Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989. 11 Utlönd Stjórnin í Argentínu lýsti í gær yfir þrjátíu daga neyðarástandi í kjölfar, óeirða sem brotist hafa út í sambandi við stuld á matvælum víðs vegar um landið. Einn maður hefur beðið bana og að minnsta kosti fjöru- tíu og einn slasast í óeirðunum. Að sögn lögreglunnar hafa átta hundruð þjófar verið handteknir vegna þjófnaðar, flestir í Buenos Air- es og næst stærstu borg Argentínu, Rosario, sem er í um 300 kílómetra íjarlægð norðvestur af höfuðborg- inni. Óeirðirnar eiga rætur sínar að rekja til efnahagsástandsins í landinu sem hefur aldrei verið verra on nú. Verðbólgan hefur farið úr böndunum, kaupmátturinn er ein- ungis einn þriðji af því sem hann var í febrúar og skortur er á nauðsynja- vörum og lýfjum. Talsmaður forsætisráðuneytisins sagði að haldinn yrði neyðarfundur í þinginu í dag þar sem rætt yrði um umfang neyðarástandsins. Áður hef- ur slíkt ástand heimilað yfirvöldum að draga til baka ýmisleg réttindi borgaranna, umsvifalausar hand- tökur og fjöldasamkomur hafa verið bannaðar. Síðast var lýst yfir neyð- arástandi í Argentínu árið 1985 eftir fjölda sprengjutilræða sem öfga- mönnum til hægri var kennt um. Yfirlýsingin um neyðarástand var gefin út tæplega sólarhring eftir að Alfonsin forseti tilkynnti neyðarað- gerðir til þess að vinna bug á efna- hagskreppunni. Boðaði hann hærri skatta og niðurskurð í útgjöldum rík- isins. í gær kom til mestra átaka í Rosario þegar lögreglumenn og her- menn beittu táragasi og skutu Lögreglumenn á verði fyrir utan stórmarkað í Rosario í Argentínu í gær eftir að hundruð íbúa fátækrahverfa fóru í ránsferðir um verslanir borgarinn- ar. Símamynd Reuter gúmmíkúlum til að dreifa óeirða- og einn maður var skotinn til bana. seggjum. Ellefu manns hlutu skotsár Reuter Neyðarástand í Araentínu Erfiðleikar framundan í kanadískum fiskveiðimálum Ágúst Hjörtur, DV, Ottawa: Ef koma á í veg fyrir að Labrador- þorskstofninn undan austurströnd Kanada dragist enn frekar saman verður að minnka veiöar úr stofnin- um niður í 190 þúsund tonn á næsta ári. Þetta kemur fram í bráða- birgðaáliti sérstakrar vísindanefnd- ar sem Tom Siddon, sjávarútvegs- málaráðherra Kanada, skipaði fyrr á þessu ári. Nefndinni var gert að endurskoða stofnstærðarmælingar og veiðiáætl- anir fiskifræðinga og skýra þá minnkun á Labradorstofninum sem orðið hefur síðustu tvö árin. Tillögur nefndarinnar um kvóta fyrir næsta ár eru í samræmi við áætlanir fiskifræðinga. Ef farið verð- ur eftir þeim þýðir það að þorskafl- inn verður 76 þúsund tonnum minni á næsta ári en árið 1988 þegar veidd voru 266 þúsund tonn úr Labrador- stofninum. Miðað við aflabrögð á austurströndinni samsvarar sá nið- urskurður rekstri um fimmtán tog- ara og nokkurra fiskiskipa. Niður- skurður á þorskkvóta á þessu ári hefur þegar leitt til lokunar á einu frystihúsi og tímabundinna rekstrar- stöðvana í fimmtán frystihúsum tii viðbótar. Það má því gera ráð fyrir að nokkur þúsund manns missi vinnuna á næsta ári en atvinnuleysi er í dag með því mesta sem gerist í Kanada. í áliti nefndarinnar kemur einnig fram að ef Kanada ætlar að halda fast við þau yfirlýstu markmið að veiöa innan við 20 prósent af heildar- stofninum á hverju ári þyrfti enn róttækari niðurskurð á veiðum. En í ljósi mikilvægis þorskveiðanna fyr- ir Nýfundnalendinga og íbúa Nova Scotia mælir nefndin gegn slíku. Ástæður fyrir rýrnun á Labrador- stofninum telur nefndin vera marg- þættar. Mælingar og gagnasöfnun hafa batnað á undanfórnum árum en þrátt fyrir það telur nefndin að vitneskja fiskifræðinga sé ekki ná- kvæmari en svo að reikna megi með að minnsta kosti 20 prósent fráviki á stofnstærðar mælingum. Ásókn í Labradorstofninn hefur einnig verið meiri en ráðlegt er talið. Á það við bæði um Kanadamenn sjálfa og veiðar Evrópubandalags- þjóða utan 200 mílna landhelgi Kanada. Sérstaklega er Kanada- mönnum þyrnir í augum veiðar Spánverja og Portúgala sem þeir saka um að veiða langt umfram þann kvóta sem Evrópubandalagið úthlut- ar. Samkvæmt fréttum frá Brussel notaði Brian Mulroney, forsætisráð- herra Kanada, tækifærið á leiðtoga- fundi Nato nú í gær og ræddi þessi mál við forsætisráðherra Spánar. í fréttatilkynningu frá sjávarútvegs- ráðherra Kanada kemur fram að sambandsstjórnin mun á næstu mánuðum þrýsta á Evrópubandalag- ið eins og kostur er með það fyrir augum að draga úr ofveiði banda- lagsþjóöanna á kanadískum fiski- stofnum. Kanadamenn hafa miklar áhyggjur af þróun mála á austurströndinni. Sambandsstjórnin í Ottawa hefur skipað sérstaka ráöherranefnd sem gera á tillögur um aðstoð við þau svæði sem minnkandi þorskafli kem- ur hvað harðast niður á. Hversu mikil sú aðstoð verður er þó óvíst, sérstaklega í ljósi þess mikla niður- skurðar á ríkisútgjöldum sem boðað- ur er á næsta ári. Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, og Eliahu Ben-Elissar, formaður utanríkismála- og varnarmálanefndar þingsins, ræddust við i gær. Eftir fund þeirra gagnrýndi Shamir árásir ísraelskra landnema á araba og ísraelska hermenn. Símamynd Reuter Shamir gagnrýnir árásir landnema Israelskir landnemar gerðu árás á arabískt þorp á Vesturbakkanum í gær. Skutu þeir til bana tánings- stúlku, særðu tvo Palestínumenn og kveiktu'í húsi og bílum. Árásin var gerð samtímis því sem Yitzhak Shamir, forsætisráöherra ísraels, sem venjulega styður landnema, gagnrýndi harðlega auknar árásir þeirra á araba og ísraelska hermenn. Kvað Shamir landnema ekki hafa völd til að taka lögin í eigrn hendur. Landnemar, sem gagnrýna yfir- völd fyrir að veita þeim ekki nægjan- lega vernd, hafa gert árásir á arabísk þorp svo til á hverjum degi eða kvöldi undanfamar tvær vikur. Hafa þeir skotið á íbúana, skemmt eigur þeirra og varpað bensínsprengjum. Stúlkan sem beið bana í gær var sextán ára. Tuttugu og fimm ára gamall arabi var einnig skotinn til bana á Vesturbakkanum í gær er hann ók um á dráttarvél. Samkvæmt fyrstu fregnum heryfirvalda áttu hermenn ekki hlut að máli. Tuttugu og sjö ísraelskir friðar- sinnar, sem handteknir voru í síð- ustu viku fyrir að mótmæla gegn eyðileggingu ísraelskra hermanna á arabískum heimilum, hafa nú gagn- rýnt yfirvöld fyrir mismunun með því að sýna landnemum linkind. Reuter SEÐLABANW ISLANDS HVERVANN? 344.454 kr. Vinningsröðin 27. maí: 121-111-X11-122 12 réttir = 241.199 kr. 7 voru með 12 rétta - og fær hver í sinn hlut kr. 34.457,- 11 réttir = 103.255 kr. 193 voru með 11 rétta - og fær hver í sinn hlut kr. 535- Tilhamingju! ekki bara heppni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.