Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Qupperneq 32
F R ÉTT/XS KOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert'fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 30. MAl 1989. Ný útvarpsstöð 1 Reykjavík: Fer í loftið næstu daga ■y*- Ný útvarpsstöð tekur til starfa ein- hvern allra næstu daga. Útvarpsstöð- in hefur fengið nafnið „Á rás“. Út- varpsstjóri verður Konráð Olavsson en hann er vel kunnur handknatt- leiksmaður og leikur með KR og landsliðinu. Margir kunnir útvarps- menn koma til með að starfa á nýju stöðinni. Einn þeirra er Steingrímur Ólafsson sem áður var fréttamaður á Bylgjunni. Útvarpsstöðin verður til húsa í kjallara Fjölbrautaskólans við Ár- múla. Tækin, sem stöðin verður með, voru áður notuð af útvarpsstöðinni „Útrás". Til útsendinganna verður notaður 1000 vatta sendir - en það mun vera -» svipuð stærð og Bylgjan og Stjarnan ráða yfir. Heimildir DV herma að stefnt sé að þvi að útvarpsstöðin hefji útsend- ingar 1. júni - þaö er á fimmtudag. -sme Fannst ofurölvi í björgunarbáti Ungur maður fannst ofurölvi í gúmbjörgunarbáti á Viðeyjarsundi í ^ gærmorgun. Um miðnætti í nótt hafði ekki tekist að yfirheyra hann sökum þess hversu ölvaður hann var. Maðurinn mun hafa stolið trillu úr Reykjavíkurhöfn snemma í gær- morgun og sökkt henni og komist með einhverjum hætti í björgunar- bátinn. Það voru hafnsögumenn sem sáu björgunarbátinn á reki skammt frá Viðey og fóru til móts við hann. Þeg- ar að var komið lá maðurinn meðvit- undarlaus í botni bátsins. í fyrstu var talið að hann væri látinn. En þegar verið var aö hífa bátinn upp á bryggju rumskaði maðurinn. A manninum fundust tvö greiðslu- kort og lyklakippa. Talið er að mað- urinn hafi stolið kortunum og kipp- '■’* unni ásamt veski með 20 þúsund krónum í peningum á gistihúsinu Royal-Inn við Laugaveg kvöldið áð- ur. Maðurinn hafði gist þar nóttina áður en hann hélt á sjóinn. -sme Dollarinn I 57,39 krónur Dollarinn var í morgun kominn í 57,39 krónur og hefur söluverð hans aldrei verið jafnhátt. Seðlabankinn hefur nýtt sér 1 prósent af heimild- inni um 2,25 prósent gengisfellingu. Það gerði hann á föstudaginn þegar gengiö var fellt um 0,57 prósent en dollarinn féll þá örlítið í verði á al- þjóðagjaldeyrismörkuðum. Áður hiafði gengið verið látið síga í smá- skömmtum. -JGH LOKI Þeir virðast á-rásargjarnir, þessir útvarpsmenn! Kona kærir fyrrverandi eiginmann: a fjoaur skuldabref - samtals að upphæð 1.250 þúsund krónur íslensk kona, sem er búsett í Húsaleiguféð átti að nota til þess urra bankastofnana. Þær eru um DV er hann farinn af landinu Hollandi, hefur kært fyrrverandi aö greiða afborganir af lánum sem Sparisjóður vélstjóra, Búnaðar- sökum þess hversu skuldugur eiginmann sinn til Rannsóknarlög- eru á íbúð konunnar. Þar sem eig- bankinn, Landsbankinn og Útvegs- hann er. Maðurinn rak til skamms reglu ríkisins. Konan telur að mað- inmaðurinn fyrrverandi sinnti því bankinn. Konan hetur nú fengið tíma sölutum í Breiðholti. íslensk urinn hafi falsað nafii hennar á ekki, án þess að konan yrði þess afrit af skuldabréfunum send til getspá, eða Lottó öðru nafiii, varð fjögur skuldabréf- samtals að upp- vör, hafa safnast upp talsverð van- Hollands og segir hún að undir- aötakalottókassaúrsöluturninum hæð 1,250 þúsund krónur. Einnig skil - svo mikil að flest bendir til skriftirnar séu alis ekki sínar þó vegna þess aö brögö voru að því kærirkonanmanninnfýriraðhafa þess að konan verði aö selja íbúð- hennar nafn hafi verið skrifaö á að maðurinn stæði ekki í skilum dregiö sér húsaleigufé sem honum ina til að greiða þau vanskil sem þau. meö það fé sem fékkst fyrir sölu á haföi verið falið að innheirata fyrir safnast hafa upp. Fyrryerandi maður konunnar er lottómiöum. hana. Skuldabréfm eru gefm út tii fjög- ekki á íslandi. Sarakvæmt heimild- -sme Þegar saman koma strákar, pollar af hvaða stærð sem er og eitthvað sem talist getur „fleki“ er áframhaldið sjálf- gefið. Þeir Hlynur og Sveinbjörn í Grafarvogi vissu enda mæta vel hvað við átti. Hvort úr varð meiri háttar leiðang- ur er ekki gott að segja. Hins vegar er rétt að brýna fyrir öllum hressum strákum - og auðvitað stelpum líka - að fara að öllu með hæfilegri gát. Sérstaklega við sjóinn, í grunnum og öðrum dýpri pollum, sem geta komið á óvart. DV-mynd Brynjar Gauti í gæsluvarðhald vegna brunanna Einn maður, sem búsettur er á Stöðvarfirði, hefur verið úrskuröað- ur í gæsluvarðhald til 12. júní. Mað- urinn er grunaöur um aö vera valdur að brununum sem urðu á Stöðvar- firði á sunnudagsmorgun. Þá brunnu tvö hús á Stöðvarfiröi - saltfiskverkun og vinnuskúr. Flest þykir benda til þess að kveikt hafi verið í báðum húsunum. -sme Reynir Daníel settur skóla- stjóri Öldu- selsskóla Menntamálaráðherra hefur sett Reyni Daníel Gunnarsson yfirkenn- ara í stöðu skólastjóra Ölduselsskóla til eins árs frá og með 1. ágúst 1989. Umsækjendur um stöðu þessa voru þrír og voru þeir allir taldir hæfir til að gegna stöðunni. Meirihluti Fræðsluráðs Reykjavíkur lagði til að Velgerður Selma Guðnadóttir ýrði ráðin skólastjóri. Valgerður hefur svipaða menntun og Reynir Daníel, en nokkru meiri starfsreynslu við skólastjórn. í tilkynningu menntamálaráð- herra um setningu Reynis Daníels í skólastjórastöðuna er bent á að full- trúar kennara í Fræðsluráði hafi stutt Reyni Daníel. Auk þess hafi fræðslustjórinn í Reykjavík lagt ein- dregið til að Reynir Daníel fengi embættið, stjórn Foreldrafélags Öld- uselsskóla hefði lýst stuðningi viö hann og verulegur meirihluti kenn- ara við skólann einnig. í tilkynningu menntamálaráð- herra segir ennfremur að á síðasta ári hafi sextíu og sex starfsmenn við skólann óskað eftir því að Reynir Daníel yrði ráðinn skólastjóri hans. Með hliðsjón af þessu hefði menntamálaráðherra gefið út bréf um setningu Reynis Daníels Gunn- arssonar í stöðu skólastjóra Öldu- selsskóla til eins árs. HV Veörið á morgun: Bjart og hlýttá Austurlandi Á morgun verður hæg vestlæg átt á landinu. Skýjað og lítils- háttar súld vestanlands en þurrt og bjart veður austan tíl. Hitinn verður 6-12 stig. BÍLALEIGA v/Flugvallarveg 91-61-44-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.