Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Qupperneq 27
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989. 27 Fólk í fréttum Gylfi Þ. Gíslason í helgarblaöi DV um síðustu helgi var greint frá því aö Gylfi Þ. Gísla- son, fyrrv. ráðherra og prófessor og formaður Norræna félagsins á ís- landi, hefði verið sæmdur heiðurs- peningi Jacobs Lettersted áriö 1989 fyrir stjórnmála- og menningar- starfsemi sína á Norðurlöndum. Gylfi fæddist í Reykjavík 7.2.1917. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1936, stundaði nám í rekstrarhag- fræði við Johann Wolfgang Goethe Universitát í Frankfurt am Main 1930-37 og 1938-39 og við Hoch- schule fúr Welthandel í Vín 1937-38. Gylfi lauk kandidatsprófi í rekstrar- hagfræði frá háskólanum í Frank- furt am Main 1939 og doktorsprófi frá sama skóla 1954. Hann dvaldi við nám við háskóla í Danmörku, Sviss og Bretlandi 1946, í Bandaríkjunum 1952 og í Þýskalandi 1954. Gylfi starfaði við Landsbanka ís- lands 1939-40, var stmidakennari við Viðskiptaháskóla íslands 1939-40 og dósent þar 1940-41. Hann var stundakennari við MR1939-46 og 1947-56. Þá var hann skipaður dósent í viðskiptafræði við HÍ1941 og prófessor 1946. Hann fékk leyfi frá störfum 1956 og lausn 1966. Gylfi var þingmaöur Reykvíkinga 1946-49 og 1959-78 en landskjörinn þingmaður 1949-59. Hann var for- seti sameinaðs þings 1974. Gylíi var mennta- og iðnaðarráðherra 1956-58, mennta-, iðnaöar og við- skiptaráðherra 1958-59 og mennta- og viðskiptaráöherra 1959-71. Hann var skipaður prófessor í rekstrar- hagfræði og tengdum greinum í við- skiptadeild HÍ1972 og gegndi þeirri stöðu til ársloka 1987 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Hann sat í miðstjórn Alþýðu- flokksins frá 1942, var ritari flokks- ins 1946-66, varaformaður 1966-68 og formaður 1968-74. Hann var for- maður þingfiokks Alþýðuflokksins 1968-78. Meðal mikils fjölda annarra trún- aðarstarfa, sem Gylfi hefur gegnt, má nefna að hann sat í viðskipta- ráði 1943-46, var skipaður í stjórnar- skrámefnd 1947, var formaður vísi- tölunefndar 1948, formaður Hag- fræðingafélags islands 1951-59, í bankamálanefnd 1951-54, í banka- ráði Framkvæmdabanka íslands 1953-66, ístjóm Framkvæmdasjóðs 1966-71, í Þjóðleikhúsráði frá 1954 til ársloka 87, var fulltrúi íslands í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 1956-65 og í stjóm Alþjóðabankans 1965-71. í Norðurlandaráði 1971-78, formaður menningarmálanefndar Norðurlandaráðs 1971-78, í fjárlaga- nefnd Norðurlandaráðs 1971-78 og formaður 1976-78 og í upplýsinga- nefnd Norðurlandaráðs 1971-78. Hann var formaður Rannsóknar- ráðs, hefur setið í stjórn Almenna bókafélagsins frá 1961, var kjörinn í stjórn Álafoss 1986, sat í stjómar- skrárnefnd frá 1978 og var kosinn félagi í Vísindafélagi Islendinga 1959. Hann er heiöursfélagi PEN á ís- landi og dr. oecon. h.c. við HÍ1971. Gylfi hefur samið fjölda kennslu- bóka í sínum kennslugreinum en á ámnum 1986-87 kom út í þremur bindum þekktasta kennslurit hans, Rekstrarhagfræði. Þá er væntanleg eftir hann nú í haust bók um Ðski- hagfræði. Þá hggja eftir Gylfa ó- grynni ritgerða, greina og álitsgerða um hagfræði, stjómmál, sögu, menningarmál og reyndar hin ólík- ustuefni. Gylfi er í hópi ástsælustu núlif- andi tónskálda íslenskra og sönglög hans hafa komið út á fjómm hljóm- plötum: Við sundin blá, sungin af Róbert Arnfinnssyni, Rvík, 1974; Lestin bmnar, sungin af Róbert Arnfinnssyni, Rvík 1978; Ég leitaði bláma blóma, ýmsir söngvarar, Rvík 1981, og Ljósið loftin fylhr, ýmsir söngvarar, Rvík 1988. Gylfi kvæntist 30.12.1939 Guðrúnu Vilmundardóttur, húsmóður og stúdent frá MR, f. 7.12.1918, dóttur Vilmundar Jónssonar landlæknis og konu hans, Kristínar Ólafsdóttur læknis. Gylfi og Guðrún eignuðust þrjá syni: Þorsteinn, f. 12.8.1942, dósent í heimspeki viö HÍ; Vilmundur, f. 7.8.1948, d. 19.6.1983, sagnfræðing- ur, alþingimaður og ráðhema, áttí Valgerði Bjarnadóttur viðskipta- fræðing, ogÞorvaldur, f. 18.7.1951, prófessor í þjóðhagfræði við HÍ, kvæntur Önnu Bjarnadóttur kenn- ara. Bróðir Gylfa var Vilhjálmur út- varpsstjóri, faðir Þórs hæstaréttar- dómara og Auðar prests. Foreldrar Gylfa voru Þorsteinn Gíslason, skáld og ritstjóri í Reykja- vík, f. 26.1.1867, d. 20.10.1938, Og kona hans, Þórunn Pálsdóttir, hús- móðirþar, f. 26.10.1877, d. 14.1.1966. Þorsteinn var sonur Gísla, skip- stjóra í Stærri-Árskógi, Jónassonar og Ingunnar Stefánsdóttur, um- boðsmanns á Snartarstöðum, Jóns- sonar, bróður Rannveigar, langömmu Jónasar Jónssonar frá Hriílu og Kristjáns, afa Kristjáns Karlssonar skálds. Móðir Ingunnar var Þórunn Sigurðardóttir, um- boðsmanns á Eyjólfsstööum, Guð- mundssonar, bróður Guðlaugar, langömmu Halldórs, föður Ragnars, fyrrv. forstjóra ÍSAL. Móðir Þór- unnar var Ingunn Vigfúsdóttir, systir Margrétar, langömmu Stef- áns, föður Ólafs Walters, skrifstofu- Gylfi Þ. Gíslason. stjóra í dómsmálaráðuneytinu. Þórunn var dóttir Páls, trésmiðs í Rvík, Halldórssonar. Móðir Þórunn- ar var Ingibjörg Þorvaldsdóttir, b. í Framnesi í Skagafirði, Jónssonar, b. í Framnesi, Jónssonar, b. í Fram- nesi, Jónssonar, trítils, Jónssonar, bróður Jóns Bjömssonar, langafa Björns, langafa Péturs, föður Páls á Höhustöðum. Móðir Jóns eldra í Framnesi var Guörún, dóttir Mál- fríðar, langömmu Péturs, afa Helga Hálfdanarsonar skálds. Móðir Þor- valds var Rannveig Þorvaldsdóttir, systir Þuríðar, langömmu Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir Ingibjargar var Ingibjörg, systir Rannveigar, langömmu Eyjólfs Konráðs Jóns- sonar. Ingibjörg var dóttir Guð- mundar, b. á Mælifehsá, Jónssonar og konu hans, Ingibjargar Björns- dóttur, prests í Bólstaöarhlíð, Jóns- sonar. Afmæli Daníel Daníel Kristinn Daníelsson sjúkrahði, th heimihs að Borgar- holtsbraut 72, Kópavogi, er sjötugur ídag. Daníel fæddist á ísafirði og ólst þar upp í foreldrahúsum til níu ára aldurs en flutti þá á Rauöasand þar sem hann var í fjögur ár hjá móður- bróður sínum. Hann flutti síðan aft- ur th ísafjarðar og fór fljótlega að vinna þar í fiski. Um tvítugt fór Daníel th sjós og var þijú sumur og tvær vetravertíðir vélstjóri á bátum. Hann flutti til Reykjavíkur 1941 og starfaði þar í byggingavinnu hjá Almenna byggingafélaginu th 1944 en hóf þá skósmíöanám sem hann Kristinn Daníelsson stundaði á ísafirði en sveinsprófi lauk hann 1948. Daniel starfaði síð- an í fjögur ár við skósmíðar, fyrst á verkstæði hjá öðram í eitt ár en rak síðan eigið skósmíðaverkstæði í Kleppsholtinu í Reykjavík. Daníel fór síðan á vertíð í Grinda- vík og starfaði eftir það hjá Samein- uðum verktökum á Keflavíkurflug- velh í nokkur ár. Þá starfaði Daníel í Blikksmiöju JPP við Ægisgötuna í Reykjavík en hætti þar störfum af hehsufarsástæðum og hóf störf sem gæslumaöur á Kópavogshælinu. Hann fór síðan í sjúkraliðanám 1974, lauk því 1975 og hefur starfað sem sjúkraliði síðan. Kona Daníels er Margrét Þor- steinsdóttir, f. 21.3.1922, dóttir Þor- steins Þórðarsonar, verkamanns á Sauðárkróki, og Ástríðar Stefáns- dóttur ljósmóður en þau era bæði látin. Dóttir Margrétar er Ásta Her- mannsdóttir, f. 3.5.1944, sjúkraliði í Hátúni í Reykjavík. Kjördóttir Daní- els og Margrétar er Anna Björk Daníelsdóttir, f. 1.3.1955, sjúkraliði á Landspítalanum í Reykjavík, gift Hafsteini Þóröarsyni, starfsmanni hjá Glerborg, og eiga þau þrjú börn, Pálínu Margréti, Ásu Marin og DaníelÞór. Daníel átti sjö systkini og eru þrjú þeirra á lífi. Þau era Bjarnheiður Steinunn, búsett í Reykjavík, gift Einari Indriðasyni sjómanni; Magn- ús, verkamaður á ísafirði, og Guð- mundur Þór, bakari hjá Mjólkur- samsölunni í Reykjavík, kvæntur Guörúnu Eghsdóttur húsmóður. Foreldrar Daníels vora Daníel Jónsson, skósmiður á ísafiröi, og kona hans, Ólína Jónsdóttir hús- móðir. Foreldrar Ólínu voru Jón Runólfs- son, b. á Skógum í Barðastrandar- sýslu, og Guðbjörg Ólafsdóttir. Daníel verður ekki heima á af- mæhsdaginn. Daniel Kristinn Daníelsson. Til hamingju með Aðalheiður Lydía Guðmundsdóttir og Bjöm Kristján Ásgeirsson Hjónin Bjöm Kristján Ásgeirsson skipstjóri og Aðalheiður Lydía Guð- mundsdóttir. Hjónin Björn Kristján Asgeirsson skipstjóri og Aðalheiður Lydía Guðmundsdóttir, húsmóðir og verkakona, th heimihs aö Sæbóh 42, Grundarfirði, eiga þrjátíu ára brúðkaupsafmæli í dag. Björn Kristján fæddist í Grandar- firði 5.5.1926 og ólst þar upp í for- eldrahúsum. Hann byrjaði ungur th sjós og lauk skipstjórnarprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavik fyrir fjörutíu árum en hann hefur stundað sjómennsku síðan, ein- göngu á fiskibátum. Aðalheiður Lydía fæddist í Reykjavík 24.5.1932 og ólst þar upp. Hún hefur ásamt húsmæðra- störfunum starfað við fiskvinnslu. Börn Aðalheiðar og Björns eru Guömundur Ásgeir, f. 21.2.1960, skipstjóri í Grundarfirði, í sambúð með Maríu Steinþórsdóttur og eiga þau tvö börn; Andrea Þórunn, f. 10.8.1962, húsmóðirá Akranesi, gift Sveini Gunnarssyni, starfs- manni við Grundartangaverk- smiðjuna, og eiga þau tvö börn; Sveinn Jóhann, f. 21.5.1964, útgerð- armaður í Danmörku, í sambúð með Mörnu Kaspersen og eiga þau tvö börn; Björn Heiðar, f. 16.11. 1967, sjómaður í Grundarfirði, í sambúð með Kristínu Gunnars- dóttur. Foreldrar Björns eru bæði látin en þau voru Ásgeir Kristjánsson, sjómaður og verkamaður í Grund- arfirði, og kona hans, Þórdís Þor- leifsdóttir húsmóðir. Foreldrar Aðalheiðar: Guðmund- ur Bjarnason, málmsteypumeistari í Reykjavík, og kona hans, Sigurrós Rósinkarsdóttir húsmóðir, en hún erlátin. afmælið 30. maí 75 ára Sigurður Vajdimarsson, Neðstaleiti 4, Reykjavík. 60 ára Vilhjálmur H, Pálssou, Höfðabrekku 14, Húsavík. 40 ára Maggi Guöjón Ingólfsson, Vallholti 9, Akranesi. Hhdur Sigurðardóttir, Hjahaseli 7, Reykjavík. Sigrún Erlendsdóttir, Sævangi 14, Hafnarfirði. Tilmæli til afmælisbama Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að ber- ast í síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.