildarvinningsupphæð var kr. 4.636.212,-. 1. vinningur var kr. 2.134.062,-. 1 var með fimm tölur réttar. Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 370.725,- og skiptist á 3 vinn- ingshafa. Fær hver þeirra kr. 123.575,- Fjórar tölur réttar, kr. 639.431,-, skiptast á 101 vinningshafa, kr. 6.331,- á mann. Þrjár tölur réttar, kr. 1.491.994,-, skiptast á 3002 vinningshafa, kr. 497 á mann. Sölustaðir eru opnir frá mánudegi til laugardags og er lokað 15 mínútum fyrir útdrátt. Keflavík ■ Amsferdam ■ HONG KONG Auðvelt og þœgllegt með Arnarflugi og KLM ■ Kostar minna en þú heldur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.