Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Síða 8
24 FÖSTUDAGUR ál. JÚLÍ 1989. Mynd- bönd Umsjón: Sigurður M. Jónsson Hiimar Karlsson V Þessa vikuna gerist þaö sama og í síðustu viku. Fyrstu tvær mynd- imar á listanum skipta um sæti. Empire of the Sim sest í fyrsta sætið og Big, sem hefur verið þaul- sætin í toppsætunum, fer í annað sætið. Þessar myndir mega þó vara sig á sakamálamyndinni D.O.A. sem siglir hraðbyri upp hstann og fer úr því tíunda í það þriðja. Það ætti ekki að koma neinum á óvart þótt hún yrði í efsta sætinu í næstu viku. Tvær nýjar myndir koma inn á listann. Ber þar fyrst að nefna tán- ingamyndina Licence to Drive sem fjallað er nánar um annars staðar á síðunni og sakamálamyndina í skugga morðs sem leikstýrt er af John Badham sem er þekktur spennumyndaleikstjóri. DV-LISTINN 1. (2) Empire Oí the Sun 2. (1) Big 3. (10) D.O.A. 4. (3) Midnight Run 5. (4) The Great Outdoors 6. (-) Licence to Drive 7. (5) Real Men 8. (6) Red Heat 9. (7) Nico 10. (-) í skugga morðs Fyrirsjánlegur dauði DEAD ON ARRIVAL (D.O.A.) Útgefandi: Bergvik Leikstjóri: Ricky Morton og Annabel Jankel. Handrit: Charles Edward Pogue. Aðalhlutverk: Dennis Quaid, Meg Ryan og Charlotte Rampling. Bandarísk 1988. 93 mín. Bönnuð yngri en 16 ára. Dennis Quaid er líklega með efhi- legri leikurum í vesturheimi og hefur að undanfömu fengið hlut- verk í nokkrum athyghsverðum spennumyndum (Innerspace). Honum svipar nokkuö til Harri- sons Ford og það spillir ekki fyrir pilti. Quaid er kröftugur leikari með ríkulega kímnigáfu. Þó að hér sé ekki á ferðinni neitt gamanmál þá tekst honum að vekja samúð með persónu prófessorsins. Prófessor þessi kemst aö því að honum hefur verið byrlað eitur og hann á aðeins einn sólarhring eftir á lífi. í stað þess aö sitja með hend- ur í skauti fer hann á stúfana til að komast að þvi hver myrti hann. Þetta er forvitnilegur söguþráður sem minnir á gamla leynilögreglu- sögu. Þá er myndataka sérstæð og ýtir vel undir þau hughrif sem söguþráðurinn vekur. Það em þó alvarlegir hnökrar 1 handritinu. Það er skipt nokkuð hratt á milli timaskeiða og gengur það ekki að fuhu upp. Þá vekur hinn fyrirsjá- anlegi dauði nokkrar spumingar í lokin en endirinn verður að teljast mistök. -SMJ Sykursæt harmsaga BREAKING HOME TIES Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: John Wilder Aóalhlutverk: Jason Robards, Eva Marie Saint og Douglas McKeon Bandarísk, 1987 - sýningartimi 100 min. Leyfö öllum aldurshópum Breaking Home Ties er bandarísk sjónvarpsmynd sem segir frá ung- um pilti sem er að byrja langskóla- nám. Foreldramir styðja vel við bakið á honum og framtíðin blasir við piltinum. Það er þó ekki aht sem sýnist. Móðir hans gengur meö hættulegan sjúkdóm sem mun draga hana tíl dauða. Hún tekur loforð af eiginmanni sínum að segja ekki syninum hvað um sé að vera. Skapar þetta togstreitu mihi feðg- anna og heldur sonurinn að faðir hahs sé orðinn honum fráhverfur. Eldri hjónin em leikin af úrvals- leikurunum Jason Robards og Eva Marie Saint og ná þau góðum tök- um á hlutverkum sínum. Fara aldrei yfir strikið í dramatískum leik þótt thefiii gefist. Annað er upp á teninginn hjá Douglas McKeon er leikur son þeirra. Ofleikur hans og kunnáttuleysi nánast eyðheggur myndina. Að vísu er honum nokk- ur vorkunn því sum atriðin sem hann þarf að leika í eiga betur heima í dramatískri mynd frá tím- um þöglu myndanna en nútíma sjónvarpsmynd. -HK Róttækur tónlistannadiir IMAGINE JOHN LENNON Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: Andrew Solt. Bandarisk, 1988 - sýningartími 99 min. Bönnuó börnum innan 12 ára. Á sínu stutta lífskeiði var John Lennon umdeildur maður en um leið virtur af meðbræðrum sínum. Hann er einn af stórsljörnum tón- hstarsögu tuttugustu aldarinnar og sem talsmaður The Beatles opin- skár og deildi í hreinskhni á það sem honum fannst miður fara í heiminum. Imagine John Lennon er heimhd- armynd sem auk þess að sýna opin- berar kvikmyndir af honum er mikið th unnin úr einkasafni hans og eiginkonu hans, Yoko Ono, sem var jafnvel enn umdeildari en Lennon sjálfur. í myndinni kynnumst við John Lennon með orðum hans sjálfs, en texti myndarinnar er að langmestu leyti tekinn úr viðtölum við hann og samtölum við aðra. Enginn vafi leikur á því að Lenn- on var flókinn persónuleiki sem erfitt er að átta sig á. Ýmis uppá- tæki hans voru umdeilanleg þótt ávaht hafi hann verið samkvæmur sjálfum sér. í Imagine John Lennon er stiklað á stóru um athafnir hans - athafn- I M A G I N E ISLENSKUR TEXTi m ir sem alhr þekkja sem fyldust með heimsmálum á árunum um og eftir 1970. Þá er einnig mikið fjallað um samband hans og Yoko Ono, og úr einkasafni þeirra hjóna koma þær myndir sem ekki hafa sést áður. Imagine John Lennon er sem sagt gerð með leyfi og dygghegri aðstoö ekkju Lennons, Yoko Ono, og er það stærsti gahi myndarinnar. Við kynnumst Lennon frá sjónarhorni aðdáanda sem að sumu leyti skap- aði hinn róttæka Lennon er leit dagsins ljós eftir að The Beatles hætti. Sá hluti sögunnar um Lennon er þó sannfærandi og þar kynnast áhorfendur manni sem var stund- um ekki sáttur við thveru sína, samdi gullfaheg lög sem munu óma um ókomna framtíð og virtist kunna best við sig í fjölskylduhópi. Sá hluti myndarinnar sem fjallar um The Beatles er ekki jafn vel heppnaður. Að vísu ijahar myndin um John Lennon en áhorfandinn fær það yfir sig að Lennon hafi verið aht í öhu í hljómsveitinni, sem er alrangt. Þótt vissulega hafi John Lennon verið áhrifamikih innan hljóm- sveitarinnar þá var The Beatles skipuð fjórum einstaklingum sem hver fyrir sig lögðu grunninn að því að gera hljómsveitina að áhrifa- mestu hljómsveit sem enn hefur komið fram. Imagine John Lennon gefur áhorfandanum mörg tækifæri th vangaveltna um ævi John Lennon og þann boðskap sem hann lét frá sér fara á stuttri en stormasamri ævi. Hann var hreinskilinn og leit- andi persóna sem átti sjálfsagt jafn- marga óviiji sem og vini. I hehd gefur Imagine John Lennon góða lýsingu á honum þótt nokkrir ann- markar komi í ljós þegar htið er á heimildagildihennar. HK Öku- leikni LICENSE TO DRIVE Útgefandí: Steinar. Leikstjóri: Greg Beeman. Handrit: Neil Tolkin. Framleiðandi: Jeffrey A. Mueller og Andrew Licht. Aðalhlutverk: Corey Haim, Corey Feldman og Richard Mas- ur. Bandarísk 1988. Úllum leyfó. Bandaríkin eru land bhsins og að sjálfsögðu verða menn ekki fuh- ghdir þjóðfélagsþegnar nema þeir geti fhkaö ökuskírteini. Myndin segir frá ungum phti sem dreymir vihta drauma um það dásemdar líf sem uppheflist eftir að hann fái skírteinið. Því miður fyrir phtinn fellur hann á prófinu. Hann ákveð- ur þá að þykjast bara og leggur upp í mikinn bhtúr með kunningjunum á kádhják afa síns. Á köflum bregöur fyrir bráð- skemmtilegum húmor og er t.d. bílprófsatriðiö óborganlegt. Fleiri atriði eru mjög fyndin og kemur myndin á óvart því oft á tíðum eru unghngamyndir (sem þessi óneit- anlega flokkast undir) með heldur klén handrit. Þá er leikur þeirra nafna í aðalhlutverki ágætur þó að ofleikur hijái dálítið annan þeirra. -SMJ Draugagangur BRIDE OF MR. BOOGEDY Útgefandi: Bergvik/Walt Disney Leikstjóri: Oz Scott. Handrit: Michael Janover. Aóalhlutverk: Richard Masur, Mimi Kennedy, Tammy Lauren, David Faustino, Joshua Rudoy. Bandarisk 1987. 89 min. Bönnuð mjög ungum börnum. Bandarísk flölskylda flytur út á land þar sem draugarnir láta ófriö- lega. Hún kemst í kast við einn ih- skeyttan sem vhl hrifsa th sín mömmuna. Pabbi og börnin sætta sig auðvitaö ekki við það og upp- hefst mikh barátta viö draugsa. Dæmigerð Walt Disney barna- myndaframleiðsla með vönduðum leik og þokkalegri sviðsmynd. Myndin mun vera framhaldi af ein- hverri annarri og er nokkuð klifað á því. Draugsi er ansi skæður á köflum og því varasamt að láta mjög ung börn horfa á. Aðrir ættu að geta skemmt sér yfir þessum draugagangi. -SMJ Varúlfar á sveimi HOWLING III - THE MARSUPIALS Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: Philippe Mora. Aóalhlutverk: Barry Otto, Imogen An- nesley og Barry Humphreys. Áströlsk, 1987 - sýningartimi 94 min. Bönnuó börnum innan 16 ára. Sumar kápur á myndböndum gefa ranga mynd af innihaldinu og ein slík prýðir Howling III - The Marsupials. Á kápuhulstri má sjá ófreskju sem gæti verið komin beint úr Ahen myndunum en er hvergi að finna þegar myndin er skoðuð. Þótt svo varúlfar séu í hug- um manna ófreskjur þá eru þær í þessari mynd varla óhugnanlegri en grimmur hundur. Það er fleira sem kemur á óvart. Howhng Ih flallar um varúlfa. Sem eru samkvæmt sögnum mennskt fólk sem breytist í grimma úlfa þegar fullt tungl er. Aðalpersónan er Jeroba, ung og falleg stúlka sem sleppur úr varúlfanýlendu ein- hvers staðar í eyðimörk Ástralíu og stingur af th Sidney. Þó að hún að ytra úthti líti út fyrir að vera eins og annað fólk getur hún ekki hamiö það vhlta eðh sem býr í henni þegar rökkva tekur og fullt tungl rís. Ekki er söguþráður Howling III merkilegur og heldur er handritið iha skrifað en greinilegt er að kunnáttumaður situr í leikstjóra- sætinu og því verður myndin aldrei leiðinleg á að horfa. Nokkur atriði eru virkilega vel gerð og spennandi og ekki eru varúlfarnir í myndinni sýndir sem skepnur sem áhorfand- inn fær fyrirlitningu á heldur eru þessar ólánsömu manneskjur sýndar með tilfmningar og þrár rétt eins og aðrir menn. HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.