Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Qupperneq 1
Alþjóðleg nútímalist á Kjarvalsstöðum: Úrvalsverk síð- ustu áratuga Súpudósir Andy Warhol eru meðal verka á sýningu á aiþjóðlegri nútímalist á Kjarvalsstöðum. Kjarvalsstaðir bjóða til mikillar listveislu á morgun þegar þar verð- ur opnuð sýning á alþjóðlegri nú- tímalist frá listasafninu í Epinal í Frakklandi. Á sýningunni gefur að líta úrval verka eftir listamenn sem hefur borið hvað hæst í listasög- unni síðustu áratugi, m.a. Frank Stella, Andy Warhol, Giibert og George, Tony Cragg, Donald Judd, Richard Long, Helmut Newton og Sigmar Polke svo aðeins fáeinir séu nefndir. Verkin, sem sýnd verða, eru ár- angur starfs Bernards Huin, safn- stjóra í Epinal, en hann hefur lagt sig fram við að safna nútímalist með dyggri aðstoð borgarstjórans, Philippe Seguin. Þegar Bernard Huin tók við stjórn listasafnsins í Epinal var lít- ið sem ekkert um nútímalist í hirsl- um safnsins en mikið af list fyrri alda. Það kom því í hlut Huins að móta stefnuna í kaupum á nútíma- hst og velja verk í safnið. Hann gerði sér snemma grein fyrir því að safnið gæti aldrei orðið „alfræði- safn“ myndhstar heldur yrði að velja og þannig gefa safninu sín séreinkenni. Bemard Huin segir að hann vilji leggja áherslu á þær breytingar sem koma fram með popphstinni þegar hið hefðbundna mál- v'erk/hstaverk var komið í nokkurs konar blindgötu. Popplistin haíi innleitt nýjar hugmyndir og for- sendur til listsköpunar. Að öðru leyti kemur það skýrt fram í þeim listaverkum sem eru í eigu safnsins að safnstjórinn áhtur vaxtarbrodd heimslistarinnar síðastliðna ára- tugi hafa legið umfram aht í högg- myndahstinni. í raun sýnir Huin að ekki er lengur um að ræða högg- myndahst heldur rýmishst, hvort sem er heldur á vegg eða gólfi. Og víst er að val safnstjórans einkenn- ist af óvenjumikilli þekkingu og innsæi í alþjóðlega nútímahst. Og safn hans á án vafa eitt stórfengleg- asta úrval nútimahstar í heiminum í dag. Frægasti hstamaðurinn, sem á verk á sýningunni á Kjarvalsstöð- um, er líklega Andy Warhol. Verk hans, sem íslendingum gefst kostur á að sjá, eru málverk af Campbeh’s súpudósum en Warhol gerði marg- ar útgáfur af dósum þessum á ferh sínum. Verk eftir Warhol hafa áður verið sýnd hér á landi, sömuleiöis verk þriggja annarra sem eru á sýningunni nú. Þeir eru Frank Steha, Richard Long og Donald Judd. Þeir tveir síðastnefndu áttu verk á sýningu Nýhstasafnsins á hstahátíð í fyrra en grafíkmyndir eftir Steha hafa verið sýndar í Menningarstofnun Bandaríkjanna. Sýningin á Kjarvalsstöðum er einstæður hstviðburður og ein- stakt tækifæri fyrir landsmenn til að sjá og njóta meistaraverka sam- tímans á einum og sama stað. Snæfellsás 89: Veitingah ús vikunnar: xVJlO. • 1 LlgOl- an **ywr*TrvV Odri - sjá JtCUC bls. 18 ÍKr nttir helgar- iriridr - sjá bls. 23 Sui nar- CVI linv FÍM - sjá bls. 20-21 Sumar- búðir ba - sjá xna bls. 19 Leik] til J ' • rm - sja b liópur apán ls. 20-21 Mannrækt undir Jökli Áhugamenn um mannrækt flykkj- ast vestur á Snæfehsnes um helgina þar sem haldið verður mótið Snæ- fehsás 89 - Mannrækt undir Jökli. Að þessu sinni fer það fram á Brekk- ubæ á Hellnum. Þetta er þriöja mót sinnar tegundar sem haldið hefur verið á landinu, en þar kemur saman fólk sem aðhyllist mismunandi lífs- skoðanir. Megintilgangur mótsins er að kynna stefnur og strauma í hfsvið- horfum sem sækja á dýpri mið en hvunndagslífið. Mótið hefst snemma á laugardags- morgun og er dagskrá þess mjög fjöl- breytt. Meðal þess sem boðið er upp á er elddans, eins og í Viðey um síð- ustu helgi, skyggni, draumar, Tai Chi, orkuhugleiðsla, Hare Krishna, hugefli, huglækningar, fæðubótar- ráðgjöf, lífræn húðrækt, fornegyp- skar launhelgar og margt fleira. Nokkrir leiðbeinendur verða á mót- inu, bæði innlendir og erlendir, og munu þeir bjóða upp á einkatíma og halda námskeið. Meðal þeirra sem þar koma fram er Ævar R. Kvaran. Leikkonurnar Herdís Þorvaldsdóttir og Helga Jónsdóttir flytja leikþátt og lesa ljóð. Hápunktur mótsins verður helgi- stund við svokallaða Lífshnd á Helln- um. Við helgistundina verður af- hjúpað ítalskt marmaralíkneski af Maríu mey, sem komið verður fyrir við lindina um helgina. Sögur herma að þegar Guðmundur Arason biskup hafi verið á vísitasíu um Snæfellsnes árið 1230 hafi María mey birst honum og beðið hann um að helga hndina. Biskup gerði það og síðan hefur ver- ið tahð að vatnið byggi yfir lækninga- mætti. Helgistundin hefst kl. 11 á sunnudag og þar mun séra Rögn- valdur Finnbogason á Staðastaö flytja hugleiðingu. Á Brekkubæ hefur áhugafólk um mannrækt tekið sig saman og byggt upp andlega miðstöð þar sem aðstaða verður til mótshalds og námskeiða. Tjaldstæði eru á mótssvæðinu og við það, en einnig er hægt að tjalda á túninu við Arnarbæ. Aðgangseyrir er 3000 krónur, en ókeypis fyrir böm 15 ára og yngri. í listasalnum Nýhöfn við Hafnarstræti stendur nú yfir sumarsýning með verkum fjölmargra núlifandi listamanna sem og gömlu meistaranna. Sýning- in er opin virka daga kl. 10-18 og eru öll verkin til sölu. Reykjanes: Síöan skein sól: Ferðalok á, Borginni Hljómsveitin Síöan skein sól ætl- verið aö kynna efni af væntanlegri mannahelgina veröur haldið á ar að reka endahnútinn á tónleika- breiöskífu en hljómsveitin fer í rokkhátíðina miklu í Húnaveri. ferð sína um landið með hljómleik- hljóðver í ágúst. Tónleikarnir á Liðsmenn Síðan skein sól eru um á Hótel Borg í kvöld og leika Borginni hefjast kl. 22. þeir Eyjólfur Jóhannsson, Helgi piltamir eingöngu á órafmögnuð Á morgun leikur hljómsveitin Bjömsson, Ingólfur Sigurösson og hljóðfæri. svo fyrir dansi á Hlöðum á Hval- Jakob Smári Magnússon. Liðsmenn Síðan skein sól hafa fjarðarströnd en um verslunar- Gróður og dýraríki rannsakað Náttúmverndarfélag Suðvestur- lands efnir til dagsferðar um Reykja- nesskagann á morgun, laugardag, til skoðunar á ýmsum þáttum úr gróð- ur- og dýraríki. Á leiðinni verður staðnæmst á eftirtöldum stöðum: Tóum í Afstapahrauni, Hrafnagjá, Vogavik, Snorrastaðatjömum, Garð- skaga, Ósabotnum, Valbjamargjá, Arfadalsvík, Latsfjalli, Seltúni og skóglendi í Almenningum. Lagt verður upp frá Náttúrufræði- stofu Kópavogs að Digranesvegi 12 kl. 9. Leiðsögumaður verður Stefán Bergmann líffræðingur og lektor við KHI. Komið verður th baka um kl. 18. Tilgangur ferðarinnar er m.a. að skoða nokkra fásótta en fagra staði á Reykjanesi og kynnast sérstæðu lífríki þeirra, ræða ástand gróðurs og dýralífs og samskipti manns og náttúm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.