Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1989, Side 8
24
FÖSTUDAGUR 7. JTJLÍ 1989.
Hin fallega og hugljúfa „stríðs-
mynd“ Stevens Spielberg, Empire
of the Sun, stekkur í þessari viku
úr tíunda sætinu í það fyrsta og
leysir þar af hólmi Big, aðra mynd
þar sem aðalpersónan er drengur
þótt bamssálin sé í líkama manns.
Nánar er fjallað inn Empire of the
Sun hér tÚ hliðar. Ekki er mikið
um aðrar breytingar á listanum.
Það er helst gamanmyndin The
Great Outdoors sem gæti ógnað
myndunum í efstu sætunum á
næstunni. Þar leika aðalhlutverkin
gamanleikaramir Dan Aykroyd og
John Candy.
Það sem vekur aftur á móti at-
hygli er að hin ágæta mynd Shy
People kemur aftur inn á listann
eftir að hafa dottið út. Er hún að
þessu sinni í áttunda sæti.
DV-LISTINN
1. (10) Empire of the Sun
2. (1) Big
3. (2) Midnight Run
4. (4) Real Men
5. (7) The Great Outdoors
6. (6) Nico
7. (3) Red Heat
8. (-) Shy People
9. (8) Coming to America
10. (5) Deadly Pursuit
ick'A
Náttúruböm
THE GREAT OUTDOORS
Útgefandi: Laugarásbíó.
Leikstjóri: Howard Deutch. Framleið-
andi: Arne L. Scmidt og John Hughes.
Handrit John Hughes. Aöalhlutverk: Dan
Aykroyd og John Candy.
Bandarisk, 1988. öllum leyfö.
Framleiöandi myndarinnar,
John Hughes, hefur hingað til helst
getiö sér orð fyrir framleiðslu ungl-
ingamynda (byrjaði með Morgun-
verðarklúbbnum). Hér reynir hann
fyrir sér í gamanmyndaframleiðslu
auk þess sem hann er skrifaður
fyrir handriti. Hann hefur hér
fengið til liðs við sig tvo frambæri-
lega gamanleikara sem notið hafa
mikilla vinsælda. Aykroyd á að
baki nokkrar stórgóðar gaman-
myndir en hann hóf sinn feril í
sjónvarpsþáttunum Saturday
Night Live. Candy hefur svona
smám saman veriö aö fikra sig upp
metorðastigann og virðist vera far-
inn að fylla þörf bandarískra kvik-
mynda fyrir „feita manninn".
Myndin lýsir sumarleyfi tveggja
fjölskyldna. Auðvitað fer allt sem
hugsast getur úrskeiðis og allir
skemmta sér vel, eða þannig... Á
köflum bregður fyrir skondnum
atvikum en heildarmyndina vant-
ar.
-SMJ
+ lÁ
Stolin skepna
DEEP SPACE
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri og handritshöfundur: Fred
Olen Ray. Aöalhlutverk: Charles Napi-
er, Ann Turkel, Ron Glass, James Bo-
oth.
Bandarisk, 1987. 93 min. Öllum leyfö.
Geðveikir vísindamenn eru skrif-
aðir fyrir mörgum ósómanum á
hvíta Ijaldinu. Hér eru þeir að
krukka í sýklahemað og „finna
upp“ einhveija ógnvænlega furðu-
THEY CREATED A MONSTER OVER UINCH.
NOW IT'S 8ACK FOR 01HNER . . .
skepnu. Mönnum líst svo illa á
kvikindið aö ákveðið er að senda
það út í geiminn. Auðvitaö fer eitt-
hvað úrskeiðis og dýrið berst aftur
til jarðar og þá hefjast ósköpin. Það
eina sem getur bjargað jörðinni er
þrjóskur lögreglumaður.
Yfir B-mynda hrollvekjum var
einu sinni sjarmi en honum var
eytt um leið og myndbandamark-
aðurinn-bjó til C-mynda hrollvekj-
ur. Þar eru gæði mynda mæld í
magni blóðs og metnaðurinn felst
í því að vekja viðbjóð (sem er ann-
að en heilbrigður hrollur!). Síðan
þróuðust þessar C-hrollvekjur yfir
í tæknihrolla og var þá kapital
komið í spilið. Alien er líklega
frægasta og skýrasta dæmi þess.
En áfram er þörf fyrir ódýrar hroll-
vekjur sem lifa góðu sníkjulífi á
þeim dýrari.
Hér virðist vera gengið hraust-
lega í smiðju annarra og skepnan,
sem allt snýst um, er skilgetið af-
kvæmi Alien og The Thing. Þokka-
legum spennuaugnablikum bregð-
ur fyrir og Napier er svellkaldur í
aðalhlutverkinu. -SMJ
Stríð séð með augum drengs
EMPIRE OF THE SUN
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Steven Spielberg.
Aöalhlutverk: Christian Bale, John
Malkovich, Miranda Richardson og Nig-
el Havers.
Bandarisk, 1988 - sýningartími 147 min.
Steven Spielberg hefur manna best
tekist að lýsa hugarheimi bama og
unglinga. Og það er öllum ljóst sem
fylgst hafa með ferli hans að heim-
ur barnsins er honum kær. Hvort
sem hann leikstýrir eða er fram-
leiðandi mynda er hægt að rekja
flestar þeirra til hugarheims bama
og unglinga þar sem ævintýraþörf-
in er mikil.
Það ætti því engum að koma á
óvart að „stríðsmynd" Spielbergs,
Empire of the Sun, er séð með aug-
um drengs sem er að ná þroska-
aldri. Myndina, sem er uppfull af
snilldarvel gerðum atriðum, skort-
ir þó heildarumgjörð til að áhorf-
andinn geti lifaö sig inn í heim Jims
Graham. Er eins og Spielberg hafi
gleymt hinu mannlega sambandi
viö áhorfendur og þvi meira lagt
upp úr einstökum atriðum sem svo
sannarlega eru mörg hver augna-
yndi.
Empire of the Sun er byggð á
skáldsögu J.G. Ballard sem er að
hluta sjálfsævisaga. Við kynnumst
Jim Graham fyrst þegar hann er
tólf ára. Hann lifir sældarlífi
bresku yflrstéttanna í Shanghai.
Skuggi stríðsins vofir yfir og þegar
japanskar flugvélar fljúga yfir
Shanghai hræðast foreldramir en
Jim hrífst af flugvélunum sem svífa
yfir höfði hans. Flugvélar eru eitt-
hvað sem ekki er hversdagslegt,
eitthvað ofurmannlegt.
í ringulreiðinni, sem myndast
þegar Japanir gera innrás í Shang-
hai, verður Jim viðskila viö for-
eldra sína. Hann er handtekinn
ásamt öðrum útlendingum og sett-
ur í fangabúðir. Jim er úrræðagóð-
ur drengur og tekur að sér ýmis
störf innan girðingar og er milli-
göngumaður í ýmsum málum.
Hann lítur upp til Basie sem er
bandarískur og þegar Basie tekst
aö flýja án þess að taka Jim með
eins og hann hafði lofað eru von-
brigði drengsins mikil.
Spielberg tekst að lýsa á raunsæj-
an hátt lífmu í fangabúðunum.
Eins eru persónumar raimvem-
legar. Langflestum líður illa. Það
em aðeins fáeinir eins og Jim og
Basie sem geta aðlagast lífinu inn-
an fangabúðanna og fært sér
ástand meðbræðranna í nyt. Þátta-
skilin í lifi Jims eru geysimikil og
honum bregður eitt sinn þegar
hann uppgötvar að hann man varla
hvernig móðir hans lítur út.
Mörg atriði væri hægt að taka til
sem eru snilldarlega gerð. Til dæm-
is atriðið þegar Jim missir af hendi
móður sinnar, krýpur til að ná í
flugvélamódelið, lítur upp og upp-
götvar að hann hefur týnt foreldr-
um sínum sem hann á svo ekki eft-
ir að sjá fyrr en í stríðslok. Þá eru
lokaatriði myndarinnar mörg hver
stórfengleg. Eins og þegar birtir
yfir himninum um leið og vinkona
Jims deyr. Drengurinn heldur að
það sé vegna þess að sál vinkonu
hans sé að stíga til himna en fréttir
síðan að það sem hann sá var blossi
kjarnorkusprengjunnar á Hiros-
hima.
Sjálfsagt hefði enginn getað kom-
iö bók Ballards betur til skila en
Spielberg. Bamstrúin er honum í
blóð borin. Samt er eitthvað sem
vantar upp á að Empire of the Sun
geti talist meðal bestu mynda hans
- eitthvað sem fær áhorfandann til
að trúa á hugrekki og hugarflug
Jims. Eftir stendur mynd stórfeng-
legra atriða sem vantar að vera
raðað í fullkomna heild sem hefði
gert Empire of the Sun að meistara-
verki. -HK
★★
Ást gegn borgun
KISS THE NIGHT
Útgefandi: Stelnar
Leikstjóri: James Rlcketson. Handrit:
Don Catchlove. Aðalhlutverk: Patsy
Stephens, Warwick Moss, Gary Aron
Cook.
Bandarísk, 1988. Bönnuð yngri en 16
ára.
Myndin lýsir lífi ungrar vændis-
konu sem starfar í virðulegu og
vinsælu hóruhúsi í Los Angeles.
Hún er svo sem ekkert yflr sig hrif-
in af starfinu en lætur sér það vel
líka. Hún kynnist síðan dularfull-
um manni sem gerist fastur við-
skiptavinur og á það eftir að breyta
lífi og gildum vændiskonunnar.
Að mörgu leyti forvitnilegt efni
og handritshöfundur (sem heitir
því skemmtilega nafni Catchlove)
veltir töluvert fyrir sér sálarlífi
vændiskvenna þótt hann teygi nú
lopann fullmikið. Persónusköpun
aðalpersónanna er hins vegar
grunn og spillir fyrir uppbyggingu
myndarinnar. Þar breytir Utlu
ágætur leikur Stephens í aöalhlut-
verkinu. Endirinn er síðan vand-
ræðalegur og hálfóskiljanlegur.
-SMJ
★★!4
Hjónabandsraunir
A NEW LIFE
Útgefandi: Háskólabíó.
Leikstjóri: Alan Alda.
Aöalhlutverk: Alan Alda, Ann-Margret,
Victoria Hammel og John Shea.
Bandarisk, 1988 - sýningartími 95 mín.
Alan Alda er sjálfsagt þekktastur
hérlendis fyrir leik sinn í sjón-
varpsmyndaflokknum MASH.
Hann hefur á undanfömum árum
leikstýrt og leikið í nokkmm
myndum sem allar eiga það sam-
eiginlegt að fjalla um samskipti
kynjanna.
A New Life er nýjasta kvikmynd
hans og er ekki um neina stefnu-
breytingu að ræða hjá honum.
Skilnaður og vandræði í samlífi em
þemaö í vel heppnaðri mynd hans.
Alda lætur sér ekki nægja að
leika og leikstýra. Hann skrifar
einnig handrit að þessari bráð-
skemmtilegu kvikmynd þar sem
aðalpersónumar em fjórar.
í byrjun myndarinnar kynnumst
við hjónunum Steve og Jackie.
A- ixJ B yy _Life
Mcn and Woœcn.
Uving proof that íiod has a scusc of hurnour.
Jackie hefur ákveðiö að skilja við
eiginmann sinn sem vinnur frá
morgni til kvölds og hefur engan
tíma fyrir eiginkonu og barn. Steve
er í fyrstu ekki sáttur við þessa
ákvörðun og er hrein plága á vin
um sínum, sífellt kvartandi um
hversu ósanngjöm fyrrverandi eig-
inkona hans er.
Þetta breytist þó þegar hann
kynnist fallegum lækni sem virðist
skilja sálarlíf hans. Steve verður
ástfanginn aftur og eftir stutt kynni
gifta þau sig. Vandræöin í þessu
hjónabandi byrja þegar eiginkon-
una langar til að eignast bam...
Jackie finnur einnig sinn
draumaprins, listamann nokkurn
sem svo sannarlega veitir henni
eftirtekt og fylgist með öllu sem
hún gerir og stjanar í kringum
hana. Einmitt þaö sem Jackie Kafði
alltaf þráð, eða hvað...?
A New Life er viritilega skemmti-
leg gamanmynd með raunsæistón.
Alan Alda passar sig vel að fara
aldrei út í að vera of melódramtísk-
ur. Þegar vandræðin blasa við er
alltaf stutt í húmorinn. Þá eru leik-
aramir hver öðrum betri með Alan
Alda samt í sérflokki. ,
HK.