Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989.
5
dv Viðtalið
að við-
fangsefni
Nafn: Jóhanna K. Eyjólfsdóttir
Aidur: 35 ára
Staða: Formaður íslands-
deildar Amnesty Internationai
„Maöurimi, umhverfi hans og
samfélag er mitt áhugamál í víð-
asta skilningj,“ segir Jóhanna K.
Eyjólfsdóttir. sem nýlcga tók vift
formennsku í tslandsdeild Am-
nesty Intemational. íslandsdeild-
in er byggö upp af sjálfboöaliöum
og aðeins með einn launaðan
starfsmaim í hálfu starfi. Hér á
landi eru nálægt níu hundruð fé-
lagar i samtökunum. Jóhanna er
mannfræðingur að mennt og
starfar sem stundakennari í
mannfræði viö Háskóia íslands
og kennir einnig félagsfræði viö
MS. Hún segist fyrst hafa kynnst
Amnesty samtökunum í Þýska-
landi þar sera hún stundaði nám.
Gegn mannréttinda-
brotum
„Amnesty berst fyrir hag þeirra
sem fangelsaðir eru vegna skoð-
ana sinna. iitarháttar, kynferðis,
uppruna, tungumáls eða trúar-
bragða og hafa hvorki beitt né
hvatt til ofbeldis. Með aðgeröum,
svo sem bréfasendingum, þrýst-
um við á yfirvöld í þeim tilgangi
að fá fanga lausa eða að þeir fái
réttláta dómsmeðferð. Samtökin
snúast einniggegn dauðarefsingu
og pyntingum eða annarri
ómannúðlegri meðferð, sama
hvaða fangar eiga hlut að máli.
Jóhanna er fædd og uppalin í
Reykjavík. Að loknu stúdents-
prófi frá MH starfaði hún í
nokkra mánuði í bókaverslun en
hóf síðan nám viö Háskólann í
Freiburg og lauk magisterprófi í
mannfræði árið 1983.
Mannfræði
og llstir
„Mannfræðin skarar margar
fræðigreinar og er bæöi skemmti-
leg og forvitnileg. Ég les mikið
af fagbókum en einnig skáldverk
sem hafa manninn að viðfangs-
eftii. Sumir rilhöfundar vinna
ekki ólíkt mannfræðingum, það
er aö segja þeir reyna að lýsa
veruleika fólks og gera öörum
þann veruleika skiijanlegan. Áð-
ur en ég hóf kennslu starfáði ég
tvö ár að bókaútgáfu og fékk f því
starfi vissa útrás fyrir bók-
menntaþörf mína.“
Jóhanna segist einnig hafa
ánægju af tónlist, leiklist og kvik-
myndum, enda túlki þessar list-
greinar, sem ogaðrar, manninn.
„Á námsárum mínum í Freiburg
starfaði ég í litlu leikhúsi sem
sýndi aJIs konar leikverk en raik-
ið eftir yngri þarlenda höfunda.
Leikhúsið var það lítið að óg seldi
miöa, sælgæti og vaktaði mynd-
listargalleri á efri hæðinni. Viim-
an f leikhúsinu var afskaplega
skemmtileg og spennandi en nú
nægir mér aö vera áhoifandi"
Jóhanna er gift Áskeli Mássyni
tónskáldi og eiga þau eina dóttur,
Margréti, 4 ára.
-JJ
Fréttir
Flugnager sækir í
Búsetablokkina
„Húsið er þakið htlum flugum upp
eftir öllu í góðu veðri. Þær hafast
ekki við nema í skjóh en ef rignir
fara þær inn undir svalimar. Þær
virðast aðeins sækja í þessa blokk
meðan önnur hús hér í nágrenninu
fá að vera í friði. Þetta er háifógeð-
fellt og menn vita ekki hver ósköpin
ganga á,“ sagði einn íbúi í Búseta-
blokkinni í Grafarvogi við DV.
DV hafði samband við Erling Ólafs-
son, skordýrafræðing hjá Náttúru-
ffæðistofnun. Hann sagði aö fólk
hefði hringt í sig úr Grafarvoginum
út af þessu og virtist sem fleiri bygg-
ingar en Búsetablokkin hefðu orðið
fyrir barðinu á flugnagerinu. Hann
sagði að fólk þyrfti að koma með
sýni til sín svo hann gæti greint
hvaða kvikindi þetta væru. Sagði
hann að þarna gæti jafnvel verið mý
á ferð eða þangflugur en vildi ekki
tjá sig sérstaklega þar sem hann
hafði ekki séð sýni. Því gat hann
heldur ekki getið sér til um hvort
hinn skærguli litur blokkarinnar
drægi flugumar að sér. Flugurnar
munu vera alveg meinlausar.
Hjá Búseta var manni kunnugt um
flugumar og gat sér helst til um að
Uturinn drægi flugumar að sér.
-hlh
Ljósmyndari DV heimsótti Búsetablokkina á föstudag og náði mynd af henni þar sem hún var þakin flugum. Ver-
ið getur að prentunin valdi því að þær sjáist ekki greinilega. DV-mynd Brynjar Gauti
Látum ekki aðra ráða afkomu okkar
- segir Hörður Guðmundsson hjá Emi
án nokkurrar opinberrar fyrir- Það sem er fleygur í samstarfi fé- fyrir þrjú félög, eða jafnvel fjögur, á
greiðslu og okkar Mf er engu minna laganna er tilkoma Amarflugs inn á sama svæðinu. Það væri miklu skyn-
virði fyrir Vestfirðinga en líf Flug- svæðið. Við gætum unnið betur sam- samlegra að hér væri eitt félag að
leiða. an en nú er gert en það er ekki pláss vestan og eitt úr Reykjavík.“
Siguiján J. Sigurðssan, DV, ísafirði
„Samstarf er fyrir hendi, það má
kannski bæta það, en við getum ekki
látið flugfélag í Reykjavík ráða því
hvað við vbinum og þar með afkomu
okkar. Ég er þó hlynntur því að taka
þátt í viðræðum því samvinna er
nauðsynleg," sagði Hörður Guð-
mundsson hjá Flugfélaginu Emi í
samtali viö DV þegar hann var
spurður álits á hugmyndinni um við-
ræðuhóp sem myndi koma á að nýju
samstarfi Ernis og Flugleiða.
„Við flytjum farþega, póst og vörur
fyrir Flugleiöir frá Isafirði og áfram
til staða á Vestfjörðum og sendum
Flugleiðum reikninga fyrir þannig
að samstarfið er til staðar,“ sagði
Hörður.
„Farþegar Flugleiða hafa getað
ferðast með okkur með sömu farseðl-
um og öfugt en í vetur hættu Flug-
leiðir fyrirvaralaust að taka okkar
miða.
Flugleiðir eiga ekki hlut í okkar
flugfélagi og þeim er illa við að eiga
samstarf við okkur á jafnréttis-
gnmdvelh. Ef þeir fá að stjórna og
ráða tekjum okkar eins og þeir gerðu
þegar við vorum með afgreiðsluna
hjá okkur eru þeir ánægðir. Það sam-
starf hætti um leið og Otterinn kom
í maí í fyrra og þá fengum við að
vita að við værum óæskilegir. Við
erum að berjast fyrir lífi okkar hér,
höldum uppi einu þróttmesta sjúkra-
flugi á landinu og samgöngum við
dreifðar byggðir hér vestra algerlega
Ávöxtunarmálið
hjá saksóknara
Rannsóknarlögreglan hefur sent tii
ríkissaksóknara niðurstöður vegna
rannsóknar á hugsanlegum refsi-
lagabrotum fyrrum forráðamanna
verðbréfafyrirtækisins Ávöxtunar.
Ríkissaksóknari mun síðan taka
ákvörðun um framhald málsins - það
er hvort ástæða verður til ákæru á
hendur forráðamönnunum fyrrver-
andieðaekki. -sme
UTSALA
ÚTSALA
ÚTSALA
SELJUM T.D.:
Ledurjakka á Herra frá kr. ÍO.OOO,-
Sída ledurjakka á konur frá kr. 15.000,-
Rúskinns blazerjakka frá kr. 11.500,-
OG MARGT FLEIRA
ALLT NÝLEGAR VÖRUR
VERSLANIRNAR
LEÐURLÍNAN,
LAUGAVEGI 17,
SÍMI 23560
LEÐUR H/F,
SNORRABRAUT 27,
SÍMI 13833