Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1989, Blaðsíða 44
MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1989. '44 : Andlát Guðmundur H. Jónsson, fyrrverandi framreiðslumaður, lést í Borgar- spítalanum 12. júlí. Else M. Jansen, Norðurbrún 1. and- áðist í Borgarspítalanum að morgni 14. júlí. Guðjón Halldórsson húsgagnasmið- ur. Höfðatúni 9. lést 14. júlí. Jardarfarir Steinunn Ólafsdóttir, Droplaugar- stöðum. áður til heimilis á Gret’tis- götu 29. verður jarðsungin frá Frí- kirkjunni í Reykjavik í dag. 17. júlí. kl. 13.30. Eiríkur Ólafsson loftskeyiamaður verður jarðsunginn frá Askirkju í •dag, 17. júb. kl. 15. Þorsteinn Guðlaugur Pálsson vél- \1rkjameistari. Vesturgötu 57a. verð- ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 18. júlí kl. 15. Ólafur M. Ólafsson. fyrrverandi menntaskólakennari. Grundarlandi 8, sem lést 7. júlí. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. júlí kl. 13.30. Ingimagn Eiriksson bifreiðarstjóri. Meistaravöllum 7, sem lést 7. júlí, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 18. júlí kl. 13.30. Tilkynnirigar Fréttabréf Þrídrangs Út er komið nvjasta fréttabréf Þridrangs. Meðal annars er greint frá fjölbrevtilegri dagskrá mannræktarmótsins á Snæfells- nesi sem aö þessu sinni verður haldið að Hellnum helgina 22.-23. júh. Auk þess eru í fréttabréfmu fregnir af úr\rali nám- skeiða og þjónustu innlendra og erlendra aðila í mannrækt og heildrænum málefn- um. Fréttabréfið fæst gefms á skrifstofu Þrídrangs að Laugavegi 92. Áhugafólk úti á landi getur fengið blaðið sent frítt. Einnig er forsala aðgöngumiða að Snæ- fellsásshátíðinni og er félagsmönnum boðinn sérstakur afsláttur. Upplýsinga- og pöntunarsímar eru 91-627760 og 91-27622 frá kl. 14-20. Tilkynrdngar Hússtjórnarskóla Reykjavíkur slitið Hússtjómarskólanum í Reykjavík var sagt upp i maílok. Skólinn hefur starfað í vetur á sama hátt og undanfarin ár. Á haustönn em starfrækt námskeið, mis- jafnlega löng og með fjölþættu námsefni. A vorönn em námskeiðin rekin áfram eftir því sem húsrými gefur tilefni til. Auk námskeiðanna tekur þá til start'a 5 ntánaða hússtjórnardeild. Var hún full- setin í vetur og bárust ileiri umsóknir en hægt var að sinna. Að venju heimsóttu gamlir nemendur skólann og færðu hon- um góðar gjaíir. Tveir nemar úr hús- stjórnardeild hlutu verðlaun fyrir góðan námsárangur. þær Jóhanna Sveinsdóttir. ÚtnjTðingsstöðum. Vallahreppi, og Margrét Svavarsdóttir. Skörðum í Miðd- ölum. Umsóknir um námsvist í hús- stjórnardéild næsta skólaár þurfa að ber- ast sem fyrst. Önnur námskeið verða auglýst í byTjun september. Nemendamót fyrrverandi nemenda Idrætshöjskolens í Sönderborg Um eitt hundrað íslendingar hafa stund- að nám við Idrætshöjskolen í Sönderborg í Danmörku. Skólinn er að hluta til í eigu dönsku ungmenna- og íþróttahreyfingar- innar og hóf starfsemi sina árið 1952. Inge og Hans Jörgen Nilsen, núverandi skóla- stjóri Idrætshöjskolens, koma til landsins innan tíðar i tilefni af 25 ára starfsaf- mæh þeirra. Af þessu tilefni boða þau til nemendamóts gamaila og nýrra nemenda skólans í Viðey þriðjudaginn 1. ágúst nk. Lagt verður af stað frá Sundaborg kl. 17.30. Gamlir og nýir nemendur eru ein- dregið hvattir til þess að mæta. Skráning þátttakenda fer fram þessa dagana hjá Olgu B. Magnúsdóttur í s. 74364 eða ísólfi Gylfa Pálmasyni í s. 675000 eða 673656. Þess er vænst að fólk skrái sig sem fyrst. Tapað fundið Köttur týndur frá Sólheimum Svartur, loðinn, 1 árs köttur hvarf frá heimiU sínu, Sólheimum 42. Ef einhver hefur orðið var við hann eða veit hvar hann er niðurkominn þá vinsamlegast látið vita í síma 688159. NISSAN PATROL dísil highroof árg. 1989, ekinn 16.000 km, topplúga, rafm. í rúöum, samlæsing, upphækkaður, 33" dekk, álfelgur, brettakantar, útvarp og segulband, 5 gíra o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 2.600.000. Nú er hægt aó hringja inn smáauglýsingar og greiða með korti. r • Þú gefur okkur upp: Nafn þitt og heimilisfang, síma, nafnnúmer og gildistíma og númer greiðslukorts. • Hámark kortaúttektar í síma kr. 5.000,- • SMÁAUGLÝSINGADEILD ÞVERHOLTI 11 SÍMI 27022 Menning Jarðneskt og heilagt Þaö var sama hvaö Bach tók sér fyrir hendur að semja, hvaöa stíl hann stældi, hvaða hljóðfæri hann notaði, alltaf var eins og Mídas konungur hefði snert og allt breytt- ist í gull. Það sem í Frakklandi var léttlynd dansmúsík, áreiðanlega djöflinum til skemmtunar, varð í höndum Bachs að dýrölegri, næst- um heilagri tónhst. Vitsmunir, trú- arhiti og ótrúlegt innsæi hans upp- hófu hvaðeina í æðri vídd. Eftir sem áður hjálpar það okkur oft að skilja tónlist hans að vita hvað þaö var sem hann breytti í gull. í raun verður að gefa sér full- komnunina og helgina fyrirfram og leiða jafnvel hjá sér. Þegar Bach skrifar dansþátt er það fjandakor- nið bara dans sem hann hefur fyrir hugskotssjónum og hann getur ekki að því gert þótt hljómi síöan eins og Jesú Kristur eigi að dansa við hann á himnum. Er ekki inntakið það að jafnvel hin veraldlegasta iðja geti verið heilög? Þurfum við þá nokkuð að skammast okkar fyrir að sýna jarð- neskar tilíinningar í flutningnum, ef þær búa þarna einhvers staðar undir gullinu? Það var sannarlega ánægjuleg stund sem Ann Wallström og Helga Ingólfsdóttir veittu hlustendum Tónlist Atli Ingólfsson með leik þriggja sónata Bachs fyrir fiðlu og sembal. Sónöturnar eru eitt dæmiö um stefnu meistarans að takast á við sem flesta stíla, koma sem stærstum hluta veru- leikans í tónlist sína. Túlkun þeirra leiksystra var heil- steypt og margt fallegt kemur í ljós þegar sónöturnar eru leiknar á barokkfiðlu. Löng nóta er ekki bara sónn sem er kveikt á og slökkt held- ur hefur hún líf, fæðist, vex og deyr. Og þannig höföu kaflamir hver sitt líf, eðlilegt og óþvingað af nútíma- legri spennu. Ef eitthvað ætti að gagnrýna í öruggri túlkuninni tengist það helst því sem í upphafi var lýst: Stundum mætti hún vera verald- legri, hrööu kaflarnir gáskafyllri. ítalska arían í E dúr sónötunni (adagio ma non tanto) heföi vel þolað að kannast betur við forfeður sína, kannski ástararíur úr hégóm- legum ítölskum sviðsverkum. í fyrsta kafla þeirrar sónötu, sem er fantasía ad-agio, sem þýðir upphaf- lega frjálslega, hefði maður mátt fá meira á tilfinninguna að einleiks- röddin réöi ferðinni. Kannski mætti smíða hér heilræði um túlk- un Bachs: Heilagt, ma non troppo! Seinasti kaflinn í téðri sónötu var reyndar sprelllifandi og glæsilegur. Svona smámuni má tína til ef maður vill bíða með þar til seinast að segja að sjaldan heyrir maður betra barokk en þarna var. Skálholtskirkja laugardaginn 15. júli. Ann Wallström, barokkfiöla, Helga Ing- ólfsdóttlr, semball, léku þrjár Sónötur fyrir fiólu og hljómborð eftir J.S. Bach. Tónafórn Skálholt má nú teljast höfuðborg barrokktónlistar á íslandi. Því má treysta að þar bregðast ekki vonir tónlistarpílagríma því listræn tök á efninu er sjaldgæft að heyra hér- lendis. Það væri líka ekki hægt að kasta til höndunum við flutning svo stórrar listar á svo miklum stað. Meðal barrokkfólks er nú tiska að leika á frumhljóðfærin, þau sem verkin hljómuðu fyrst á. Ekki er hægt að segja að þetta færi okkur nær barokktímanum eða hljóð- heimi hans nema einnig sé hægt að útbýta barokkeyrum til tón- leikagesta. Þetta getur þó fært okk- ur nær því í tónlistinni sem hefur sig yfir söguna, er hvorki barokk né klassík, rómantík né framúr- stefna, nefnilega merkingunni. Þannig er til dæmis þegar við, vön nútímafiðlu, heyrum tónaflúr á barokkfiðlu. Inntak skrautsins virðist breytast við að hljóma á hina mjúku strengi hennar. Það verður nauðsynlegra, eðlilegra og hljómar ekki jafntiktúrulega og það gerir stundum á nýja fiðlu. Munurinn er þó engan veginn aUt- af svo afgerandi og vísast ekkert sem góður fiðluleikari ætti að geta brúað þótt kannski þyrfti hann fyrst að heyra í barokkfiðlu. End- ursmíði gamalla hijóðfæra ber því að lofa en varast einhvern púrítan- isma um hljóm. Hljómurinn er okkur jafnglataður og aldirnar þrjár milh okkar og Bachs. Það sem skiptir máli er að menn skUji tónlistina og hjálpi öðrum að skilja hana. Svo við víkjum að viðfangsefni tónleikanna, Tónafórn Bachs, þá er það reyndar eitt þeirra verka hans sem lengst leitar í átt tU hreinnar merkingar og hvort það á veginn! Blindhæð framundan. Við vitum ekki hvað leynist handan við hana. Ökum eins langt til hægri og kostur er og drögum úr hraða. Tökum aldrei áhættu! Skálholtsklrkja. er leikið á gömul hljóðfæri eða ný virðist Utlu raska um hana. Það er næstum eins og hljóðfæri yfirleitt séu bara of veraldleg tU að leika þessa tónlist. Við erum þó þakklát þegar hún holdgast, einkum þegar það er í höndum svo leikinna tónlistar- manna sem nú var. Verkið var leik- ið á barokkhljóðfæri en hljóðfæra- skipan þess er lítt skUgreind af Tónlist Atli Ingólfsson höfundarins hálfu. Með Helgu Ing- ólfsdóttur semballeikara í farar- broddi leiddi hópurinn okkur gegn um völundarhúsið og við lærðum hvernig ýtrasta sértækni (afstrak- sjón) getur orðið að dáindismúsík. Menn hafa oft tUhneigingu til að flytja þessa tónlist með of mikiUi virðingu fyrir hinni flóknu sam- setningu hennar, hún verður þunglamaleg. Hér bar lítið á sUku og leikgleðin látin ráða. Sérlega vel tókst til við flutning sónötunnar sem hér var næstsíðust í röðinni þótt stundum virtist flautan vUja kveða skýrar að en hinir. Tónleikunum lauk með sex radda fúgu, eða „ricercare“, sem Helga lék á sembalinn af mikiUi list og komst þar á meira flug en í fyrsta þætti sem var þriggja radda „ric- ercare“. FaUegir tónleikar. í staö þess aö klappa stendur maður upp og þakkar fyrir gjöíina. Skálholtskirkja, laugardaginn 15. júll kl. 15: Helga Ingólfsdóttir, Kolbeinn Bjarna- son, Ann Wallström, Lilja Hjaltadóttir og Ólöf Sesselja Oskarsdóttir fluttu Tónafórn eftir J.S. Bach.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.