Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Blaðsíða 8
MÁNUDAGUR 17. JÚLL1989. Viðskipti Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Verslunarráðs: Dregur úr gjaldþrotum þegar líður á næsta ár Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Verslunarráös, telur aö gjaldþrotin haldi áfram út þetta ár í sama mæli og á fyrri hiuta ársins en að botni hagsveiflunnar verði náð um mitt næsta ár og þá dragi úr gjaldþrotum. Vilhjálmur Egilsson var einn þeirra hagfræðinga sem spáði því á síðasta ári að árið 1989 yrði gjald- þrotaárið mikla á íslandi. Þessi efna- hagsspá er að rætast. Um eitt þúsund einstaklingar og fyrirtæki hafa þrammað til borgarfógetans í Reykjavík og óskaö eftir að verða teknir til gjaldþrotaskipta. Þetta er 50 prósent meira en í fyrra en þá komu inn 646 beiðnir á sama tíma. Atvinnuleysið á Islandi hefur breyst á þessu ári. Það er komiö var- anlegt atvinnuleysi í stað árstíða- bundins áður. Þetta er söguleg breyt- ing á íslenskum vinnumarkaði. í ára- raðir gætti eingöngu árstíðabundins atvinnuleysis hjá fólki í sjávarútvegi og byggingariðnaði. Nú gengúr fólk í öllum stéttum atvinnulaust, meira að segja fólk sem unnið hefur hjá ríkinu og bönkunum. Þetta kemur glöggt fram í tölum um fjölda atvinnulausra á íslandi. Atvinnulausum íjölgar í sumar í stað þess að fækka eins og venjan hefur veriö hérlendis til þessa um sumar- mánuðina. Færa má rök fyrir spá sem gengur út á að atvinnulausum fjölgi þegar líður á sumarið og fram á haust. Þrenns konar atvinnuleysi Félagsmálahagfræðin segir frá þrenns konar atvinnuleysi: varan- legu, árstíðabundnu og skammtíma. Skammtímaatvinnuleysi er eins konar stund milli stríða. Það er sá tími sem líður þar til atvinnulads maður með ákveðna hæfileika, sem er að leita sér aö vinnu, hittir rétta atvinnurekandann, þann sem ein- mitt er að leita að manni með við- komandi hæfileika í vinnu. Atvinnuleysi hefur stóraukist á þessu ári. í janúar í fyrra voru eitt þúsund atvinnulausir, í janúar í ár voru tæplega þrjú þúsund atvinnu- lausir. Vinna eykst venjulega á sumrin í fyrra var mest atvinnuleysi í jan- „Kaupmátturinn í landinu heldur áfram að minnka. Það er ekkert sem getur komið í veg fyrir það. Þessu finna bæði einstaklingar og fyrirtæki fyrir. Það sem er í raun að gerast er að sú kaupmáttarsprenging sem varð á árinu 1987, þegar kaupmáttur jókst næstum um 20 prósent, var óraun- hæf. Þjóðfélagið hafði ekki efni á henni og þess vegna fer kaupmáttur nú minnkandi." Vilhjálmur segir enn fremur að haustið geti orðið mörgum erfitt. Reynslan sýni að vegna sumarfría stjórnenda fyrirtækja séu nauösyn- legar ákvarðanir í rekstrinum oft ekki teknar yfir sumarið. Þegar þeir komi hins vegar úr fríum og sjái stöð- úar og síðan dró úr því hægt og síg- andi fram á vor og sumar. Svona hefur gangur mála oftast verið á vinnumarkaðnum á íslandi. í janúar síðastliönum voru flestir atvinnulausir það sem af er árinu. Síðan dró hægt úr atvinnuleysi fram á vor. Svo gerðust tíðindin í síðasta mánuði. Atvinnulausum fjölgaði um 190 manns á milli maí og júni, úr 1800 í 1930 manns. Og síðasta daginn í júní voru 2100 manns atvinnulaus- ir. Atvinnuleysissúlurnar á með- fylgjandi mynd sýna þetta vel, þær eru að hækka. Óskar Hallgrímsson hjá félags- málaráðuneytinu segir að því miður geti menn ekki verið annað en hræddir um að atvinnuleysi eigi enn eftir aö aukast í sumar og haust. „Það er dauft yfir atvinnumarkaðn- um á þessum tíma og því miður eng- Fréttaljós Jón G. Hauksson in verkefni sjáanleg sem bæta úr ástandinu. Yfir öllu hangir svo sú vofa aö kvóti báta og togara er langt kominn og í sumum tilvikum eru bátar búnir með hann. Það er víða þröngt fyrir dyrum,“ segir Óskar. Árstíðabundið atvinnuleysi Árstíðabundið atvinnuleysi er oft- ast yfir vetrarmánuðina. Á því eru skýringar eins og að mismikið berist af afla og að togarinn í kaupstaðnum fari í söluferð til útlanda. Á sama una eftir fyrstu sjö til átta mánuðina grípi þeir til harðra aðgerða. „Þessar aðgerðir felast í því að segja upp fólki, stokka upp spilin og reyna hvað þeir geta til að hækka vöruverðið.“ Það eru ekki bara forstjórar fyrir- tækja sem koma urrandi úr sumar- fríum heldur er það gjarnan svo að hinn venjulegi launamaður grípur einnig til harðra aðgerða eftir sum- arfríið sitt. Sumarfríið varð dýrara en hann reiknaði með og efnameiri launamenn fá skattseðilinn sinn og þurfa að borga til dæmis eignaskatt. I raun grípur launamaðurinn til sömu aðgerða og fyrirtækin. Hann byrjar á að skera niöur útgjöld, draga hátt má taka byggingariðnaðinn fyr- ir. Þegar allt er á kafi í snjó og frost- hörkur ríkja dag eftir dag er ekkert steypt, verktakar fresta fram- kvæmdum og segja mönnum hugs- anlega tímabundið upp. Síðan kemur sumarið með hækk- andi sól og hjól atvinnulífsins fara að snúast aftur, vel smurð. Þá kemur skólafólk út á vinnumarkaðinn og á sama tíma vantar fólk vegna um- framþenslu á markaðnum svo og sumarleyfa hinna fastráðnu. Sumarvinna minnkar núna Þess vegna skýtur það mjög skökku við í sumar þegar atvinnuleysi fer vaxandi í stað þess að fara minnk- andi. Eftirspurn eftir fólki i vinnu er greinilega að minnka. Jafnframt tekur það fólk mun lengri tíma að fá vinnu við sitt hæfi. Á þensluárinu 1987, þegar atvinnu- lífið vantaði um þijú þúsund manns til að öll störf væru fyllt, tók það mann, sem hætti, kannski um hálf- tíma að fá vinnu annars staðar. Þetta þekkist ekki lengur. Erfiðleikarnir 1969 íslendingar upplifðu síðast alvar- úr kostnaðinum við heimilishaldið, eða fer inn á teppið til yfirmanns síns og biður um hærri laun, nákvæm- lega eins og forstjórinn reyndi að ná fram hærra vöruverði. „Ég tel að það verði þrýstingur á launaskrið í haust, að fólk fari til yfirmanns síns og biðji um hærri laun eða yfirborganir á einhvern hátt. En vegna erfiðrar stöðu margra fyrirtækja núna er tæplega hægt að búast við því að þessar óskir nái fram að ganga. En það kemur örugglega þrýstingur á launaskriö," segir Vil- hjálmur Egilsson. -JGH legt atvinnuleysi erfiðleikaárin 1968 til 1969 þegar síldveiðarnar við landið hrundu næstum á einum degi. Mun- urinn þá og nú er sá að þá hrundi undirstaðan og dreifingin á vinnuafli var allt önnur en nú þegar hlutfalls- lega miklu fleiri vinna í þjónustu. Árið 1969 gengu um 5500 íslending- ar atvinnulausir. Það var um 7 pró- sent af vinnuafli. Nú er atvinnuleysið um 1,4 prósent og allt útlit fyrir að sú tala hækki. Atvinnuleysi er smitandi Hagfræðingar tala um að í atvinnu- lífinu sé margfaldari, eitt starf í framleiðslugrein búi til eitt eða tvö önnur í þjónustugreinum, fleiri eftir því sem margfaldarinn er hærri. Margfaldarinn getur líka verið með mínusmerki. Fækki um eitt í fram- leiðslugrein fækkar um eitt eða tvö í þjónustugrein. Um keðjuverkandi áhrif er að ræða. Og þannig getur gjaldþrot eins fyrirtækis leitt til gjaldþrots annars. Læknar myndu líklegast orða þetta sem svo að atvinnuleysi væri smit- andi og breiddist út hérlendis. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 14-20 Úb Sparireikningar 3jamán. uppsögn 15-20 Vb,Úb 6mán.uppsögn 16-22 Vb 12mán. uppsögn 18-20 Úb 18mán.uppsögn 30 Ib Tékkareikningar, alm. 3-9 Ab.Sp Sértékkareikningar 4-17 Vb.Ab Innlan verðtryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5-2 Vb 6mán. uppsögn 2,5-3 Allir Innlán með sérkjörum 27-31 nema Sp Sb Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 8-8,75 Ab Sterlingspund 11,75-13 Lb.Bb,- Vestur-þýsk mörk 5,25-6 lb,Vb,- Sb Sb,Ab Danskarkrónur 7,75-8,25 Lb,lb,- ÚTLÁNSVEXTIR (%) Vb.Sp lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 32,5-34,5 Bb Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgenqi Almennskuldabréf 34,25- Bb 37,25 Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) 35,5-39 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf 7-8,25 Lb Utlán til framleiðslu Isl. krónur 27,5-37 Úb SDR 10-10,5 Lb Bandaríkjadalir 11-11,25 Allir Sterlingspund 15,75-16 nema Úb Allir Vestur-þýsk mörk 8,25-8,5 3,5 nema Úb Úb Húsnæðislán Lifeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 45,6 MEÐALVEXTIR Óverðtr. júlí 89 34,2 Verðtr. júlí 89 7.9 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala júlí 2540 stig Byggingavísitala júlí 461,5stig Byggingav ísitala júli 144,3stig Húsaleiguvisitala 5%hækkun l.júlí VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,042 Einingabréf 2 2,240 Einingabréf 3 2,639 Skammtíniabréf 1,391 Lifeyrisbréf 2,032 Gengisbréf 1,802 Kjarabréf 4,010 Markbréf 2,134 Tekjubréf 1,732 Skyndibréf 1,218 Fjölþjóðabréf 1,268 Sjóðsbréf 1 1,938 Sjóðsbréf 2 1,552 Sjóðsbréf 3 1,369 Sjóðsbréf 4 1,140 Vaxtasjóðsbréf 1,3687 HLUTABREF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 300 kr. Eimskip 360 kr. Flugleiðir 175 kr. Hampiðjan 164 kr. Hlutabréfasjóöur 128 kr. Iðnaðarbankinn 157 kr. Skagstrendingur hf. 212 kr. Útvegsbankinn hf. 135 kr. Verslunarbankinn 145 kr. Tollvörugeymslan hf. 108 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar- bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast I DV á fimmtudögum. Söguleg breyting á vinnumarkaönum: Varanlegt atvinnuleysi í stað árstíðabundins Fjöldi atvinnulausra á íslandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.