Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Side 18
36
.»!cr titn, íí Hun/ ŒDi'vanvt
MIÐVIKUDAGUE 12. JÚLÍ 1989.
Hús og garðar
Málningarkerfi verða aldrei betri en veikasti hlekkurinn. Efnin sem eru til á markaðnum eiga aðeins góða mögu-
leika á að standast það sem til er ætlast af þeim - EF RÉTT ER FARIÐ MEÐ ÞAU. DV-mynd ÓTT
Kostnaður við ráðgjöf miðað við framkvæmdir er oftast lítill hluti af fram-
kvæmdum. Rögnvaldur telur að aukin hagræðing og staðlað form geti
lækkað kostnað á ráðgjafarþjónustu. DV-mynd JAK
Rögnvaldur S. Gíslason:
Húseigendur eru ekki
nægilega vel upplýstir
- hollráö um m á 1 ni ngarframkvæmd ir
Hvert eiga húseigendur að snúa sér
þegar þeir ætla að fara að mála hú-
sið sitt? Er nægilegt að spyrja bara
kaupmanninn um bestu málninguna
- verður ekki að miða aðstæður
hveiju sinni við þau efm sem henta
hveiju sinni? Rögnvaldur S. Gíslason
er efnaverkfræðingur og hefur unnið
við þróun og framleiöslu á málning-
arefnum. Hann starfar nú hjá Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins
og vinnur við rannsóknir á málningu
og vatnsfælum. Hann gefur hér les-
endum nokkur hollráð um málning-
ar- og viðhaldsframkvæmdir.
Húseigendur ekki vel
upplýstir
- Eruhúseigendurnægilegavelupp-
lýstir um málningarefni og notkun
þeiira?
„Ég get tekið undir það að verulegu
leyti að fólk sé ekki nægilega vel
upplýst," segir Rögnvaldur. „Neyt-
endur eiga að geta fengið meira fyrir
þá peninga sem þeir eyða í málun
og annað viðhald. Það er stundum
vandamál í verslunum að starfsfólk
er ekki nægilega upplýst. Þetta getur
verið vegna mikúlar hreyfingar á
starfskröftum. Efnin, sem eru til á
markaðnum í dag, eiga góða mögu-
leika á að standast það sem til er
ætlast af þeim - ef rétt er farið með
þau. En ef fólk málar óafvitandi á
duftsmitandi flöt, án þess að fá bind-
ingu, eða fjarlægir eldú gamla máln-
ingu, er voðinn vís.“
- Verður málningin þá aldrei betri
en veggurinn?
„Kerfið verður aldrei betra en veik-
asti hlekkurinn. Það hefur heyrst og
reyndar verið misskilið að hús þurfi
að standa vatnsfæluborin í 2-3 ár
, áður en þau eru máluð. Það kann að
vera rétt en þetta á aðeins við þann
litla hluta húsa þar sem raki er virki-
legt vandamál. Þá þarf að grípa til
slíkra aðgerða. Ég myndi giska á að
um og yfir 90% húsa séu nokkum
veginn í lagi ef þar er vel og rétt aö
verki staðið. Ef undirvinna er rétt
og hentug efni notuð miðað viö að-
stasður sé ég ekkert því til fyrirstöðu
að efnin geti dugað í 10-15 ár án veru-
legs viðhalds. Þar sem mikið er um
sprungur og eitthvað er virkilega að
gegnir öðru máli. Þar þarf meira til.
Málningin dugar ekki ein sér á slíkt.“
ISIIi
.
.ýxi.v'l.
.
Eittvert eitt etni á markaónum þarf ekki aó vera betra en annað. Aðalatriðið er að meta aðstæður og athuga hvað hentar best hverju sinni. Þörf er á
kynningarátaki í þessum málum. DV-mynd Hanna