Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1989, Blaðsíða 6
22 FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 1989. Kvikmyndir - Kvikmyndir Laugarásbíó: Amold Laugarásbíó hefur hafið sýning- ar á bandarísku gamanmyndinni „Amold“ (Torch Song Trilogy). Myndin spannar níu ára tímabil í lífi hommans Arnolds og lýsir á skemmtilegan og átakanlegan hátt baráttu hans fyrir að öðlast ást og virðingu. Amold býr í New York þar sem hann vinnur fyrir sér sem kvengervingur á næturklúbbi. Eflir misheppnað samband við kennara nokkum að nafni Ed kynnist Amold loks ástinni þegar hann hittir Alan. Eflir sex ára sam- búð ættleiða þeir dreng sem flækst hefur á mifii fósturheimila og búa honum fallegt heimili. „Amold" er vel leikin mynd, bráðskemmtileg og laus við alla fordóma. Aðalhlutverkið leikur þekktur skemmtikraftur í New York, Harvey Fierstein. Með önnur hlutverk fara Brian Kerwin, Matt- hew Broderick og Ann Bancroft sem leikur móður Amolds. Michelle Pfeiffer er gift mafíunni en á sér þá ósk heitasta að losna úr þeirri prísund. Hér má sjá hana handfjatla byssu í kvikmyndinni Gift mafíunni sem Regnboginn sýnir um þessar mundir. Tom Selleck í hlutverki spennusagnahöfundarins Phillips Blackwell lend- ir í ótrúlegustu ævintýrum í mynd Bíóhallarinnar, Með allt í lagi. Hann tekur upp á því að veita dularfullri rúmenskri stúlku, Ninu lonescu, fjar- vistarsönnun, og fyrr en varir eru óðir byssubófar á hælunum á honum. Hér hefur rithöfundurinn lifað af sprengjutilræði. Dularfulla rúmenska stúlkan, sem leikin er af Paulinu Porizkova, horfir á. KeSly Preston og Timothy Daly eiga í höggi við djöfladýrkendur i mynd Borgarbíós, Á hættuslóðum. Bíóborgin: Á hættuslóðum Huggulegur morgunverður hjá Arnold og Alan sem leiknir eru af þeim Harvey Fierstein og Matthew Broderick. i------------------------- Bíóborgin frumsýnir í dag bandarísku kvikmyndina Á hættu- slóðum (Spellbinder) eftir handriti Tracy Tome í leikstjóm Janet Gre- ek. í mynd þessari segir frá Jeff nokkrum Mills, ungum og ein- hleypum lögfræðingi, og samskipt- um hans við dularfulla unga konu og enn dularfyllri „vini“ hennar. Vegir Jeffs og stúlkunnar, sem heitir Miranda, liggja saman kvöld nokkurt á bílastæði fyrir utan bar í Los Angeles. Jeff skerst í leikinn þegar kærasti stúlkunnar gengur í skrokk á henni. Lögfræðingurinn hlýtur heldur slæma útreið í áflog- unum og er allur aumur á efflr. Jeff býðst til að aka Miröndu hvert á land sem er en leikar fara svo að hún gistir heima hjá honum næstu nætur. Miranda er þó ekki öll þar sem hún er séð því hún þarf ekki annað en leggja hendur á auma síðu Jeffs til að verkurinn hverfi. Og einkennilegu atvikin eiga eftir að verða fleiri. Daginn eftir nætur- ævintýrið kemur kona nokkur á skrifstofuna til Jeffs og'segir að hann hafi dálítið sem „þau“ vilji fá aftur. Þetta dularfulla fólk reynist síðan vera djöfladýrkendur sem viija hafa hendur í hári stúlkunnar fyrir næstu vetrarsólhvörf og mun ætlun þeirra að fóma henni til dýrðar djöfsa á mikilli hátíð. Söguþráðurinn verður ekki rek- inn frekar en margt óvænt mun gerast áður en yfir lýkur. Aðalhlutverk myndarinnar eru leikin af Timothy Daly, Kelly Pres- ton, Rick Rossovich og Audra Lind- ley. Sýningar Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70 Yfirlitssýningin á verkum Siguijóns, sem sett var upp í tilefni af vigslu safhsins sl. haust, mun standa óbreytt til 1. ágúst nk. Þar gefur að líta nokkur verk sem hafa aldrei áður verið sýnd á íslandi. 'Opið á laugardögum og sunnudögum frá kl. 14-17. Á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum er opið kl. 20-22. Lokað verður á fostudögum. Vikulegir tónleikar eru á þriðjudagskvöldum kl. 20.30. Hin vistlega kaffistofa er opin á sama tíma. Tekið er á móti hópum utan sýningar- tímans samkvæmt samkomulagi við safhstjóra. Mokkakaffi, v/Skólavörðustíg, Opnuð hefur verið sumarsýning á smá- myndum eftir Tryggva Ólafsson málara í Kaupmannahöfh. Myndimar eru lita- glaðar enda teiknaðar með litblýöntum á pappír. Þetta er í þriðja skipti sem Tryggvi sýnir litlar myndir á Mok- kakaffi. Sýningin er opin kl. 9.30-23.30 virka daga og sunnudaga kl. 14.00-23.30. Norræna húsiö við Hringbraut 17. júní voru opnaðar tvær sýningar í Norræna húsinu. Sýning á málverkum eftir Jóhann Briem er í sýningarsölum. Sýnd eru um 30 málverk, öll í eigu ein- staklinga eða stofnana. Verkin eru máluð á árunum 1958-1982. Sýningin stendur fi-am til 24. ágúst og er opin daglega kl. 14-19. f anddyri hússins stendur yfir sýn- ing sem nefhist Jörð úr ægi. Sýndir eru helstu sjófuglar eyjanna og algengar há- plöntur. Einnig er lýst landnámi lífvera í Surtsey. Sýningin verður opin fram til 24. ágúst kl. 9-19 nema sunnudaga kl. 12-19. Nýhöfn, Hafnarstræti 18 Kristján Daviðsson sýnir í Nýhöfh. Á sýningunni eru olíumálverk, unnin á þessu ári. Kristján hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýning- um hér heima og erlendis. Sýningin, sem er sölusýning, er opin virka daga kl. 10-18 og kl. 14-18 um helgar. Henni lýkur 12. júlí. Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s. 52502 Fundur Ameríku nefnist sýning í Sjó- minjasafni íslands. Sýningin er tviskipt. Annars vegar er sýning um ferðir nor- rænna manna til Ámeríku og fund Vín- lands um 1000. Hins vegar er um að ræða farandsýningu fiá ítalska menntamála- ráðuneytinu um Kristófer Kólumbus og ferðir hans fyrir um 500 árum. Sýningin verður opin í sumar, alla daga nema mánudaga kl. 14-18. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning Stofnunar Áma Magn- ússonar er í Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum, fimmtudögum og laugar- dögum kl. 14-16. Póst- og símaminjasafnið, Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. Vinnustofa Ríkeyjar, Hverfisgötu Þar em til sýnis og sölu postulínslág- myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslunártíma þriðjudaga, miö- vikudaga, fimmtudaga og fostudaga og á laugardögum kl. 10-16. Þjóðminjasafnið Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-16. ' Þrastalundur Þórhallur Filippusson sýnir 14 olíumál- verk 1 Þrastarlundi. Sýningin stendur til 16. júlí. Sjóminjasafnið á Eyrarbakka, Túngötu 59 Safiúð er opið daglega í sumar frá kl. 14-17 fram til 1. september. Myntsafnið á Akureyri, Aðalstræti 58, s. 24162 Opið er kl. 13.30-17 alla daga vikunnar. Byggða- og listasafn Árnesinga á Selfossi Sumarsýning á málverkum eftir Gísla Jónsson og Matthías Sigfusson er í Hall- dórssal. Opið er kl. 14-17 virka daga og kl. 14-18 um helgar í júlí og ágúst. Dýra- safnið er einnig opið. Menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar Þar stendur yfir samsýning tólf lista- manna. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá kl. 14-19. Henni lýkur 7. ágúst. Eden í Hveragerði Guðmundur Sigurðsson frá Borgamesi sýnir olíu- og krítarmyndir. Sýningunni lýkur 10. júlí. Ferstikluskáli í Hvalfirði Rúna Gísladóttir sýnir akrýlmyndir og collagemyndir. Slunkaríki, ísafirði Myndlistarsýning Halldórs Ásgeirssonar stendur til 20. júlí. Opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 16-18.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.