Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1989, Blaðsíða 2
30
ijfiítfu cvÝí
LAUGÁRDAGUR 10. JÚNÍ 1989.
íjjrm
fí-ha-ha
Brandarar
Einn á Sauðárkróki sendi
þessa presta-brandara:
- Það var kominn nýr prest-
ur í sveitina. Sá nýkomni
tók fljótt eftir því að gömul
kona, sem sat framarlega í
kirkjunni við messur, tárað-
ist undantekningarlaust
undir ræðunni.
Eitt sinn vék prestur að þessu við þá gömlu og spurði
hana hvað það væri í málflutningi sínum sem hrærði
hana svo.
„Það er ekki ræðan, prestur minn, sei, sei, nei. En ég átti
geit í fyrra sem hrapaði til bana hérna í fjöllunum og í
hvert skipti, sem ég heyri í þér, kemur mér geitin í hug.
Prestinum lá mikið á hjarta og ræðan virtist aldrei ætla
að taka enda. Fólk fór að tínast út og að lokum gat kirkju-
vörðurinn ekki á sér setið lengur. Hann reis á fætur,
stakk hausnum gætilega inn í ræðustólinn og sagði lágt
við prestinn: „Hérna eru lyklarnir. Þú læsir svo um leið
og þú ferð.“
Ungi presturinn var að húsvitja. Enginn svaraði þegar
hann hringdi dyrabjöllnnni svo að hann vogaði sér inn
fyrir og stóð í forstofunni. Hann hrópaði varlega: „Halló.“
Undrandi kvenmannsrödd heyrðist frá efri hæðinni: „Ert
þetta þú, engillinn minn?“
„Nei,“ svaraði ungi prsturinn dauflega. „En ég vinn hjá
sama fyrirtæki.“
Tveir menn á tali:
„Ó, konan mín er svo mikill engill.“
„Jæja, er hún það? Konan mín er enn á lífi.“
Hvaða bát á stúlkan? Og drengurinn? Sendið svarið til:
BARNA-DV.
Trúðurinn
Það voru einu sinni fjögur systkini sem hétu Rósa, Anna,
Pétur og Magnús. Mamma þeirra hét Lilja. Hún var góð
við krakkana sína. Einn daginn kom sirkus í bæinn.
Systkinin langaði til að fara og þau fengu það. Daginn
eftir fóru þau öll í sirkus og þar var svo margt að sjá. Þau
sáu ljón, trúða, skemmtikrafta og fleira. Það var svo gam-
an og þau fengu meira að segja að kynnast einum trúði
sem hét Jakob. Svo nokkrum dögum seinna kom Jakob
trúður til þeirra í bílnum sínum. Þetta var skemmtileg
heimsókn.
Jórunn Diana Olsen, 11 ára,
Víkurbraut 1 B, 245 Sandgerði.
MIG DREYMDI...
Elsku BARNA-DV.
Geturðu ráðið þennan draum? Hann byrjaði þannig að ég var að fara í íþróttahúsið og
inni í íþróttahúsinu voru Madonna og Rick Astley. Svo kom einhver stelpa sem hét
Sonja. Við spurðum Madonnu og Rick hvert heimilisfang þeirra væri. Rick sagði okkur
sitt en Madonna sagði að það væri leyndarmál. Við Sonja settumst upp við vegginn og
þá komu þrír hermenn með byssu og skutu alltaf rétt hjá okkur. Við öskruðum mikið,
en þá komu þeir nær okkur og þá voru þeir með myndavélar sem vatn kom út úr. Þegar
við vorum að fara út kom gamall maður og spýtti vatni á mig og fór svo að skellihlæja.
Rick og Madonna voru farin og svo fórum við. Fyrir utan voru eiturlyfjasjúklingar og
reyndu að ná okkur, en þeir náðu bara mér. Sonja hljóp heim til sín og hjálpaði mér
ekkert. Ég hljóp út á flugvöll og sá þar Madonnu og Rick. Madonna sagði mér að ég
mætti koma með mér í heimsreisu og búa svo alltaf hjá henni.
Ein að norðan
Kæri Norðlendingur.
Þessi draumur er ekki boði um nein stórtíðindi. Þaö munu engar breytingar verða á
högum þínum á næstunni en sjálfsagt átt þú eftir að ferðast og skemmta þér vel í þeirri
ferð. Þú verður þar í góðra vina hópi og ferðin mun í alla staði takast vel. í þessum
draumi eru áhrif undirmeðvitundar þinnar svo sterk að þau trufla drauminn. Þú ert
greinilega gagntekinn af aðdáun á Madonnu og Rick og dreymir þau þess vegna í draum-
um og dagdraumum!