Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989. Ragnar segir að mikiivægt sé að geta látið dyr garðhússins snúa út í garð- inn og að'góðir möguleikar séu á að opna vel á sumrin. Rennihurðarnar opnast í allt að 120 cm breidd. grisja. Þar eru plöntur eins og t.d. túlípanar sem varla hreyfast því skjólið þama er svo gott - rokið hvín bara fyrir utan.“ Upplifi alls konar ágætis veð- ur „Ég vinn innivið allan ársins hring,“ segir Ragnar. Þess vegna er gott að geta verið úti við. Þó hér geti verið slæmt veður þá upplifir maður nefmlega ýmis annars konar „ágætis veöur“ líka með útiverunni. Maður veðrast með tímanum og verður laus við stress og slappar af. Auk þess breytast lífsviðhorfin. Um leið og við fórum í ferðalag verður einhvern veginn miklu meira að skoða - eitt- hvað sem áður fór alveg framhjá rnanni." Gróðurhúsið lengir sumarið mjög Við reistum gróðurhúsið fyrir tveimur árum. Þá fyrst var hægt að sá sjálfur fyrir fiölærum- og sumar- blómum og ýmsum trjáplöntum. Húsiö breytti því að strax og sól fer að hækka, í febrúar/mars, þá hitnar strax þar inni og þá er t.d. hægt að sá fyrir tómötum. Ég get reyndar kveikt á hita og haldið húsinu frost- fríu, sem gerir heilsársræktun mögulega. En það er gott fyrir gróð- urinn að hvíla hann í desember og janúar og kæla þá niður í 3-4 gráður á nóttinni. í febrúar byrjar svo að hitna veru- lega þarna inni - aðeins vegna birt- unnar sem kemur í gegnum plexi- glerið - það er alveg ótrúlegt. T.d. hefur vínberjaplanta sprottið hér upp í þak á húsinu á tveimur árum. Við fáum fullþroska ber af henni í byrjun ágúst. Þetta er vegna þess að húsinu er haldiö frostfríu. Hér eru svokallaðir túr- og retúrkranar sem minnka rennshð inn á ofninn ef hit- inn stígur. Strax í mars þegar sóhn skín verður góður hiti þarna inni - þó norðanátt og gaddur ríki fyrir utan. Nokkrar plöntur blómstra strax í apríl. Þannig er hepphegt að taka sumar plöntur úr reitnum úti og selja inn í mars. Það er notalegt og lengir sumarið mjög.“ Konan oröin kaffibrún í april - Notfærir fjölskyldan sér þessa möguleika á inni-útiveru í gróður- húsinu? „Við tyhum okkur út með kaffiboh- ann strax í mars,“ segir Ragnar. „Þama verður blússhiti og nóg birta. Stelpumar okkar lesa t.d. mikið þarna. Ef sólskin er þá hggja þær í sólbaði. Konan var t.d. orðin kaffi- brún í apríl. Það er alveg ljóst að útflólubláu sólageislamir ná að fara í gegnum akrýlplastið sem er í hús- inu. Hins vegar veröur að passa upp á að það verði ekki fyrir hnjaski. Svokállað políkarbónat-plast er málmkenndara og er sterkara en það hleypir ekki þessum geislum í gegn á sama hátt. Við sitjum svo hér alveg fram í desember enda blómstra plönturnar fram að þeim tíma. Annars er ahtaf eitthvað nýtt að koma í ljós. Snemma í maí blómstra rósir og begóníur í byrjun júní og fram í ágúst. Þessar og aðrar plöntrn- er svo ágætt að færa inn í verstu hryðjunum á sumrin. Hins vegar finnst mér aðalatriðið að geta opnað húsið á sumrin. Þá er hægt að sameina það garðinum og gott loft kemst inn. Hér eru renni- hurðir sem er hægt að opna í aht að 120 cm á breidd. Þaö skiptir miklu máh. Ungviðið lærir að umgangast umhverfið Ragnar og Harpa eiga fjórar dætrn-, sú elsta er 19 ára, tvíburamir eru 16 ára og sú yngsta 8 ára. „Yngsta stelp- an er mikið með okkur í útiverunni. Það er leikur að hafa krakkana með sér úti,“ segir Ragnar. Hann hefur afmarkað sérstakan reit með htlu húsi og leiksvæði. „Það er gott að hafa svæði þar sem krakkarnir geta haldið dótinu sínu, gröfunum, skóflunum og leikfongum á sama stað. Við erum nú að dunda við að byggja búkofa og sandkassa og girðum reitinn af með lágri girð- ingu. Stelpan ætlar svo að hafa þama sinn eigin garð og er þegar byrjuð á að gróðursetja. Ég held að krakkamir læri að umgangast og bera virðingu fyrir umhverfinu ef þau gera hlutina svona sjálf. í byijun verða plöntum- ar fyrir einhveiju hnjaski við gróð- ursetninguna vegna „bamameðferð- arinnar" en það þýðir ekkert að hugsa um það. Þetta kemur aht sam- an. Ég held að þetta gjörbreyti öhu varðandi hugsanagang bamanna. -ÓTT Ragnar Sigurjónsson og Harpa Guómundsdóttir dvelja gjarnan af og til i gróðurhúsinu frá mars og fram í desember. Dæturnar lesa þarna á vorin og haustin og sólargeislarnir ná að fara í gegnum tvöfalda plexiglerið - þarna tekur fólk á sig „lit“ á veturna. DV-myndir JAK 27 Hús og garöar Opnanleg fög mikil- væg í sólstofum „Meginkostur við sólstofur og svalahús er að geta opnað fyrir sólina þegar hennar nýtur við. Þetta vantar víða þar sem svoköh- uð sólhom hafa verið teiknuð sam- hhða nýbyggingum. Aðalatriðið er að geta nýtt sér sólina án þess að hún komi í gegnum glerið,“ segir Símon Ólafsson hjá Gluggmn og garðhúsum. „Þetta á gjaman við hádegissólina í mánuðunum febrú- ar th maí. Á þessu tímabili þyrstir hörundið og sálina í sólskin sem fólk hefur ekki getað notið í skammdeginu. Ég legg mest upp úr þessu atriði við smíði og hönnun sólstofa. Þannig er hægt að nota rennihurðir eða -glugga, fehiglugga eða svokahað harmóníkukerfi sem er nýtt af nálinni. Ég tel hepphegast að nota við- haldsfrí efni sem þola raka og hita- breytingar eins og ál og plastefni. Hitun þarf að koma th af hitaveitu- vatni sem notandi getur stjómað sjálfur því að sólin vermir aðeins að hluta th. Loftræsting er líka nauðsynleg enda hefur það sýnt sig að margir sem eiga 5-10 ára gamlar sólstofur em nú að setja þess háttar útbúnað upp. Verðið fyrir sólstofur er oft á bh- inu 500 þús.-l mihjón kr. Þá er miðað við frágengið hús án sökkuls - grind og gler, hurð, gluggar og loftræsting. Hins vegar fer verðið mjög eftir aðstæðum hverju sinni. Rennihurð sem er 3 metrar á breidd og opnast um 45% kostar um 100 þúsund krónur og er fasta fagið innifahð í verðinu. Bygging sólstofu þarf samþykki byggingar- nefndar. -ÓTT Pakrennur úr stáli og plasti Er komið að því að setja þakrennur á húsið eða endurnýja þær gömlu? ;H55331 Pakrennur eru sænsk gæðavara og annálaðar fyrir: • endingu (sjá mynd) • hversu auðveldar þær eru í uppsetningu • fallegt útlit og fjölbreytt litaval O • ótrúlega hagstætt verð • sameina kosti stál- og plastrenna en sneiða hjá göllum beggja. BLIKKSMIÐJAN TÆKNIOEILD OJlfK SMIÐSHÓFÐA 9 • 112 REYKJAVÍK • PÓSTHÓLF 4066 • SÍMI 685699 Akríl nuddpottar erlend framleiðsla Akríl nuddpottar frá okkur standast allar kröfur sem til þeirra eru gerðar: Þægileg lögun, öflugt nudd, mattast ekki, upplitast ekki - Alltaf sem nýir. Komið og sjáið nuddpott í gangi í verslun okkar. Allar nánari upplýsingar fúslega veittar. Allir fylgihlutir og búnaður fýrir sundlaugar og nuddpotta. K. AUÐUNSSON HF. GRENSÁSVEGI 8 - SÍMI 686088

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.