Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1989, Qupperneq 1
Bama ■
23. TBL. LAUGARDAGUR 10. JUNÍ 1989.
Sundið
Dag nokkum, þegar Stína var að fara ofan í sundlaugina, komu strákar
og hrintu henni ofan í. Það varð mjög mikill buslugangur í lauginni. Stína
fór aftur upp úr og stakk sér. Stjáni var að lemja Gunnlaugu og Stína fékk
nóg af látunum og fór heim.
Stefanía Sigurðardóttir,
Sigtúni 5, 450 Patreksfirði
Björgunin
Anna fór í sund til TálknaQarðar með mömmu sinni. Hún stökk út í djúpu
laugina. En Anna var ósynd og nálgaðist botninn óðum. Anna náði ekki
andanum en mamma hennar sá til hennar. Mamma stökk út í laugina til
þess að bjarga Önnu. Hún kafaði eftir henni og fann hana næstum drukkn-
aða. Mamma var fljót að synda með Önnu að bakkanum. Þá var Anna flutt
á spítala þar sem hún jafnaði sig fljótt. Næst þegar Anna fór í sund stökk
hún út í grunu laugina.
Hrefna Ósk Þórsdóttir, Hjöllum 16, 450 Patreksfirði.
I sundlauginni
Einu sinni fór Kristín í sund með mömmu sinni. Það voru margir krakkar
í sundi með foreldrum sínum. Kristín hitti vinkonu sína sem hét Lilja. Þær
voru bestu vinkopur. Kristín og Lilja lærðu að synda og það fannst þeim
gaman. Þær syntu lengi lengi þar til mamma Kristínar kallaði á hana til
þess að fara upp úr lauginni. Þegar Kristín kom heim sagði hún pabba sín-
um hvað gerst hafði um daginn. Síðan varö klukkan ellefu og Kristín var
orðin svo þreytt að hún lagðist upp í rúm og steinsofnaði.
Sæunn Pálsdóttir, 10 ára,
Hrauntungu 13, 200 Kópavogi.
Sundlaugarvörðurinn
Einu sinni var sundlaugarvörður. Hann hét Guðlaugur. Eitt sinn þegar
hann var í vinnunni kom kona frá Kína með htlu stelpuna sína en Guð-
laugur vildi ekki hleypa þeim inn því þær voru frá Kína. En fyrir utan var
köna sem sá og heyrði allt sem fram fór. Daginn eftir komu tveir svartir
drengir með litlu systur sinni, og ekki vildi Guðlaugur hleypa þeim inn.
Þetta sá konan líka og í þetta skipti fór hún til mannsins sem átti sundlaug-
ina og kvartaði. Eigandinn talaði við Guðlaug og Guðlaugur bætti ráð sitt
og hleypti alltaf erlendu fólki í laugina.
Köttur úti í mýri,
setti upp á sér stýri.
Úti er ævintýri.
Guðbjörg Rannveig Jóhannesdóttir, 9 ára,
Garðabraut 78, 250 Garði.
Jóna fer í sund
Einu sinni ákvað pabbi Jónu að fara með hana í sund. Þau hittu fullt af
krökkmn sem Jóna var með í leikskóla og einnig Siggu fóstru. Þau fóru í
rennibrautiná, bæði stóru og litlu. Þau skemmtu sér mjög vel og keyptu
sér ís á eftir. Svo fóru þau heim og Jóna sagði mömmu sinni alla söguna.
Eva og Sunna Diðriksdætur, 4 ára,
Brekkutúni 6, 200 Kópavogi.
.........................r.................................
I sundi
Lárus og Pétur eru í sundi. Það er gaman. Þeir eru með froskalappir og
kafaragleraugu og sundkút. Tíminn hður og Pétur er orðinn þreyttur.
Hann langar heim. Pétu^ biður Lárus um að koma heim en Lárus vill það
ekki. Þá fara þeir að rífast og skvetta vatni hvor á annan. Fólkið í lauginni
kvartar undan þeim við sundlaugarvörðinn og Pétur og Lárus eru reknir
upp úr lauginni. Lárus er reiður út í Pétur og Pétur er reiður út í Lárus.
En svo fyrirgefa þeir hvor öðrum og verða aftur vinir. Næsta dag fóru
þeir aftur í sund.
Þórdís Lilja Bergs, 10 ára,
Austurbyggð 7, 600 Akureyri.
Sigrún og Sigmar
, Sigrún og Sigmar urðu fjarska glöð þegar þau fengu að fara í sund. En svo
fór Sigmar að stríða Sigrúnu. Hann ætlaði að hrinda henni út í laugina,
Sigrún fór að gráta og datt í laugina. Allir fóru að hlæja. Svo kom pabbi
Sigrúnar og þau fóru heim.
Elfa Birkisdóttir,
Miðdal, 840 Laugardal.
Ása Íitla í sundi
Ása litla var að fara í sund og það voru margir sem voru í sundi vegna
þess að það var svo gott veður. Sumar stelpurnar voru í bíkini. Tveir strák-
ar voru 1 boltaleik ofan í sundlauginni og einn strákur var að kafa. Mamma
var að hjálpa Ásu htlu að læra að synda á maganum. Þegar Ása kom heim
spurði mamma hennar hvort ekki heföi verið gaman í sundi. Ása litla sagði
að það hefði verið ofsalega gaman.
Albína Hulda Pálsdóttir,6 ára,
Þrastamesi 2, 210 Garðabæ.
Skrifið sögu um þessa mynd.
Sagan birtist síðan í 26. tbl.
og getur að sjálfsögðu hreppt
verðlaun.
✓
/
/
/
/
/
/
/
/
/