Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989. Spumingin Lesendur Finnst þér að það eigi að leyfa frjálsan innflutning á kartöflum? Theódór Friðjónsson bifvélavirki: Já, alveg hiklaust þó að þær íslensku séu svo sem ágætar. Þorbjörg Stefánsdóttir, stöðvarstjóri hjá Pósti og síma: Nei, ekki á meðan við framleiðum nóg af þeim hér á landi. Brynjólfur Eiríksson ellilifeyrisþegi: Ekki á meðan það er nóg framboö af íslenskum kartöflum. Helena Bergmann nemi: Að sjálf- sögöu, ef það gæti orðið neytendum til hagsbóta. Þorgerður Gunnarsdóttir tölvunar- fræðingur: Já, alveg hiklaust, þær íslensku eru orðnar svo lélegar. Einar S. Bjarnason tæknimaður: Ég bý á Akureyri og þær kartöflur sem eru á markaðnum þar eru mjög léleg- ar, auk þess sem þær eru aíltof dýr- ar. Því finnst mér að það eigi aö leyfa innflutning á kartöflum. Ferðaskrifstofuvandi og fleira fár: Spáin rætist furðufljótt Anna Guðný Aradóttir, (ramkvæmdastjóri Útsýnar. „Hún reyndist spámönn- um í viðskiptaheiminum sannspárri," segir hér m.a. Jóhann Guðmundsson skrifar: Hún ætlar að rætast furðufljótt spáin sem framkvæmdastjóri Útsýn- ar lét frá sér fara í sjónvarpsviðtali fyrir nokkru um að á næstunni yrðu aðeins starfræktar þijár ferðaskrif- stofur. Um þetta var nokkuð íjallað af spámönnum í viöskiptaheiminum. Þeir sögðu sem svo að þetta gæti nú svo sem alveg staðist en ekki á þessu ári og varla því næsta - það gæti komið að þessu síðar! Ekki reyndust þeir miklir spámenn. Hin unga kona, framkvæmdastjóri Út- sýnar, varð sannspárri. Og það svo um munar. Viðskiptafræðingamir okkar, sem margir hverjir hafa átt ríkan þátt í því að setja hér allt í hnút, em nefnilega ekki framsýnir. í fyrsta lagi sjá þeir oft ekki nema það sem þeir vilja sjá og i öðru lagi er þeim einfaldlega ekki gefiö (a.m.k. ekki öllum) mikið fjármálavit. Slíkt vit er meðfætt en lærist ekki, hversu lengi sem setið er á skólabekk. Nú er það opinbert að hjá ferða- skrifstofum stefnir í aflt að 25% sam- drátt í utanlandsferðum vegna minni kaupmáttar almennings. Það hlýtur því eitthvað að láta undan, ekki síst einhverjar af hinum rúmlega 30 skrifstofum sem hafa haft lifibrauð af að selja mjög takmörkuðum hópi (jafnvel þótt aflir landsmenn, 250 þús. að tölu, væm inni í myndinni) ferðir til útlanda. Margt af því fólki, sem á annað borð ætlar til útlanda nú, kaupir ein- faldlega miða hjá flugfélögunum beint eða skipafélögunum og fer svo á eigin vegum afganginn af ferðinni eftir að komið er á leiðarenda með farkostinum, enda mun ódýrari ferðamáti. Auðvitað verða hér ferða- skrifstofur áfram en bara eitthvað í líkingu við þaö sem spá Útsýnar- framkvæmdastjórans sagði. Og það er fleira sem er aö rætast þessa dagana. Þjóðhagsstofnun spáir miklum afTóllum í lífskjörum á þessu ári og líka þeim næstu. Það verður því ekki á vísan að róa í þeim lifsstíl sem hér hefur viðgengist síðustu ára- tugi og enginn hefur viljað sjá af. En kröfurnar em að baki í biU. Nú er það alvaran og aðlögunin sem tekur við hér. Þeir sem ekki eru tilbúnir að kyngja þeim staðreyndum munu fá smjörþeflnn svo að um munar, því miður. „Þegnskylduvinna, eina varanlega átakið í landgræðslu," segir hér m.a. Átak í landgræðslu: Dreifir happdrættismiðum Siguijón skrifar: Það ætlar ekki af okkur lands- mönnum að ganga í happdrættismál- um. Nú em flest samtök sem ein- hvers mega sín í mannahaldi og skrifstofuaðstöðu í óðaönn að senda út happdrættismiða. Áhugamanna- félög um þörf og óþörf verkefni eru að loka umslögunum og frímerkja til að senda landsmönnum í von um að ná inn peningum til starfsemi sinnar. Nú síöast mátti lesa það í blöðum aö „Átak í landgræöslu" mundi á næstunni senda öllum íslendingum á aldrinum 16 til 75 ára happdrættis- miða sem ættu aö vera til styrktar Landgræðslu rikisins. Fjöldi vinn- inga væm í boði, eins og venjulega, og heildarverðmæti um 25 milljónir króna. Til að öllu sé nú til skila haldið eru fengnir svokallaðir „bakhjarlar" en það eru ýmis fyrirtæki eða stjóm- endur þeirra. Ekki fannst mér nú þetta vera nein gulltrygging, ef dæma má eftir upptalningunni í frétt sem ég las í Morgunblaðinu sl. mið- vikudag. En sennilega eiga hinir glaðlegu heiðursmenn sem á mynd- inni birtust og fylgdi með greininni að lokka íslendinga á aldrinum frá 16 ára til 75 ára til að leggja sitt af mörkum. - Eða hvað? Ég verð nú að segja fyrir mitt leyti, að mér finnst miklu vænlegra til ár- angurs landgræðslu að fara þá leið sem forusta Sjálfstæðisflokksins fór í tilefni afmælis flokksins - aö taka hreinlega flugvél á leigu og dreifa áburöi yfir örfoka og gróðurvana svæði heldur en dreifa happdrættis- miðum tfl landsmanna. En kannski er rennt jafnblint í sjóinn með árang- ur af hvorutveggja! En hvers vegna má aldrei ræða þá lausn sem kannski er eina varanlega átakið, aö skylda ungt fólk til þegn- skylduvinnu við uppgræðslu lands síns? Er þegnskylduvinna okkur eitt- hvaö erfiðari biti í hálsi en öðram þjóðum? Dettur mönnum aldrei ann- að í hug en HAPPDRÆTTI þegar eitt- hvaö á að framkvæma? „Body Design“ vöruman Fegrunarvörur - ekki lyf Óskar Jónsson framkvæmdastjóri skrifar: Af gefnu tileftii, vegna rang- færslna umsjónarmanns neytenda- dálksins Lífstíls í DV þann 18. maí sl um vöru okkar og þjónustu, vil ég taka fram eftirfarandi: „Verð á „Allt Body-Design“ kúr- um er núna kr. 2.690 fyrir þriggja vikna meðferð og framhaldsmeð- ferð en slik meöferð er tekin á 5-8 daga fresti. Rétt er að taka fram að „Body-Design" er skráð, toflaö og innflutt sem fegrunarvara ein- göngu en ekki lyf. Áhugasamir geta ef þeir vfija lesiö aflt um rannsókn- ir og verkun „Body-Design“-kerfis- ins 1 bókinni .JResearch into the functioning of the Body-Design sy- stem" en hún er fáanleg hjá Belís heilsuvörum hf. Aöstandendur Belís heilsuvara hf. kjósa að kalla þá sem versla við fyrirtækiö viðskiptavini og frábið- ur sér niðrandi nafngiftir blaða- mannsins. Hin virku efni í „Body Design" eru unnin úr jurtum og grösum með lækningamætti. Fjaflað hefur verið um lækningamátt umraeddra jurta í tímaritum og skrám. í slík- um tímaritum íjallar íjöldi virtra visindamanna um lækningamátt þeirra jurta sem eru hin virku efni í „Body Design“ sem er náttúruleg og lífræn aðferö til staöbundinnar grenningar." Klofningur Borgaraflokks Fyrrv. borgaraflokksmaður skrifar: Nú hafa borgaraflokksmenn tapaö tveimur þingmönnum á Alþingi og það góðum mönnum eins og Inga Birni Albertssyni og Kolbrúnu Jóns- dóttur, varaþingmanni á Reykjanesi. Minni eftirsjá tel ég í Hreggviði Jóns- syni. Með þessa tvo fyrrnefndu efnilegu og ungu stjómmálamenn kemst þetta nýja afl langt, þótt ég óttist að þessi tvö fari í framboð fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í næstu kosningum. Litla möguleika tel ég fyrir Júlíus Sólnes í Borgaraflokki aö bjóða sig fram í Reykjaneskjördæmi eftir að hafa misst Kolbrúnu, varaþingmann sinn, yfir til Inga Bjöms. Júlíus verð- ur að átta sig á því að hann komst inn á þing fyrir vinsældir og vorkunn við Albert Guðmundsson. Ég tel einnig að Kolbrún eigi mikið fylgi á Reykjanesi og þá í Hafnarfirði þar sem hún er vel kynnt kona vegna atvinnu sinnar. Ég óska hinum nýja flokki, Frjálslyndum hægri mönn- um, alls hins besta og vona að hann bjóöi fram í eigin nafni en ekki und- ir forystu Sjálfstæðisflokksins eins og sumir spá. Það sem koma skal Gunnar Sverrisson skrifar: Þaö er að verða algengt um og uppúr helgi að dagblöðin séu meö lýsingar á ófögrum atburðum hvaö hegðan sumra unglinga snertir. í Morgunblaðinu 21. maí sl. birtist frásögn um að vagnstjóri einn hafi lent f átökum viö fjóra unglinga uppi í Breiðholti og enginn í vagn- inum hafi þorað aö hreyfa legg né hð bílstjóranum til hjálpar vegna hræðslu viö þessa unglinga. Nokkra eftir að ég hafði lesiö þetta kom mér f hug, þar sem þetta er nú ekki svo óalgengt, aö ekki þyrfti mikið til aö koma unglingum undir áhrifum vímuefna úr jafn- vægl Ég held að unga kynslóðin sem vex upp í dag sé varla miklu verri allsgáö en aðrir sem vora á þessum aldri hér áöur fyrr. Þaö sera mér finnst að þyrfti til að koma í þessum eftaum er aö skylda vagnstjóra hjá SVR til að sæRja sérstök námskeið þar sem kennd væra nauðsynleg atriöi í sálarfræöi og rétt viðbrögð gagn- vart aöstæðum sem upp kunna að koma, jafnvel til að kæfa þær í fæðingu. Einnig mætti taka fyrir ýmislegt annað sem þessu tilheyr- ir. Ég er þess fullviss að ef viðkom- andi vagnstjórar heföu meiri þekk- ingu á málum sem geta skapast við neftadar aðstæður gætu þeir fýfl- ilega ráöiö við þær og jafnvel haft áhrif til góðs á viðkomandi ung- menni. Það er oftast of seint að byrgja branninn þegar bamiö er dottið ofan í. Þaöer hins vegar augljóslega eitt- hvað að sem lagfæra þarf og það sem fyrst þegar hluti ungmenna tekur upp þá háttu sem hér era til umræðu. Um það þyrfti að fjafla ítarlega af færara mönnum, þjóð- félaginu til hags og farsældar. Vinstra liöiö 1 Borgaraflokknum: Rógur á Albert Jóna skrifar: Það er undarlegt hvað þetta vinstra lið í Borgaraflokknum er iðið við að koma sér í fjölmiöla til að rægja manninn sem kom því á þing. - Svo aö segja í allan vetur hefur þetta fólk ekki gert annað en að rægja Albert Guðmundsson og notað til þess bæði hljóðvarp og blöð. Einnig ræöst það á Inga Björn og Hreggvið Jónsson, með villandi og beinlínis ósönnum upplýsingum um tildrög þess að þeir yfirgáfu Borg- araflokkinn. Það var ekki skrýtiö þótt þeir yfirgæfu apparat sem veit aldrei hvort það er á bandi ríkis- stjórnarinnar eða ekki. Formaðurinn sagði á fundi hjá Borgaraflokknum í Þórskaffi um daginn að hann væri orðinn „þreytt- ur á sífelldum rógi“. Hann hlýtur að eiga við róginn frá sínum eigin liðsmönnum því ég hefi ekki séð í fjölmiðlum eitt aukatekið orð frá Inga Bimi né Hreggviöi um sína eig- in félaga. Ég vona að orð Aðalheiöar Bjarn- freösdóttur á þessum sama fundi eigi eftir að sannast, aö „rógburðurinn hitti þá sem honum beita“. Ég vil benda þeim Inga Birni og Hreggviði á að það hefur veriö eftir því tekið aö þeir hafa ekki svaraö þessu skítkasti nema á hógværan hátt. Ég mun styðja Fijálslynda hægriflokkinn, vegna þess að þar era menn sem greinilega vita hvað þeir vilja og era samkvæmir sjálfum sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.