Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Blaðsíða 28
28 MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989. íþróttir • Sigurður Samúelsson sigraði í unglingafiokki. Hér er hann í góðri sveiflu. Líf og fjör á Tálknafirði - á útihátíð 7.-9. júlí Kristjana Andrésdóttii, DV, TáDaiafiiði: Það var mikið flör í íþrótta- keppninni á útihátíðinni á Tálk- nafirði dagana 7.-9.júlí og tókst ágætlega ef frá eru talin þau mis- tök veðurguðanna að vfija taka þátt í gleðinni. Slæmt veður síð- asta keppnisdaginn. Fyrst var keppt í hjólaralli á fóstudagskvöld í tveimur flokk- um. í yngri flokki sigraöi Ágúst Gunnarsson, Patreksfirði, en í þeim eldri Andrés Már Heiðars- son, Tálknafirði. Á laugardagsmorgun hófst knattspyma í 4., 5. og 6. flokki og var mikill fjöldi keppenda. Bol- víkingar voru sigursælir. Sigr- uðu í keppni A- og B-liða bæði í fjórða og fimmta flokki. Þingeyr- ingar sigruðu í keppni A-liða 6. flokks en ísfirðingar í keppni B- liða. Þá var keppt í ftjálsum íþrótt- um. í 60 m hlaupi sigruðu Hafrún Sigurðardóttir, Tálknafirði, og Einar Öm Þorvaldsson, Suður- eyri. í langstökki sigruðu Anna Rúnarsdóttir, Bildudal, og Einar Öm Þorvaldsson. í kúluvarpi sigruðu Kristín Hálfdánardóttir, Súðavik, og Jón Þorsteinsson, Þingeyri. í víðavangshlaupi 12 ára og yngri sigruöu Olafur Sveinn Jóhannesson, Tálkna- firði, og Kristín Hálfdánardóttir, Súðavík. í eldri flokki sigraði Auðunn Eiríksson, Flateyri. í sundlauginni var keppt í sundsp- relli og þar sigraði stelpnasveit Tálknafjarðar. • Efnilegt sundfólk I Kormáki á Hvammstanga: Arnar Páll Agústsson, Kristianna Jessen, Elisabet Ólafsdóttir, Elvar Daníelsson og Egill Sverrisson. Arnar sigraði án forgjafar - á JÓD-mótinu í golíi á ísafirði Á dögunum fór fram á ísafirði JÓD-mótið í golfi hjá Golfklúbbi ísafjarð- ar. Hér er um að ræða mót sem kennt er við systkinin Jóhann Torfason, Ómar 'Torfason og Dýrfinnu Torfadóttur. Keppnin var skemmtileg, leiknar voru 18 holur og keppt með og án forgjaf- ar. í mótinu, sem þótti takast mjög vel, voru 17 keppendur, allir úr Golfklúbbi ísafjarðar að einum undanskildum. Það var Þórður Vagnsson sem keppti fyrir Golf- klúbb Bolungarvíkur. í flokki án forgjafar sigraði Am- ar Baldursson og lék hann holum- ar 18 á 80 höggum. Annar varð Kristján Kristjánsson á 86 högg- um, þriðji Pétur Sigurðsson á 87 höggum, fjórði Baldur Geirmimds- son á 89 höggum og fimmti varð Egill Sigmundsson á 91 höggi. Sig- ur Amars var því nokkuð ömggur en keppni hörð um næstu sæti. Egill sigraði í keppni með forgjöf "* *■ I flokki með forgjöf sigr- aði Egill Sigmundsson á 67 höggum. í öðru sæti varð Baldur Geirmunds- son á 69 höggum og í þriðja sæti varð Kristján Kristjánsson á 70 höggum. Fjórði varð Pétur Sig- urðsson á 71 höggi og fimmti Reyn- ir Pétursson á 72 höggum. • í unglingaflokki sigraði Sigurður Samú- elsson á 85 höggum án forgjafar og hann sigraði einnig í keppninni með forgjöf, lék þar á 68 höggum nettó. • í kvennaflokki sigr- aði Margrét Guðnadóttir á 119 höggum án forgjaf- ar og hún sigraði einnig í keppni með forgjöf, lék þar á 91 höggi nettó. Mótsstjóri var Hreinn Pálsson. • Arnar Baldursson sést hér pútta. Hann sigraði í keppni án forgjafar. Mjög efnilegt sund- fólk á Hvammstanga - Kormákskrakkar stóöu sig vel á Noröurlandsmótinu 1 sundi ÞórhaHui Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: Sundíþróttin dafnar vel á Hvammstanga undir ágætri leiðsögn Flemmings Jessen íþróttakennara. Sundlið Kormáks stóð sig mjög vel á Norðurlandsmótinu sem fram fór á Sauðárkróki á dögunum. Hvamms- tangamenn eru geysilega miklir af- reksmenn í yngri aldursflokkunum og hirtu þar fjölda guflverðlauna. • í hnokkaflokknum sigraði Am- ar Páll Ágústsson í 50 m skriðsundi á 39,33 sek.J sama flokki sigraði Eg- ifl Sverrisson í 50 m bringusundi á 50,49 sek. í hnátuflokki sigraði svo EUsabet Ólafsdóttir í 50 m skriðsundi á 37,58 sek. • í sveinaflokki var Elvar Daníels- son sigursæll. Hann sigraði í 50 m \ baksundi á 36,90 sek., í 100 m skrið- sundi á 1:09,59 mín. og að auki náði Elvar sér í silfurverðlaun í tveimur greinum. • Kristianna Jessen í telpna- flokknum var samt sigursælust Kormákskrakkanna á mótinu. Hún sigraði í þremur greinum, 100 m skriðsundi á 1:05,18 mín„ 100 m bringusundi á 1:25,59 mín og 100 m baksundi á 1:21,20 mín. Auk þessa hlaut Kristianna tvenn silfurverð- laun í einstakflngsgreinum. • Þá hlaut Hafdís Baldursdóttir í meyjaflokki þrenn silfurverðlaun og ein bronsverðlaun. Ragnheiður Sveinsdóttir hlaut ein bronsverðlaun í sama flokki og Örlygur Eggertsson bronsverðlaun í flokki drengja. • í boðsundi náði sveit Kormáks öðru sæti í sveina-, meyja- og drengjaflokki og þriðja sæti í telpna- flokki. • Kormákur varð í þriðja sæti í stigakeppni Norðurlandsmótsins. Röðin varð sú sama og nokkur síð- ustu árin. Óðinn á Akureyri sigraði og hlaut 333 stig, HSÞ varð í öðru sæti með 290 stig og Kormákur í því þriðja með 148 stig. KS frá Siglufirði varð síðan í fjórða sæti með 30 stig. • Þessa dagana stendur sunddeild Kormáks fyrir íjáröflunarsundi, svo- kölluðu 50 aura sundi, til eflingar á sundstarfinu. Um næstu helgi mun 13-17 manna lið Kormáks halda tí.1 Mosfellsbæjar þar sem fram fer ís- landsmeistaramót. Reynismenn fá Fær- eyinga I heimsókn - samskipti Reynis 1 Sandgerði og VB hófust 1957 Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjurn; Samskipti Reynis í Sandgerði og VB Vags Boltfelag frá Færeyjum hófust árið 1957 þegar Reynismenn Jóru til Suðureyjar í Færeyjum í keppnisferð. VB-ingar komu síðan til Sandgerðis árið 1959. Samskipti þessara liða hafa síöan haldist í gegnum árin og búið er að keppa um nokkra verðlaunabik- ara sem Albert Guömundsson sendiherra hefúr jafnan gefiö. í hittifyrra fóru tveir flokkar fi*á Reyni til Vags, meistaraflokkur karla og „stórmeistaraflokkur'” sem skipaður var þeim leikmönn- um sem spiluöu árið 1957. Vígöu þeir þánýjan gervigrasvöll í Vogi. Næstkomandi fóstudag eru vænt- anlegir tveir flokkar frá VB til Sandgerðis, meistaraflokkur karla og þeir sem kepptu við Reyni árið 1959. Fyrsti leikur VB veröur nk. sunnudag klukkan tvö en þá keppa 1959 fararnir við „stórmeistara- flokk" Reynis en meistaraflokkar félaganna leika strax á eftir. Bíöa margir spenntir eftir leik þeirra eldri sem sumir eru langt að komn- ir eins og til dæmis Gunnlaugur Gunnlaugsson sem er kominn alla leið frá Astralíu eftir 21 árs dvöl, meðal annars til aö leika þennan vináttuleik. Gunnlaugur var einn þekktasti leikmaður Reynis á sín- um tima. Af öðrum leikmönnuml má nefiia ívrrum einkabílstjóral Matthíasar A. Mathiesen, fyrrver-1 andi ráðherra, og Gottskálk Ólafs-1 son, foöur Ólafs Gottskálkssonarl sem leikur í marki 1. deildar hðsl Skagamanna, Þá má einnig nefhal Ólaf Gunnlaugsson, oddvita Mið-| neshrepps, og svo mætti lengi telja. Á fóstudagskvöldið veröur haldiðl veglegt hóf til heiðurs Færeyingun- [ um í íþróttahúsinu í Sandgerði þar | sem verðlaun verða athent og bor- inn fram matur. Víkingabandiðl mun síöan leika fyrir dansi. í feröj sinni hingað munu Færeyingarnir j einnig leika við nágrannafélög á| Suöurnesjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.