Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1989, Side 14
32
MIÐVÍkUDAGUR 12. JÚLÍ 1989.
Húsoggarðar_______________________________________________pv
Er lausnin gegn steypuskemmdum komin?
Að bjarga því sem bjargað verður
- 4ra ára reynsla af trefjaklæðningu á íslandi
Stefnan í byggingariðnaðinum hef-
ur mjög hneigst í þá átt að einangra
hús að utan og klæða þau svo. Radd-
ir iðnaðar- og tæknimanna verða
stöðugt háværari um vantraust
þeirra á íslenska sementinu - alla
vega til þess að standa sig gagnvart
veðrun.
Stöðugt fleiri dæmi skjóta upp koll-
inum þar sem nýleg hús eru bókstaf-
lega að grotna niður þrátt fyrir út-
skýringar þess efnis að búið sé að
koma í veg fyrir alkalívirkni.
Hér á landi er komin um fjögurra
ára reynsla á svokallaða Sto-utan-
hússklæðningu sem hefur verið lögð
á margar tegundir húseigna. Hún
þykir í fyrsta lagi nyög hentug til
þess að klæða af steypuskemmdir -
til að bjarga því sem bjargað verður
og til að fyrirbyggja að illa fari á
nýbyggingum. Um þessar mundir er
t.d. verið að klæða ný fjölbýlishús í
Grafarholti með þessari kiæðningu
auk annarra mannvirkja, gamaUa
sem nýrra.
ur, sem starfar hjá Veggprýði, leggur
ríka áherslu á að þessi efhi séu sett
á nákvæmlega samkvæmt fyrirmæl-
um framleiðenda. í flestum tilfellum
eru útveggir háþrýstiþvegnir og
grunnefni borið á. Því næst er ein-
angrunarplast eða steinull límd upp
og „trefjamotta" dreginn upp á ein-
angrunina með trefjastyrktu fylh-
efni. Að því loknu kemur svo sjálf
„kápan“ sem er úr akrílefni með
marmarakomum sem em mismun-
andi gróf. Klæðningin er mjög sterk
og þolir mikið hnjask án þess að
springa. Aðalkosturinn við þessa
aðferð er að kápan er múmð á með
hefðbundnum hætti og verður því
samskeytalaus. Áferðin verður mjög
svipuð og málaður steinveggur. Því
hentar aðferðin mjög vel á þeim stöð-
um þar sem æskilegt er að útht húss-
ins breytist ekki eftir viðgerð eða
breytingu, sbr. raðhús.
25 múrarar hafa lært
aðferðina í Þýskalandi
25 múrarar hafa til þessa verið
sendir á námskeið hjá framleiðend-
um til að læra uppsetningu kerfisins.
Hörður segir að þeir anni varla eftir-
spurn. Klæðningin þarfnast ekki við-
halds eða málunar. Þurfi hins vegar
nauðsynlega að mála vegna óhrein-
inda, sem ekki nást af, má vissulega
mála. Á síðastliðnum árum hafa
margir tugir húsa verið klæddir með
þessari aðferð á samtals um 20 þús-
und fermetra útveggja. Húseigendur
munu vera ánægðir með árangurinn
- skemmdir veggir hafa þomað og
nýbyggingar ekki látið á sjá.
Kostnaður um 4.500
kr/m2 án hreinsunar
Kostnaður við lögnina getur verið
mismunandi eftir þvi um hve miklar
misfellur er að ræða hverju sinni -
súlur, gluggainnskot, grófleika
o.s.frv. Algengt verð fyrir hvem fer-
metra mun þó vera um 4.500-5.000
krónur. í þessu verði felst ekki máln-
ingarhreinsun. Þar fer verðið eftir
festu málningunnar sem fyrir er á
veggnum. Það getur verið á bilinu
100-700 krónur fyrir fermetrann.
Þess má geta að í nýbyggingum er
hægt að nota 25% minna magn af
steypu í burðarvirki (að innanverðu)
ef þessi akrílkápuaðferð er notuð og
einangrað að utan. í þeim tilfellum
verður byggingarkostnaöur heldur
lægrienviöhefðbvmdinhús. -ÓTT
- segir Jón Siguijónsson
„Mesti gallinn við múrklæðn-
ingar er að þær vilja metjast en
þessi nýja tegund, sem er högg-
þolin, lofar góöu,“ segir Jón Sig-
urjónsson verkfræðingur í sam-
tali við DV. „Reynslutíminn er
reyndar stuttur en múrkerfi
standa yfirleitt og falla með fram-
kvæmdinni. Menn hafa stundum
sparað við sig bindinetin (styrkt-
armottumar) og það hefur reynst
illa.“
- Er þá aöalatriðið aö fýlgja upp-
skrift framleiðanda?
„Já. Þessi klæðning er annar
valkostur á móti loftræstum
klæöningum. -ÓTT
Mikilvægt að íylgja
uppsetningarreglunum
Hörður Guðmundsson húsasmið-
Um þessar mundir er verið að klæða nýjar blokkir í Grafarvogi með „trefjakápuaðferðinni". Nú hafa um 20 þúsund fermetrar útveggja á húsum hérlend-
is verið klæddir með aðferðinni á sl. 4 árum og gefist vel. DV-myndir JAK
A,
S
GROÐURSKÁLINN-
S9
Groðurhúsaskalinn hentar vel við
húsvegg. Byggt upp af ál-prófílum 3 mm
gróðurhúsagleri eða 4 mm tvöföldu yl-
plasti.
Stærð: 9,8 ferm. 383x254 cm.
HAGSTÆTT VERÐ
SINDRAAliSTAL HF
Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 627222
Vatnagarðar 14 — 104 Reykjavík
Láttu fagmann kenna þér réttu handtökin!
Sölu- og viðgerðaþjónusta á sláttuvélum!
SLATTUVELA-
VIÐGERÐIR
sími 31640